Morgunblaðið - 12.09.1963, Page 20

Morgunblaðið - 12.09.1963, Page 20
20 MORGUNBLADIÐ F5mmtudagur 12. sept. 1963 William Drummond: MARTRÖÐ 34 •— Hversvegna þesSi formleg- heit með „frú Newton?“ sagði Tony. — Fyrir einu augnabliki var það Kit og Bryan. Og þér voruð að brjótast hér inn og koma af stað áflogum og slags- málum. Sir Alfred Hawk^worth yrði tæpast hrifinn af slíkri hegð- un hjá einum verkamanna sinna. — Mér er sama, hver húsbóndi minn er. Ég ætla að minnsta kosti ekki að horfa á morð fram- ið, án þess að hafast neitt að. — Morð! — Já, djöfullegt morð að yfir- lögðu ráði, sagði Kit. — Og þú skalt ekki halda, að þú getir log- ið þig frá því, Tony Newton. — Nú skil ég allt. Svo að þér létuð glepjast af þeirri sögu hr. Younger. Mjög fallegt og riddara legt af yður. En ég er hræddur um, að ég verði að trúa yður fyr- ir leyndarmáli, sem ég segi ann- ars ekki nánustu vinum mínum frá.... — Hlustaðu ekki á hann, Bryan! — Þetta er allt lygi — ekkert nema lygi! sagði Kit. — Konan mín er haldin ofsókn arbrjálæði, eins og læknarnir kalla það, hr. Younger, eins og Byrnes, lögreglustjóri í Scotland Yard, veit manna bezt. Mig minn ir, að þér hafið hitt hann hérna um kvöldið, þegar hún fékk eítt kastið. Með öðrum orðum er hún með brjálæði, sem kemur fram í tilraunum til sjálfsmorðs, og þá verður að halda henni með valdi. — Bryan hristi höfuðið. — Því á ég bágt með að trúa. — O, það hefur ekki neitt að 'segja, hvort þér trúið því eða ;»>UMBDÐIÐ KR.KBISTJÁNSSON Hf SUDURLANDSBRAUT 2 • SÍMI 3 53 00 ekki, hr. Younger. Byrnes lög- reglustjóri, MacPherson læknir, húslæknir frá Newtons, og jafn- vel frænka hennar, eru sannfærð um þetta og það mundi líka hver kviðdómur vera, eftir að þau hafa borið vitni um það. Svo að því fyrr sem frú Newton kallar á lögregluna og þér farið með yðar klunnalega verkamanna-bak- hluta af brjóstinu á mér, hr. Younger, því fegnari skal ég verða. Kit hafði ekki gripið fram í þetta, því að þrátt fyrir allt lét hún töfrast af þessum manni, sem hún hafði gengið að eiga. Sökum mannfélagsstöðu sinnar og mennt unar, hafði hann næstum sann- fært Bryan — og jafnvel sjálfan sig — um að hann hefði á réttu að standa. Hún sá, að Bryan var í vafa, en í sama bili kom hún auga á vasa-segulbandið, sem lá hjá legubekknum. — Hafðu eng- ar áhyggjur, Bryan, sagði hún, — við höfum sönnunina í hendi okk- ar. Hún tók bandið upp. — Hann varð einu sinni ofklókur. En Bryan var ekki nógu klók- ur. Um leið og hann leit yfir til Kit, lyfti Tony brjóstinu, og greip eftir vermútflösku, sem lá á gólf- inu. Bryan hallaðist út í aðra hlið- ina. Tony greip í bindið hans með vinstri hendi, en með þeirri hægri tók hann fulla vermút- flöskuna á loft. — Guð minn góður! .Varaðu þig, Bryan! æpti Kit. 1 Og hún sá, eins og eldingu brygði fyrir, hvíturnar í hrædd- um augum Bryans og munninn, sem gapti af skelfingu. En þá datt flaskan allt í einu á gólfábreiðuna með dynk. Ein- kennilegur undrunarsvipur kom á andlitið á Tony. Hann lokaði augunum, en skjálfti fór um kinn ar hans og háls. Síðan hneig hann niður á gólfið. Bryan starði á hann en siðan á Kit. — Hvað var þetta? En hún svaraði. — Sjáðu, Bry- an. Það er blóð á höndunum á þér. Þetta var fyrst í dropatali, en síðan tók það að renna. Tony fór að hósta og jakkinn flettist frá. honum og þá var rauð- ur blettur á skyrtunni hans, sem stækkaði óðum. — Kit! Varst þú að. . . . ? Hún hristi höfuðið og í sama vetfangi litu þau bæði út á«val- irnar. Maðurinn með skemmda andlitið stakk skammbyssunni í vasa sinn. — Það varð að vera Síðbuxurnar fara þér ekki vel Jóna, þú verður svo karlmannleg annarhvor ykkar, og þá var betra að það væri hann, sagði hann. — Hver í fjandanum eruð þér? spurði Bryan og svo stóð hann upp og þerraði hendur sínar á vasaklút. — Náðu í sjúkravagn, sagði Kit. Hún kraup á kné við hliðina á manninum, sem hún hafði gifzt. Hann hóstaði upp blóði. Komumaðurinn var rólegastur þeirra þriggja, en þó var hann skjálfhentur. Hann kallaði á sjúkravagn og síðan í næstu lög- reglustöð. — Það hefur verið skotinn maður í íbúðinni á fjórðu hæð á Grosvernortorgi nr. 219. Það er sjúkravagn á leiðinni, en það væri betra að fá líka lögreglu bíl. Hann hlustaði andartak, en síðan hvæsti hann: — Sendið þið þennan bíl tafarlaust, annars fáið þið orð í eyra hjá yfirmanni ykk- ar. Svo skal ég skýra nánar frá þessu. — Ætli við ættum að leggja hann á legubekkinn? sagði Bry- an. — Nei, við skulum setja púða undir hann, sagði Kit. Komumaðurinn lagði höndina yfir trektina á símanum. — Snú- ið honum á vinstri hlið. Það er ekki vert að láta blæða inn í hitt lungað. Þau gerðu, sem þeim var sagt. Tony hafði meðvitund og hann kveinkaði sér þegar hann var hreyfður, en sagði ekkert. — Gott og vel, foringi, sagði komumaður. Fjórða hæð í Gros- vernortorgi 219. Hr. Anthony Newton. Já, við vitum, hver skaut hann. Ég gerði það. Já, rétt. Ég heiti flotadeilarforingi Roy Ehompson úr flota hennar há- tignar. Já, hafið engar áhyggjur. Ég skal bíða ykkar. VQNDUÐ II FALLEG I ODYR U Siqurpórjónsson &co Jfafiia&tnrfí é KALLI KUREKI -X~ Teiknari; FRED HARMAN — Gamli maðurinn fékk þetta sem — Láttu mig fá byssuna! Ég skal — Hver fjárinn hljóp eiginlega í leyfisbréf, en naér sýnist það ekki sýna þessum... þessum .... hana? \ vera í lagi... — Bíddu, bíddu! Þetta voru mis- — Hvað er þetta eiginlega? tök! Hann lagði frá sér símann og lagðist á hné hjá manninum, sem hann hafði skotið. Hann tók af honum bindið og fletti skyrtunni frá. — Frú Newton, sagði hann. — Ég þarf að fá heitt vatn, og svo Dettol eða eitthvað sótthreins andi, sem þér kunnið að hafa, og bómull og eitthvað til að binda um hann með. Þegar svo Kit flýtti sér upp á loft, laut hann yfir Newton og sagði: — Viliið þér láta Peggy sjá yður svona? — Newton kinkaði kolli. — Hún elskár mig, tautaði hann, en svo fór hann aftur að hósta. — Ég efast um það, urraði hann, en svo sneri hann sér að Younger. — Viljið þér ekki hringja í Grosvernor 29244, og talið við frú Thompson. Segið henni, að „það hafi mistekist". Segið henní að „það sé allt upp í loft og lögreglan sé á leiðinni“. Segið þér svo: „Tony hefur verið skotinn. Gegnum lungað. Dauð- vona“. Ef húri spyr, hver hafi gert það, þá segið: „Roy gerði það. En hann segist ekki tíma að eyða kúlu á yður“. Meira var það ekki. Þá sá hann að Kit var að koma niður og sagði: —• Þér skuluð 'nota sím3nn uppi. — Skítmennið þitt, Thompson, sagði Newton. — Hún kemur, sagði Thomp- son, — ef hún þá elskar þig. Sjúkravagninn kom og lög- reglan á hæla honum. En það var um seinan. Læknirinn sagði að Newton hefði aldrei lifað lengi. Þó lifði hann nægilega lengi til þess að verða þess var, að Peggy kom ekki. Eftir að Thompson hafði geng- ið frá sárinu, sagði hann: — Ég verð að biðja yður afsökunar, frú Newton, á því, sem ég hef gert. og á því að vera hérna kyrr. Það hlýtur að koma illa'við yður. En ég neyðist til að bíða eftir lög- reglunni. ÍHlItvarpiö Fimmtudagur 12. september. 8:00 Morgunútvarp. 12:00 Hádegisútvarp. 13:00 ,,Á frívaktinni", f jómannaþátt* ur (Eydís Eyþórsdóttir). 15:00 Síðdegisútvarp. 18:30 Danshljómsveitir leika. — 18:50 Tilkynningar. 19:20 Veðurfregnir. — 19:30 Fréttir. 20:00 Tónleikar: Sinfónía i C-dúr op, 46 eftir Hans Pfitzner (Fílhar- moníusveit Berlínar leikur; Ferdinand Leitner stj.). 20:20 Norsk stjórnmál frá 1905; fyrra erindi (Jón R. Hjálmarsson, skólastjóri). 20:45 „Grímudanslei'kur'*, óperuatrioi eftir Verdi (Zinka Milanov, Jan Peerce og Beonard Warren syngja með hljómsveit Metro« politan-óperunnar l New York; Dimitri Mitropoulos stj). 21:15 Raddir skálda: Ljóð eftir Þorstein Valdimars- son (lesin af Þorsteini frá Hamri), smásaga eftir Jónas Árnason og ljóðaþýðingar eftir Jóhann Hjálmarsson. 22:00 Fréttir og veðurfregnir. 22:10 Kvöldsagan: „Dularilmur" eftir Kelley Roos; XIV. (Halldór® Gunnarsdóttir). 22:30 Gamlir kunningjar taka lagiö á nikkuna (Henry J. 23:00 Dagskrárlok.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.