Morgunblaðið - 21.01.1964, Side 10
10
MORCU N BLAÐIÐ
Þriðjudagur 21. jan. 1964.
Stúdentafélagsfu'ndur
um Hansnes Hafstein
og Dfppkastið
Á fimmtudagskvöld kl. 8,30 efn
ir Stúdentafélag Reykjavíkur til
fyrsta umræðufundar sdns á vetr
inuan, í Sigtúni (Sjálfstæðisihús-
inu). Uonræðuiefnið er „Hannes
Hafstein ög Uppkastið í ljósi sög
unnar.“
Frummælendur yerða tveir,
Iþeir Guðmundur G. Hagalín og
Sigurðux A. Magnússom
Þessi fundur Stúdentafélagsins
er ekki aðeins opinn ölum stud
entum, heldur einnig almenningi.
Eins Og kunnugt er kom út
fyrir jólin nýtt bindi af ævisögu
Hannesar Hafstein, eftir Kristján
Albertsson, og fjallar það m. a.
um hina miklu baráttu uim Upp-
kastið 1908. Hefur bókin vakið
miklar umræður, bæði í blöðum
Sigurður A. Magnússon
Guðmundur G. Hagalín
og mann á^meðal, og virðist á-
hugi á þessu sögulega máli vera
aimennur enn í dag. Má foúast
við fjörugum umræðum á fund-
inum.
Eins og fyrr segir er öllum
heimill aðgangur að fundinum
og aðgangseyrir verður 25 kr.
S.Þ. RÆÐI KASIIMIR-
DEILUNA
New oYrk, 20. jan. (NTB).
Fakistan hefur farið þess
á leit við Öryggisráð Samein-
uðu þjóðanna verði kvatt sam
an til að ræða deilu landsins
við Indland um Kasmír. Mun
Bhutto, utanríkisráðherra Pak.
Lstan, vera viðstaddur umræð
ur Öryggisráðsins.
f
Islan
Einkaskeyti frá Kaup-
mannahöfn, 20. janúar.
„Á ÍSLANDI á ég heima,“
segir Konráð Kristján Arn-
grímur Sigurðsson, forstjóri
Dana Ford umboðsverzlunar-
innar, í samtali við dagblaðið
Berlingske Tidende. Konráð
hefur tilkynnt eigendum fyr-
irtækisins, að hann segi lausri
forstjórastöðunni frá og með
1. marz n.k. til þess að- flytj-
ast til íslands.
„Foreldrar mínir voru frá
Norðurlandi," segir Konráð
ennfremur, og þótt ég sé fædd
ur í Kaupmannahöfn, þá hef
ég alltaf haft mikla löngun
til að setjast að á fslandi. Ég
tala málið ekki vel ennþá, en
með hverri íslandsferð verð
ég sannfærðari um það, að ég
verð að skipta um útsýni frá
því, sem ég hef nú úr skrif-
stofustól hér á Austurbrú.“
Konráð Sigurðsson hefur
unnið við danska bifreiða-
verzlun í 34 ár. Hann hóf
starfið í birgðaskemmu og sit
ur nú í forstjórasæti eins af
stærstu bílainnflutningsfyrir
tækjum Danmerkur með
' 150000 d. kr. í árslaun (945
þús. ísl. kr.) Hann verður
fimmtugur á þessu ári. Kon-
ráð segir, að það kunni að
virðast vanhugsað eða
iTte g k
CitJP
Skipshöfnin á Go^anesinu við brottförina frá Þorlákshöfn. Skipstjórinn og annar eigandinn,
Ragnar Jóhannesson, er lengst til vinstri. Fyrsta stýrimann vantar á myndina, Ljósm.: M. Bj.
Goianes í sinni fyrstu ferð
ÞORLÁ.KSHÖFN, 20. jan. —I hlotið nafnið Goðanes, fór sína ! mannaeyja kl. 8 í kvöld og átti
Gamli Gautur,
hefur I fyrstu áætlunarferð
að vera komið til Vestmanna-
eyja kl. 12 á ‘miðnætti. í fyrra-
málið kl. 8 fer skipið aftur til
Þorlákghafnar og verður þar á
hádegi.
Þegar skipið fór var vestan
strekkingur og skipið toilldi illa
við bryggju og slitnaði frá öðru
hverju, þrátt fyrir sterk bönd.
Farþegar komu tveir með bíl frá
Selfossi og þegar sérleyfisbifreið
in' frá Reykjavík kom, reyndust
farþegar til Eyja með henni vera
þrír. — M.Bj.
ábirgðarlaust að segja upp svo
góðri stöðu, en nú verði and-
legur hagur hans að sitja í
fyrirrúmi. Hann kveðst alltaf
hafa verið hægfara og for-
sjáll í fjármálum og á þessum
34 árum sparað saman nóg
fé til að standa straum af
þeim kostnaði, sem hið nýja
líf hans á íslandi muni hafa
í för með sér. Konráð og kona
hans eiga engin börn.
„Okkur hefur lengi langað
til að skipta um loftslag, og
einkum heilia afskekktir
staðir okkur til sín“, segir
Konráð. Hann kveðst fyrst
ætla til ísrael, en síðan til
íslands. Aðspurður um það,
hvort hann óttist ekki að
þetta reynist aðeins draum-
ur, svaraði Konráð: „Hver
þekkir sjálfan sig svo vel, að
hann getið svarað slíku? En
ég lít björtum augum á þessa
framtið okkar, og ég hef allt-
af álitið vinnu mína tæki
fremur en takmark. Auðvitað
mundi ég haga mér öðruvísi
Guðmundur bílstjóri hjá Kristjáni Jónssyni sériej fishafa af-
hendir fyrsta farþeganum frá Reykjavík með Goðanesinu,
farangur sinn.
„Hið frumstæða seiðir mig
til sín,“ segir Konráð.“ í fá-
menninu er auðveldara að
leita sannleikans. Bæði ég og
kona mín höfum alltaf haft
mikla löngun til að koma til
Landsins helga og skoða sögu
staði Biblíunnar, meira af for
vitni en hreinum trúaráhuga.
Kannske er samband milli
þessa áhuga og löngunarinn-
ar til fslands. Við viljum hafa
ró til að hugsa, en það er bezt,
þar sem maður hefur nána
snertingu við náttúruöflin. Á
íslandi finhast staðir, þar
sem hvarflar að mönnum, að
sköpun heimsins sé ekki lok-
ið.“
„Haldið þér, að þér* munið
una yður við spartverska lífs
hætti Norðlendinga?“ spyr
blaðamaður. „Þér skuluð
spyrja mig að því eftir eitt
ár. Þótt veðrið sé ekki alltaf
gott á íslandi, þá er þar mest%
sældarlíf innanhúss. Það er
ekki svo slæm tilhugsun að
koma heim 'eftir fjallgöngu
eða aðra útiveru og fá sér
glas af svarta dauða með
lambakjötinu eða fiskinum.
En hvers vegna sitjum við
hér og tölum eins og verið sé
að kveðja tilveruna, — nú
ætlum við einmitt að fara að
njóta lífsins."
Ryt^aard.
ef ég ætti börn, en þar sem
svo er ekki, þarf ég ekki að
halda áfram að safna fé. Hins
vegar tel ég mig hafa annarri
skyldu að gegna, að fá?t síðari
hluta ævi minnar við þau
verkefni, sem meiri eru, eða
réttara sagt innihaldspieiri."
„Til hvers munuð þér nota
hina löngu- daga, þegar þér
eruð orðnir sjálfs yðar
herra?“ spyr blaðamaðurinn.
„Ég vona bara, að dagarnir
verði ' nógu langir,“ svaraði
Konráð. „Hingað til hefur
vinnan gleypt allan minn
tíma. Ég hef stundað þýðing-
ar af ensku og hef mikinn
áhuga á málum. Ég hlakka
mjög til að kynnast nýjum
löndum, ekki sízt íslandi.
Kannske kaupi ég hluta í fyr-
irtæki þar, eða tek þátt í
stofnun nýrra, — kannske
geri ég það ekki. Það má
gjarna líða drjúgur tími áður
en ég dregst aftur inn í hrmg
iðu viðskiptalífsins.
Fimmtugur íslenzkur kaupsýsSumaður með
tæplega miISjón króna érsiaun, segir upp
starfi sínu til að flytjast tSS ðslands
Sendilierra Sovét
ríkjanna kveður
A. M. ALEXANDROV, sem
verið hefur 9endiherra Sovét-
ríkjanna hér á landi síðan 1958,
og frú hans fóru frá Reykja-
vík í gærmorgun kl. 8 með flug-
vél Flugfélagsins til Kaupmanna
hafnar. í . kveðjuávarpi, sean
sendiherrann flutti i útvarpið á
surtnudagskvöld, sagði hann
m. a.:
' f þau rúm fimm á,r sem ég
hefi dvalizt hér á íslandi áttj
ég kost á því að ferðast víða um
landið og kynnast mörgu og
margvíslegu fólki.. Og það miua
ekki orðum aukið að segja að ég
mun alltaf eiga ánægjulegar
endurminningar um landið og
bera hlýjan hug til marigra
þeirra seun ég hefi hitt hér.
Orðum sínum lauk sendiheirr-
ann með þassum orðum:
Að lokum vil ég óska hinnl
dugmiklu íslenzku þjóð friðar
og velmegunar og láta í ljós von
mína að á nýbyrjaða árinu
muni ný skref stigin til þess að
draga úr viðsjám á alþjóðavett-
vangi, bæta sambúð milli ríkja
og stuðla að áframhaldandi
heppilegri þróun í samskiptum
milli íslands og Sovétríkjamma.
Þökk fyrir athyglL
■fia
Þýzkur 20 marka
seðill úr gildi
SAMKVÆMT bréfi frá Deutscha
Bundebank 20. desember 1963
hefur verið ákveðið að 20 marka
seðill — fyrsta og þriðja útgáfa
— gefinn út af Bank Deutscha
Lander, hætti hinn 31. janúar
n.k. að vera löglegur gjaldmiðilL
Seðillinn er innleysanlegur hjá
Deutsche Bundebank, Frank-
furt eða útibúum bankans til 30.
apríl 1964 en eftir þann tíma
verður hann verðlaus.
(Frá Seðlabankanum).