Morgunblaðið - 21.01.1964, Qupperneq 17
Þriðjudagur 21. jan. 1964.
MOXGUNBLA&IÐ
17
Sextán staðir voru at-
hugaöir undir ráðhús
Rætt við Þór Sandholt skólastjóra
SÝNINGUNNI á líkaninu af ráS
húsi Reykjavíkur lauk á mið-
vikudagskvöld og hefur ráðhús
málið verið afgreitt í bæjar-
stjórn. Munu á þriðja þúsund
manns hafa skoöað líkanið í
Hagaskólanum. Þór Sandholt,
skólastjóri, hefur manna lengst
unnið að þessu máli, sem nú er
að komast í höfn. Sem starfs-
maður við skipulag bæjarins
vann hann m. a, að því að at-
huga staðartillögur um ráðhús,
og síðan farið var að teikna bygg
inguna hefur hann verið fram-
kvæmdastjóri arkitektanefndar-
innar. Mbl. hringdi til Þórs
og spurði hvort hann væri ekki
feginn að málið væri að komast
í höfn.
1 — Að sjálfsögðu erum við
ánægðir, bæði arkitektarnir og
ráðhúsnefndin, að nú er komið’
að því að slá botn í þetta, þannig
að ákveðið verður hvort haldið
verður áfram eða tekið hlé. Ég
vona að sjálfsögðu að haldið
verði áfram.
' — Það komu upphaflega ýms-
ir staðir tii greina undir ráð-
húsið. Er ekki eitthvað af þeim
stöðum, sem þið skoðuðuð, sömu
staðirnir sem nú er verið að
stinga upp á?
— Jú, í ágústmánuði 1952 var
samvinnunefnd um skipulagsmál
falið að skoða 16 staði, sem
stungið hafði verið upp á. Hún
skrifaði svo greinargerð um
þessa staði, sagði löst og kost á
hverjum stað og gerði síðan til-
lögu um málið. Þeir staðir sem
til greina komu voru: 1. Arnar-
hóll, 2. lóðin við Lækjargötu
milli Bankastræti og Antnianns-
stígs, 3. við Lækjargötu og Frí-
kirkjuveg, en sá staður hafði á
sínum tíma fengið góðar undir-
tektir í samkeppni sem fram fór
1946 um staðina. Veitt vorú
fyrstu verðlaun fyrir tillögu um
barnaskólalóðina, og önnur
tvenn verðlaun fyrir tillögur um
ráðhús í norðurenda Tjarnarinn-
ar. En staðurinn í Tjörninni
hafði þá verið lengi á döfinni,
svo sem tillaga fyrri ráðhús-
nefndar frá 1943 bar með sér.
4. staðurinn, sem samvinnu-
nefndin athugaði, var við Lækj-
argötu og Vonarstræti, þar sem
Iðnaðarbankinn er nú. 5. sunn-
an við Vonarstræti þar sem ráð-
gert er að byggja húsið nú. 6.
við Aðalstræti á móti Austur-
stræti 7. Aðalstræti við Tún-
götu 8. við Skothúsveg 9. við
Suðurgötu sunnan Hringbrautar,
nálægt gamla íþróttavellinum
10. Hringbraut við Barónsstíg,
þar sem umferðarmiðstöðin er
11. Klambratún við Lönguhlíð
12. við Hamrahlíð, þar sem
menntaskólanum var síðar ætlað
ur staður 13. á Háaleiti 14. við
Háaleitisveg 15. við Suðurlands-
brautina, þar sem malarnámið
er nú 16. í Laugarásnum i hæð-
inni ofan Laganesvegar. Þessir
16 staðir voru nefndir og athug-
aðir og borgarráð skoðaði þá
alla.
— Og þegar búið var loks að
velja staðinn árið 1955, þá var
tekið til starfa?
— Já, þá var byrjað að gera
áætlanir um hvað þyrfti að vera
í ráðhúsinu og tekin ákvörðun
um að efna til samkeppni. Haft
var samband við Arkitektafélag-
ið, en því miður gat ekki orðið
af henni. Þegar nefndin hafði
ákvörðun um að hætta við sam-
keppnina, var 8 arkitektum boð-
ið að teikna húsið í samráði við
ráðhúsnefnd. Aðeins 6 tóku
þessu og tóku að sér að vinna
verkið. 4 eru enn starfandi, þeir
Einar Sveinsson, Gísli Halldórs-
son, Halldór H. Jónsson og Sig-
valdi Thoroddsen, en 2 eru látn-
ir. Ég starfaði svo með nefnd-
SKV. skýrslu byggingarfulltrú-
ans í Kópavogi voru í byggingu
á árinu 1963 670 íbúðir, að stærð
307.744 kúbikm. Voru fullgerðar
í árslok 60 íbúðir, alls 24.429
kúbikmetrar og þegar komnar
í notkun 190 íbúðir, sem ekki
voru fullgerðar enn. 174 íbúð-
irnar voru fokheldar eða lengra
komnar.
1 byggingu á árinu voru 8
opinberar byggingar. í ársbyrj
un voru 4 byggingar í smíðum,
að stærð 12.157 kúbikm og auk
þess hafin á árinu bygging
Digranesskóla, Sparisjóðbygg-
ingu, kyndistöð og vistheimili,
alls 9.266 kúbikm. að stærð. Af
þes®um 8 byggingum eru komn-
ar í notkun, þó ekki sé það full-
— Fiskverb
Framhald af bls. 24.
albátur sá, sem við var miðað,
út með þörf fyrir kr, 4.06 til
þess að rekstur hans yrði halla-
laus.
Við ákvörðun meðalverðs er
það tillaga fulltrúa fiskkaup-
enda, að það verði af yfirnefnd-
inni ákveðið kr. 2.87 fyrir kg.
(þorsk og ýsu sl. m. haus), en
af hálfu fulltrúa fiskseljendá er
tillagan sú, að meðalverðið verði
ákveðið kr. 3.95 pr. kg.
Oddamaður yfirnefndar telur,
að þegar tekin er ákvörðun um
verð á ferskfiski þeim, sem hér
er um að tefla, beri að fylgja
ákvæði 1. mgr. 7. gr. laga nr.
97/1961 um verðlagsráð sjávar-
útvegsins, en þar segir, að
ákvarðanir um lágmarksverð
„skuli byggðar á markaðsverði
sjávaraifurða á erlendum mörk-
uðum.“ Fram er komið, að nokk
ur hækkun varð á útflutnings-
verði sjávarafla (fireðfisks) —
árið 1963, sem telja má, að ork-
að geti sem svarar 4—5% hækk-
un á hráefnisverði. Þar á móti
kemur hins vegar mikil hækk-
un á framleiðslukostnaði og
fastakostnaði hjá frystihúsunum
vegna kaupgjaldshækkana á ár-
inu 1963, sem eru eigi lægri en
30% og orka beint eða óbeint á
venjulegan hluta af framleiðslu-
kostnaði firystihúsanna. í þessu
sambandi er rétt að taka fram,
að fiskseljendur hafa réttmætra
hagsimuna að gæta um það, að
eigi verði annað talið til firam-
inni. Samstarf arkitektanna
hófst á árinu 1957. Hefur arki-
tektanefndin að jafnaði haft
fundi tvisvar í viku og við höf-
um lagt fram all margar tillög-
ur, sem ráðhúsnefndin hefur svo
rætt og viljað fá ýmislegt endur
skoðað. Við höfum haft sérstaka
teiknistofu. Guðni Magnússon
hefur unnið þar að staðaldri og
margir aðrir, bæði arkitektar
og nemendur í húsagerðarlist
starfað þar um skemmri eða
lengri tíma. Arkitektarnir unnu
einnig að all ýtarlegum tillög-
um um heildarskipulag miðbæj-
arins, sem þeir lögðu fyrir próf.
Bredstof á sl. vori og vetri, til
að sýna fram á skynsamlega stað
setningu ráðhússins í heildar-
skipulagi miðbæjarins. Þá var
rædd afstaða væntanlegs ráð-
húss til annarra hluta bæjarins.
Þetta er nú í stuttu máli saga
málsins, sem nú er komið á þenn
an rekspöl.
frágengið síroahús og félags-
heiimili að stærð 7.013 kúbikm.
og auk þess fokhelt eða lengra
komið 5.320 kúbikmetrar af
rými eða samtals 12.333 kúbik-
metrar.
Fjögur verzlunarhús eru i
byggingu, alls 4.710 kúbikm. að
stærð og var hafin smíði þriggja
þeirra á árinu.
f ársbyrjun 1963 voru 7 iðnað-
arhús í byggingu og á árinu haf-
in bygging 16 iðnaðarhúsa, alls
23, að stærð 44.500 kúbikmetrar.
í árslok voru fullgerð 5 iðnaðar-
hús alls og 11 fokheld og lengra
komin, eða 11 hús -samtals, að
stærð 30.685 kúbikm. Þax af eru
komin í notkiun 4 hús.
leiðslukostnaðar en þar á heima
og á athugun sú, sem áður er
getið, á fasta- og framleiðslu-
kostnaði frystihúsanna m.a. að
gefa fiskseljenáum tækifæri til
hagsmunagæzlu gagnvart fisk-
kaupendum að þessu leyti.
Að því er varðar þá 15%
kauphækkun, er varð í desem-
bermánuði sl., ber sérstaklega að
gæta þess, að miðað er við, að
firystihúseigendur muni af opin-
berri hálfú fá aðstoð til þess að
mæta þeim kostnaðarauka, er
nefnd kauphækkun leggur á
framleiðslu þeirra. Er miðað við,
að sú aðstoð geti numið allt að
kr. 0.30 á hvert kg. hráefnis,
þannig að hækka megi áætlað
viðmiðunarverð úr kr. 2.55 í
kr. 2.85.
Þegar þessi atriði eru virt, og
litið er til gagna þeirra og upp-
lýsinga, sem tiltæk hafia verið,
telur oddamaður eigi fyrir hendi
grundvöll samkvæmt megin-
reglu 1. mgr. 7. gr. laga nr.
97/1961 til þess að hækka við
þessa verðlagningu meðalverð
það á fierskfiski, sem samþykkt
var af yfirnefnd í janúar 1963 og
gilti til loka þess árs. Er atkvæði
oddamanns samkvæmt því það,
að meðalverðið kr. 3.24 á slægð-
um þorski og ýsu með haus
standi óbreytt, enda er við þá
ákvörðun höfð í huga batnandi
framleiðni 'frystihúsanna, er
gefa á möguleika til betri
greiðslugetu, og svo líkur til
þess, að verðlag á erlendum
markaði á íslenzkum sjávairaf-
urðum hækki frekar en lækki.
Með því að tillaga oddamanns
um meðalverð liggur þannig
milli framangreindra tillagna
fulltrúa fiskkaupenda og fisk-
seljenda, verður samkvæmt
venjulegum dóimskaparreglum
meðalverð það, er hún felur í
sér, kr. 3.24, það verð, er gilda
skal eigi skemur en verðlags-
tímabilið irá 1. janúar til 31. maí
1964, sbr. 7. gr. laga nr. 97/1961,
en tekin verður sérstaklega
ákvörðun um það, hvort þessi
verðákvörðun skuli gilda leng-
ur.
VQNDUÐ II n
FALLEG H
ÚDYR u n
Sjqurþórjónssoti &co
ÍS Jiafiuxistiirti k
Miklar byggingafram
kvæmdir í Kópavogi
Sextugur i dag:
Páll Schevingr
verksmiðjustjóri
SEXTUGUR er í dag Péll Schev-
ing, verksmiðjustjóri hjá Lifrar-
samlagi \'estmannaeyja. Hann
er fæddur í Eyjum, sonur hjón-
anna Sveins Schevings, hrepp-
stjóra og lögregluþjóns og Kristó-
línu Bergsteinsdóttur.
Páll hefur löngum látið félags-
mál og íþróttamál til sín taka,
enda hefur hann helgað ^gim
krafta sina. Hann var einn af
stofnendum og fyrsti formaður
Vélstjórafélags Vestmannaeyja.
var reyndar formaður þess oftar
en einu sinni og fulltrúi þess á
Alþýðusambandsþingum.
Þá var Páll einn af stofnend-
um Knattspyrnufélagsins Týs
og var ritari þess fyrstu 5 árin.
Lagði hann mikla stund á íþrótt-
ir á fyrri árum og átti m.a. ís
landsmet í langstökki um tíma og
varð fyrstur íslenzkra hástökkv-
ara til að beita svokallaðri „hvolf
stökksaðferð", en var meinað að
beita því á kappmótum.
Páll Scheving hefur starfað
mikið og gerir ennþá, í Sjálfstæð-
isfélagi Vestmannaeyja. Var hann
formaður félagsins sl. 12 ár, eða
þar til 10. jan. sl„ er hann baðst
undan endurkjöri.
Páll sat.í bæjarstjórn af hálfu'
Sjálfstæðismanna í 8 ár sam-
fleytt og í bæjarráði í 4 ár. Starf
aði hann m.a. í byggingarnefnd
og rafmagnsnefnd og er reyndar
formaður hennar enn þá.
Kvæntur er Páll Jónheiði
Steingrímsdóttur Scheving, ætt-
aðri frá Akureyri. Eiga þau þrjú J
börn, Helgu, sem er gif,t Hall-
dóri Bjarnasyni, verkstjóra; —
Margréti, sem. er gift Ingvari
Viktorssyni, stúdent, og Sigiur-
geir, kaupmann, sem er kvænt-
ur Sjöfn Sigurbjörnsdóttur frá
Reykjavík.
Allir hinir fjölmörgu vinir og
kunningjar Páls Sohevings senda
honum og fjölskyldu hans beztu
árnaðaróskir á þessum tímamót-
um í ævi hans.
— B
Skrifstofustulkur
Viljum ráða i eða 2 skrifstofu-
stúlkur strax.
Hf. Eimskipafélag íslands
Teknir upp i dag
KVEIMKULDASKÓR
VERÐ: KR. 215—
Stærðir: 36—41.
LITUR: BRÚNN.
EINNIG FRANSKIR
KVENKULDASKÓR
LITUR: SVART — MJÓR HÆLL.
RAUTT LOÐFÓÐUR — ÓVENJU FALLEGIR
VERÐ KR. 669.—
Skóhúsið
. Hverfisgata 82.
Sími 11-7-88.