Morgunblaðið - 21.01.1964, Qupperneq 4
MORCUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 21. jan. 1964.
ANNAST SKATTA- FRAMTÖL einstaiclinga, félaga, bátr og fl. — Samningagerðir. — Timi ettir samitomuláji Friðrik Sigurbjörnsson lögfræðingur, simi 16941 Fjölnisveg 2
Bílamálun - Gljábrennsla Vönduð vinna. Merkúr h.f. Hverfisgötu 103. — Sími 21240 og 11275.
Útsala á barna- og unglingapeys- um. VARÐAN, Laugavegi 60. Simi 19031.
Spil Til sölu er trukkspil, stærri gerðin. Hannes Bjarnason, Varmalandi, Hrunamanna- hreppL
Sæng-ur Endurnýjum gömlu sæng- urnar. Eigum dún- og fið- urhetd ver. Dún- og gæsa- dúnsængur og koddar fyrir liggjandi. . Dún- og fiðurhreinsurin Vatnsstíg 3. — Sími 18740.
Permanent litanir geislapermanent, — gufu permanent og kalt perma- nent. Hárlitun og hárlýsing Hárgreiðslustofan Perla Vitastíg 18 A - Sími 14146
Stúlka óskast til sk rifs tof ustarf a strax. Þarf að geta vélritað. — Uppl. á vélaverkstæði Sigurðar Sveinbjörnssonar' hf., Skúlatúni 6.
Stúlka getur fengið atvinnu. Leðurverkstæðið . / Víðimel 35.
Trésmíði Vinn allskonar innanhúss trésmíði í húsum og á verk stæði. Hef vélar á vinnu- stað. Get útvegað efnþ — Sanngjöm viðakipti. Sími 16805.
Ráðskonustaða óska eftir ráðskonustöðu á litlu heimili. Uppl. í síroa 22150.
Bíll Beinskiptur Buick ’53 til sölu með góðum kjörum. UppL í síma 19088 milli 8 og 10 e. h. í dag. j
Er kaupandi að stóruní frystiskáp, hent- ugum fyrir verzlun. Hring- ið í síma 35483 í dag kl. 1—2 e. h.
Peking endur Til sölu 50 ungar og vel með famar Peking endur. Uppl. í síma 21520.
Hagfræðingur óskar eftir starfi nú þegar. Tilboð sendist afgr. Mbl., merkt: „9783“.
Rösk og ábyggileg stúlka óskast strax til af- greiðslustarfa. Uppl. á staðnum. Álfheimabúðin Álfheknum 4.
Rrákaðan reyr mun hann ekki
brjóta sundur, og rjúkandi hörkveik
mun hann ekki slökkva (Matt. 12. 20).
í dag er þriðjudagur 21. janúar og
er það 21. dagur ársin§ 1964.
Eftir eru 3^5 dagar af árinu.
Agnesarmessa í 13. viku vetrar
Árdegisháflæðj Kl. 9.47.
Bilanatilkynningar Rafmagns-
veitu Reykjavíkur. Sími 24361.
Vakt allan sólarhringinn.
Næturvörður er í Reykjavíkur-
apóteki sími 11770 vikuna 18. 1.
— 25. 1.
Kópavogsapótek er opið alla
virka daga kl. 9:15-8 laugardaga
frá kl. 9,15-4., helgidaga fra kl.
1-4 e.h. Simi 40101.
Nætur- og helgidagavarzla
lækna í Hafnarfirði það sem
eftir er mánaðarins
22. — 23. Ólafur Einarsson
23. — 24. Eirikur Björnsson
24. — 25. Páll Garðar Ólafsson
25. — 27. Jósef Ólafsson (sunnud)
27. — 28. Kristján Jóhannesson
28. — 29. Ólafur Einarsson
29. — 30. Eiríkur Björnsson
30. — 31. Páll Garðar Ólafsson
31. — 1. febr. Jósef Ólafsson
Slysavarðstofan i Heilsuvernd-
arstöðinni. — Opin allan sólar-
hringinn — sími 2-12-30.
Neyðarlæknir — simi: 11510 —
frá kl. 1-5 e.h. alla virka daga
nema laugardaga.
Holtsapótek, Garðsapótek og
Apótek Keflavíkur eru opin alla
virka daga kl. 9-7, nema laugar-
daga frá ki. 9-4 og helgidaga
frá kl. 1-4. e.h.
RMR - 22 - 1 - 2« - SPR - MT - HT.
I.O.O.F. Rb. 4, = 113121*14 - 9. III.
I.O.O.F. = Ob. 1 P. = 145121 = E.I.
Helgafell 59641227 VI. 2
OrS lifsins svara i sima 1090».
m • yl
■V.T-.--fTf..-M|
Þriðjudagsskrítla
Læknir var kallaður heim til
geðstirðs auðmanns. „Jæja, hvað
amar að yður?“ spurði hann
glaðlega.
„Það er nú einmitt það, sem
þér eigið að ganga úr skugga
um“, anzaði auðmaðurinn.
„Stendur heima“, mælti léekn-
irinn, „en yður, er vonandi sama
þótt ég kalli á dýralækni, því
ég treysti mér ekki til "að kom-
ast að því, án þess að fá 'svör
við nokkrum spurningum“.
GAMALT og gott
Klappa saman lófunum,
reka féð úr móunum*
vinna sér til bita,
láta ekki hann pabba sinn
neitt' af þessu vita.
Orð spekinnar
Ætlir þú« að siðmennta ein-
hvern, skaltu byrja á ömmu
hans. V. Hugo.
11. janúar voru gefin saman í
hjónaband af séra Þorsteini
Björnssyni í Fríkirkjunni ung-
frú Dagbjört Svana Engilberts-
dóttir og Thorvald Kjartan
Imsland, kjötiðnaðarmaður. Brúð
hjónin fara á næstunni til Dan-
merkur. Ljósm. Studio Gests,
Laufásvegi 18.
Nýlega voru gefin saman af
séra Árelíusi Níelssyni ungfrú
Wiri Hassing og Jóhann Jónsson
bifreiðastjóri. Heimili þeirra er
að Skógargerði 4 Ljósm: Studio
Gests, Laufásvegi 18
Nýlega hafa opinberað trúlof^
un sína ungfíú Iris Karlsdóttir
Kársnesbraut 22. Kópavogi og
Baldvin Gíslason Munkaþverá-
stræti 24 Akureyri.
Þessa ágæto varúðarmynð tók
Sveinn Þórmóðsson inn í Kassa-
gerð um daginn. Hún gæti verið
bending til allra um að umgang-
ast eld með mikilli varúð, bæði
vegna eldhættu, og bruna, og
ekki síður gæti mynðTn verið
bending til fólks að hugsa sig
tvisvar um, þegar það kveikir
í fyrsta sinn í sígarettu, því að
síðustu tíðindi varðandi þær, eru
sannast sagna geigvænlegar.
Kvikmyndasýning
KVIKMYNDADEn,D
UPPLÝSINGAÞJÓNUSTU
1BAND ARÍKJANNA.
UpplýsingaÞjónustan starfræk-
ir kvikmyndadeild með hátt á
annað þúsund kvikmynda um
sundurleitustu efni, vísindi og
tækni, iandbúnað og fiskveiðar,
landslag og náttúrufyrirbrigði.
Myndirnar eru lánaðar einstak-
lingum, stofnunum og félögum,
og er lánstíminn sólarhringur,
nema sérstaklega standi á. Allar
helztu kvikmyndimar eru með
íslenzku tali. Kvikmyndadeildin
hefir einnig nokkrar sýningar-
vélar, sem lánaðar eru út með
sömu skilyrðum. Allt útlán er
endurgjaldslaust. Kvikmynda-
deildin er opin alla daga nema
laugardaga og sunnudagt kl. 9-
12 og 13—18.
VISUKORN
AUtaf snjóar yfir mó,
isköld ró um dalinn.
Víðikló I klettató
hvitri ló er falin.
Hólmfríður Jónasdóttir
Bogasalurinn
Ameríska bókasýningin í
Bogasal Þjóðminjasafnsins. í
kvöld kl. 8.30 flytur capt. B.
Partridge, Keflavíkurflugvelli í
sýningarlok fyrirlestur um bók
Kennedys forseta: „Profiles in
Courage" Kvikmynd: „A Date
with Liberty“ verður' sýnd.
Nýlega voru gefin saman í
hjónaband af séra Árelíusi Níels-
syni ungfrú Þórhildur Elíasdóttir
hárgreiðsludama og Páll J*óhanns
son rafvirkL Heimili þeirra er að
Langholtsvegi 194 Ljósm: Studio
Gests.
- Áheit og gjafir
Áhcit og gjafir til Martcinstungu-
kirkju 1962: Áheit frá S.O. 100; NN
100; ónefnd, sent i bréfi 100; ónefnd-
ur 200; Gjafir til minningar um GuS-
rúnu GuSjónsdóttlr, Köldukinn frá
Guðrúnu og GuSmundi Rvík. 200;
Sigurlínu Seheving Rvík 50; ÓS 50;
NN 10; ÁrlS 1963: Áheit frá ungum
manni 300; konu 200; Gjafir frá ó-
nefndri konu 300; Oddbj. 100; NN
10. Kærar þakkir. D.G.
Nýlega voru gefin saman I
hjónaband af séra Árelíusi Níels-
syni ungfrú Elín K. Guðnadóttir
og Hörður Jónsson leigubifreiða-
stjóri. HeiiniU .þftirra er á Kapla-
skjólsvegi 51.' Ljósm: Studio
Gests.
Kjartan Ólafsson.
vorhljómar
Já', alltaf get ég sungið söng unt
vorið,
og sál min yngist við þess
strengjaspil,
og léttar mínar byrðir fæ ég
borið,
sem barn ég gleðst af því að ver»
til.
Og þó ég finni þyngjast lífsina
strauma
með þér ég ann, og geng mín
léttu spor.
Ég enn þá bý við æsku minnar
drauma
í yndisfaðmi þínum blíða vor.
Ég elska þig, sem blessar allt og
bætir
Þó blómin fölni, og húmi í
skógarlund,
þú fagra vor, sem mér í drauml
mætir
við minningar, sem verma aOa
stund.
Ég geymi þína geisla í mínu
blóði,
og gleði lindir sem þér streym*
frá,
og þínir hljómar lifa í minu ljóðl
svo lengi hjartað veit, að elska,
og þrá.
Kjartan Ólafsson
sá KÆST bezti
Sigurður Nordal ritaði nafn sitt fyrst á skólaámm sínum S.
Nordal Þá fundu skóiabræðui hans upp á því að kalla hann
Snordal. Nú breytti Siguvður nafninu þannig, að hann ritaði
það Sig. Nordal. Ekki gáfust skólabræður hans upp við það,
og nefnrtu hann nú Signor Dal Þá fór Sigurður að rita sitt
fulla nafn og hefur gert það síðan.