Morgunblaðið - 12.02.1963, Side 22
22
MORCVNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 12. febrúar 1963
KR vann fyrst a leikinn
og Ármann sætan sigur
Körruknattleikurinn um helgina
spáir góðu mófi
ÍSLANDSMÓTIÐ í körfuknatt-
leik hófst síðastliðið laugardags-
kvöld, og setti Bogi Þorsteins-
son, formaður KKÍ, mótið með
stuttu ávarpi. 7 leikir voru leikn-
ir þessa fyrstu helgi að Háloga-
landi og í íþróttahúsi Háskólans.
Fyrsti leikur mótsins var í
meistaraflokki milli íþróttafélags
stúdenta og KR. Stúdentar náðu
í byrjun forystu og tókst að
halda niðri hraða leiksins og
hittu vel. Um miðjan fyrri hálf-
leik færðist meiri hraði í leik-
inn og KR náði forystu, en leik-
urinn hélzt þó jafn út fyrri hálf-
leik, sem endaði 21:19 fyrir KR.
KR náði síðan góðu forskoti,
þegar í byrjun síðari hálfleiks,
og byggðu leik sinn mest á leift-
ursóknum, og réði lið stúdenta
ekki við hraðann. KR átti þó
ekki mjög skemmtilegan leik, en
unnu örugglega 59:35. Guttorm-
ur Ólafsson var stigahæstur í
liði KR (17), en síðan Einar Bolla
son (15) og Jón Otti Ólafsson
(13). Stigahæstur í liði ÍS var
Sigurgeir Ingvason (10).
Ármann vinnur KFB.
Síðari leikur á laugardagskvöld
ið var einnig meistaraflokki,
KFR — Ármann. Fyrri hálfleik-
ur var spennandi og jafn, og var
engu líkara en að í liði Ármanns
gætti meiri baráítuvilja en oft
áður. Leikmennirnir létu mis-
tökin ekki svo mjög á sig fá, en
virtust í staðinn staðráðnir í að
gera betur. Hinn gamli horn-
steinn Ármenninga, Davíð Helga
son skoraði fyrstu körfu leiks-
ins, en á annarri mínútu jafnaði
annar nýliði KFR.
Hörður átti mjög góðan leik,
hirti óspart fráköst, var klettur
í vörninni og skoraði talsvert,
var stigahæsti maður leiksins.
Lið KFR var ósamstilltara en oft
áður og hitti ver. Stigahæsti í
liði Ármanns var Hörður Krist-
insson (18), en í liði KFR Einar
Matthíasson (22).
Yngri flokkar í íþróttahúsi
Háskólans.
Einn fjórða flokks leikur og
tveir þrijða flokks leikir fóru
fram í íþróttahúsi Háskólans fyr
ir hádegi á sunnudag. 4. fl. leikn
um milli a-liðs ÍR og Ármanns
lauk með sigri ÍR, 21:15. Leikur-
inn var jafn í fyrri hálfleik, en
lið ÍR sýndi liðlegri leik og höfðu
betri hittni í síðari hálfleik.
Leik Ármanns og KFR í 3. fl.
lauk með sigri Ármenninga, eftir
nokkuð skemmtilegan leik, 14:12.
Einn Ármenninga, Grímur, sem
er stór og lipur vakti sérstaka at-
hygli og virðist mjög efnilegur
leikmaður.
Leik a-liðs ÍR og KR, einnig í
þriðja flokki, lauk með sigri ÍR,
37:15. Hvert líðið um sig hafði á
að skipa einum unglingalandsliðs
manni, og settu þeir sinn svip á
leikinn. ÍR-liðið leikur mikið með
leiftursóknum og heldur miklum
hraða í leiknum.
Hálogaland á sunnudagskvöld.
Fyrri leikurinn á sunnudags-
kvöldið var í 2. flokki milli KFR
og b-liðs Ármanns. Snemma kom
í ljós að lið KFR var ekki vel
samæft og bæði liðin hittu illa..
Ármenningar hirtu öll fráköst í
vörn og mörg í sókn einnig. Þótt
lið KFR hafi fengið dæmdar á
sig margar villur í leiknum, ei1
ekki hægt að segja að þeir hafi
sýnt grófan leik, heldur er lík-
legra að villurnar hafi stafað af
æfingarleysi, eins og mörg önnur
mistök þeirra í leiknum. Leiknum
lauk með sigri Ármenninga 35:17.
Einnig í seinni leiknum átti
annað liðið við ofurefli að stríða.
Lið KR var úti á þekju mest all
an leikinn, en Ármenningar
sýndu allgóðan leik, hittu all-
vel og hirtu mikið af fráköstum.
Lárus Lárusson, sem lengi var
bakhjarl Ármenninga lék nú með
1. flokki, og átti langt frá því
góðan leik. Árni Samúelsson Ár
manni var mest áberandi leik-
maðurinn, en í liði KR virtist
Karl Jóhannsson einna tilþrifa-
mestur.
Virðist samt boða skemmtilega
keppni.
Enda þótt flestir leikir þessa
helgi hafi verið nokkuð einhæfir
frá byrjun til enda, virðist samt
mega búast við að mótið verði
skemmtilegt. í meistaraflokki eru
fjögur lið nokkuð jöfn og munu
vafalaust eiga skemmtilega leiki.
Frá leik Ármanns og KFR. Sigu*ður Ingólfsson, sá er setti met
í hástökki daginn áður, er að skora.
Bóndasonur af Ströntíum
kom og vann tvær greinar
Gott meistaramót arengja
Sigurður Ingolfsson í metstokkinu.
From vann
en Víkingnr
og ÍR jöfn
í GÆRKVÖLDI fóru fram tveir
leikir í 1. deild handknattleiks-
manna, ÍR og Víkingur skildu
jafnir öðru sinni í mótinu, 24
gegn 24. Fram vann yfirburða-
sigur yfir Þrótti 37:20.
Fram hefur þá forystu í mót-
inu með 12 stig.
MEISTARAMÓT drengja í frjáls
um íþróttum innanhúss fór fram
á sunnudaginn og var glæsilegt
og gott mót. Mikiil fjöldi kepp-
enda var á mótinu og keppnin svo
tvísýn og skemmtiieg að óvenju-
legt er, en því miður var fátt
áhorfenda. Eitt drengjamet var
sett. Var Sigurður Ingólfsson Á
þar að verki í hástökki með at-
rennu, stökk 1,84 m, en átti sjálf
ur hið gamla, sem var 1,82 m.
Margir mjög efnilegir piltar
komu þama fram, sumir lítt
eða ekki þjálfaðir en komust
þó í fremstu röð. Má af því
Olafur Guðmundsson, Sigurður Ingólfsson, Á, sem setti met
í hástökki, og Þorvarður Benediktsson af Ströndum, sem kom
óvænt og sigraði í tveim greinum. (Myndir: Sv. Þorm.)
marka að óvenjulega efni-
legir piltar eru víða og tiíviij-
un ein ræður því hvort þeir
- koma fram á siíku móti eða
ekki.
Ungur og stæðilegur piltur
af Ströndum Þorvarður Bene
diktsson kom skemmtilegast á
óvart. Hann er stærri en jafn
aldrar hans, en þó kraftmeiri
og fjaðurmagnaðri. Hann kom
á óvart með því að sigra í 2
greinum. Ólafur Guömundsson
sem í fyrra keppti fyrir UMSS
en mætti nú til leiks fyrir KR
er einnig mjög efnilegur svo
og Sigurður hástökkvari o. ÍL
Úrslit mótsins urðu þessi:
Hástökk án atrennu:
Ragnar Guðmundsson, Á
Jón Kjartansson, Á,
Hástökk með atrennu:
Sigurður Ingólfsson, Á,
(Drengjamet)
Þorvaldur Benediktsson HSS 1,75
Ólafur Guðmundsson, KR, 1,70
Jón Kjartansson, Á,
Sigurður Harðarson, Á,
Guðm. Guðmundsson, KR,
Langstökk án atrennu:
Þorvaldur Benediktsson HSS 2,93
Jón Þorgeirsson, ÍR, 2,94
Einar Gíslason, KR, 2,94
Erlendur Valdimarsson, ÍR, 2,88
Guðm. Guðmundsson, KR,
Ólafur Guðmundsson, KR,
Þrístökk án atrennu:
Þorvaldur Benediktsson HSS 9,04
Erlendur Valdimarsson, ÍR, 8,89
Einar Gíslason, KR,
Ólafur Guðmundsson, KR,
Jón Þorgeirsson, ÍR,
Ásbjörn Karlsson, ÍR,
1,30
1,30
1,84
1,70
1,65
1,65
2,83
2,76
8,81
8,43
8,42
8,35