Morgunblaðið - 21.01.1964, Side 3
I>rið.iudagtír 21. ian. 1964.
MOff CUNfíl AOIÐ
3
Einkaskeyti til Mbl. trá
Osló, 18. jan.
ÍSLENZKA bókaisýningin í
Blindern við Oslóarháskóla
var opnuð í dag kl. 14,30. —
Mikill fjöldi gesta var þar
saman kominn. Auk próifless-
ora frá hinum ýmsu deildum
Háskólans voru viðstaddir
gamlir íslandsvinir, eins og
t.d. Robbestad prófessor. Enn
fremuir næstum öll íslendinga
nýlendan. v
Rektor Háskólans, Hans
Vogt, flutti innilegt ávarp til
íslands og drap á menningu
þess fyrr og síðar. Síðan opn-
aði dr. Gylfi Þ. Gíslason,
menntamálaráðherra, sem liú
er í heimsókn og fyrirlestra-
ferð í Noregi, sýninguna með s
stuttri ræðu. Hann sagði með-
al annars: „Leiðin milli ís-
lands og Noregs er löng, en
Frá opnun sýningarinnar. Gestir virSa fyrir sér bækurnar,
1
i
i
það hefur aldrei verið langt unum afí í starfi og gleði í
milli íslendinga og Norð- hvild.“
manna. Sameiginlega ættar- þekkingar, sem kannske er
tréð stendur dj úpum rótum í „Bókin hefur verið ómet-
langiri sögu og fornnorrænum anleg til aukningar þeirrar
arfi, sem veitir báðum þjóð- mikilvæg,“ sagði dr. Gylfi,
Dr. Gylfi Þ. Gíslason flytur opnunarræðu Bókasýningarinnar.
síðar í ræðu sinni. „Þekkingu
mannsins á sjálfum sér. Bók-
in er í rauninni sá spegill,
sem maðurinn É&t sjálfan
sig L“
Ræða menntamálaráðheinr-
ans vakti einstaka- athygli
allra gesta. Að henni lokinni
voru skoðaðar allar hinar
ágætu bækur, sem sýndar
verða í BlincLer'n næsta hálfail
mánuð. Mesta athýgli held- ég
þó að ljósprentun Guðbrand-
arbiblíu hafi vakið.
í gær hélt dr. Gylfi P,
Gíslason erindi í „Garnla há-
tíðarsal__ Háiskólans. Fjallaiði
það um þau vandamál, sem
leysa vetrður á íslandi á kom-
andi árum. Á urndan erindinu
flutti ' menntamálaráðheira
Noregs, Helgi Sivertsen, inn-
gangsræðu, en á eftir las
leikkonan Eva Ström Aastorp
úr íslenzkum nútímakveðskap
í norskri þýðingu.
— esská.
Helge Sivertsen, menntamálaráðJierra Norðmanna, Kristján
Karlsson, bókmenntaíræðingur, og dr. Gylfi Þ. Gislason,
menntamálaráðherra.
- SAS-menn
Framh. af bls. 1
gjöldunum hefur verið afhent
öllum viðkomandi flugmála-
stjórnum, en verða bersýni-
lega alls staðar lagðar fyrir
ríkisstjórnirnar. Ekki er auð-
ið að segja hvenær endanlegar
ákvaraðnir liggja fyrir.
Stokkhólmi, 20. jan. (TT)
Fargjaldastríðið milli SAS
og Loftleiða er orðið lang-
vinnt. Síðasti opinberi leikur-
inn í því kom frá SAS, og
felur í sér verulegar far-
gjaldalækkanir með þotum. í
upphafi var það 750,00 sænsk-
um krónum (um kr. 6.200,00)
ódýrara að fljúga fram og til
baka yfir Atlantshafið með
skrúfuvélum Loftleiða en þot-
um SAS. Þessi samkeppni
reyndist SAS svo erfið að svar
félagsins var að hefja ferðir
með skrúfuvélum á sömu far-
gjöldum og hjá Loftleiðum,
jafnframt því sem þotuferð-
unum var haldið áfram. Þessi
nýja ráðstöfun SAS reyndist
þó ekki eins árangursrík og
búizt hafði verið við. Að vísu
dró hún úr farþegafjölda Loft-
leiða, en SAS átti í erfiðleik-
um með að ná sér í tilætlað-
an farþegafjölda. Þessu næst
ákvað SAS því að lækka far-
gjöld sín með þotum milli
Norðurlandanna og Ameríku
um 10—15%. Hinn 3. janúar
sl. ákvað SAS að snúa sér
formlega til flugmálastjórn-
anna í Bandaríkjunum og öðr-
um viðkomaridi löndum með
ósk um að fá lægri fargjöldin
viðurkennd. Nú nýlega hafa
Löftleiðir , boðað enn lækkuð
fargjöld með skrúfuvélum yf-
ir Atlantshafið.
Aðildarfélög Alþjóðasam-
taka flugfélaga, IATA, sátu
ráðstefnu í Montreal fyrir
skömmu, og fór þar fram skrif
leg atkvæðagreiðsla um lækk-
un fargjalda yfir Atlantshaf-
ið. Því\miður náðist ekki fullt
samkomulag um lækkunina,
en þrátt fyrir það mun SAS
lækka fargjöld sín hinn 1.
apríl, ef samþykki viðk,om-
andi ríkisstjórna fæst. *Sú
ráðstöfun SAS, sem mesta at-
hygli vekur, eru ný fargjöld
fram og aftur, er gilda í 21
dag, og eru þau 1.035 sænsk-
um krónum lægri (kr. 8.570,
00) en núverandi lægstu þotu-
fargjold. Með þessari lækkun
verða fargjöldin frarri og aft-
ur yfir Atlantshafið sem hér
segir: 271,50 dollarar milli
New York og Glasgow, 300
dollarar milli New York og
London, ‘379,80 milli New
York og Kaupmannahafnar
eða Osló, og 437,40 milli New
York og Stokkhólms.
Arne Wiekberg framkvæatnda
stjóri SAS, sem var fulltrúi
félagsins á IATA-ráðstefn-
unni, sagði við lok ráðstefn-
unnar hinn 3. þ.m.:
— Flugfélögin urðu ekki
ásátt um ályktanir ráðstefn-
.unnar, og þess vegna ríkir eng
in IATA samþykkt um far-
gjöldin, sem eru í rauninni
opin. SAS harmar mjög að
ekki var unnt að ná samkomu
lagi á ráðstefnunni, en vonar
að þær reglur um ákvörðun
alþjóða flugfargjalda, sem
gefizt hafa vel til þessa, jjom-
ist á að nýju. Eins og er verð-
ur SAS hins vegar að gera þær
ráðstafanir,' sem hugsanlegar
eru, til að tryggja sér áfram-
haldandi rekstur á Atlants-
hafsleiðunum, með því að
hraða tilkomu lægri fargjalda.
Við álítum ekki nýju fargjöld-
in hin ákjósanlegustu. Við
hefðum kosið enn nieiri lækk-
un og fyrirkomulagsbreyt-
ingax. Með því að leggja far-
gjöldin fyrir viðkomandi rík-
isstjórnir, reynum við hins
vegar að fá ákveðnar þær
mestu lækkanir, sem vi<5 telj-
um sennilegt að ríkisstjórnirn-
•r geti fallizt á.
STAKSTtliAR
Rúblan 1 ilar
FORYSTUGREIN „Dags“ 8.L
laugardag ber ofangreint nafn.
Þar segir svo:
„Þjóðviljinn, sem út kom 10.
jan. var með hátíðlegu yfirbragði
og hafði mikiar fréttir áð færa,
er verma skyldi hin trúu hjörtu
í landinu kalda norður við heims
skautsbaug. Það hafði verið mik
ill dagur í austri, byltingardagur
inn sæli 7. nóvember, því að ein-
mitt þá, „á 45 ára afmælisdegi
októberbyltingarinnar miklu“,
eins og það er orðað, var opnuð
í Póllandi 5500 km. löng olíu-
veita, sem „á upptök sín austan
við Volgu, liggur yfir 18 stór-
fljót og .440 minni ár, læki og
gil og meira en 200 akvegi —
meira en einn metri í þvermál —
á sér engan líka neins staðar i
heiminum — er meiri en tvöföld
á lengd við hina frægu Arabíu-
olíuleiðslu og Big Inch í Banda-
ríkjunum — geymar, sem gætu
rúmað 12 hæða hús — “.
Þessi mikla leiðsla er nú ekki
aðeins komin til Póllands, segir
blaðið, helur einnig til Tékkó-
slóvakíu og Ungverjalands og
væntanleg til y».-Þýzkalands.
Hún heitir: „Olíuveitulína vin-
áttunnar“, segir Þjóðviljinn.
„Vináttulínan“
Og leiðari „Dags“ heldur
afram: .
„Síðan segir svo: „Vináttulín-
an er tekin til starfa. Eins og
sameining orkuveitukerfanna í
löndum Efnahagssamhjáli>arráðs-
ins var þetta marmvirki glæsi-
legt dæmi um bróðurlega sam-
vinnu margra þjóða með áðUr
óþekktum hætti“. O-jæja. í Vest
ur-Evrópu er nú víst fyrir hendi
eitthvað, sem líka kann að vera
hægt að kalla „bróðurlega sam-
vinnu margra þjóða“. ef einhverj
um sýnist, bótt ekki sé nefnt eins
hugljúfu nafni og „Efnahagssam-
hjalparráðið“ í Þjóðviljanum,
heldur hara Efnahagshandalagið,
og ekki alltaf með mikilli and-
agt! Trúlega skilja það flestir,
sem líta á hlutina með raunsæi,
að hin mikla olíuveita úr Volgu-
byggðum, vestur í Mið-Evrópu,
er ekki „vináttulína" og ekki
nema að nokkru leyti ætluð til
flutninga á þeim nauðsynjavör-
um, sem olía og benzín eru nú
á tímum í daglegu tali. Hún er
jafnframt, og trúlega fyrst og
fremst eitt af mestu hernaðar-
mannvirkjum i veröldinni. Hún
er hinn fyrirhugaði mikli afl-
gjafi skriðdreka — flugskeyta —
og sprengjufluffvéli stöðva í hugs
anlegri styrjöld við Vesturlönd.
Þetta hefur stjóm Vestur-Þýzka-
lands trúlega gert sér ljðst. þeg-
ar hún gerði efni hennar að hern
aðarbannvöru“.
„Andstæðingjar okkar“
r= íslendingar
Forystugrein „Dags“, endar
þannig:
„Sú ráðstöfun reyndist þó ár-
angurslítil, segir Þjóðviljinn og
bætir við talsvert kampakátur:
REIKNINGAR ANDSTÆÐINGA
VORRA FENGU EKKI STAÐ-
IST“. Hvað kemur til, að þannig
er að orði komizt? Er hægt að
telja þá, sem líta þetta mikla
mannvirki Rússa hornautra, til
„andstæðinga vorra“ (fslend-
inga) af beim sökuir.? Ekki erum
„vér“ fslendingar að byggja
þessa margfrægu „vináttulínu".
Orðbragðið er óskiljanlegt, nema
að greinin um „vin -ttulínuna„ sé
samin í rússneska utanríkisráðu-
neytinu og að gieymst hafi að
breyta orðalagi á tilhlýðilegan
hátt, áður en hún birtist í Þjóð-
viljanum.