Morgunblaðið - 23.01.1963, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 23.01.1963, Blaðsíða 6
6 MORGU NBLAÐIÐ Miðvikudagur 23. janúar 1963 * KVIKMYNDIK ★ KVTKM [R * KVTKMYNDIR Háskólabíó: PSYCHO. Alfred Hitchcock, sem stjórnað hefur fjölda sakamálamynda, enda gert þær að sérgrein sinni, er án efa einn allra snjallasti leik stjórinn á þessu sviði, sem nú er uppi. Margar kvikmyndir hans hafa verið sýndar hér og alltaf við geysimikla aðsókn, en mynd sú sem hér er um að ræða er talin meðal beztu mynda hans og ætti það að vera henni nægileg með- mæli. Ungri stúlku, Marion Crane (Janet Leigh), hefur verið falið að koma fyrir til geymslu í banka 40 þúsund dollurum, en hún á- kveður að stela þeim. Hún heldur því út úr borginni og dvelst næt urlangt á afskekktum gististað. Eftir það spyrst ekkert til hennar. Leynilögreglumanni tekst að rekja feril hennar en þá hverfur hann líka. Elskhugi Marion og systir hennar taka nú málið í sínar hendur og tekst með að- stoð annarra lögreglumanna að leysa morðgátuna. Kemur í ljós að morðinginn er brjálaður mað- ur, haldinn óhugnanlegum per- sónuklofningi, sem er orsök glæpa hans . . . Mynd þessi ber ljóst vitni hin- um frábæru vinnubrögðum Hitch cock’s, nákvæmri, allt að stærð- fræðilegri byggingu efnis og at- burðarásar og óhugnanlegu and- rúmslofti sem verður ennþá á- hrifameira vegna hinna sterku og hrollvekjandi andstæðna í fari morðingjans. Auk þess er myndin afburðavel sviðsett að öðru leyti og sérstaklega vel tekin og vel leikin, þar ber af eftirminnilegur leikur Anthony Perkins. fanginn af Káthi og hún af hon- um, en er prinzinn hefur dvalizt þarna nokkra mánuði, er hann kallaður heim. Verður þeim elsk endunum skilnaðurinn sár og þungur, en Karl-Heinrich heitir Káthi því að koma aftur. Hann gerir það að vísu, en ekki fyrr en eftir tvö ár, því að skyldustörf in heima fyrir hafa varnað hon um þess að efna fyrr heit sitt. Og nú hefur hann tekið við af furst anum, frænda sínum, sem er lát- inn, og auk þess stendur brúð- kaup hans, með tiginborinni konu fyrir dyrum, reyndar að honuxn nauðugum. Hann og Káthi hittast nú aftur í sælu og sársauka stutta stund og kveðjast svo fyrir fullt og allt. Það er mikil glaðværð og söng ur í þessari mynd, en ekki verður hjá því komist að tilfinninga- semi gæti þar við og við. Aðal- hlutverkin, Karl-Heinrich og Káthi leika þau Christian Wulff og Sabine Sinjen, bæði lagleg og geðfelld og fara vel með hlutverk sín. Lutz, herbergisþjón prinzins, leikur gamall kunningi okkar, Walter Bluhm, sem alltaf er skemmtilegur og Kellermann, gamla kjallarameistarann, leikur Ludwig Linkmann og gerir hlut verkinu ágæt skil. Áætlunarbíl ekið frá Reykjavík til Reyðarfjarðar á 33 tímum um hávetur Austfjarðaleið hf. tekin til starfa REYÐARFIRÐI, 21. jan. FRÉTTAMAÐUR Mbl. á Reyð- arfirði hitti að máli Sigfús Krist insson, frkvstj. hins nýstofnaða hlutafélags AUSTFJARÐALEIÐ h.f., en Sigfús ók sl. fimmtudag 17 manna bifreið frá Reykjavík til Reyðarfjarðar. Aðspurður um fyrirhugaða starfsemi hins nýja hlutafélags, fórust Sigfúsi orð á þessa leið: — Austfjarðaleið tekur fyrst og fremst að sér áætlunarferðir milli Akureyrar og Austfjarða. Ákveðið er að fjölga ferðum á þessari leið úr tveimur í þrjár í viku, og einn mánuð yfir sum- arið er ráðgert að fara daglega milli þessara staða. Verða ferðir þessar í beinu sambandi við næt urferðir Norðurleiðar að sunn- an. Sigfús var nú spurður um frek ari bætta þjónustu á áætlunar- ferðum milli einstakra fjarða á Austurlandi. Hann svaraði á þessa leið: — Eins og kunnugt er, er sam göngum við og á Austurlandi mjög ábótavant, bæði á sjó Og landi. Hvað áætlunarferðir á landi snertir, eru það þó eink- um suðurfirðirnir, sem illa eru settir. Það er leiðin Reyðarfjörð- ur-Hornafjörður. Við h'ifum hugsað okkur að taka upp ferð- ir þar milli, minnst eina ferð i viku yf}r sumarið. — Hvað er svo að segja um ferðina hingað austur frá Reykja vík? — Ferðin gekk framar öllum vonum. Upphaflega hafði ég ætl að mér að fá bifreiðina flutta með ms Esju, en fékk það ekki. Leitaði ég þá upplýsinga Veð- urstofunnar, og þar sem hún gerði ráð fyrir áframhaldandi góðviði, ákvað ég að reyna land leiðina austur. Að tilhlutan frkvstj. Norðurleiðar hf., Birgis Ágústssonar, sem vildi ekki, að ég færi einn alla þessa leið, sendi hann með mér traustan mann, Guðmund Sigurjónsson. Ekki urðu neinar teljandi tor- færur á leið okkar Guðmurdar, fyrr en við komum austur fyrir Möðrudal. Þar hrepptum við nokkurn skafrenning, en alls staðar var þax harðfenni. Það kom sér vel, því að við urðum að aka utan vegar frá vestn fjallgarði austur að eyðibýlinu Rangalóni á Jökuldalsheiði. Á þessari leið nutum við öruggrar leiðsagnar bændanna í Möðru- dal, sem fylgdu okkur yfir þenn- an áfanga. Komið var þá myrk- ur og við lítt kunnugir þax ut- an v'gar. Ferðin til Reyðarfjarðar tók alls 33 tíma, og er ekki vitað til þess, að áætlunarbifreið hafi áður verið ekið þessa leið í miðjum janúarmánuði. — A. Þ. Nýja Bíó: ALT HEIDELBERG. Margir hér munu kannast við Alt Heidelberg, þetta gamla og róman tíska leikrit eftir Wilhelm Först- er, sem sýnt var hér í Iðnó fyrir mörgum árum við miklar vinsæld ir. Margar kvikmyndir hafa verið gerðar eftir leikritinu og mun þessi mynd vera nýjasta útgáfan og kannski sú skemmtilegasta. Segir þarna frá Karl-Heinrich erfðaprinzi af Sachsen-Karlsburg, sem kemur til Alt Heidelberg til þess að stunda nám við Háskól ann þar. Hann sezt að í vistlegu gistihúsi í borginni og kynnist þar Káthi, ungri og fallegri stúlku frænku gistihússeigandans, en hún er ákaflega dáð af hinum ungu og glaðværu stúdentum, sem eru tíðir gestir í gistihúsinu. Ungi prinzinn verður þegar ást- • Frá Rafveitu Hafnarfjarðar „Vegna skrifa í Velvakanda varðandi orðsendingu frá Raf- veitu Hafnarfjarðar um inn- heimtu sameiginlegra rafmagns reikninga, óskast tekið fram, að sérhverjum rafmagnsnotanda á orkuveitusvæði Rafveitu Hafn- arfjarðar verður send með næsta rafmagnsreikningi grein- argerð um málið. Rafveitustjóri Gísli Jónsson". • Sektarheimildir skattayfirvalda og útvarpsþáttur J. M. sendir Velvakanda þetta skelegga bréf: „Andrés Kristjánsson rit- stjóri flutti þáttinn „Um dag- inn og veginn" í útvarpið 21. þ. m. Til að forðast misskilning vil ég geta þess strax, að ég er óbreyttur skattborgari og á engan hátt tengdari skattayfir- völdum en hver annar. Veru- leg ástæða er til að gera at- hugasemdir við þann þátt er- indis A. K, er fjallaði um sektarheimildir skattayfirvalda. Annað hvort vissi maðurinn klárlega ekki hvað hann var að tala um, eða hann var að gera tilraun til að slá sig til riddara á mjög vafasaman hátt (plebeiskan). Ritstjórinn hneyklast stór- lega á því, að skattayfirvöld- um skuli veitt lagaheimild til að beita viðurlögum í vissum tilfellum (við trassana og þá sem svíkja undan skatti); hann tekur jafnvel svo djúpt í ár- inni að halda því fram, að hér sé verið að brjóta mannrétt- indaákvæði stjórnarskrár okk- ar. Hvílík fjarstæða! Sams kon- ar sektarheimildir og hér gilda eru í skattalögum nágranna- landanna og þar taldar sjálf- sagðar. Það eru trassarnir (ég hef verið einn af þeim), sem ekki skila skattskýrslum sínum á réttum tíma. Þeir, sem hafa frambærilegar ástæður, fá frest, svo sem verið hefur, þótt nú séu gerðar strangari kröfur í þessu efni en áður. Ritstjórinn nefndi ekki veiga mikil atriði, er hann ræddi þessi mál, annað hvort af ásettu ráði eða fávizku einni saman, og á ég þar við, að hann sleppti alveg að geta þess að kæra má álagningu viðkomandi skatt- stjóra til ríkisskattanefndar, sem þarf að rökstyðja úrskurð sinn eins og dómstóll, og einnig, að dómstólar landsins eiga í mörgum tilfellum hér seinasta orðið, eins og þeir vita, sem kunnugir eru í þessum málefn- um. • Vill hann aukna skriffinnsku? Títt-nefndur ritstjóri gerði samanburð og gat þess m. a.. Síldarbátarnir f óru út AKRANESI, 22. jan — f gær lönduðu hér 3 línubátar, samtals tæpum 13 lestum af fiski. Mestan afla hafði Ásmundur, 5 lestir, annar Fram með 4,5 og Skipa- skagi þriðji með 3.3 lestir. Hollenska skipið Josine tók í gær á áttunda hundrað tunnur af saltsíld. Irene Friis kemur með saltfarm hinagð á morgun. Hingað koma og á morgun Axel Sif og lestar saltsíld. Goðafoss kemur og á morgun. 7—8 síldarbátar fóru út á veið ar í dag eftir langa landlegu. All ir hinir eru búnir að taka nælon næturnar í land. — Oddur. að bankar gætu ekki „sektað", án atbeina dómstólanna, þá víxilskuldara, sem ekki standa í skilum. Hér veit maðurinn enn ekki, hvað hann er að fara. Bankar innheimta vanskilavíxla oft með verulegum innheimtu- kostnaði, hafa enda heimild til þess með sínum lögfræðingum. Þessi blessaður ritstjóri og vandlætari vill svipta skatta- yfirvöldin þessum sjálfsögðu sketarheimildum og láta al- menna dómstólana eina um að sekta. Hræddur er ég um, að maðurinn geri sér ekki grein fyrir hinni stórauknu, algjör- lega þarflausu skriffinnsku, og um leið kostnaði, sem af hans tillögum myndi hljótast, þar sem m. a. þyrfti að fjölga dóm- araembættum verulega í land- inu. (Núverandi dómstólar hér á landi gætu ekki bætt slikum verkefnum við sig sökum anna). Að lokum þetta: Strangari að- haldsskylda með að skila skatta skýrslum á réttum tíma er sjálf sögð, bæði er það gott fyrir framteljandann að ljúka þessu af á réttum tíma í staðinn fyrir oft á tíðum að sækja um fresti á fresti ofan, og eins hafa skatta yfirvöld betri tíma til að vinna úr þeim gögnum, sem þeim ber ast, og er augljóst, hversu þýð- ingarmikið það er. Framtíðin á áreiðanlega eftir að skera úr um það, að sú stefna, sem mörkuð hefur verið með breytingum á skattalögun- um, m. a. að því er varðar skatt- framtalningu, verður til heilla, og hinn hæfi ríkisskattstjóri virðist ætla að framfylgja af röggsemi þeim breytingum, sem nú eru óðum að taka gildi. Áður en ég set punktinn undir nótu þessa skora ég nú á A. K. að ganga frá skattskýrslu sinni í kvöld, svo að hann verði nú ekki „sektaður". J. M.“,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.