Morgunblaðið - 12.01.1964, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Simnudagur 11. jan. 1964
ANNAST SKATTA-
FRAMTÖL
einstaklmga, félaga, báta
Og fl. — Samningagerðir.
— Tími eftir samkomulagi
Friðrik Sigurbjörnsson
lögfræðingur, sími 16941
Barnapeysur
gott úrval.
Varðan, Uaugavagi 60.
Sími 1903i.
Bflamálun - Gljábrennsla
vinna. Merkúr hf, Hverfis-
götu 103. — Sími 21240 og
11275.
Trésmíðavélar
Tilboð óskast í „Universal
sambyggða trésmíðavél, —
blokkþving'ur, geirskurðar-
hníf, hefilbekk o. fl. Uppl.
í símum 51v''17 og 41314.
Hver leigir
ungum bamlausuim hjón-
um 2—3 herb. íbúð strax
eða 1. febr. Vinna bæði
úti. — Upplýsingar í síima
23521.
T/1 leigu
1 herbergi og eldhús, fyrir
eldri hjón húshjálp áskiUn.
Tilboð sendist Morgunblað
inu merkt: „Húsihjálp“ —
fyrir 18. þ.m.
Útsala
á barna- og unglingapeys-
um.
VARÐAN, Laugavegi 60,
Sími 19031
Húseigendur
Óskum eítir að taka á
leigu 2ja til 3ja herbergja
íbúð strax eða um mánaða-
mótin. Upplýsingar í síma |
1-32-99.
Húsgögn
Klæðum og gerum við
bólstruð búsgö'gn.
VALHÚSGÖN,
Þórsgötu 15 (Baldursgötu-
megin). Sími 2-33-75
Radíógrammofónn
Viðtæki, grammófónn og
segulband allt sambyggt í
falleguim skáp, til sölu, —
einnig gott, þýzkt viðtæiki.
Tækifærisverð —
Kleppsvegi 48
2. hæð, til vinstri
Grindavík
Herbergi til leigu, fæði á
sama stað.
LÁGAFELLI
Sírni 8049
En öllum þcim, sem tóku við honum
gaf hann rétt til að verða Guðs börn,
þeim sem trúa á nafn hans (Jóh. 1, 12)
fdag er sunnudagur 12. janúar og er
það 12. dagur ársins 1964
Árdegisháflæði ki. 4.06
Bilanatilkynningar Rafmagns-
veitu Reykjavíkur. Sími 24361.
Vakt allan sólarhringinn.
Næturvörður er í Vesturbaej-
arapóteki Melhaga 20—22. Sími
22290.
Kópavogsapótek er opið alla
virka daga kl. 9:15-8 laugardaga
frá kl. 9,15-4., helgidaga fra kl.
1-4 e.h. Sími 40101.
Nætur- og helgidagavarzla
lækna i Hafnarfirði vikuna 9.—
10. þm. Kristján Jóhannesson,
10.—11. Ólafur Einarsson, 11.—
13. Eiríkur Björnsson (sunnu-
Sunnudagsskrítlan
l>ú lifir og hrærist í knatt-
spyrnunni. Ég er viss um að þú
manst ekki hvnær brúðkaupsdag
urinn okkar var.
Þetta er mesti misskilningur
elskan mín. Það var sama dag-
inn og íslendmgar gerðu jafn-
tefli við írana.
Gegnum kýraugað
Er það ekki furðulegt, á
þessu landi félagasamtaka og
landssambanda, að ekki skuli
enn hafa verið undinn að því
bráður bugur að stofna til
Landsambands islenzkra
saumaklúbba? L.Í.S.
Það nýjasta í hagsmuna-
málum væntanlegs landsam-
bands íslenzkra saumaklúbba
er það, að nú eiga þeir kost á
að fá heimsókn fegrunar- og
snyrtivörusérfræðings, og þá
kemur til kasta L.Í.S., hvort
það geti samrýmt leikreglun-
um, að meðlimirnir þurfi að
hætta að tala (sauma) meðan
verið er að mála á þeim var-
irnar eða lakka tærnar?
Benda má jafnframt á það,
að yfirvofandi er sú hætta
með þessari snyrtingu, að
meðiimir L.Í.S. hætti að
þekkja hvorar aðra, vegna
fegurðaraukans, og þá er
spurningin, hætta þær þá að
þora að tala um náungann?
dagur), 13.—14 Páll Garðar Ól-
afsson, 14.—15. Jósef Ólafsson,
15. —16. Kristján Jóhannesson,
16. —17. Ólafur Einarsson, 17.—
18. Eiríkur Björnsson.
Slysavarðstofan í Heilsuvernd-
arstöðinni. — Opin allan sólar-
hringinn — sími 2-12-30.
Neyðarlæknir — simi: 11510 —
frá kL 1-5 e.h. alla virka daga
nema laugardaga.
Holtsapótek, Garðsapótek og
Apótek Keflavíkur eru opin alla
virka daga kl. 9-7, nema laugar-
daga frá kl. 9-4 og helgidaga
frá kl. 1-4. eJi.
I.O.O.F. S =1451138 = E.I.
n Mimir 596411I7H — 1 atkv. Frl.
n KDDA 59641147 = 1, Fyrirlestur
Orð lífsins svara ! stma 10000.
Undir rós
Keflavík — nágrenni
Óskum eftir 3—4 herb.
Ibúð 1. fehr. — Upplýsing
ar í síma 1701.
Smíða eldhúsinnréttingar I
og fataskápa, ór harðviði,
og set það upp, bæði tíma
vinna og ákvæðisvinna. — |
Upplýsingar í síma 24613.
Raftækjavinnustofan
Klapparstíg 30,
símar 18735 og 21554
Viðgerðir á raftækjum. — !
Nýlaignir og breytingar raf
lagna.
Hafnfirðingar!
Get bætt við mig nokkr-
um nemendum í reikning,
ensku og dönsku. — Upp-
lýsingar í síma 51144, eða
Bröttukinn 12.
Dag nokkurn varð þeim
sundurorða, Napoleon mikla og
stjórnmálamanninum Talleyrand
út af einhverju, sem sá síðar-
r.efndi hafði gert.
Napoleon hrópaði upp í bræði:
Vitið Þér, hvað þér eruð, Talieyr-
and?
Nei, svaraði hann.
Þér eruð eins og lykkjufall í
silkisokk!
Talleyrand hefndi sín, þegar
hann skömmu síðar gekk út,
því þá sagði hann svo allir
heyrðu, þar á meðal Napoleon:
Það er leiðinlegt, hvað svona
STÓR maður, hefur fengið lélegt
uppeldi!
Leiðrétting
Þess skal getið til að fyrir-
byggja misskiLning, að Ingvar
Björnsson á Siglufirði tók sum-
ar af myndum þeim sem birtar
voru af Tunnuverksmiðju brun-
anum á Siglufirði í Mbl. 10 jan.
Forsíðumyndina og fleiri tók
ljósmyndari blaðsins Steingrím-
ur Kristinsson, svo sem fram
kemur.
sá NÆST bezfi
Það er á orði haft, að Páil ísólfsson sé mikil hermikráka. Jónas
Jónasson er einn af þeim, sem orðið hafa fyrir barðinu á Páli, svo
að í frásögur er fært. Er mæit, að Páll hafi verið með nokkrar
glettur í sambanai við þessa list sína.
Sagt er, að Jónas hafi einhverju sinni hringt heim til Páls en
hann var ekki heima og kom kona hans í símann. Eftir nokkurt
samtal segir hún:
Vertu ekki að þessu, Páll. Helduiðu, að ég þekki þig ekki!
En þessi saga mun exki vera sönn.
Aftur á móti er það satt. að Jónas hringdi til Páls og kom kona
hans í símann. Jónas sagði þá til sín með þessum orðum:
Þetta er nú Jónas Jónsson. en ekki maðurinn yðar.
Þá kemur hét sönn saga frá því tímabili, er Þeir voru mestu
mátar, Ólaíur Thors og Jónas og þurftu oft að tala saman í síma.
Jónas hringdi til Ólafs og hóf samtal um ákveðið máefni, sem
honum lá á hjarta.
En einhvemveginn komst sá grunur inn hjá Ólafi, að ekki væri
allt með fe!du. Hlustar hann þó á tal Jónasar nokkra stund, þar
til hann kveður upp úr og segir:
Segðu mér nú, Jónas. ert það bú sjálfur eða er ég að tala við
helv .... hana Pál Ísc’ísson?
Fermingarbörn
Hallgrímskirkja í Saurbæ
Nesprestakall
Fermingarbörn, sem ferm-
ast eiga hjá séra Jóni Thor-
arensen komi til viðtals í Nes
kirkju miðvikudaginn 15. jan-
úar. Stúlkur kl. 5 e.h. og
drengir kl. 8:30 e.h.
Fermingarbörn, sem ferm-
ast eiga hjá Frank M. Hall-
dórssyni komi til viðtals í Nes
kirkju fimmtudaginn 16. jan-
úar stúlkur kl. 5 e.h. og dreng
ir kl. 8:30. Sóknarprestarnir.
Ásprestaball.
Fermingarbörn í Áspresta-
kalli (Vor- og haust) eru beð
in að mæta hjá sóknarprest-
inum séra Grími Grímssyni í
Langholtsskóla þriðjudaginn
14. þm. kl. 4:30.
Háteigsprestakall
Fermingarbörn þessa árs
(vor og haust) eru beðin að
koma til viðtals í Sjómanna-
skólann, sem hér segir: Ferm-
ingarbörn séra Jóns Þorvarðs
sonar komi þriðjudaginn 14.
janúar kl. 6:15 e.h.
Fermingarbörn séra Arn-
gríms Jónssonar komi mið-
vikudaginn 15. janúar kl.
6:15. e.h. Börnin hafi með sér
ritföng.
Fermingarbörn séra Emils
Björnssonar
(haust- og vor 1964) eru
beðin að koma í kirkju Öháða
safnaðarins til messu kl. 2 í
dag og til viðtals eftir messu.
Séra Emil Björnsson.
Kópavogsprestakall
Fermingarbörn í Kópavogs
prestakall (vor- og haust) eru
vinsamlega beðin að koma
til viðtals í Kópavogskirkju
mánudaginn 13. þ.m. kl. 10:30
f.h. Séra Gunnar Árnason.
Langholtsprestakall.
Fermingarbörn séra Áre-
líusar Nielssonar eru beðin
að mæta til viðtals í safnaðar-
heimili við Sólheima mánu-
dagskvöldið 13. janúar kl. 6.
síðdegis og hafa með sér rit-
föng.
Væntanleg femingarbörn
séra Sigurðar Hauks Guðjós-
sonar eru beðin að mæta í
safnaðarheimilinu við Sól-
heima næstkomandi þrðju-
dag kl. 6 e.h.
Frikirkjan
Fermingarbörn vor og
haust eru vmsamlega beðin
að mæta í kirkjunni fimmtu-
daginn 16. þm. kl. 6 e.h. Séra
Þorsteinn Björnsson.
Grensásprestakall
Væntanleg fermingarbörn
séra Felix Ólafssonar eru beð
in að koma til viðtals í Breiða
gerðisskóla miðvikudaginn 15.
janúar kl. 6 e.h.
Laugarnessókn
Böm, sem fenmast eiga í vor
eða næsta haust eru beðin að
koma til viðtals í Laugarnes-
kirkju fimmtudaginn n.k.
þann 16. janúar kl. 6 e.h. Séra
Garðar Svavarsson.
Búsaðaprestakall
Væntanleg fermingarbörn
séra Ólafs Skúlasonar eru
beðin að mæta í sal Réttar-
holtsskóla næstkomandi mánu
dag kl. 5:15 (á morgun).
Hallgrímskirkja
Fermingarbörn séra Jakobs
Jónssonar eru vinsamlegast
beðin að koma til viðtals í
Hallgrímskirkju n.k. mánudag
kl. 6:15.
Fermingarbörn séra Sigur-
jóns Þ. Árnasonar em vin-
samlegast beðin að koma til
viðtals í Hallgrímskirkju n.k.
þriðjudag kl. 6:15.
Dómkirkjan
Þau börn, sem fermast eiga
í vor hjá séra Hjalta Guð-
mundssyni, sem gegnir prests
störfum við Dómkirkjuna í
veikinöaforföllum séra Jóns
Auðuns, komi til viðtals í
Dómkirkjunni mánudaginn 13.
janúar. Einnig bocni þá þau
börn, sem eiga að fermast bjó
séra Jóni Auðuns næsta haust.
VÍSLKORN
Ást ei fipast enn sitt starf,
úr þér hripar gigtin,
og í svipan einni hvarf
árans piparlyktin.
HVAÐ ER KLUKKAN?
Þegar klukkan er 12 á hádegi
í Reykjavík er hún í:
Kaupmannahöfn 2 eJi.
London 1 e.h.
Moskva 4 e.h.
New York 8 f.h.
París 1 eJi.
Tokyo 11 eJ».
GMLT OG GOTT
Karli einum hafði verið talin
trú um það, að jörðin væri á
floti, og trúði hann því eins og
nýju neti.
Einu sinn' kom karlinn að dýi
með fleiri mönnum og var kvik-
syndi í kxing um það. Þá segir
karl: „Ekki er þykkt á henni
herna, piitar!"
+ Gengið +
Gengið 28. desember 1964.
Kaup Sala
1 enskt pund ......_ 120.16 120,46
1 Banöaríkjadoilar 42.95 43.06
1 Kanadadollar_____________ 39,80 39,91
100 Danskar kr............ 622,46 624,06
100 Norskar kr........ 600.09 601,63
100 Sænskar krónur.... 826,80 828,95
100 Finnsk mörk 1.335,72 1.339,14
100 Fr. franki __________ 874,08 876,32
100 Svissn. frankar .... 993,53 996.08
100 V-Þýzk mörk 1.080,90 1.083,66
100 Austurr. sch. ........ 166,18 166,60
100 Gyllini ........_ 1.191,81 1.194,87
100 Belg. franki __________ 86,17 86,39
Nýliga hafa opiraberað trúlof-
un sína Ólöf G. Magnúsdóttir,
Sólheimum 23 og Örlygur Þórð-
arson, Egilsgötu 30.
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sína ungfrú Ragnhildur Þórar-
insdóttir, Egilsgötu 26. Reykja-
vík og Mikael G. Mikaelsson
stud. jur., Austurbraut 8, Kefla-
vík.
Á gamlárskvöld opinberuðu
trúlofun sína Anna Kristinnsdótt-
ir hárgreiðslunemi Vesturvalla-
götu 4 og Halldór Jónsson tré-
smíðanemi Kaplaskjólsveg 27.