Morgunblaðið - 12.02.1963, Síða 3
Þriðjudagur 12. febrúar 1963
MORCl/IVBL 4 T) 1 Ð
3
STAKSTEIIMAR
í STRÍÐSLOK var mikið
hörmungarástand'í Hull, eins
og víðar í Bretlandi. F-jöldi
fiskimanna hafði farizt í árás-
um Þjóðverja og skortur á
matvælur* og öðrum nauð-
synjavörum var almennur,
húsnæðisskortur var og geysi-
legur. Islenzkir útgerðarmenn
sendu rúmlega 20 þúsund
sterlingspund að gjöf til Hull
og átti að verja því fé til að
byggja íbúðir fyrir sjómenn,
sem hættir eru að stunda sjó-
inn aldurs vegna. Upphæð
þessi lá lengi á vöxtum, og
þegar framkvæmdir voru
hafnar, hafði hún náð 27 þús.
pundum. — Borgarstjórinn í
Reykjavík, Geir Hallgríms-
brezkra
Hér sjást F. Davis, fulltrúi húsnæðismálanefndar Hull, og G. Baslington, skrifstofustjóri borg-
arskrifstofanna í Hull, dást að myndunum, þar sem þær eru til sýnis í fundarsal borgarstjórn-
arinnar fyrir hina formlegu afhendingu þeirra.
son, fór til Hull vorið 1960 og
var viðstaddur vígslu íbúð-
anna, sem eru 27 talsins og
standa við götu sem nefnist
Icelandic Close.
Reykjavíkurborg sendi fyr-
ir skömmu 27 eftirprentanir
af málverkum þriggja ís-
lenzkra málara, Ásgríms Jóns
sonar, Jóhannesar Kjarvals
og Jóns Stefánssonar, og mun
ein þessara mynda prýða
hverja ábúð sjómannanna á
Icelandic Close. Gjafirnar eru
nú til sýnis almenningi í ráð-
húsinu í Hull, áður en þær
verða afhentar íbúum ís-
lenzku húsanna.
TÝR, F. U. S. í Kópavogi efnir
til stjórnmálanámskeiðs í Sjálf
stæðishúsinu í Kópavogi. Fyrsti
fundur námskeiðsins verður í
kvöld og hefst kl. 9 e.h. Þá mun
Birgir ísl. Gunnarsson, lögfræð-
ingur, flytja erindi um fundar-
sköp og ræðumennsku.
Næsti fundur námskeiðsins
verður haldinn n.k., fimmtudag
og þá mun Árni Grétar Finnsson,
hdl. flytja erindi um Sjálfstæðis-
stefnuna og stjórnmálaflokkana.
Spilakvöld
Macmðan boðar nýjar
e f nahagsr áðstaf anir
London, 11. febr. (AP-NTB)
HAROLD Macmillan forsætis-
ráðherra flutti ræðu í brezka
þinginu í dag og ræddi endalok
eamninganna um aðild Breta að
Efnahagsbandalagi Evrópu. —
Sgði hann að de Gaulle forseti
hæri alla sök á því að útiloka
Breta frá aðild. Hvatti Macmill-
an til nýrra átaka vegna úrslit-
anna í Brússel. Hann sagði að
ekki yrðu teknar upp að nýju
viðræður um aðild Breta að
EBE, en hinsvegar hefði stjórn-
\n eftirfarandi aðgerðir í huga:
1. Boðaður verði ráðherra-
fundur Samveldisrikjanna.
2. Við munum stuðla að ná-
inni samvinnu, Samveldis-
ríkjanna, Bandaríkjanna og
Friverzlunarsvæðis Evrópu.
3. Við miinnnn vinna að al-
þjóða verzlunarsamning-
um.
4. Heima fyrir munum við
vinna að útþenslu á sviði
fjármála, án verðbólgu.
5. Við munum leggja áherzlu
á aukna framleiðslutækni,
og endurskipuleggja iðnað-
inn með sérstöku tilliti til
þeirra svæða, þar sem at-
vinnuleysi hefur ríkt.
Macmillan sagði að efla bæri
núverandi verzlunarskipulag í
Evrópu, þar til unnt yrði að
ryðja burtu þeim hindrunum,
sem lagðar hafa verið á leið
Breta í Efnahagsbandalagið. Fór
hann síðan fram á traustsyfir-
lýsingu þingsins við aðgerðir
stjórnarinnar og samningsum-
leitanir varðandi EBE.
Allar líkur eru taldar á því að
þingið muni að loknum tveggja
daga umræðum um EBE-samn-
ingana samþykkja traust á
brezku stjórnina.
Að lokinni ræðu Macmillans
tók Harold Wilson, talsmaður
Verkamannaflokksins um utan-
rikismál, til máls. En hann er
nú líklegastur til að taka við
forustu flokksins eftir Hugh
Gaitskell, sem lézt fyrir skömmu.
Deildi hann á stjórnina fyrir
samningatilraunirnar um aðild
að EBE, og sagði að endalok
þeirra mála væru þjóðarskömm.
Weisshappel
heiðraður
FORSETI Austurríkis, Dr. Adolf
Scharf, hefur sæmt Friedrich
Weisshappel, framkvstj. Sin-
fóníuhljómsveitar íslands, heið-
ursmerki „GOLDENES EHREN-
ZEICHEN fúr Verdienste um die
Republik Österreich“) (= Ridd-
arakross I. stig). Hinn 9. febrúar
afhenti aðalræðismaður Austur-
ríkis á íslandi, Július Schopka,
heiðursmerkið.
HAFNAhtFIRÐI — Nú eru að
hefjast spilakvöld hjá Sjálfstæð
isfélögunum og verður spilað
tvisvar í mánuði, febr., marz,
apríl. Að þeim tíma liðnum verða
veitt heildarverðlaun og verður
mjög til þeirra vandað, t.d. flug
ferð til útlanda eða eitthvað því
um líkt.
Spiluð verður félagsvist og
fyrst annað kvöld kl. 8,30. Er
öllum heimill aðgangur meðan
húsrúm leyfir og verður spilað í
Sjálfstæðishúsinu.
Hestvognor
og jeppi
AKRANESI, 11. febr. — í !
norðaustan hvassviðrinu, sem |
gerði um næstliðna helgi, fauk I
jeppakerra um 10 m spöl, en hún i
stóð á túninu á Másstöðum í i
Akranesshreppi.
Einnig fuku tveir hestvagnar
í Skálatanga í sama hreppi og
brotnuðu þeir í spón. Annar
vagninn fauk langt niður í stór-
grýtta fjöru, en hinn tókst á loft
upp og fór hann yfir rafmgns-
heimtaugina, og heimilisfólkið
horfði á.
í einni hrinunni tók rúðu úr
á sama bæ og munaði minnstu að
hún lenti á bóndanum. Enn brotn
aði rúða á næsta bæ. Og fjórar
þakplötur fuku af hlöðu í Mið-
húsum, og nokkrar járnplötur af
veggjum lilöðunnar. — Oddur.
Skipbrot Fromsóknar
Blaðið íslendingur á Akureyrl
ræðir nýlega skipbrot vinstri
stjórnarinnar og þá játningu for
manns Framsóknarflokksins, að
enginn samstaða væri um nokk-
ur úrræði í efnahagsmálunum
innan stjórnar hans og ekkert
nema óðaverðbólga framundan.
Siðan kemst blaðið að orði á
þessa leið:
„Svo tóku aðrir við. Tíminn
var látinn birta þann boðskap
fyrir næstu kosningar á eftir —
þrátt fyrir lýsingu gamla for-
sætisráðherra v-stjórnarnnar, að
aldrei hefði nokkur ríkisstjórn
komið að betri þjóðarhag og af-
konvj en sú, er við tæki. En
það er ekkert nýtt,- að Tíminn
tali tveim eða fleiri tungum.
Margir hugðu að úrræöalaus
stjórn, er segði af sér vegna engr
ar samstöðu um nokkur mál, ó-
hjákvæmileg verðbólga framund
an, gæti vart vænzt þess að vera
gefið nýtt tækifæri við nýjar
kosningar til að slíta að nýju
samskiptum á háiftnuðu nýju
kjörtimabili.“
Undanhald kommúnista
Alþýðublaðið birtir sl. sunnu-
dag forystu grein undir þessari
fyrirsögn. Er þar m.a. komizt að
orði á þessa leið:
„Aðalfundur fulltrúaráðs verka
lýðsfélaganna í Reykjavík, jem
haldinn var í vikunni, leiddi það
glögglega í ljós, að verulega er
nú farið að halla undan fæti fyr-
ir kommúnistum í verkalýðshreyf
ingunni. Um langt skeið réðu
kommúnistar lögum og lofurrt. í
fulltrúaráðinu. En á aðalfundin-
um sl. miðvikudag áttu þeir að-
eins 66 fulltrúa af 174. Kommún
istar mega því vissulega muna
fífil sinn fegri í verkalýðssam-
tökunum í Reykjavík. Undan-
hald kommúnista er hafið, en
það er þróun, sem þeir geta ekki
sætt sig við og þess vegna gerð
ust þeir atburðir á aðalfundi
fulltrúaráðsins, er þar áttu sér
stað. Konur.únistar kröfðust þess
á aðalfundi fulltrúaráðsins, að
fulltrúum verzlunar- og skrif-
stcfufólks yrði vísað úr ráðinu,
en þegar ekki var orðið við
þeirri kröfu þeirra, gengu þeir
af fundi, og flestir Framsóknar-
menn í ráðinu fylgdu á eftir.“
Teiknimynd veldur angri
Teiknimyndin á forsíðu Morg
unblaðsins á gamlársdag hefur
valdið blaði Framsóknarmanna
á ísafirði greinilegu angri. Birtir
blaðið langa greín um teikni-
myndina og er sérstaklega hryggt
yfir því, að ritstjóra Tímans
skuli á myndina hafa verið „val
inn staður úti í sjó sem tákn þess
hversu hann skyldi einangrast
frá þjóð sinni“.
í lok greinarinnar upi teikni-
mynd Morgunblaðsins keir.it
Framsóknarblaðið á ísafirði að
orði á þessa leið:
„Allir hlutir hljóta að eiga sér
orsók, stendur í Helgakveri. Eins
er um þessa teiknimynd. Þó hún
eigi að vera til gamans gerð lýs-
ir hún miklum sárindum og
sviða. Hún sýnir aumasta blett-
inn á Sjálfstæðismönnum.
Að sjálfsögðu hefur það verið
góð áramótaskemmtun fyrir
marga Fran ..óknarmenn að sjá
þannig blasa við framan á Morg-
unblaðinu hvað bræðralagsdraum
urinn í innsta hring Sjáifstæðis
flokksins komst langt á þessum
jólum. Það eru heldur engar lík-
ur til þess að óttinn og sárindin
læknist þetta árið.
En vonandi verður þetta gott
teikniár hjá Morgunblaðinu.“
Flest er nú farið að valda
Framsóknarmönnuui ínæúu, það
má nú segja.!