Morgunblaðið - 12.02.1963, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.02.1963, Blaðsíða 2
2 MORCVNBLAÐIÐ Þriðjudagur 12. febrúar 1963 Aukið fylgi lýöræðis- sinna í Múrarafélaginu STJÓRNARKJÖR fór fram í Múrarafélagi Reykjavíkur um sl. helgi. Úrsiit kosninganna urðu þau, að listi stjórnar og trúnaðar- ráðs, sem skipaður var og studdur af lýðræðissinnum, hlaut 128 atkvæði, en listi kommúnista 78 atkvæði. Við stjórnarkjör í félaginu í Einar Jónsson fyrra varð niðurstaða kosning- anna sú, að listi lýðræðissinna hlaut 114 atkv., en kommúnistar 74 atkv. Hafa því lýðræðissinnar aukið fylgi sitt um 74 atkv., en kommúnistar um 4 atkv. Nokk- uð fleiri greiddu nú atkvæði í kosningunum heldur en í fyrra og hefur aukningin fyrst og fremst komið á lista lýðræðis- sinna. Stjórn Múrarafélagsins er þannig skipuð: Einar Jónsson form., Hilmar Guðlaugsson varaform., Jörund- ur Guðlaugsson ritari, Jón V. Tryggvason gjaldkeri félagssjóðs, Svavar Höskuldsson gjaldkeri styrktarsjóðs. Varastjórn: Helgi S. Karlsson, Kristján Haraldsson og Snæbjörn Þ. Snæbjörnsson. Lýðræðissínnar sjálfkjörnír i Sveinafél. pipulagningamanna UM sl. helgi var framboðsfrest- ur útrunninn til stjórnarkjörs í Sveinafél. pípulagningarmanna. Aðeins einn listi kom fram og varð hann því sjálfkjörinn, en það var listi stjórnar og trúnað- arráðs, sem skipaður er lýðræðis sinnum. Kommúnistar höfðu í mörg ár farið með stjórn þessa félags, en í fyrra unnu lýðræðis- sinnar kosninguna, en siðan hef- ur fylgi kommúnista farið þverr andi í félaginu og er nú svo komið að þeir treysta sér ekki til að bjóða fram til stjórnar- kjörs. Stjórn félagsins er nú þannig skipuð: Bjarni Guðbrandsson form., Ólafur M. Pálsson varaformað- ur, Jónas Valdemarsson ritari, Magnús Tómasson gjaldkeri og Gunnar Þórðarson gjaldkeri styrkarsjóðs. Varastjórn: Gústaf Kristjánsson, Bjarni Sæmunds- son og Gunnar E. Pálsson. Afvopnunarráðstefnan i Genf hefst aftur: Rússar reyna að vinna „Úháðu" ríkin til fylgis Gentf, 11. febrúar NTB/REUTER AP. — Á morgun, þriðjudag, hefjast að nýju í Genf fundir 17 ríkja ráðstefnunnar um alþjóð- lega afvopnun. Sovétstjórnin hefur boðið fulltrúum átta „ó- háðra“ rikja á ráðstefnunni til viðræðufundar, skömmu áður en hinn boðaði fundur aðildarríkj- anna allra hefst. Það var formaður sovézku sendinefndarinnar í Genf, Vasilij Kuznetsov, aðstoðarutanríkisráð- herra, sem í dag sendi sendi- mönnum „óháðu“ ríkjanna boð um að hitta sig að máli, áður en viðræðurnar hæfust að nýju — til þess að reifa vandamálin, sem fyrir fundinum lægi að leysa. Vestrænir stjórnarerindrekar telja þetta skref Sovétstjórnar- innar mjög mikilvægt — það muni vera meiri háttar tilraun hennar til þess að vinna „óháðu“ ríkin til fylgis við krötfur sínar um frekari tilslakanir af hálfu Vesturveldanna. Deilan stendur nú, eftir sem áður, fyrst og fremst um eftirlit, og var sú ástæðan fyrir því að upp úr slitnaði í viðræðunum í Washington í janúar, að deilu- aðilar gátu ekki komið sér sam an um fjölda eftirlitsstöðva. Sov- étstjórnin er fús að fallast á a 5 tvær til þrjár eftirlitsferðir ver/ i farnar árlega innan landamæta Sovétríkjanna, en Vesturveidin telja nauðsynlegt, að þær verði átta til tíu árlega. Þó er talið afar mikilvægt, að Sovétstjórnrn skuli hafa fallizt á eftirlitsferðir yfir- leitt. Haft var í dag eftir brezka fulltrúanum Joseph Godber, að það sé álit Vesturveldanna, að Rússar verði að ganga skrefi lengra ef von eigi að vera um samkomulag. Sagði God'ber það álit vísindamanna Vesturveld- anna að tvær til þrjár eftirlits- ferðir árlega væri of lítið til ár- angurs. — Hins vegar sagði hann kröfu Vesturveldanna um átta til tíu ferðir ekki þurfa að vera hin endanlega kratfa, því leiði nýjar rannsóknir í ljós, að af Framh. á bls. 23 Valt tjórar velt- ur við SandskeiB Okumaður ag tveir farþegar slasast Volkswagenbíllinn á Sand- skeiði eftir veltumar fjórar. Við bilinn eru Borgþór Þór- hallsson (lengst t.v.), Krist- mundur Sigurðsson, varð- stjóri, báðir frá umferðardeild rannsóknarlögreglunnar, og lögregluþjónn. (Ljósm. Mbl.: Sv. Þ.) LAUST eftir kl. 4 sl laugardag fór Volkswagenbíll útaf þjóðveg inuir. við Sandskeið, og valt fjór ar veltur með þeim atfleiðingum að þrennt í bílnum slasaðist, en einn farþega slapp ómeiddur. Bíllinn er talinn ónýtur. Nánairi atvik voru þau að Volkswagenbíllinn var á leið til Reylkjávíkur. Ökumiaður var Sigurgeir Gunnarsson, Grettis- götu 79, en farþegar Hrafnhildur Gísladóttir, Baugsvegi 5, sem sat í framsæti Gylfi Guðnason, Álf- heimum 14 og Oddfríðuir Gunnars dóttir, systir ökumansins og til heimilis á sama stað. Slysið mun hafa orðið er Voikswagenbillinn var að mæta jeppabíl í krappri beygju þar sem ekið er inn á Sandskeiðið að austan. Er talið að bíliinn hafi verið á mikilli ferð. Fór hann út af veginum, valt fjórar veltur og staðnæmdist eftir 30 metra og þá á hjólunum. Hrafnhildur kast aðist út og meiddist hún mest þeirra, er í bílnum voru. Fólkið var allt flutt í slysavarðstofuna, og siðan heim til sín. Einn far- þegianna, Gylfi Gislason, taldi sig ómeiddan, og meiðsli hirrna þriggja voru ekki talin alvarlegs eðlis. Áhöldum og verkfærum stolið ur 4 jarðýtum STOLTÐ var margvíslegum á- höldum og verkfærum úr 4 ýtum frá Vegagerð ríkisins um helgina. Verffmæti þýfisins skiptir þús- undum. Hjá Leirvogstungu í Mosfells- sveit var stolið úr ýtu 2 luktum, rafmagnsgeymi, smurolíubrúsum og miklu af verkfærum. Hjá Straumi fyrir sunnan Hafnarfjörð var stolið úr ýtu 2 12 volta rafgeymum 150 ampera, topplyklasetti og járnrúllu af raf magnsvír. Farið var inn í ýtuna gegn um lúgu á þaki, sem sprengd var upp. Hjá Hvassahrauni var stolið úr tveim ýtum. Úr annarri var tek- inn áhaldakassi með öllu, sem í honum var, slaghömrum, topp- lyklasetti, 2 rörtöngum, 2 skipti- Ottawa, Kanada, . 11. febrúar (AP). GORDON Churchill var í dag skipaður varnarmálaráðherra Kanada í stað Douglas Harkness, sem sagði af sér í síðustu viku vegna ágreinings við Diefen- baker forsætisráðherra. lyklum, stjörnulyklasetti frá 3/16 til 1 Ve tommu, skrúfjárnum o.fl. Sumir lyklarnir eru málaðir gulir. Úr hinni ýtunni var stolið nýrri rafmagnsþurrku og einum skiptilykli,y tommu. Brotizt var inn í ýturnar með þeim hætti, að húnarnir voru skrúfaðir af. Verði menn varir við þýfið, eða hafi séð til þjófanna, eru þeir beðnir að gera lögreglunni í Hafnarfirði viðvart. — Kassem Framhald af bls. 1. myndurum ekki verið heimilað að koma til landsins, og einu beinu fréttirnar eru frá Bagdad- útvarpinu. ★ Stöðugt fjölgar þeim ríkjum, sem hafa viðurkennt hina nýju ríkisstjórn Arefs í írak, og bætt- ust í dag m.a. Bandaríkin, Bret- land og Sovétríkin í hópinn. Brezkur vélstjóri illa slasaBur ÍSAFIRÐI, 11. febr. — Togar- inn Hull City frá Grimsby, kom til ísafjarffar meff slasaffan mann um hálf tvö leytið á laugardag. Var þaff 2. vélstjóri á skipinu, » m hafffi slasast mjóg illa, þeg- ar hann lenti í skrúfuöxli skips- ins. Slys þetta varff um 10 leytiff á laugaiuagsmurguniun. Var tog- arinn þá tæplega íjögurra tíma sigiingu frá ísafirffi. Annar véi- stjóri hafði tekiff hlífina af öxlin- um, þegar vélin var í ganei. og lenti haun í öxuuuin. Maðurinn er mikið slasaður. Yfirlæknirinn á sjúkrahúsinu á ísafirði, Úlfur Gunnarsson, sagði í kvöld að meiðsli mannsins væru ekki rannsökuð til fulls, en senni lega væri hann hryggbrotinn, höfuðkúpubrotinn, vinstra við- bein brotið og nokkur rif. Er maðurinn þungt haldinn, en liður þó sæmilega eftir atvikum, að sögn yfirlæknisins. Togarinn fór samdægurs á veið ar. — H. T. ölvað við fæðingu Kanadiskur læknir, Shaefer aff nafni, skrifaffi nýlega grein í kanadiska læknablaðið um mjög sérstæða fæffingu. Barn- iff kom nefnilega ölvaff í heim inn. . Shaefer segir svo frá, aff Indíánakona, 27 ára aff aldri hafi komið all drukkin í1 Whitehorse sjúkrahúsiff kana- diska. 45 mín. eftir komuna ól konan barn. Barnið var sett í súrefnistjald, og næstu tólf tíma gaus upp megn áfengis- lykt í hvert skipti, sem tjald- iff var opnaff. Þegar fariff var aff kanna ástand móffurinnar nánar, kom í ljós aff varla hafffi runnið af henni síðustu tvo mánuði. Fyrstu 18—24 tímana eftir fæðingu hegðaöi barniff sér eins og drykkjumaffur, sem veriff er aff venja af neyzlu álfengis. Þaff var mjög óvært, og hendur þess og fætur skulfu. Viffbrögff þes| ^iff hverja smJá hreyfingií í'her- berginu voru krampakenndir kippir og skerandi óp. Shaefer er sannfærður um að sjúk- dómsgreining hans á barninu er rétt. Sjúkdómseinkennin voru mjög svipuff því, sem tíðkast hjá hörnum eiturlyfja- neytenda. /Vthugasemd frá formanni Varðbergs HERRA ritstjóri! Vegna ummæla í Reykjavíkur- bréfi blaðs yðar sl. sunnudag um málefni félagsins Varðbergs, vil ég fara þess á leit við yður, að þér komið eftirfarandi á fram- færi: Félagið Varðberg er stofnað til kynningar vestrænni samvinnu af ungum áhugamönnum nr þremur stjórnmálaflokkum. Öll- um þeim, er fylgzt hafa með starfsemi þess frá stofnun þess fram á þennan dag, getur vart blandazt hugur um það, að þar hefur verið á ferðinni víðtæk starfsemi, jafnt inn á við sem út á við. Um þau verkefni hefur frá upphafi verið algjör sam- staða innan stjórna félagsins, jafnt þeirrar sem nú situr og fyrrverandi stjórnar. f upphafi starfstíma síns gerðl núverandi stjórn starfsáætlun fyrir nýhafið starfsár. Hluti hennar hefur þegar verið fram- kvæmdur, en annað kemur í ljós á sínum tíma. Um þetta hefur lika verið algjör samstaða. Hef- ur starfsemi þessari verið léð mjög gott rúm á síðum Morgun- blaðsins. Fyrrnefnd ummæli í blaði yð- ar hljóta því að stafa af ókunn- ugleika. Hitt ber að harma, að félags- leg málefni Varðbergs skuli á þennan hátt verða notuð í póli- tískri baráttu á milli stjórnmála- flokka af blaði, sem telja verður, að frekar vilji hafa það sem sannara reynist. Með þökk fyrir birtinguna. Hcimir Hannesson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.