Morgunblaðið - 23.01.1963, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 23.01.1963, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 23. janúar 1963 MQRGVISBLAÐIÐ 41 Sjötugur i dag: Vilhjálmur Jónsson fyrrverandi rafstÖövarstjóri VIUHJ ÁXjMUR Jónsson, fyrr- verandi rafstöðvarstjóri í Vest- mannaeyjum, er sjötugur í dag. Vilihjálmur er fæddur þann 23. jan. 1893, að Bólstað í Hvammshreppi í Vestur-Skapta- Tónleikar Tónlistar- félagsins LETTN ESK A sópransöngkonan Zermena Heine-Wagner sem kom fram á tónleikum fyrir styrktar- félaga Tónlistarfélagsins í Aust- urtaæjarbíói í gærkvöldi er fyrst og fremst óperusöngkona. Radd- magnið er óvenjulegt og tilþrif oft mikil í söngnum, en röddin er nokkuð ójöfn, einkum í meðal sterkum söng. Enda virtist söng- konan forðast það styrkleikasvið, bæði í lagavali og í meðferð við- fangsefna sinna. Af þessum sök- um urðu þrjú lög eftir Schumann blæbrigðaminni en æskilegt hefði verið. Fimm lög eftir Rachman- inov virtust láta söngkonunni bet ur, enda eru þau bæði um tónsvið og tjáningarhátt meir í ætt við óperuaríur en ljóðalög, — og virð ast í sannleika heldur glamur- kennd tónlist. I síðari hluta efnisskrárinnar voru fimm óperuaríur eftir Wagner, Massenet, Bizet og Verdi, og — inn á milli þeirra — Ave Maria eftir Bach-Gounod. Það virðist vera orðin tízka hjá Sovét- söngkonum að skreyta efnisskrár íslenzkra tónleika sinna með þessu gerviblómi, hversu fráleit- lega, sem það fer við önnur við- fangsefni, og enda þótt þær þurfi að leggja það á sig, að lesa þenn- an texta einan af blaði.— í aríun- um nutu kostir söngkonunnar sín stórum betur en í smærri verk- efnunum, og voru sumar þeirra fluttar með glæsibrag. Vilma Zirule píanóleikari að- stoðaði söngkonuna af yfirlætis- lausu öryggi. Jón Þórarinsson. fellssýslu, en fluttist með for- eldru sínum að Dölum í Vest- mannaeyjum árið 1904. Þegar raf stöðin í Vestmannaeyjum tók til starfa varð Sveinbjörn bróðir hans stöðvarstjóri, og þann 1. sept. 1918, réðist Vilhjálmur að stöðinni ,fyrst sem aðstoðarmað ur hans, en tók við stjórn henn ar ,þegar Sveinbjörn lézt, árið 1930. Því starfi gegndi hann síð- an, til haustsins 1948 ,er hann varð að ganga undir mikla læknis aðgerð og var frá störfum í fullt ár; starfaði þó á vegum rafstöðv- arinnar eftir að hann komst aft- ur til nokkurrar heilsu, og hafði þá á hendi eftirljt með raflögn- um, þangað til hann lét af störf- um fyrir aldurssakir. Hann flutt- ist til Reykjavíkur fyrir rúmu ári. Þann 11. apríl, 1925, kvæntist Vilhjálmur Nikólínu Jónsdóttur, ættaðri úr Mjóafirði; byggði litlu síðar í'búaðarhús að Hásteins veg 4, þar sem þau bjuggu allt sitt hjónaband, en Nikólína lézt þann 4. ágúst, 1958 .Eignuðust þau hjón þrjú börn, tvær dætur og einn son, sem öll eru á lífi, og dvelzt Vil'hjálmur nú hjó elztu dóttur sinni, búsettri hér í Reykjavík. Hann er enn hinn ernasti andlega, en giktin hefur leikið hann illa líkamlega og þjáð um langt skeið. Það hefur hann borið með stillingu, enda æðrulaus og jafnlyndur, en þó fastur fyrir, og mun leitun að jafn dagfarsprúðum manni. Starf sitt stundaði hann af árvekni og samvizkusemi, og naut jafnan trausts og álits allra fyrir gætni sína, lagni og vandvirkni. Það veit ég með vissu, að marg ir Vestmannaeyingar hugsa hlýtt til Villhjálms á sjötugsafmæli hans, mundu gjarnan vilja þakka honum gott starf og góða við- kynningu og árna honum alls góðs. Þær árnaðaróskir rata og eflaust rétta leið þó að Vilhjálm ur verði ekki heima í dag. Loftur Guðmundsson. THRIGE RAFMÓT ORAR THRIGE-verksmiðjurnar hafa framleitt allar stærð- ir rafmótora síðan 1894. — Gæði THRIGE rafmótora hafa alltaf reynzt ótvíræð. — Úrvals hráefni og þrotlausa nákvæmni á framleiðsluháttum ásamt ára- tuga reynslu að baki, tryggir yður sterkan, öruggan og gangvissan rafmótor. Vér höfum eftirtaldar stærðir fyrirliggjandi: 3-fasa 220/380 Volt 50 rið 1400 sn/mín. 1,0 ha. 1,5 ha. 2,0 ha. 3,0 ha. 10,0 ha. 1-fasa 220 Volt 50 rið 1420 sn/mín. 0,25 ha. 0,75 ha. # Jafnstraumsmótorar 220 V. 0,5 ha. 1400 sn/mín. -viá.* I'' 11 ***}* T-T* Einkaumboð fyrir: THOMAS B. THRIGE Odense — Danmörku. LUDVIG STORR Sími 1-3333. Tæknideild, sími 1-16-20. bbbbbbbbbbbbbtbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbb b Stjörnulyklar stakir og í settum. TOPPLYKLAR stakir og í settum. yggingavörur h.f. Siml 35697 Lougaveg 178 b b b b b b b b b b b Afgreiðslumaður Ungur maður óskast strax til afgreiðslustarfa í véla- og járnvöruverzlun. Umsóknir ásamt upplýsingum 'Uxn fyrri storf og menntun leggist inn á afgr. Mbl. tfyrir 27. þ. m., merkt: „Afgréiðslumaður nr. 127 — 3914“. —Aðeins reglusamur maður kemur til greina. GUFFEIV - MYKJUDREIFARINN Hefur reynzt framúr- skarandi vel við dreif- ingu jafn þunnrar, sem þykkrar mykju. — Nú er rétti tíminn að panta fyrir vorið. Rúmmál um 15 hl. VERÐIÐ ER um kr. 28.800,00. Dráttarvélar hf. Orðsending til Hafnfirskra verkamanna og sjómanna: Öll ákvæðisvinna er bönnuð á félagssvæði voru, nema til komi samþykki stjómar Hlífar og Sjó- mannafélagsins hvors á sínu svæði. Verkamannafélagið Hlíf. Sjómannafélag Hafnarfjarðar. Atvinna Viljum ráða bílstjóra til starfs hjá okkur. — Haim á að annast útkeyrslu á vörum. Uppl. á skrifstofunni. Sápugerðin Frigg Nýlendugötu 10. Sendisveínn ösknst hálfan daginn. — Upplýsingar á skrifstofu okkar að Suðurlandsbraut 4. Ólíufélagib Skeljungur hf. TSALA - UTSALA Okkar árlega úisala hefst í dag ■ Lífstykkjavörur “K Undirfatnaður Laugavegi 26

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.