Morgunblaðið - 23.01.1963, Side 24
Fékk kaðal
í augað
um borð í Röðli
í FYRRAKVÖLD fór Sveinr
Jónsson, Breiðagerði 7, urn
borð í togarann Röðul, er
hann hefur verið til aðstoðar
Kára Kristjánssyni, vélaskoð-
unamanni hjá Skipaskoðun
ríkisins, við rannsókn vegna
eiturefnanna um borð í Röðli.
Vildi svo illa til að kaðall
slóst í auga Sveins. Gat hann
óþæginda í auganu og fór á
Slysavarðstofuna um morg-
uninn. Kom þá í ljós, að hann
hafði fengið sár á augað. Var
hann í rúminu í gær og gat
ekki skrifað þær skýrslui
um athuganir sínar, sem han r
hafði ætlað sér.
Líðan
Röðuls-
VATNSROR sprakk við Mela'
torg árla í gærirorgun og
truflaði alla umferð nokkurn1
tíma .Ljósmyndari Mbl. Sv.þ.
tók meðfylgjandi mynd af
Haga-strætisvagninum þeg-
ar hann ekur um „flóða-
svæðið“. Farþegarnir eru fáir,
aðallega krakkar og unglingar
á leið í skóla. „Eg hef aldrei
lent í öðru eins vatnsflóði á
götum Reykjavíkur," sagði
Kjartan Þórólfsson strætis
vagnstjórinn í samtali við
blaðamann Mbl. — Nánari
frásögn af flóðinu er á bls 3.
Ljósm. Mbl. Sv. Þ. I
Reykjanes
kjördæmi
AÐALFUNDUR Kjördæmisráðs
Sjálfstæðisflokksins í Reykjanes
kjördæmi verður haldinn fimmtu
daginn 24. þ.m. í Sjálfstæðishús-
inu í Kópavogi. Fundurinn hefst
kl. 21.
Konan kom fram
KONAN á Akranesi, sem auglýst
var eftir í útvarpinu í fyrrakvöld
bom heim til sín skömmu eftir
miðnætti í fyrrakvöld. En ótt-
ast var um hana, er henni dvald
ist svona lengi úti, þar eð hún
hafði barn sitt með sér. Hafði
hún verið í heimsókn í húsi á
Akranesi.
IATA heimilar SAS að hefja
ferðir með skrúfuvélum 1. okt.
Ldgu fargjöldin gilda aðeins fyrir íbúa
Norðurlanda og USA
Stokkhólmi, 22. jan.
—- (AP — NTB — TT) —-
ATK V ÆÐ AGREIÐSLUNNI
innan IATA — alþjóðasam-
bands flugfélaga lyktaði svo,
að samþykkt var að mæla
með því, að Norðurlanda-
flugfélaginu SAS verði heim
ilað að hefja ferðir með
skrúfuvélum yfir Atlantshaf-
ið, og selja fargjöld lægra
verði en önnur flugfélög. Ná
Telpa fyrir bíl
í GÆRDAG varð 5 ára telpa,
Margrét Gylfadóttir, Langholts-
vegi 190, fyrir bíl á Langholts-
vegi. Hlaut hún meiðsli á höfði
og var flutt í slysavarðstofuna.
Meiðslin voru ekki talin alvar-
legs eðlis.
hin lágu fargjöld aðeins til
íbúa Norðurlandanna og
Bandaríkjanna — og sala
þeirra og auglýsing er bund-
in þeim löndum. Heimildin
af hálfu IATA gildir frá 1.
október n. k.
Einn af forstjórum SAS, Arne
Wickberg, sagði í viðtald við
fréttamenn í dag, að með úrslit-
um atkvæðagreiðslunnar hafi
félagið færzt enn eitt skref í
rétta átt. Á hinn bóginn er end-
anleg afgreiðsla málsins í hönd-
um ríkisstjórna Noregs, Svíþjóð-
ar og Danmerkur.
SAS hefur nú þegar hafið
undirbúning að hinni nýju ferða
áætlun, samkv. heimild IATA,
sem kveður á um fjórar ferðir
mest vikulega hvora leið, annað
hvort með viðkomu á íslandi
eða Grænlandi — eða án við-
komu, eftir því sem SAS telur
bezt henta.
SAS er aðeins heimilt að selja
fargjöld á lægra verði til þeirra,
er fastan bústað hafa annað
hvort í Bandaríkjunum eða Norð
urlöndum. Og sala og auglýsing
farmiða við hinum lágu gjöld-
um er algjörlega bundin við
Norðurlönd og Bandaríkin.
manna betri
Mbl. leitaði í gærkvöldi frétta
af líðan sjómannanna á Röðli,
sem liggja í sjúkrahúsi í Vest-
mannaeyjum og í Borgarsjúkra-
húsinu.
Skv. upplýsingum sjúkrahús-
læknisins í Vestmannaeyjum er
annar sjúklingurinn þar, Þór
Reynir Jónsson, mjög að hress-
ast og er hann kominn á fætur,
en hinn Brynjar Valdimarsson,
er enn við svipaða heilsu.
Óskar Þórðarson, yfirlæknir á
Borgarsjúkrahúsinu sagði að
heilsa sjúklinganna, sem þar
liggja, færi heldur batnandi.
Lögreglunni berast stöð-
ugt falsaðar ávísanir
Segir ástandið lítt hafa batnað eftir að
hert var á eftirliti bankanna
STÖÐUGT berast talsvert magn
af fölsuðum ávísunum, og ávís-
unum, sem ekki er til innstæða
fyrir, til rannsóknarlögreglunn-
ar x Reykjavík. Magnús Eggerts-
son, varðstjóri, tjáði Mbl. í gær
að svo virtist sem lítil breyt-
ing hefði orðið til hins betra í
þessum efnum eftir að bankarn-
ir hertu á eftirliti með ávísun-
um og viðurlög voru þyngd.
Nýlega upplýsti rannsóknar-
lögreglan tvö fölsunarmál. Var í
báðum málum um fjórar ávísan-
ir að ræða. í öðru málinu námu
þær samtals um 10,000 kr. en í
hinu um 3,000 kr.
Þá var fyrir skemmstu kært til
rannsóknarlögreglunnar vegnia
falsaðrar ávísunar að upphæð
8,500 kr., sem seld var í Rvík,
en mál þetta var sent út á land,
þar sem útgefandinn á heima.
Allmiklu er þó meira um að
menn gefi út ávísanir sem ekki
er nægileg, eða jafnvel engin
bankainnstæða til fyirr. Hefur
nokkuð borið á þessu að vanda
í janúar, eftir jólaviðskiptin.
Magnús Eggertsson tjáði Mbl.
að brýna bæri fyrir fólki að
gæta meiri varkárni við kaup
ávísana, en gert væri. Oft væru
falsaðar ávísanir mjög illa gerð-
ar, og útfylling þeirra á margan
hátt ófullkomin. Dæmi væru þess
að fólk hefði keypt ávísanir af
ókunnum mönnum þar sem nú-
mer ávísunarinnar hefði verið
skafið burt. Bætti Magnús því
við að ástæða væri til að biðja
menn að sýna persónuskilríki er
þeir seldu ávísanir, þannig að
hægt væri að ganga úr skugga
um að þeir segðu rétt til sín.
Slíkt tíðkaðist alls staðar erlend-
fflwWtóíííííjiiiiiíKiifX'X'
Veghefillinn stnkkst á endnnn
Sauðárkróki 21. jan.
SL. fimmtudag var gripið til
þess ráðs að láta veghefil
jafna til á þeim hluta þjóðveg
arins um Blönduhlíð, sem
Héraðsvötn hafa runnið yfir.
Þannig tókst þá til að veg-
hefillinn stakkst á endann og
var jarðýta fengin til þess að
reyna að ná honum upp ,en
án árangurs. Sl. laugardag
var gripið til þess ráðs að fá
tæki frá Akureyri til þess að
draga hefilinn upp og tókst
það.
Að gefnu tilefni skal fram
tekið að Héraðsvötn hafa
nokkrum sinnum áður runnið
yfir veginn á þessum slóðum
en ekki fyrr svo stórkostlega
sem nú. — Myndin sýnir veg-
hefilinnfyrir neðan Höskulds
staði og Miðhús. — jón.