Morgunblaðið - 25.09.1963, Page 1
24 síður
50 árgangur
207. tbl. — Miðvikudagur 25. september 1963
Prentsmiðja Morgunbiaðsins
Hér getur að líta ratsjárstöð, sem reist hefur verið í YorksJhire, á Englandi. Er stöðin ein full-
komnasta sinnar tegundar í heiminum, og hefur því hlutverki að gegna að segja til um ferðir
í lofti, þ.á.m. eldflauga þeirra, sem notaðar yrðu, kæmi til kjarnorkustyrjaldar. Stöðin kostaði
43 milljónir sterlingspunda og var tekin í notkun í siðustu viku.
Bóts saknað
við Færeyjar
Einkaskeyti til Mbl.: —
Þórshöfn, Færeyjum,
24. september: —
Saknað er við Færeyjar fiski
báts, sem í voru þrír menn. í,
nótt, sem leið, var hafin leit,
iog tóku þátt alls 15 skip,
þ.á.m. norskt björgunarskip.
Báturinn lagði frá Sydredal
I á Kallsoy í fyrrinótt, og hefði
, átt að koma að landi síðdegis
í gær, hefði allt verið með
felldu.
Eitt leitarskipanna fann í,
nótt veiðarfæri á reki, en ekki
' hefur enn fengizt úr því skor
ið, hvort þau eru frá bátnum,
sem saknað er.
Veður var ekki gott á haf-
inu við Færeyjar í gær, vind-J
'hæð 7—8 vindstig.
Kommúnistar i Vietnam:
Skotiö á Boeing
707 frá PANAM
SKOTIÐ var í dag á Bo-
eing — 707 farþegaþotu,
frá bandaríska flugfélag-
inu Pan Araerican, er hún
var að búa sig undir lend-
ingu á Tan San Nhut flug-
vellinum í Saigon.
Varð vélin fyrir skotum
skæruliða kommúnista og
laskaðist. Öll olía lak af
einum hreyflinum, en lend
ing tókst þó giftusamlega.
90 manns voru með þot-
unni, en engan sakaði.
Skothríðin átti sér stað,
er farþegaflugvélin var
um 5-7 mílur frá flugvell-
inum. Þetta er ekki í
fyrsta skipti, sem þannig
er veitzt að farþegaflug-
vélum. Hins vegar hefur
skothríð skæruliðanna
ekki fyrr hæft í mark.
Flugvélin var í 1700 feta
hæð, er hreyfillinn tók að
leka olíu.
Þykir athæfi þetta við-
urstyggilegt, er lífi ó-
breyttra borgara og at-
vinnuflugmanna er stefnt
í hættu á þennan hátt.
Brottflutníngur Breta
frá Inddnesíu hafinn
Skjölum bjargab úr hvelfingu brezkc sendiráðsins
með oðs/oð sendimanna vestrænna rikja
Djakarta, 24. sept. (AP-NTB)
FJÖLDAFLUTNINGUR
brezkra þegna er nú hafinn
frá Djakarta, höfuðborg
Indónesíu. Hefur brezka
stjórnin sent Gilchrist, am-
bassador, fyrirmæli um að
hraða brottflutningi allra
Breta frá landinu.
Ákveðið hefur verið, að
Stjórn Gerhardsens tekur
vii á ný — nær óbreytt
>VMW
Verkamannaflokkurinn og Hœgri-
flokkurinn unnu á í bœjar- og
sveitarstjórnarkosningunum — endanleg
úrslit ekki kunn í gœrkveldi
Oslo, 24. sept. - AP-NTB.
EINAR Gerhardsen lagði í
dag fram lista yfir ráðherra
í nýrri stjórn í Noregi. Verða
ráðherrar nær allir þeir
sömu og sæti áttu í þeirri
stjórn Gerhardsen, er frá fór
fyrir nokkrum vikum.
Stjórnin mun taka til
starfa á morgun. Halvard
Lange verður utanríkisráð-
herra, Trygve Lie iðnaðar-
málaráðherra og Andreas
Cappelen fjármálaráðherra.
Úrslit eru ekki endanlega
kunn í bæjar- og sveita-
stjórnarkosningunum, þótt
tölur liggi nú fyrir í allflest-
um kjördæmum, þ.e. rúm-
lega 500 af 525. Þá eru og
utankjörstaðaatkvæði sums
staðar ótalin, m.a. í Osló.
• Ljóst er, að Verkamanna-
flokkurinn, flokkur Gerhard-
sen, hefur unnið á, og sömuleið-
is Hægriflokkurinn, flokkur
Lyngs, fráfarandi forsætisráð-
herra. Borgarflokkarnir hafa
Framh. á bls. 23
kona ambassadorsins, og
kona, sem starfaði við sendi-
ráðið, verði einnig á brott.
Margir sendiráðsmenn eru
þegar farnir úr landi.
Um 100 Bretar fóru í dag
flugleiðis frá Djakarta til
Singapore. Hræðsla greip
fólkið á flugvellinum í Dja-
karta, því að indónesiskar
orustuflugvélar létu ófrið-
lega yfir höfðum farþeganna,
rétt áður en þeir stigu um
borð í brezku flugvélina, sem
flutti þá á brott.
Gilchrist og starfsmenn nokk-
urra vestrænna sendiráða í Dja-
karta báru í dag skjöl brezka
sendiráðsins úr lokaðri hvelf-
ingu, sem ekki skemmdist, er að-
förin var gerð að sendiráðsbygg-
ingunni á dögunum. Var skjölun-
um komið fyrir á öruggum stað.
Talið hafði verið, að Indónes-<
ar, þ. e. yfirvöldin í landinu,
hefðu hug á að komast yfir þessi
skjöl, en horn er haft í síðu
Breta fyrir vernd þá, sem þeir
hafa heitið Malaysia, ríkjasam-
bandinu nýstofnaða.
Illa þykir nú horfa með sam-
skipti Breta og Indónesa, er dreg
ið hefur til fullkomins fjandskap
ar milli Indónesa annars vegar
og Malaysia, og fleiri, sem ríkja-
sambandið styðja, hins vegar.
Utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, Dean Rusk, átti í dag fund
með utanríkisráðherra Indónes-
íu, Subandrio, sem nú dvelst i
New York. Rusk lýsti áhyggjum
bandarískra ráðamanna yfir á-
standinu í Indónesíu, og þá sér-
staklega afstöðu Indónesa til
Breta. Fréttamenn telja, að ekki
sé loku fyrir það skotið, að Rusk
hafi tjáð Subandrio, að svo
kunni að fara, að tekið verði
fyrir bandaríska aðstoð við Indó-
nesíu,
Indónesar hafa fengið talsvert
mikið af vopnum frá Sovétríkj-
unum, og virðast tengsl Sukarn-
os, forseta, við ráðamenn komm-
únistaríkjanna verða nánari með
degi hverjum. í dag var tilkynnt
um sölu 2000 tonna af indónes-
ísku gúmmí til Kína.
Oldungadeildin stað-
festi Moskvusáitmálann
80 greiddu atkvæði með, aðeins 19 móti
Washington, 24. sept - AP
ÖLDUN G ADEILD Banda-
ríkjaþings staðfesti í dag
Moskvusáttmálann um tak-
markað bann við tilraunum
með kjarnorkuvopn. Allmikl
ar umræður urðu í deildinni
í dag, en er atkvæðagreiðsla
fór fram, kom í ljós, að mikill
meiri hluti öldungadeildar-
manna var staðfestingu samn
ings fylgjandi.
Greiddu 80 atkvæði með,
en 19 á móti. Til þess, að
staðfesting fengist, þurfti %
atkvæða, eða 66.
Atkvæðagreiðslan þykir
sögulegur viðburður. Lýsti
Kennedy, Bandaríkjaforseti,
yfir ánægju sinni, er kunn-
Framh. á bls. 23