Morgunblaðið - 23.10.1963, Blaðsíða 1
24 sí^ur
Traustur f járhagur ríkisins
Greiðsluafgangur 162
millj. kr. á síðastliðnu ári
Fjárlagaiæða Gunnars Thoroddsens
FYRSTA umræða um'fjárlagafrumvarp ársins 1964 fór fram á
Alþingi í gærkvöldi. Gunnar Thoroddsen, fjármálaráðherra, fylgdi
frumvarpinu úr hlaði með yfirgripsmikilli og glöggri ræðu, þar sem
hann gerði grein fyrir afkomu ríkissjóðs á sl. ári, skýrði frá af-
komuhorfunum í ár og rakti og skýrði einstaka liði hins nýja fjár-
lagafrumvarps. M.a. kom þetta fram i ræðu fjármálaráðherra:
• Lausaskuldir ríkissjóðs voru engar í árslok 1962 — annað
árið í röð.
• Greiðsluafgangur ríkissjóðs á árinu 1962 var 162 millj. kr.
eöa 105 millj. kr. hærri en árið 1961. Greiðsluafgangur
mun verða hjá ríkissjóði í ár, en um upphæð hans verður
ekkert hægt að fullyrða að svo stöddu.
• Sparifjársöfnun hefur aukizt frá febr. 1960 til síðustu ára-
móta úr 1825 millj. kr. upp í 3531 miilj. kr. eða nærri
tvöfaldazt.
• Bráðlega verður komið á fót sérstöku skattaeftirliti hjá
ríkisskáttstjóra, til þess að hafa strangt eftirlit með fram-
tölum og framkvæmd laga um tekju- og eignarskatt, út-
svör, aðstöðugjald og söluskatt.
Fer framsöguræða fjármálaráðherra hér á eftir í heild:
Gunnar Thoroddsen
fjármálar á ðh er ra
Afkoma ríkissjóðs
Afkoma ríkissjóðs á árinu 1962
varð í meginatriðum eins og nú
skal greina:
Tekjur ríkissjóðs voru áætlað-
ar í fjárlögum 1752 milljónir.
Þær urðu 2062 milljónir og fóru
þannig 310 milljónir fram úr á-
ætlun. Valda þar mestu um að-
flutningsgjöld af innfluttum vör-
um, en það eru verðtollur, vöru-
magnstollur, innflutningsgjald,
innflutningssöluskattur og bif-
reiðagjald. Þessi aðflutnings-
gjöld urðu samtals 214 milljón-
um hærri en fjárlög gerðu ráð
fyrir. Stafar þetta af því, að ínn-
flutningur til landsins varð miklu
meiri en reiknað var með, þegar
fjárlög voru samin.
Tekju- og eignarskattur varð
24 milljónir umfram fjárlög, og
tekjur af ríkisstofnunum 11
milljónir umfram.
Útgjöld ríkissjóðs voru áætluð
í fjárlögum 1749 milljónir, þegar
talin eru saman rekstursgjöld
7.—19. greina fjárlaga 1638 millj.
og útgjöld 20. greinar, 111 millj.
Framh. á bls. 13
• MENDE LÆTUK AF FOR-
MENNSKU FRJÁUSRA
DEMÓKRATA.
Bonn, 22. okt. (NTB):
Skýrt var frá því í Bonn
í dag, að Erich Mende, að-
stoðarkanzlari, hefði sagt af
sér formennsku Frjálsa demó
krataflokksins. Eftirmaður
hans verður valinn 5. nóv. n.k.
Tító aflýsir veizlu
vegna mótmælaaðgeiða andkommúnista
New York 22. okt. (NTB).
TÍTÓ Júgóslavíuforseti, sem nú
er staddur í New York, aflýsti í
dag veizlu, er hann hafði ákveð-
ið að halda á fimmtudagskvöldið
íyrir 700 gesti. Aflýsti Tító veizl-
nnni í mótmælaskyni vegna þess,
•ð í gær réðust andkommúnist-
»r á nokkra menn úr fylgdarliði
hans. Talsmaður Títós skýrði
frá þessu í dag og sagði enn-
fremur, að yfirvöldin í New
York hefðu ekki gert nægilegar
•ryggisráðstafanir vegna veizl-
unnar á fimmtudaginn.
Meðal þeirra, sem réðust að
fylgdarliði Títós í gær voru tveir
flóttamerui frá Júgóslavíu, og
voru þeir báðir handteknir. —
Höfðu þeir komizt inn í Wal-
dorf Astoria gistihúsið þar sem
Tító býr og voru á leið til íbúðar
hahs. Fyrir utan gistihúsið kom
til átaka milli manna úr fylgdar-
liði Títós og andkommúnista, sem
þangað voru komnir til þess að
mótmæla komu forsetans til
Bandaríkjanna. Særðust tveir
fylgdarmenn Títós í átökunum.
Haft var eftir áreiðanlegum
heimildum í dag, að Adlai Ste-
venson, fastafulltrúi Bandaríkj-
anna hjá Sameinuðu þjóðunum,
hefði gengið á fund Títós og lýst
hryggð Bandaríkjastjórnar vegna
atburðanna í gær.
Máfarnir
UM þrjátíu farþegar voru með
Viscount-flugvélinni, sem
flaug inn í máfahóp við flug-
völlinn hér á sunnudag. Meðal
þeirra var Guðlaugur Hjör-
leifsson, forstjóri Landsmiðj-
unnar, sem var á leið til Bol-
ungarvíkur, en Landsmiðjan
er þar að 'ljúka við að koma
upp síldarverksmiðju fyrir
Einar Guðfinnsson.
— Við vorum að koma nið-
ur undir flugvöllinn, segir
Guðlaugur — vorum bunir að
taka beygju inni í firðinum og
komnir að því að lenda, en þá
kom máfahópur fljúgandi úr
hlíðinni fyrir ofan völlinn.
Ég veit ekki hversu margir
lentu á vélinni, en mér var
sagt að 8—10 hafi rotazt- og
legið eftir á brautinni. Þeir
komu eins og skæðadrífa yfir
flugvélina og út um gluggana
sáum við eins og snjóflyksur,
sem augað greindi ekki hvað
var.
— Svo fundum við fremur
þungan dynk, sem við vissum
ekki hvað var, en farþegar
tóku vel eftlr honum. Flug-
vélin hækkaði þegar í stað
flugið og flaug aftur út í
Djúp og kom anqan hring og
lenti.
— Farþegarnir voru ekkert
órólegir, sumir héldu að e.t.v.
hefði vélin komið eitthvað
skakkt að, en aðrir höfðu hug-
boð um, að fuglarnir hefðu
lent á vélinni.
— Það var ekki fyrr en við
lentum, að við vissum hvers
kyns var og að máfur hafði
lent á vængnum og setið þar
fastur í rifu.
Ljósmynd þessa tók Hjalti
þega, af máfnum þar sem
Einarsson, sem var meðal far-
hann hékk á vængnum.
eins og snjóflyksur
Þingsetningu frestað í Bretiandi
Stjórnarandstæðingar segja framboð
Homes til Neðri mólstoíunnar ólöglegt
London, 22. okt. — NTB
SKÝRT var frá því opinber-
lega í London í dag, að Home
lávarður, forsætisráðherra,
muni fara þess á leit við Elísa
betu drottningu, að hún fresti
þingsetningu til 12. nóv., en
þingið átti að koma saman 29.
okt.
Fullvíst er talið, að drottn-
ingin fari að ósk forsætisráð-
herrans þrátt fyrir mótmæli
stjórnarandstöðunnar.
Frestun þingsetningarinnar
gerir Home lávarði kleift að
• BOAC TAPAR
1,5 MILLJÖRÐUM.
Londion 22. okt. (NTB)
Skýrt var frá því í dag, að
á síðasta fjárhagsári brezka
flugfélagsins BOAC, sem end
aði 31. marz sl. hefði félagið
tapað um 1,5 milljörðum ísl.
króná. Talsmaður félagsins
sagði, að tapið væjri minna, en
næsta fjárhagsár á undan.
taka sæti í Neðri málstofunni
áður en þing kemur saman,
en hann verður í framhoði við
aukakosningar, sem fara fram
í kjördæminu Kinross í Skot-
landi 7. nóv. nk.
• Framboðið ólöglegt.
Stjórnarandstæðingar í Bret
landi fullyrða, að Home lávarð
ur geti ekki boðið sig fram til
Neðri málstofunnar þó að hann
afsali sér aðalstign. Talsmenn
Verkamannaflokksins og Frjáls-
lyndaflokksins í Skotlandi létu
í ljós þessa skoðun í dag. Ritari
Verkamannaflokksins, William
Marshall, sagði, að flokkur sinn
myndi mótmæla framboði Home
lávarðar vegna þess að ærin á-
stæða væri fyrir hendi. Hann
vildi ekk^ gera grein fyrir ástæð
unni. . •
Formaður Frjálslyndaflokks-
ins í Skotlandi, Arthur Purdom
sagði, að vafi léki á því, að fram
boð Homes lávarðar væri í sam
ræmi við stjórnarskrána, þar
sem Home gegndi embætti (for-
sætisráðherraembættið), sem
launað væri af krúnunni. Einn
ig sagði Purdon, að ekki væri
ljóst hvort hægt væri að leysa
Home lávarð undan trúnaðar-
eiði þeim, sem hann hefði unnið
Framh. á bls. 23.
Macmillan
framkvæmda-
stjóri bóka-
útgáfu
London, 22. okt. (NTB).:
Þegar Macmillan, fyrrverandi
forsætisráðherra Breta, út-
skrifast úr sjúkrahúsinu í
•London eftir nokkra daga,
tekur hann við framkvæmda-
stjóm Macmilian-bókaútgáf-
unnar, en því embætti gegndi
hann þar til hann varð ráð-
herra.
Sonur Macmillans, Maurice,
hefur stjórnað bókaútgáfunni
sem er ein stærsta í Bretlandi,
en nú hefur hann verið skip-
aður skrifstofustjóri í fjár-
málaráð uney tinu.