Morgunblaðið - 25.09.1963, Qupperneq 14
14
MORGUN BLAÐIO
Miðvikudagur 25. sept. 1963
ATHUGIÐ!
að borið saman við útbreiðslu
er langtum ódyrara að auglysa
i Morgunblaðinu en öðrum
blöðum.
Orlofsdvöl 36 kvenna ur
Arnesog Rangárvallasýsiia
VIKUNA 4,—12. sept. dvöldu 36
konur úr Árnes- og Rangárvalla-
sýslu í orlofsdvöl að Húsmæðra-
Innilegar þakkir færi ég vinum mínum og vanda-
mönnum, nær og fjær, sem minntust mín með skeytum,
heimsóknum og gjöfum á 80 ára afmæli minu hinn
18. þ.m og gerðu mér daginn ógleymanlegan.
Lifið heil.
Guðmundur Guðlaugsson frá Hallgeirsey.
Kæru vinir mínir,
Hugljúfar þakkir fyrir órjúfandi tryggð og vináttu.
Ríkarður Jónsson.
Lokað í dag
vegna jarðarfarar.
KRISTINN BERGÞÓRSSON, heildverzlun
Grettisgötu 3.
Systir mín
andaðist í gær.
LARA THEODORS
Guðmundur Theodórs.
Eiginkona mín og móðir okkar
BJÖRG STEINGRÍMSDÓTTIR
andaðist að Borgarspítalanum 24. þessa mánaðar.
Aðalsteinn Björnsson,
Anna G. Aðalsteinsdóttir, Guðsteinn Aðalsteinsson.
Kveðjuathöfn um eiginmann minn
ÁSMUND JÓNSSON
skáld frá Stúfsstöðum,
verður 1 Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn þann
26. þ. m. kl. 10 30 árdegis. Athöfninni í kirkjunni verður
útvarpað. Jarðsett verður síðar frá Hóladómkirkju í
HjaltadaL Kransar afbeðnir, en þeim, sem vildu minnast
hins látna, er bent á Slysavamafélag íslands og Styrkt-
arfélag lamaðra og fatlaðra.
Irma Weiler Jónsson.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og jarðarför
RÖGNU EIÐSDÓTTUR
Borðeyrarbæ, Hrútafirði.
Karl Eiðsson,
Þórdís Eiðsdóttir, Stefán Guðmundsson og dætur,
Sólveig Eiðsdóttir, Ólafur Benediktsson,
Garðar Sigfússon og fjölskylda.
Þökkum auðsýnda vináttu við fráfall og jarðarför
eiginmanns mins og bróður
KRISTJÁNS J. BJARNASONAR
Hólmfríður Guðjónsdóttir,
Vigfúsína Bjamadóttir.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við andlát os
jarðarför mannsins míns og sonar
BJÖRGVINS MAGNÚSSONAR
frá Tröllanesi, Neskaupstað, Hjarðarhaga 54.
Viktoría Kristjánsdóttir,
Magnús Hávarðsson.
Öllum þeim sem tóku þátt í leit að hinum látna eigin-
manni mínum og föður okkar
ANTONÍÓ MERCEDE
og sem á annan hátt styrktu okkur, hjálpuðu og sýndu
okkur samúð vegna fráfalls hans færum við hinar inni-
legustu þakkir. '
Guðbjörg S. Mercede,
Guðrún Björg Mercede,
Marianne V. Mercede,
Antonio Mercede II.
skóla Suðurlands að Laugarvatni.
Formenn orlofsnefndanna, þær
Lilja Þorláksdóttir frá Austur-
hlíð og Guðrún Jónsdóttir frá
Austurhlíð og Guðrún Jónsdóttir
frá Hábæ, ásamt fleiri nefndar-
konum, skiptust á um umsjón
og fyrirgreiðslu. Konurnar höfðu
úr mörgu að velja sér til gamans
og hressingar; skoðuðu skóla-
setrið, iðkuðu gufuböð og sund
og réru á bát um vatnið. Á laug-
ardag fóru þær í boði orlofs-
nefnda til að skoða hinn fagra
garð þeirra Hvannbergshjóna að
Útey, en þau hjónin hafa ávallt
sýnt orlofskonum sérstaka vin-
semd. Sama dag skoðuðu þær
Laugardagshellana. A sunnudag
var farið í Skálholtskirkju til að
skoða staðinn og hlýða messu
Magnúsar Guðmundssonar sókn-
arprests Eyrarbakka. Kvöldunum
á Laugarvatni var varið til
skemmtunar og fróðleiks Hall-
dóra Eggertsdóttir námsstjóri
sýndi myndir úr ferðalagi um
Norðurlönd. Sr. Ingólfur Guð-
mundsson myndir frá vinnubúð-
um Þjóðkirkjunnar og Jensína
Halldórsdóttir frá orlofsvikum
undanfarinna ára. Á mánudag
kom stjórn Sambands sunn-
lenzkra kvenna í heimsókn.
Sama dag flutti Bjarni Bjarna-
son fyrrv. skólastjóri erindi urn
orlof og réttmæti þess að starf-
andi fólk, ekki hvað sízt sveita-
konur, fengju orlof, og þakkaði
þeim, sem fyrir því hefðu geng-
izt. í ræðu sinni minntist Bjarni
á Laugarvatn, landnám þess og
sögu, svo og endurreisn Skál-
holts. Frú Anna Sigurkarlsdóttir
frá Eyrarbakka hélt erindi um
heimilið og móðurina. Verður
það minnisstætt erindi. Síðasta
kvöldið var gengið til hins nýja
kennarabústaðar og þar haldin
nokkurs konar kvöldvaka. Lögðu
konurnar sjálfar fram ýmislegt
til skemmtunar, sögðu skemmti-
sögur, rifjuðu upp drauma og
dularfulla atburði. Þar færði Elín
Jónsdóttir, Kirkjuhúsi á Eyrar-
bakka, þakkir fyrir hönd orlofs-
kvenna, en hún var elzt þeirra.
Þá færði Halldóra Guðmunds-
dóttir frá Miðengi forstöðu-
konu húsmæðraskólans, frk.
Jensínu Halldórsdóttur sjóð,
sem orlofskonur höfðu safn-
að til minningar um Her-
dísi Jakobsdóttur frá Eyrar-
bakka, sem lézt 2. september sl.,
og ber hann nafn hennar. Herdís
var aðalhvatamaður að stofnun
Samb. sunnl. kvenna og formaður
þess um 20 ára skeið. Einnig átti
hún mikinn þátt í stofnun Hús-
mæðraskólans að Laugarvatni og
var í skólanefnd meðan henni
entist heilsa. í orlofsdvöl þessari
bar Sesselja Jóhannsdóttir frá
Kirkjubæ, eftirfarandi: „Hér á
Laugarvatni er sá hlutur við
veginn, sem lítill gaumur er gef-
inn, en sem gæti, ef samstilling
skapaðist, orðið andlegur orku-
gjafi og heilsulind. Á ég þar við
Hina vígðu laug. Ég leyfi mér
að leggja það til, að er við nú
kveðjum staðinn, þá göngum við
að þessum vígða reit og höldum
þar einnrar mínútu þögn í þökk
og ákalli um að sú orka, sem er
bundin þessum stað, megi nýt-
ast til blessunar öllum, sem
þangað koma. Legg ég ennfrem-
ur til, að þessi kveðjusiður verði
upptekinn eftirleiðis við orlofs-
dvalir hér“. Allir voru frú Sess-
elju sammála og fögnuðu tillög-
unni. Gengu konurnar síðan að
hinni vígðu laug og áttu þar
saman ógleymanlega helgistund.
sem sr. Ingólfur Guðmundsson
stjórnaði. Saga Hinnar vígðu
laugar er sú, að þá er íslend-
ingar tóku kristna trú á Alþingi
árið 1000, voru allir Norðlend-
ingar ög Sunnlendingar skírðir
í lauginni í Laugardal og er
bæði vatnið og bærinn nefndur
eítir lauginni — og þykir það
glöggt til minja um staðinn, því
líkur viðburður heilög skírn siíks
fjöida heiðinna manna var
Að lokinni orlofsdvöl að Laug-
arvatni, var haldið að Gullfossi
og Geysi, en síðar skildu leiðir.
Guðný Jónsdóttir,
hjúkrunarkona, LaugarvatnL
Til sölu
100 stýrissleðar, hálfunnir, ásamt efni. Einnig verk-
færi, rafmagnshandborvélar, smergelskífa og fl.
Upplýsingar í síma 50531 e.h. miðvikudag, fimmtu-
dag og föstudag.
Vélbátur til sölu
Til sölu 60 lesta nýlegur vélbátur í mjög góðu
standi, meö kraftblökk, asdic, sterkum vökvadrifn-
um spilum og góðum vélbúnaði.
Hagkvæm ltjör ef samið er strax.
7—100 lesta vélbátar með og án veiðarfæra.
TRYGGINGAR & FASTEIGNIR
Austurstræti 10, 5. hæð
Símar 24850 — 13428.
Organisfa
vantar að Landakirkju í Vestmannaeyjum. Æski-
legt væri að organistinn gæti tekið að sér forstöðu
Tónlistarskóla og önnur skyld störf. — Allar nánari
uppl. veitir Söngmálastjórn Þjóðkirkjunnar og for-
maður sóknarnefndar Friðfinnur Finnsson sími 166
V estmannaey j um.
SÓKNARNEFNDIN.
Sjúkiohúsið ú Selfos-
vantar HJÚKRUNARKONU 1. nóv. n.k. og VÖKU-
KONU 1. okt. n.k.
Uppl. hjá yfirhjúkrunarkonunni Selfossi sími 41.
Ný íbúðarhœð
til sölu í Hvassaleiti 150 ferm. Mjög vönduð inn-
rétting, allt sér.
RANNVEIG ÞORSTEINSDÓTTIR, HRL.
Laufásvegi 2 — Sími 19960.
Minnispeningur
Jóns Sigurðssonar
er tilvalin tækifærisgjöf. — Verð kr. 750.00. Fæst
hjá ríkisféhirði, í bönkum og pósthúsinu í Reykjavík.
Heimilishjálp
Barngóð kona óskast til að sjá um heimili
og 1 barn meðan húsmóðirin vinnur úti. Vinnu-
tími kl. 9—7, frí allar helgar. Umsóknir merkt:
„Sólheimar — 3871“ sendist Mbl. fyrir föstudags-
kvöld.
Ferðir í Hreppa og
Skeiðaréttir
Farnar verða sætaferðir í Skaftholtsréttir fimmtu-
daginn 26. sept. kl. 8.00 f.h. og í Skeiðaréttir föstu-
daginn 27. sept. kl. 8.00 f h
Áætlunaríerð Reykjavík — Skeið — Hreppar
verður farin miðvikudag 25. sept. kl. 17.30, en
íimmtudagsferð fellur niður.
Farið verður frá B.S.Í. v/Kalkofnsveg. Sími
18-9-11.
LANDLEIÐIR H.F.