Morgunblaðið - 11.02.1964, Page 27

Morgunblaðið - 11.02.1964, Page 27
Þriðjudagur 11. febr. 1964 MORGUNm ADID 2? Ný gögn í itiáli Oswalðs? Móðir hans til yíirheyrzlu Vopnahlé í írak? Washington, 10. febrúar. NTB Móðir Lee Harvey Os- walds, frú Marguerite Os- wald, kom í dag til yfir- heyrslu hjá Warren-nefnd inni, sem rannsakar morð- ið á John F. Kennedy for- seta Bandaríkjanna. Frúin hafði meðferðis stóran pakka, vafinn í brúnan pappír, og sagði frétta- mönnum, aðspurð, að þar væri hún með ný sönn- unargögn fyrir sakleysi sonar sína. Eftir þriggja klukku- stunda yfirheyrslu fór hún á brott, án þess að tala við fréttamenn- og Warr en, dómari, sem gjarna hefur spjallað stundarkom við fréttamenn að loknum yfirheyrslum, neitaði al- gerlega að tala við þá í dag. Smyglað áfengi finnst í togara SL. laugardagskvöld gerðu toll- veriðir leit í togaranum Hauki, sem var að koma frá Þýzkalandi. Fundust í skipinu 360 flöskur af áfengi, svo sem vodka og gene- ver, og var talsvert af vodkanum 15%. I»á fundust einnig 2.200 sígarettur. Rannsóknarlögreglan fékk málið til rannsóknar, og ját uðu tveir skipsmenn á sig smygl Ið í gærmorgun. Beirut, 10. febr. — NTB Foringi Kúrda í Norður- írak, Mullah Mustapha Barzani, sem stjórnað hefur uppreisninni gegn stjórn landsins, og forseti íraks, Ab- del Salam Arif, gáfu í kvöld skipun um að þegar í stað yrði bundinn endi á vopna- viðskipti herjanna. — Voru tilkynningar þeirra lesnar á arabísku í Bagdad-útvarpið án frekari skýringa. Framlag kvenna- deildar SVFI um 240 þús. kr. sl. ár KVE,NNADEID Slysavarnarfél- ags íslands í Reykjavík hélt aðal fund sinn 3. febrúar sl. Gjaldkeri félagsins gerði grein fyrir ársreiknmgum deildarinnar og skýrði frá því, að framlag deildarinnar til S.V.F.Í. á árinu hefði numið kr. 239.347,62. Auk þessa hafði deildin áður afihent slysavarnarfélaginu kr. 100 þús. til kaupa á talstöðvum fyrir björgunarsveitirnar. Deildin mun eins og að undan förnu hafa merkjasölu á góu- daginn 23. febrúar til ágóða fyrir slysavarnarstarfsemina og heitir á góðar undirtektir almennings nú sem fyrr. Stjóm deildarinnar var öll endurkosin, en hana skipa: Gróa Pétursdóttir, formaður; Hlif Helgadóttir, gjaldkeri; Eygló Gísladóttir, ritari. Meðstjórnendur: Ingibjörg Pét ursdóttir, varaformaður; Þórhild ur Ólafsdóttir, Guðrún Ólafs- dóttir, Guðrún Magnúsdóttir, Steinunn Guðmundsdóttir, Sig- ríður Einarsdóttir. VeiðimáJ í Árnes- í GREININNI Veiðimál í Árnes- sýslu eftir Hór Guðjónsson, veiði- málastjóra, sem birtist í blaðinu á sunnudaginn, féllu niður nokk- ur orð úr einni setningu, er breyttu merkingu hennar. — Nefnd setning hljóðar þannig í samihengi: „Ágreiningur hefur verið um arðskiptingu, veiðitilhögun, veiði útbúnað, veiðieftirlit, getu lax- veiðilaganna til þess að vernda fiskstofnana á félagssvæðinu fyrir ofveiði, skilning, sem leggja beri í einstök ákvæði lax- veiðilaganna og fleira.“ M.A. nemend- nr sýnn „Er á meðan er“ Akureyri, 10. febrúar. LEIKFÉLAG M.A. hefur nú sýnt sjónleikinn „Er á meðan er“ fjórum sinnum og er fimmta sýningin í kvöld. Jafnan hefur verið húsfyllir á sýningunum viðtökur leik- húsgesta hinar ágætustu. Næstu sýningar eru á'kveðn ar þriðjudag, miðvikudag, föstudag, laugardag og sunnu- dag. Ennfremur er fyrirhug- uð leikför til Siglufjarðar um aðra helgi, en það er gömul venja Leikfélags M.A. að sýna verkefni sín þar- 1 lok frumsýningar ávarpaði Þórarinn Björnsson, skóla- meistari, leikendur og leik- stjórann, Jónas Jónasson, og þakkaði þeim góða frammi- stöðu. Þá þökkuðu nemendur skóla meistara og Árna Kristjáns- syni, kennara, ágætan stuðn- ing við leikíélagið og voru þeim færð blóm. Á hópmyndinni eru m.a. Jónas Jónasson, þriðji frá vinstri, skólameistari og Árni, lengst til hægri. Tvídálka myndin er al Alice (Helgu Jónsdóttur) og Tony (Vilhjálmi Vilhjálms- syni). Myndirnar tók E. Sigurgeirsson. Konur Kópa- vogi SJÁLFSTÆÐISKVENNAFÉ- LAGIÐ Edda heldur sniðnám- skeið á næstunni í Sjálfstæðis- húsinu, Kópavogi. Þær félagskon ur eða aðrar, sem óska eftir upp- lýsingum eða að innrita sig á námskeiðið eru beðnar að gefa sig fram í símum 41286, 40708 og 40954. Malinovskí harmar friðsemdar- stefnu sovézkra listamanna Moskvu — NTB Landvarnaráðherra Sovétríkjanna hefur ráðizt með hörku gegn því, sem hann kallar „tilhneigingar til friðsemdar“ í sovézkum bókmenntum og listum. — Harmar hann að dýrkun sovézkra listamanna á sönnum hermannlegum hetjudáðum hafi minnkað verulega. Ráðherrann, Rodion Malin- ovskí, setti fram þessi sjónar- mið í ræðu, er hann flutti á ráðstefnu, er landvarnaráðu- neytið og menntamálaráðu- neytið boðuðu til. Voru fund- ir þar haldnir fyrir lokuðum dyrum. Aðalumræðuefni ráð- stefnunnar var hvernig styrkja mætti föðurlandsást Rússa. Ræða Malinovskís var birt í „Rauðu stjörnunni“, mál- gagni landvarnaráðuneytisins. Vestrænir fréttamenn í Moskvu telja, að ráðherrann hafi með ræðunni fyrst og fremst túlkað skoðanir sov- ézkra hernaðarsinna, sem ekki eigi almennt fylgi meðal forystumanna sovézka komm- únistaflokksins. Benda þeir á, að Tass-fréttastofan hefur ekki á ræðuna minnzt og Pravda aðeins getið þess í fá- um orðum, að Malinovskí hafi haldið merkilega ræðu. Önnur blöð en „Rauða stjarn- an“ hafa ekki birt ræðuna. Hæstu viiminp;ar r happdrættis H.I. Hæsti vinningurinn, 200,000 krónur, kom á heilmiða númer 33,797, og voru báðir heilmiðarn ir seldir í umboði Guórúnar Ólafsdóttur, Bókaverzlun Sig- fúsar Eymundssonar, Austur- stræti, Reykjavík. 100,000 krónur komu einnig á heilmiða númer 54,831. Voru báðir heilmiðarnir seldir í um- boðinu á Suðureyri við Súganda- fjörð. - íþróttir Framh. af bls. 26 jafnteflið gefið réttasta mynd af leiknuim, en með sigri virðist ekkert nema stórslys geta kom- ið í veg fyrir að Fram vinni bik- arinn í þriðja sinn í röð. Víkingur — ÍR 27-24 Víkingur og ÍR háðu alljafna en að sama skapi lélega baráttu í fyrri leik kvöldsins. ÍR liðið var án Gunnlaugs og missti við fjarveru hans næstum allan svip og alla sigurorku. En leikurinn var jafn þar til á síðustu mínút- um að Víkingum tókst að trygigja sigurinn og komast úr bráðustu falLhættu. — Utan úr heimi Framh. af bls. 14 arra Vesturvelda, séu ekki á rökum reistar. í>að hafið verið margra trú allt fram á föstudag, að Sovét ríkin myndu ekki skerast í leikinn vegna Kýpur. Ætli þau nú hins vegar að hindra NATO-gæzlulið í að halda til Kýpur, eða beita sér gegn svipaðri lausn, þá kann svo að fara, sem margir hafa nú fengið aukna trú á: S>kipta verði Kýpur milli þjóðarbrot- anna. — Þjófnaðaralda Frh. af bls. 28 og var þannig gengið frá þeirn af eigendum að þjófarnir áttu ekki í erfiðleikum, eins og fyrr getur. Einn billinn fannst óskemmdur í Höfðaborg í gær. Annar hafði verið tekinn í Meðaiholti, og fannst í Skaftahlíð. Sprungið var á bílnum, og var hon.uim ekið þannig. Skildu þjófarnir bílinn eftir í gangi, og hafði öll olía lekið af honum er hann fannst. Þriðji bíllinn var tekinn á Hrísa- teigi og fannst fastur í leðju ut- an við veginn í Mosfellssveit, nánar tiltekið skammt frá Lamb- hagabrú. Rannsóknarlögreglan biður þá, sem upplýsingar gætu gefið má þessi, að gefa sig fram.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.