Morgunblaðið - 12.09.1963, Page 1
24 siðun
>
Fyrir nokkrum dögum kom til mikilla óeirða í Tyrol. italskir lögregluþjónar sjást hér beita kylí-
um gegn nokkur hundruð ný-fasistum í Bolzan o. Þeir andmæltu stefnu stjórnarinnar, en hún
hefur leitazt við að koma á sáttum við þýzkumælandi þjóðarbrot í Alto-Adige héraðL
Ráðizt gegn kín-
verskum áróðri-
í ,,Komsomolskaya Pravda", blaði vng-
kommúnlsta í Sovétríkunum
Moskva, 11. sept. —■ NTB
FRÁ því segir í blaði ung-
kommúnista í Sovétríkjun-
um, „Komsomolskaya
Pravda“, að kínverskir borg-
arar ásaki Sovétríkin um að
hafa gert leynisamning við
Chiang kai-chek á Formósu.
Sé efni hans kínverska alþýðu
lýðveldinu mjög í óhag.
Blaðið segir þessa skoðun
Kínverja hafa komið fram,
er kínverskir smyglarar hafi
verið handteknir á landamær
um 'Sovétríkjanna, fyrir
skemmstu.
Frá því hefur verið skýrt í
Lýsti
smygli
Kínverja
Moskva, 11. sept. — NTB.
EINN AF forstöðumönnum
sovézku tollgæzlunnar gaf í
l dag lýsingu á því, hvernig Kín
verjar færu að þvi að smygla
áróðursritum til Sovétríkj-
anna.
Andrej Morozov, yfirmaður
’ tollgæzludeildar utanríkisráðu
neytisins, sagði, að stöðugt
fyndust áróðursrit í fórum far
þega, sem kæmu frá Kína.
Sagði hann svo langt geng-
i ið í smygltilraununum, að far-
þegarnir létu búa handa sér
' töskur með tvöföldum botni
og loki, og kæmu þar síðar
fyrir bannfærðum ritum.
-
Syndið 200 metrfina
dagar
Miklar árásir komm-
únista á S-Vietnam
Raðizt með sprengjuvörpum og vélbyssum
að öbreyttum borgurum — tala látinna
í dag skiptir hundruðum
Cai Nuoc, S-Vietnam, 11. sept.
— AP —
í M O R G U N hófu Vietcong
kommúnistar mestu árásir á
þorp og bæi í S-Vietnam, sem
frá greinir um margra mán-
aða skeið.
Til mikilla blóðsúthellinga
kom, og bandarískir hernað-
arsérfræðingar lýstu því yfir
við fréttamenn í dag, að þeg-
ar í morgun hefðu verið talin
lík 60 skæruliða kommúnista.
Árásirnar hafa verið snarp-
ar, og hafa árásarmenn borið
eld að heilum þorpum, og
brennt þau til grunna.
Aðalstöðvum hersins í borg-
inni Dam Doi hefur verið
breytt í líkhús. — Þangað
streymdu að óbreyttir borg-
arar í dag, og leituðu líka ætt-
ingja sinna, sem saknað var.
Matvæla- og lyfjapakkar frá
bandarísku stjórninni voru í dag
fluttir til þeirra þorpa, sem verst
hafa orðið úti. í björgunarstarf-
inu tóku þátt m. a. kaþólskir
prestar.
Þeir staðir, sem fyrir hörðust-
um árásum urðu í morgun, voru
Dam Doi og Cai Nuoc. A. m. k.
500 skæruliðar réðust inn í borg-
irnar, hvora um sig. Þá rufu þeir
vegasamband milli höfuðborgar
nærliggjandi héraðs, Ca Mau, og
Framhald á bls. 23.
fréttum, hvernig það bar til, er
járnbrautarlestin frá Peking
til Moskvu var stöðvuð við
landamærin, fyrir rúmri viku,
og úr henni fjarlægt taisvert
magn kínverskra áróðursrita.
Sagt er, að til slagsmála hafi
komið, og hafi 73 stúdentar og
19 lestarstarfsmenn verið við-
riðnir málið.
Framhald á bls. 23.
18 fórust
með
t Viscount!
, j
Nyju-Dehli, 11. sept AP-NTB'
VISCOUNT-flugvé'. frá ind-(
verska flugfélaginu „Air Ind- |
ia“ fórst í morgun um 750,
km fyrir sunnan Nýju-DehlL ]
Tilkynning um siysið barst (
frá flugumferðarstjórninni í
Nagpur, en þá hafði ekki
náðst samband við flugvélina
í um klukkustund.
Síðar fannst flak vélarinn-
ar, og var þá ljóst, að allir
sem með henni voru, 13 far-
þegar og 5 manna áhöfn, höfðu
týnt lífi.
Ekkert hefur komið fram,
sem bendir til þess, hvað vald
ið hafi slysinu. Rannsókn er
hafin.
Bandaríkin og Evrópa
deila á lATA-fundi
Bartdarisk félög sökuð um oð vilja binda endi á Atlants-
„Guö mun sjá um hitt“
Ambassador Sierra Leone undirritar
samning um tilraunabann
ER ambassador Sierra Leone,
Dr. Richard E. Kelfacaulker,
undirritaði samninginn um
takmarkað bann við tilraun-
um með kjarnorkuvopn, í
Washington í dag, kom hann
viðstöddum á óvart með því
að fara með Ijóð. Hann sagði:
„Ég minnist þess, að þegar
ég var lítill drengur í þorp-
inu Mamibo, þá sungum við
stundum gamalt ljóð við
bænagjörðir".
Er ambassadorinn hafði rit-
að nafn sitt, fór hann með
ljóðið (í lauslegri þýðingu):
Ég veit ekki hvað bíður min,
Guð hylur mjúklega augu mín
og við hvert skref, sem ég stíg,
þá birtist mér nýtt landslag.
Allt, sem hann sendir mér,
verður að gleði og óvæntri
ánægju.
Því held ég áfram, án þess að
vita.
Ég Vil heldur ganga í
myrkrinu með Guði,
en ganga einn í ljósinu.
Ég vil heldur njóta sjónar
hans,
en sjá sjálfur.
Er ambassadorinn lauk ljóð-
jnu, sagði hann, að undirritun
samningsins væri trúaratriði.
„Við þekkjum ekki öll svör-
in“, sagði hann. „Guð mun sjá
um hitt“.
hafsflug evrópskra flugfélaga
Einkaskeyti til Morgunblaðsins.
Salzburg, 11. september — AP
Ó FRAM kom á IATA-fund-
inum í dag, að stjórn Banda-
ríkjanna er hlynnt áætlun um
stórfellda lækkun fargjalda á
leiðinni yfir Atlantshaf.
Ó Hins vegar segir í frétt-
um, að mikillar andúðar gæti
af hálfu evrópskra flugfélaga
á þessari áætlun.
• Haft er eftir þeim, sem á
fundinum sátu í dag, að til um-
ræðu hafi verið nýtt farþega-
rými, lággjaldarými, til viðbót-
ar þeim tveimur, sem fyrir hendi
eru.
• Áreiðanlegar h e i m i 1 d i r
herma, að fulltrúar evrópsku
flugfélaganna telji tillögur
bandaríska flugfélagsins „Pan
American" um lággjöld (thrift
fares) tilræði. Sé bandaríska
hugmyndin til þess eins fram
komin að gera evrópskum flug-
félögum fjárhagslega ókleift að.
reka Atlantshafsflug.
•
Ljóst er hines vegar, að Banda-
ríkjastjórn og bandarísk flug-
yfirvöld styðja hugmyndina um
lággjöld, og telja hana svar við
kröfum almennings um lægri
flugfargjöld yfir Atlantshafið,
þ. e. milli Evrópu og Ameríku.
Allt bendir þó til þess, að
deiluaðilar á ráðstefnunni muni
gera allt, sem í þeirra valdi
stendur til að finna einhverja
lausn, þ. e. semja um fargjöld,
sem taki gildi í apríl næsta ár.