Morgunblaðið - 03.04.1963, Síða 1

Morgunblaðið - 03.04.1963, Síða 1
24 síður Mao til Moskvu Rússar viíja íund með kommúnista /e/ðfogum Kina í MYND þessi var tekin i gær, \ þegar 48 islenzkir folar voru ' i settir um borð í flutningaflug l I vél frá KLM flugfélaginu holli j enzka. Er sjaldgæft að flytja} ' hesta héðan með flugvélum og' I nánar er sagt frá þeim i baksíðu. (Ljósm.: Sv. Þ.). Moakvu, S. apríl — (NTB) MOSKVUÚTV ARPIÐ skýrði frá því í kvöld, að kommúnistaflokkur Sovét- ríkjanna hefði boðið Mao Tze-Tung, leiðtoga kín- verskra kommúnista, til Moskvu í vor eða sumar. Gerði kommúnistaflokkur Sovétríkjanna það að tillögu sinni í bréfi til kínverska kommúnistaflokksins, að háld inn yrði fundur æðstu komm- únistaleiðtoga Sovétríkjanna og Kína í Moskvu 15. maí n.k. Ef sá dagur ’nentaði.ekki Kín- verjunum væri hægt að semjia um annan tíma og gæti Mao Tze-Tung ekki setið fundinn yrði tekið á móti öðrum leið- Rússar skjóta eldflaug álesðis til tungSsins togum í hans stað. í bréfi kommúnistaflokks Sovétríkjanna segir, að það sé von hans, að fundur sá, sem lagt er til að haldinn vérði, geti orðið spor í áttina til þess að yfirstíga núverandi örðug- leika. Éins og kunnugt er hefur Krúsjeff, forsætisráðherra Sovétríkjanna, verið boðið að heimsækja Peking á leið sinni til Cambodia í sumar. í bréf- inu til kommúnistaflokks Kína segir, að Krúsjeff hefði haft mikla ánægju af því að heimsækjá Kína, en það hefði aldrei verið ætlunin að hann heimsækti Cambodia og þess vegna myndi ekkert geta orð- ið af heimsókn hans til Kina að sinni. Bjortsýni eftir ráðherrofund EBE Hefur innanborðs geimstöb, sem sumir telja að muni lenda á tunglinu • Franska stjórnin ræðir við verk- fallsmenn París, 2. apríl (NTB). VIÐRÆÐUR fulltrúa franskra kolanámumanna og frönsku stjórnarinnar um lausn verk- falls námumanna, hófust í dag. Var gert ráð fyrir að þær héldu áfram í kvöld og nótt. Talsmaður verkfálls- manna sagði í kvöld, að það myndi hafa mjög alvarlegar afleiðingar, ef viðræðurnar færu út um þúfur. í verkfalii kolanámumanna, sem staðið hefur í rúman mánuð hafa tapazt fjórar milljónir vinnu- daga og 200 þús. tonn af kol- um á dag. Moskvu, 2. apríl (NTB). f DAG sendu Rússar fjórðu eld- flaugina áleiðis til tunglsins. Nefnist hún Lunik 4. og var skot- ið frá gerfihnetti, sem er á braut umhverfis jörðina. Ekkert hefur verið skýrt frá því hvort sjálf- virka geimstöðin, sem er í eld- flauginni eigi að fara á braut um- hverfis tunglið eða lenda þar, en tilkynnt að nánar verði skýrt frá för flaugarinnar á morgun, mið- I vikudag. í hinni opinberu til- kynningu segir aðeins, að eld- flaugin sé liður í geimránnsókna- áætlun Sovétríkjanna. Þegar síð- ast fréttist gekk tilraunin að ósk- um, gert er ráð fyrir að Lunik 4 verði þrjá og hálfan sólarhring á leiðinni til tunglsins. Talsverðar bollaleggingar hafa verið um það í dag hvert muni ætlunarverk hinnar sovézku tunglflaugar. Franskir vísinda- menn telja, að tilgangurinn með því að senda hana á loft sé annað hvort sá að taka myndir af bak- hlið tunglsins eða reyna hemla- útbúnað, með tilliti til lendinga á tunglinu í framtíðinni. Utanríkisráðherra Laos ráðinn af dögusn Eínn lífvarða hans játar á Vientiane, 2. apríl. (NTB—AP). UTANRÍKISRÁÐHERRA Laos, Quinim Pholsena, var myrtur I gærkvöldi fyrir utan heimiii sitt. Kona hans, sem var í för með honum særðist hættulega. í dag var hand- tekinn í Vientiane 20 ára lið- þjálfi í lífverði utanríkisráð- herrans, Chy Kong að nafni, og játaði hann að hafa myrt utanríkisráðherrann og sært konu hans. Aðstoðarforsætis- ráðherra Laos, hinn vinstri- sinnaði Souphannouvong, sak- ar erlenda aðila um morðið á Pholsena. Aðrir telja hins vegar, að hermenn Laoshers á Krukkusléttu hafi verið að hefna yfirmanns síns, en þeir saka flokk Pholsena um að hafa myrt hann í febr. s.l. Chy Kong gegndi herþjónustu á Krukkusléttu. Quinim Pholsena og kona hans voru á leið heim úr veizlu hjá forsætisráðherra Laos, Souvanna Phouma og voru komin upp á tröppurnar við hús sitt þegar skotið var á þau úr vélbyssu. í líkama utanríkisráðherrans fundust 18 skot. Liðþjálfinn, sem ját- að hefur að hafa orðið utan- ríkisráðherranum að bana, hafði áður skýrt samstarfs- mönnum sínum í lífverðinum sig mor^ið frá þvi, að Pholsena væri hættulegur öryggi Laos og að sögn lífvarðanna bað hann þá um aðstoð við að ráða hann af dögum. Ofurstarnir, sem handtóku Kong sögðu, að hann hefði reynt að fyrirfara sér eftir að hann skaut ráð- herrann. % Vilja rjúfa Genfarsáttmálann Fánar blöktu 1 hálfa stöng í Vientiane í dag og stjórnin lýsti þjóðarsorg í Laos. Souphannouvong, prins, að- stoðarforsætisráðherra, ^sem er formaður hins vinstrisinn- aða Neo Lao Haksatflokks, Framh. á bls. 23 Varaforseti brezka geimrann- sóknarfélagsins, Kenneth Gat- land, sagði í dag, að það væri skoðun sína, að tilgangur til- raunar Rússa með tunglflaugina geti verið þrennskonar. Fyrsti möguleikinn væri sá, að senda ætti sjálfvirku geimstöðina á braut umhverfis tunglið og það- an mundi hún senda sjónvarps- myndir af yfirborði þess og aðrar upplýsingar. Annar möguleikinn væri, að eldflaugin ætti að fara umhverfis tunglið og til baka í átt til jarðarinnar. Þriðji mögu- leikinn væri, að geimstöðin ætti að lenda á tunglinu og senda upp lýsingar um yfirborð þess með aðstoð sjónvarps og næmra at- hugunartækj a. Sovézki vísindamaðurinn N. Barabachov, sagði í viðtali við Tassfréttastofuna í dag, að hann Framhald á bls. 2. Brussel, 2. apríl — (NTB) —* RAÐHERRANEFND Efna- hagsbandalags Evrópu kom saman til fundar í Brussel í dag. Á fundinum ræddu þeir framtíð bandalagsins. Var m. a. ákveðið að fela stjórnar- nefndinni að gera starfsáætl- un fyrir bandalagið fyrir árið 1963 og einnig var samþykkt að hef ja athuganir á því hvort ekki yrði fært að hefja á ný viðræður við Breta um aðild þeirra að EBE. Utanríkisráðherrar allra bandalagsríkjanna sátu fund- inn. Að fundinum loknum ríkti bjartsýni meðal fundarmanna og utanríkisráðherra Belgíu, Poul Henri Spaak, sagði, að nú væri tekið að vora eftir langan og harðan vetur. Josef Luns, utanríkisráðherra Hol- lands, tók í sama streng. Uppreisn í Argentínu Fregnir þaðan Óljósar Buenos Aires 2. apríl (NTB-AP) í MORGUN skýrðu einkaútvarps stöðvar í Argentínu frá því, að nokkrir hershöfðingjar hefðu gert uppreisn gegn stjórn lands íns undir forystu Benjamins Mendez hershöfðingja. í til- kynningu uppreisnarmanna, sem undirrituð var af Mendez sagði, að uppreisnin væri gerð til þess að koma í veg fyrir starfsemi Peronista í landinu og hindra að þeir nái völdum við kosningar, sem núverandi stjórn hefur á- kveðið að halda í júní nk. Segja uppreisnarmenn, að fái Peronist ar meiri hluta við kosningar, geti það leitt til þess að komm únistar nái völdum í landinu. Fregnir frá Argentínu eru mjög óljósar, en í kvöld Sögðu uppreisnarmenn að allur floti Argentínu væri á leið til Buenos Aires, og myndi hann víkja Jose Maria Guido, forseta lands ins úr embætti. Hermenn úr flot anum umkringdu bústað forset- ans tvisvar í dag, en ekki kom til neinna átaka og þeir léttu umsátrinu án nokkurra skýringa. Uppreisnarmenn segja, að meiri hluti hersins sé á þeirra bandi Fi amhald á bls. 2

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.