Morgunblaðið - 01.02.1964, Page 1
24 siður
51. árgangur
26. tbl. — Laugatdagur 1. febrúar 1964
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Vísindámenn telja að
Ranger VI." hitti tunglið
#/
Heppnist tilraunin sendir tunglflaugin
3 þús. myndir ai yfirborði tunglsins
til jarðar
Kennedyhötfði,
31. janúair (NTB, AP).
TUNGLFLAUG Bandaríkja-
manna „Ranger, VI“ nálgast
nú tunglið með 7.096 km
hraða á klst. Eru vísinda-
ménn bjartsýnir á að flaug-
in muni hitta tunglið, Allar
fyrri tilraunir Bandaríkja-
manna með tunglflaugar
hafa misheppnazt (Sjá nán-
ar á bls. 10).
í morgun var „Ranger VI“
komin út af réttri braut, en
með radíómerkjum tókst
vísindamönnum að laga
skekkju í stýrisútbúnaði
flaugarinnar og auka hraða
hennar þannig að hún komst
á rétta braut. Hefði þetta
mistekizt hefði flaugin farið
framhjá tunglinu í um það
bil 1000 km. fjarlægð.
Gert er ráð fyrir að „Raniger
VI“ lendi á tunglinu á sunnu-
daigsmorgun, en þá eru liðnar
G6 kl ukkustiundir frá því að
flauiginni var skotið á loft frá
Kennedyihöfða. Þegar hún á eftir
10 mínútna ferð til tuniglsi-ns
hefja sex myndavélar, sem í
henni eru, að taka myndir og
er g'etrt ráð fyrir að þaer taki
300 myndir á minútu eða 3000
myndir alls. Þegar myndatök-
unni lýkur rekst flaugin á tungl-
ið og hrotnar og þá er hlutverki
hennar lokið. Ef aJlt gengur
samkvsemt áætiun veiða mynd-
irnar, sem flaugin tekur, þsar
greinilegustu, sem teknar hafa
verið af yfirborði tunglsins. —
Rússnesika eldfla-ugin „Lunik 3“
Framh- á bls. 23.
Kyrrt í Saigon í dag
Van Minh ráðgjaíi hinnar nýju Sijórnar
Saigon 31. jan. (NTB)
LEIÐTOGI hinnar nýju bylt-
ingarstjórnar í Suður-Vietnam,
Nguyen Khanh, ávarpaði í dag
þjóðina og sagði að mikil hætta
vofði nú yfir Suður-Vietnam.
Hann skýrði ekki nánar í hverju
þessi haetta væri fólgin, en talið
er að hann hafi átt við skæru-
liða Viet Cong komnr.únista.
Rhanh sagði, að stjórn Nguyen
Ngoc Tho, forssetisráðherra,
hefði sagt af sér og byltingar-
ráð stjórnaði landinu þar til ný
stjóm hefði verið mynduð, en
hann kvaðst ætla að reyna að
mynda stjórn með aðild allra
flokka landsins þannig að inn-
byrðis á.tök lömuðu ekki þjóðilia
í baráttunni gegn kommúnistum.
Khanih sagði, að yfirmaður
hemáðsms, sem tók völdin í
nóvemlber s. 1. Van Minh, hefði
tekið við embætti ráðgjafa hinn-
ar nýju byltingarstjórijar.
Sem kunnugt er hafa Frakkar
lagt til að Suður-Vietnam verði
hlutlaust ríki ' og í gær sa-gði
útvarpið í Saigon, að vegna þess
hyggðist hin nýja stjórn lands-
ins slíta stjó-rnmálasambandi við
Frakka. í dag sagði Khan-h, að
de Gaulle Frafcklandsforseti
hefði engan rétt til þess að
skipta sér af málefnum Suður-
Vietnam Otr kvaðst vera mjög
a-ndvígur tillögu forsetans og
stefnu hans.
Verka-menn í Saigon fóru í da-g
kröfugöngu í b-orginni og hvöttu
Framih- á bis. 23.
De Ganlle' Frakklandsforseti ræðir við fréttamenn.
Híutleysi eina leiðin til trygg-
ingar friði í Suðaustur-Asíu,
París 31. janúar (NTB).
• De Gaulle, Frakklands-
forseti, sagði á fimdi með frétta-
mönnum í dag, að hann teldi, að
friður í Suðaustur-Asiu yrði
ekki tryggður nema samkomu-
lag næöist um hlutleysi allra
þjóða á þessu landssvæði. Ætti
Kínverska alþýðulýðveldið að
styðja slíkan samning, því hann
yrði óraunhæfur, ef Pekingstjórn
in ætti ekki aðild að honum.
Friðrik Ólafsson.
MBL. ÁTTI i gær stutt sam-
tal við Friðrik Ólafsson og
spurði hjmn um skákmótið og
viðureign hans við Tal í fyrra
kvöld.
— Eg er ekkert óánægöur
með skákina. Það þurfti að
hafa fyrir þessu og það er ‘að
atriðið er að falla mq,ð sæmd,
átt von á að tapa. Og aðal-
triðið er að falla með sæmd,
er það ekki, sagði Friðrik og
hló við.
— Er skemmtilegt að tefla
við Tal?
— Maður fær nóg að starfa.
— Það er talað um að þú
hafir lent í tímaþröng?
— Já, það var heldur ó-
heppilegt. Eg hefði vafalaust
getað bjargað þessu með næg
um tíma. Annars getur mað-ur
Vissara að halda
sér fingraliprum
ví-st al-ltaf sagt það eftir á. Eg
notaði einmitt tima minn til
að byggja svona upp skákina
og e.t.v. hefði ég ekki getað
byggt hana eins upp á
- segir Friðrik
skemmri tíma. Svo það er erf
itt að segja.
— Eg held að mótið hafi
tekizt mjög vel, segir Frið-
rik ennfremur. öll fram-
kvæmd mótsins er mjög góð
og það hefur vakié -skákáhuga
hér. Þeir, sem standa fyrir
mótinu, eiga miklar þakkir
skilið. Þeir hafa vmnið mikið
starf af fórnfýsi
— Hvernig hafa ísl-ending
arnir staðið sig í samanburði
við hina?
— Það er greinilegt að þeir
eiga undir högg að sækja. Og
þar kemur fyrst og fremst til
æfingarleysi. Þá vantar alla
„rútínu" og hafa litla að-
stöðu til að spreyta sig í mót
um sem þessu.
— Hvað um þig sjálfan?
— Eg hefi kannski betri að
stöðu hvað það snertir. En ég
er ekki nógu þjálfaður sjálf-
ur, hefi ekki teflt síðan í júni
eða júlí. Það er vissara að,
halda sér í þjálfun þegar
svona karlar eru annars veg-
ar. Maður verður að halda
fingralipurðinni svolítið við,
rétt eins og píanóleikari.
— Gengur þér ver að tefla
Framh. á bls. 2.
• f>e Gaulle ræddi ekki sam-
band Frakklands og Formósu,
en sagði, að skynsemin hefði boð
ið Frökkum að taka upp stjórn-
málasambánd við Pekingstjórn-
ina. Hún væri ekki lengur hand
bendi Sovétstjórnarinnar og hlut
lausari en stjórn Formósu.
• Fundurinn, sem de Gaulle
hélt í dag, er sá tíundi, sem hann
heldur með fréttamönnum í for-
setatíð sinni. Fundurinn stóð
eina og hálfa klukkustund og
J>ar af ræddi forsetinn heila klst.
um innanríkismál. Af utanrík-
ismálum ræddi hann, sem fyrr
segir, viðurkenningu Frakka á
Pekingstjórninni og málefni
Suðaustur-Asíu. Einnig ræddi
hann einingu Evrópu og aukna
aðstoð Frakka við vanþróuðu
löndin í Asíu, Afríku og Suður-
segir de Gaulle
Ameríku, en lét ósvarað spum-
ingum fréttamanna um kjarn-
orkutilraunir Frakka á Kyrra-
hafi, ástandið í Mið-Austur-
löndum og hvort hann hygðist
bjóða sig fram við forsetakosn-
ingarnar 1965.
Um viðurketTningun-a á stjórn
Kínversika alþýðulýðveldisins
sa-gði de Gaulle, að frá sjó-nar-
miði skynseminnar hefði verið
nauðsynleigt fyrir Frakka að taka
nú upp stjórnmálasa-mband við
Pekingstjórnina. Frakkar gerðu
þetta eftir að haf-a, eins og marg
ar aðrar þjóðir, árum sarnan
verið hlynntir tilhugsuninni tim
st j ór nm-ál asamband við þetta
stóra, fuillvalda ríki. Stefna Pek-
ingstj órna-rinnair nú einken.ndist
af meira hlutleysi en stefna þjóð
Framh- á bls. 23.
Tillaga um lög-
reglulið á Kýpur
London, 31. janúar (NTB)
BANDARÍKJAMENN og Bretar
lögðu í dag til, að „alþjóðlegt lög-
reglulið“ yrði sent til Kýpur og
útncfndur sáttasemjari, sem
ræddi við leiðtoga þjóðarbrot-
anna á eyjunni með það fyrir
augum að leysa vandamálin í
sambandi við breytingar þær á
stjórnarskrá eyjarinnar, sem
grískumælandi menn krefjast.
Fulltrúar Grikka, Tyrkja og
þjóðarbrotanna á Kýpur á ráð-
stefnunni, sem haidih er í Lon-
don um málefni eyjarinnar, hafa
ekki samþykkt þessa tillögu og
þeir hafa áðuí sagt, að þeir geti
ekki fallizt á að lögregluliö sé
sent til Kýpur nema því aðeins
að það sé undir stjórn Samein-
uðu þjóðanna. Makaríos erki-
biskup, forseti Kýpur, hefur sagt,
að hann telji ónauðsynlegt og ó-
æskilegt, að hermenn frá Atlants
hafsbandalagsrikjunum verði
sendir til Kýpur. Verði erlent her
Iið sent til eyjarinnar sé frum-
skilyrði að þáð verði undir stjórn
Sameinuðu þjóðanna.