Morgunblaðið - 04.03.1964, Page 1
2R síAur
De Gaulle sagiur undirbúa
tillögur í Kýpurdeilunni
Fundur Öryggisráðs SÞ, stóð í 8 mín.
Nýju tillögurnar sagðar samrýmast
kröfum Kýpurstjórnar — Mótmœla-
göngur í Aþenu
Ráðuneytisfundur i Paris
Mikil spenna ríkti á íundinum.
Höfðu þá nýlega borizt fregmr
frá París, er mjög komu á óvart.
Var þar nýafstaðinn ráðuneytis-
fundur, þar sem Couve de Mur-
Framhald á síðu 27
Á fundi þeim, sem Lyndon B.
Johnson, forseti Bandarikj-
anna átti með fréttamönnum
sl. laugardag, skýrði hann
m. a. frá því, að reynd hefði
verið ný orrustuþota, af gerð-
inni A-ll. Sagði forsetinn, að
þessi nýja þota væri miklu
hraðfleygari en þær hrað-
fleygustu þotur er til þessa
hefðu verið þekktar. Hún
hefði verið reynd í 70.000 feta
hæð og hraði hennar farið
yfir 2.000 mílur i klukku-
stund. Meðfylgjandi mynd af
þotunni lagði forsetinn fram
á fundinum, en frá honum
var sjónvarpað um gervöll
Bandaríkin.
Grikkja-
konungi
hrakar
Aþena, 3. marz, AP.
HEILSU Páls Grikkjakon-
ungs hefur mjög° hrakað i
dag. Siðasta tilkynning lækna
hans hermir, að ástandið sé
hið alvarlegasta. Hann hefur
m. a. átt við alvarltija þvag-
teppu að stríða, og hafa lækn
ar ekki upplýst hvað valdi.
í dag var sent flugleiðis
eftir lyfjum frá Daz-mstadt
ag bæði þota og þyrla notað-
ar. Einnig var sendur hrað-
bátur til Tinosareyju, eftir
dýrmætustu helgimynd
Grikkja, ef gagna mætti
heilsu konungs, — en talið
hefur verið, að helgimynd
þessi geti gert kraftaverk. —
Fyrr í dag var konungur
mjög þjáður og bað þá um
Framhald á síðu 27
Aþena, New York, 3. marz. — (AP) —
^ ÞÚSUNDIR öskrandi manna — að miklum hluta grískir
stúdentar — fóru um götur Aþenu í dag og létu hávært
í Ijósi skoðanir sínar á Kýpurdeilunni. Kröfðust þeir þess, að
Kýpurbúar fengju sjálfir að ráða málum sínum, og hrópuðu
ókvæðisorð um Breta og Bandaríkjamenn, sér í lagi um
Johnson, forseta. Jafnframt hylltu þeir Rússa og þátt þeirra
í málinu. Fyrir framan bandaríska sendiráðið var brennd
brúða, er bar mynd Johnsons, forseta.
^ Samtímis gaf George Papandreou, forsætisráðherra i
Grikklands, út þá tilskipun, að lögreglan skyldi ekki
blanda sér í mótmælaaðgerðir Grikkja vegna Kýpurniálsins.
Þó skyldu erlend sendiráð og opinberar byggingar varðar
fyrir ofbeldisaðgerðum.
^ Öryggisráð Santeinuðu þjóðanna kom aftur saman til
fundar í dag en hann stóð aðeins í átta mínútur. Lá
rnikil eftirvænting í loftinu, er fundur hófst, því þá höfðu
nýlega borizt fréttir frá París þess efnis, að Frakkar myndu
ckki styðja tillögur þær, er lagðar voru fyrir Öryggisráðið
í gær, heldur hefði hún sjálf í huga tillögur til lausnar
deilunni. Þær yrðu lagðar fram, er hinn rétti tími væri til
þess kominn.
^ Frá Nicosia bárust hins vegar þær fregnir, að Kýpur-
útvarpið hefði sagt umræddar tillögur fullnægja kröf-
um Kýpurstjórnar í öllum meginatriðum. Væri það og skoð-
un fréttamanna þar, að Makarios, forseti, myndi fallast á
þær fyrir sitt leyti.
Fundur Öryggisráðsins hófst
kl. 20.35 GMT og stóð aðeins
átta mínútur. Var honum frestað,
til miðvikudagsmorguns, þar
eem ýmsir fulltrúar biðu enn
íyrirmæla stjórna sinna um af-
etöðuna til tillagna þeirra, er
fimm kjörnir fulltrúar ráðsins
lögðu fram í gær. Tillögur þeirra
voru í átta eftirfarandi liðum:
1) Öil meðlimarilki SÞ skuld-
bindi sig til þess að gera ekkert,
sem geti spillt ástandinu á Kýp-
ur.
2) Stjórn Kýpur geri allt, sem
nauðsynlegt sé, til þess að koma
í veg fyrir blóðsúthellingar á
eyjunni.
3) Grikkir og Tyrkir á Kýpur
reyni að sýna stiillingu, og leið-
togar þeirra hvetji þá til þess.
4) U Thant komi á fót friðar-
sveit SÞ til þess að senda til
Kýpur í samráði við Kýpurbúa,
Grikki, Tyrki og Breta.
Sex iórust í
snjóflóði
Innsbruck, 3. marz AP.
SEX menn biðu bana af
völdum snjóflóðs í nági-enm
Innsbruck í gær. Fimm þeirra
voru Þjóðverjar, hinn sjötti Aust
urríkismaður. Var hann farar-
stjóri 15 manna flokks er var
í skíðaferðalagi í austurrísku
ölpunum. Slysið varð í hlíð fjalls
ins Wildspitze, sem er 3.560 metr
*r á hæð. Fjórir aðrir vtr hópn-
nm særðusk
5) Friðarsveitin, sem dveljist
á Kýpur í a. m. k. þrjá mánuði
sjái um að koma í veg fyrir bar-
daga og haldi uppi lögum og
reglu.
6) Gert sé ráð fyrir að Kýpur-
búar og þjóðirnar, sem leggi til
menn í friðarsveitirnar greiði
kostnaðinn af þeim. Þó sé U
Thant heimilt að efna til sam-
skota til stuðnings sveitunum.
7) Útnefndur sé sáttasemjari,
sem vinni í anda stofnskrár SÞ
að lausn deilunnar og hafi bæði
í huga velferð Kýpurbúa og
heimsfriðinn.
8) Sáttasemjaranum sé greitt
kaup úr sjóðum SÞ og einnig
þeim mönnum, sem hann kynnj
að ráða sér til aðstoðar.
Bretar takmarka innflutn-
ing a' fiski frá Færeyjum
Krefjast heimildar til veiða
innan 12 mílna markanna
FISKIMÁLARÁÐSTEFN-
UNNI í London er nú lokið,
og hafa 13 aðildarríki fallizt
á samkomulag um 12 mílna
fiskveiðilögsögu með undan-
þágum til veiða innan ytri
sex mílnanna. Danir neituðu
að veita heimild til veiða inn-
an 12 mílna markanna við
utanríkisráðherra, muni gefa út
sérstaka yfirlýsingu varðandi
þessa neitun Dana. Fulltrúar ís-
lands og Noregs neituðu einnig
að fallast á að veita undanþágur
til veiða á ytra sex mílna svæð-
inu, og kvaðst Thomas harma að
ekki hafi náðst einróma samn
ingar á ráðstefnunni. Hann
bætti því við að þótt aðeins 16
ríki hafi átt fulltrúa á ráðstefn-
unni, gætu fleiri ríki gerzt að-
iilar að samkomulaginu varð-
andi fiskveiðilögsöguna. í
samkomuiagi þessu er viður-
kennd 12 mílna fiskveiðilögsaga,
þar sem innri sex mílurnar eru
eingöngu ætlaðar innlendum
fiskimönnum, en ytri sex míl-
urnar háðar unáanþágum. Þar er
ætlazt til að eriendir fiskimenn,
sem á undanförnum tíu árum
hafa stundað þar veiðar, fái að
halda þezm áfram á vissum svæð
um. Samningurinr. gildir í 20 ár,
og framlengist, ef honum verð-
Færeyjar og Grænland, og
hefur neitun þeirra leitt af
sér nokkrar deilur. Brezkir
útvegsmenn hyggjast grípa
til gagnráðstafana og tak-
marka innflutning á fiski frá
Færeyjum.
Fréttaritarar Mbl. símuðu
í gær frá Kaupmannahöfn
og London sem hér segir:
London, 3. marz (AP).
PETER Thomas, aðstoðar utam-
ríkisráðherra Bz-eta, ræddi í dag
í neðri málstofu brezka þings-
ins um fiskimálaráðstefnu 16
ríkja, sem lauk í London í gær.
Sagði hann m.a. að Danir hafi
skapað ný og fiókin vandamál
með því að neita að undirrita
samþykk’tir 13 ríkjanna um fisk
veiðilögsögu. En Damir neituðu
að fallast á að veita undaniþágur
til veiða á ytra sex mílna svæð-
unum við Græniand og Fær-
eyjar, eftir að 12 mílna lög-
saga verður lögboðin þar á næst
umni.
Thomas sagði að R. A. Bulter,
Færeyingar mótmæla
Toi’shavn, Færeyjum,
3. marz. Frá frétta-
ritara Mbl.
HAKUN Djurhuus, lögmaður
Færeyja, gaf í kvöld út svo-
hljóðandi yfirlýsingu í tiiefni
þess að Bretar hyggjast nú
takmarka fiskinnflutning
Færeyinga:
„Þegar tefld er skák, gilda
sömu reglur fyrir báða aðila,
og eðlilegt er að andstæðiniT-
urinn hugsi einnig sina leiki.
Taflinu um færeysku land-
helgina, sem leikið er eftir
þjóðfélagslegum reglum með
tiiveru færeysku þjóðarinnar
í húfi, lýkur þegar fiskveiði-
lögsagan verður færð út í 12
mílur hinn 12. marz 1964. —
Þegar enskir útgerðarmenn
svara með mótaðgerðum og
i rauninni skera innflutnirug
okkar til Englands niður mn
50—60%, er það sjálfsagt
ætlað okkur sem rothögg og
sem þakkir fyrir síðast. Þetta
hugarfar er eitthvað annað
en það, sem við kynntumst
og lærðum að virða í siðustu
heimsstyrjöld, þegar við Fær-
eyingar hættum lífinu og vor
um um tíma þeir einu útlend
ingar, er fluttum fisk á enska
markaðinn. Þá var sagt að
það skyldi aldrei gleymast.
og það er auðvitað trúgirni
okkar að kenna að mar|jir
hafa reitt sig á þett loforð.
Við þökkum fyrir þann tíma,
sem liðinn er í góðu nábýli
og samskiptum, og erum í
rauninni fegnir að hafa
kynnzt stóra nágranna okkar
í suðri að verðleikum."
>
f