Morgunblaðið - 23.10.1963, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 23.10.1963, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 23. okt. 1963 MORCUNBLAÚIÐ 11 Musica IMova MUSICA nova hóf fjórða starfs- ór sitt með tónleikum í Þjóð- leikhúskjallaranum síðdegis sl. sunnudag. Fjögur tónverk, mis- jafnlega nýleg, voru á efnis- ekránni, eitt þeirra eftir íslenzk- an höfund, Þorkel Sigurbjörns- son. Concertino fyrir klarinett og strengjahljóðfæri eftir Matyas Seiber reyndist vera áheyrilegt, en fremur léttvægt verk með „nýklassískum“ svip frá því um 1930 — kannske er verkið frá þeim tíma — og minnti á köflum ótakanlega á Stravinsky og raun- ar fleiri af stærri spámönnunum. KÆLISKÁPAR, 3 stærðir Crystal Kiny Hann er konunglegur! ★ glaesilegur útlits jr hagkvæmasta innréttingin stórt hraðfrystihólf með „þriggja þrepa“ froststill- ingu •A 5 heilar hillur og græn- metisskúffa ★ í hurðinni er eggjahilla, stórt hólf fyrir smjör og ost og 3 flöskuhillur, sem m.a rúma háar pottflöskur segullæsing ic sjálfvirk þíðing ★ færanleg hurð fyrir hægri eða vinstri opnun ★ innbyggingarmöguleikar ATLAS FRYSTIKISXUR, 2 stærðir Kæliskápar leysa geymsluþörf heimilisins frá degi til dags, en frystikista opnar nýja möguleika. Þér getið aflað matvælanna, þegar verðið er lægst og gæðin bezt, og ATL.AS frystikistan sér um að halda þcim óskertum mán- uðum saman. Þannig sparið þér fé, tima og fyrirhöfn og getið boðið heimUisfólkinu fjölbreytt góðmeti allt árið. ATLAS GÆÐI OG 5 ÁRA ÁBYRG0 Lang hagstæðasta verðið! ' íimi ■ $>uöiicc|ötö ÍO - Réfkiayik Twée Stucken (tvö lög) fyrir flautu, fiðlu, trompet og sláttar- hljóðfæri eftir Peter Sohaat er miklu nýtízkulegra verk en verður naumast mjög eftir- minnilegt fremur en margt ann- að, sem sýnist vera steypt í sama móti. Adagio fyrir fiðlu, klarinett og píanó, eftir Alban Berg, sýnist munu vera æskuverk eins og concertino Seibers. Það er stórt í sniðum og rómantízkt í anda og minnir í „þykkt“ sinni og „breidd“ ekki lítið á Brahms. Verk Þorkels Sigurbjörnsson- ar, Haustlitir (Steinn Steinarr in memoriam), hefir verið flutt hér áður, á einum af fyrstu tón- leikum Musica nova, ef ég man rétt, og var þá gerð nokkur grein fyrir því hér í blaðinu. — Yfir því er alvarlegur og ein- lægnislegur blær, sem er í ein- kennilegri mótsögn við heldur sundurgerðarlegan ytri búning. Fyrsti þátturinn, Intrada, fluttur af hljóðfærum eingörtfu, sýnist nokkuð laus í sér. í næsta þætti, sem nefnist Elegia, er sagt fram kvæði eftir Hannes Sigfússon með undirleik eða inngripum sláttarhljóðfæra. Þriðji þáttur- inn er hljóðfærafúga, sem ber miklu skýrara svipmót og lyftir verkinu verulega. Þá tekur við Bicinium (tvísöngur), sönglag án texta, og loks er sungið kvæð- ið Vor eftir Stein Steinarr. Ég held, að þessi síðasti þáttur verksins valdi mestu um heild- aráhrif þess og hughrif áheyr- andans að flutningnum loknum. Aðeins SHEAFFER’S hýbur yður öjryggisklemmuna. — Ýtið á hana einu sinni og ritoddur- inn kemur fram, ýtið á hana aftur og ritoddurinn hverfur. Þér getið aldrei fest þennan penna í vasa yðar með rit- | oddinn í skrifstöðu. Það varn- | ar því að þér fáið blek í föt yðar. Biðjið um Sheaffer’s * kúlupenna í næstu ritfanga- verzlun. SheafferS SHEAFFER’S umboðið á íslandi: Egill Gottormsson Vonarstræti 4. — Sími 14i89. Smurt brauð og snittur Opið frá 9—11,30 eJh. Sendum heim Brauðborg Frakkastíg 14. — Simi 18680 Hér er viðkvæmt efni og vand- meðfarið tekið næmum og eink- ar hugþekkum tökum. Þorkell Sigurbjörnsson stjórn- aði sjálfur flutningi verks síns, en Sigurveig Hjaltested söng og sagði fram ljóðin. Hljóðfæraleik arar, sem hér komu fram, voru Gunnar Egilsson (klarinett), Ingvar Jónasson (fiðla), Rut Ingólfsdóttir (fiðla), Einar Grét- ar Sveinbjörnsson (fiðla og lág- fiðla), Hafliði Hallgrímsson (celló), Averil Williams (flauta), Jón Sigurðsson (trompet), Jó- hannes Eggertsson (sláttarhljóð- færi), Gísli Magnússon (píanó) og Sigurður Markússon (fagott). Skiluðu þau öll hlutverkum sín- um — sumum mjög erfiðum — með mestu prýði. Musica nova ætti að vanda til efnisskráa á tónleikum sínum eftir föngum, eða í líkingu við það, sem verið hefir á mörgum fyrri tónleikum félagsins. Ef nokkurntíma er þörf á að gera grein fyrir höfundum og verk- um, er það á tónleikum sem þessum, þar sem tilgangurinn er sá, fyrst og fremst, að kynna ný verk og lítt þekkta höxunaa. Jón Þórarinsson. í umsögn um afmælistónleika dr. Páls ísólf.oonar, sem birtist í Mbl. sl. sunnudag, hefir mis- prentazt nafn Margrétar Eggerts- dóttur altsöngkonu, sem söng lög eftir dr. Pál á tónleikunum í dómkirkjunni. Fjölbreytt úrval af terylene- frökkum Verð frá kr. 1340.— Marteinn Einarsson & Co. Fata- & gardínodeild Laugavegi 31 - Sími 12816 Bezt að auglýsa í Morgunblaðinu KVENKULDASKÖR Mikið úrval nýkomið SKÓVERZLU N PÉTURS ANDRÉSSONAR Laugavegi 17. — Framnesvegi 2.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.