Morgunblaðið - 23.01.1963, Blaðsíða 16
MORCUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 23. janúar 1963
E - TEAKSPÓiI
Nýkomið:
Oregon Pine — 31A”x51A\
Teakspónn — 1. flokkur.
Birkikrossviður — 3, 4 og 5 mm.
Brennikrossviður — 3 og 4 mm.
Gaboon-plötur — 16, 19 og 22 mm.
Evapon-plastplötur á borð
Hljóðeinangrunarplötur 12x12”.
Harðtex 1/8”.
Harðtex olíusoðið.
Pattexlím — Teakolía.
Væntanlegt næstu
daga:
Brenni: Allar þykktir.
Teak: 2—2 V2”
Japönsk eik 1”—2”.
Spónaplötur
10, 18 og 22 mm.
Tökum á móti
pöntunum.
Hallveigarstíg 10.
G|aldkerastarf
Stórt framleiðslufyrirtæki vill ráða ungan mann
með verzlunarskóla- eða hliðstæða menntun, sem
gjaldkera. — Gott kaup. — Framtíðarstarf. —
Tilboð merkt: „Gjaldkeri — 3952“ leggist inn á
afgr. Mbl. fyrir hádegi n. k. laugardag.
Kona óskast
við uppþvott í eldhúsi. — Einnig óskast stúlka til
afgreiðslustarfa.
Sælacafé
Brautarholti 22.
Stulku vantar
til afgreiðslustarfa í kjötbúð hálfan daginn.
Upplýsingar í Kjötbúðinni, Ásgarði 22.
17/ sölu
er veiðiskáli við Miðfjarðará í V-Húnavatnssýslu.
Húsið er um 100 ferm. að stærð með miðstöðvarhita-
kerfi, raflögn Og nýrri innréttingu í eldhúsi. —
Húsið er byggt úr samsettum flekum og því auðvelt
til brottflutnings og uppsetningar, hvar sem er. —
Upplýsingar gefa:-
FRIÐRIK ÞÓRÐARSON eða
FINNBOGI GUÐLAUGSSON,
Símar 44 og 18, Borgarnesi.
bbbbbbbbbbbbbtbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbb
b
RJmagns handverkfæri
Sagir — Smergelskífur
Borvélar — Slípivélar
Stingsagir — Heflar
yggingavörur h.f.
Sími 35697
Laugaveg 178
b
b
b
b
b
b
b
b
b
b
b
Alltaf fjðlgar VOLKSWAGi
Það er leikur einn
—__ að keyra út á Volkswagen
Eftir því sem byggðin eykst og
fólkinu fjölgar er þörfin æ
brýnni fyrir ódýran, lipran og
öruggan sendibíl.
Volkswagen sendibíllinn
er einmitt fyrir yður,—
-k Ódýr í rekstri.
★ Léttur í akstri.
ÍT Fljótur í förum.
ý< Sendibíliinn, sem
síðast bregst.
- FYRIRLIGGJANDI -
Heildverzlunin HEKLA HF.
Hverfisgötu 103 — Sími 11275.
Samkvæmt ákvörðun b~*ar-
stjórnar Hafnarfjarðar
Samanber heimild í 47. grein laga, nr. 69 1962, skulu
gjalddagar fyrirframgreiddra útsvara í Hafnarfirði
1963, vera, svo sem hér segir; með 5 jöfnum greiðsl-
um er falla í gjalddaga 1. febrúar, l.marz, 1. apríl,
1. maí og 1. júní. Ber hverjum gjaldanda að greiða
upp í útsvar yfirstandandi árs fjárhæð jafnháa,
helmingi þess útsvars, sem honum bar að greiða
næst liðið ár.
Bæjargjaldkeri.
©
©
©
Fyrirliggjandi
Birkikrossviður
3, 4, 5, 6’ 8 og 10 mm.
Spónaplötur
10, 12, 18 og 22 mm.
Gaboon
13 og 16 mm.
Húsasmiðjan
Súðarvogi 3. — Sími 34195.
Stórt herbergi
með matreiðsluaðstöðu óskast fyrir reglusaman
útlending.
P. Stefánsson
Sími 13450.
Ar Héraði
13. jan.
UNDANFARNAR 3 vikur hefií
verið stíllt og bjart veður alla
daga, en oftast mikið frost. Stund
um hefir það komizt í 20 stig.
Þetta hefir farið illa með smá
rafstöðvar við ár og læki. Vatn-
ið er þrotið, og allt beinfrosið
í pípum og stokkum. Svo mun
og vera við Grímsárvirkjun, að
þar fæst lítið, en mótorvélarnar
bæta það upp. Frostið hefir lika
náð vatnsleiðslupípum í bæjar-
hús sums staðar, svo ýmsir eiga
við erfiðleika að etja. Hins veg-
ar er góð beit, því rétt fyrir jólin
gerði góða hláku, svo gamall
svellgaddur þvarr mikið.
BJÖRN Á RANGÁ
Þann 30. nóv. var til moldar
borinn á Rangá, Björn bóndi
Hallsson, eftir langvarandi van-
heilsu, nær 87 ára gamall, fædd
ur 21. nóv. 1875. Björn var einn
mesti framfara- og athafnamað-
ur um sína daga. Hann var dugn
aðarbóndi og umbótamaður, en
gegndi auk þess ótal félagsmála-
st.rfum, var hreppstjóri yfir 50
ár, alþingismaður um skeið, í
stjórn búnaðarsambands, kaup-
félags og fleiri félagsmálasam-
taka, sem of langt er upp að
telja. Hann var hvarvetna hin
styrka stoð, sem allir báru traust
til.
VEL LÁTIN SYSTKIN
Fyrir réttri viku varð það
hörmulega slys á Fagradal, að
jeppi með þremur mönnum valt
út af veginum í svokölluðum
Skriðum neðst í dalnum. Jepp-
inn valt fyrst niður skriðurnar,
en síðan ofan fyrir allháa kletta
niður í ána. Þarna vonx þrjú
systkin á ferð, Einar og Hall-
dóra, búsett í Egilsstaðaþorpi, og
Vigfús, af Norðfirði. Halldóra
lézt þegar, en Vigfús eftir fáa
daga. Líkur eru til að Einar
jafni sig, enda hafði hann fljótt
hrokkið út úr bifreiðinni, og
valt lítið niður. Þessi systkin
eru börn Einars Sölvasonar Jóns-
sonar á Víkingsstöðum á Völl-
um, og Bergljótar Einarsdóttur
Guttormssonar í Hrafnsgerði.
Ekkert þeirra hefir gifzt. Einar
og Halldóra hafa lengi búið sam
an um skeið upp í Sviðdal, en
Vigfús bjó með Ragnhildi Jón-
asdóttur frá Fannardal í Norð-
firði. Ekkert þeirra á afkom-
end-ur. Öll voru þau vinsæl og
vel metin.
JARÐHITI
f Út-Fellum eru nokkur stöðu
vötn milli fellanna og hárra ása.
Lengi hefir það verið álit ýmissa,
að jarðhiti væri í einu þeirra,
Urriðavatninu. Þar eru auðar
vakir og göt á vetrum, sem lítt
eða ekki leggja á nokkru svæði.
Nú skrapp hingað maður að
sunnan með mæli, fann þrjú göt
á hinum þykka ísi, þótt dimmt
væri af nóttu, og 25 stiga hiti
í einu þeirra.
Ég gekk um þetta hættusvæðl
einn mikinn frostavetur, og sá 8
eða 10 holur í hinn þykka ís, sem
lágu í beinni röð inn með land-
inu. Má æla að þarna sé sprunga
sem gufubólumar koma upp um.
Nú er mikil nauðsyn að rann-
saka þetta rækilega, sem allra
fyrst.
AFMÆLI
SVEINS Á EGILSSTÖÐUM
Þá er það allra nýjasta, að 8.
þ.m. átti stórbóndinn og garp-
urinn Sveinn Jónsson á Egilsstöð
um, 70 ára afmæli. Margir komu
tii hans um kvöldið og sátu lengi
nætur við ágætar veitinigar,
glaum og gleði. Ræðurnar voru
margar, kvæði komu lí'ka og gjaf-
ir, og mjög mikið var sungið,
G.H.