Morgunblaðið - 04.03.1964, Blaðsíða 28
»»■'#*<# VORUR
BRAGÐAST BEZT
53. tbl. — Miðvikudagur 4. marz 1964
<@>
BuðingaF
Beit eyrnasnepil
af kunningjanum
FYRIR s'kömmu beiit danskur
maður í nef á manni utan við
eitt veitingahúsa borgarinnar.
Nú hefur enn töluvert verið
aðhafst á þessu sviði. Var ný-
verið bitinn eyrnasnepill af
manni, þá er hann hafði boð
inni og var þar gestgjafinn,
sem bitinn var, en gestur hans
eyrbíturinn. Eru báðir þýzkir
menn.
Það var plagsiður hið forna,
að menn gripu til slíkrar rök-
semdafærslu, og þótti þetta
slík plága, að Jónsbók kveður
sérstaiklega á um viðurlög við
atbeina eyr- og nefbíta og
annarra, sem tönnum sínum
beita á svo ólögmætan hátt.
Segir í Jónsbók, að það sé
óviðurkvæmilegr, að menn
bitist á sem hundar eða hest-
ar. Nú bítur maður mann,
segir í lögbókinni, og skal
aá er beit færður á vorþing
og þar slegið tenn úr höfði
honum og hann sekur eyri við
konung, Ákvæði þeta er nú
taiið niður fallið, enda lítið á
það reyrvt, a.m.k. í seinni tíð
með hrakandi tanniheilsu
landsmanna. Nú virðist þetta
vera að komast í tízku og fyr-
ir tilstuðlan útlendra manna,
sem hér hafa búsetu.
Svo bar við fyrir skömrnu,
að þýzikur tónlistarmaður
hafði veizlu og var hjá honum
gestkvæmt, en meðal gesta var
einn landi hans. Þegar veizl-
unni var slitið var nefndur
gestur lítt ferðafær og tóku
hjónin, sem veizluna höfðu á
sig náðir, en gesturinn ör-
þreytti hvíldi í stofu.
Þegar leið á nóttina vaknar
eiginmaðurinn síðan við óp
konu sinnar og kemur þá í
ljós, að gestinnm hefur nú
vaxið mjög kraftur sá, sem
áður var þrotinn, og leitar nú
mjög eftir félagsskap hús-
freyju. Bóndi bregður hart
við og vill tendra ljós hússins,
en þá kernur í ljós, að hinn
forsjáli aðdáandi búsfreyju
hans hefur tekið öryggi búss-
ins úr samtbandi. Kemur þá
í ljós að gesturinn hafði ver
ið fullur með svik og pretti,
haft á sér andvara og beðið
færis á húsfreyju. Er nú ekki
að sökum að spyrja. Hefjast
atlögur stórar í mynkvuðu
svefnbúsi og kom þar, að gest
urinn beit eyrnasnepilinn af
búsbóndanum. Snepillirvn
fannst tveimur dögum síðar.
Lögreglan var kvödd til þess
að skakka þennan gráa leik
og fiuti bún eyrbítinn og gest
gjafa han6 til frekari hvíldar
í Síðumúla. Mál þetta er nú
I rannsókn.
Frá komu fulltrúanna á fund flugmálastjóra, talið frá vinstri: O. Sörensen (frá SAS), H.
Winberg, flugmálastjóri Svía, Stenver, Danmörku, Killander, ritari og A. I.othe, Noregi.
(Ljósm.: Ól. K. M.)
Deila SAS og Loftleiða
rædd á fundinum ■ dag
Fulltrúar flugmálastjórna Sv'iþjóbar,
Noregs, Danmerkur og Islands
ræðast við / Reykjavlk
FUNDUR flugmálastjóra Sví-
þjóðar, Noregs, Danmerkur og
Islands hefst í Reykjavík í dag
og er þar um áframhald að ræða
á fundi flugmálastjóranna, sem
haldinn var í Stokkhólmi i sl.
mánuði.
Til umræðu á fundinum nú
eins og þá verður fargjalda-
stríð SAS og Loftleiða og verð-
ur m.a. tekin fyrir niðurstaða
fundarins, sem flugfélögin áttu
með sér í Reykjavík fyrir
skömmu.
Um klukkan 4 í gærdag komu
til Reykjavíkur með flugvél frá
Flugfélagi íslands, Henrik Win-
berg, flugmálastjóri Svíþjóðar,
og ritari hans, L. Killander, og
fulltrúar flugmálastjóra Dana og
Norðmanna, Stenver frá Dan-
mörku, og Lothe frá Noregi, og
loks fargjaldasérfræðingur frá
SAS, Olav Sörensen að nafni.
Verölagsákvæði færð í sama horf og 1958
Um fjórðungshækkun álagning-
ar tll að mæta auknum
verzlunarkostnaði
VERÐLAGSNEFND ákvað á
fundi sínum í gær nýjar
álagningarreglur í heildsölu
og smásölu og koma þær til
framkvæmda í dag. Reglurn-
ar eru í meginatriðum hinar
sömu og giltu 1958, en síðan
hefur álagning verið lækk-
uð, en verzlunarkostnaður
hins vegar stóraukizt, ekki
sízt vegna launahækkunar
verzlunarfólks. Þá voru einn-
ig afnumin verðlagsákvæði á
allmörgum vörutegundum til
viðbótar þeim, sem fyrir
voru. Þessar nýju álagningar-
reglur ná ekki til landbún-
aðarafurða.
Kristján Gíslason, verðlags-
stjóri, sagði í viðtali við Morg-
unblaðið í gærkvöldi, að hann
hefði gert athugun á því hvaða
áhrif hinar nýju reglur hefðu á
verðlag nokkurra vöruflokka og
virtist sér, sem matvörur myndu
hækka um 4—7%, hreinlætisvör-
ur um 7—8%, skófatnaður 8—
9%, búsáhöld 7—9%, vefnaðar-
vörur allt að 10.6%, rafmagns-
vörur 6—10%, rúðgler 11—12%,
málning rúm 7%, bílavarahlutir
5% og aðrir varahlutir 13—14%
o.s.frv.
,Spor \ rétta átt'
— segir formaður Verzlunarráðsins
MBL. átti tal við Þorvald
Guðmundsson, formann Verzl
unarráðs íslands, í gasrkvöldi
og hafði hann eftirfarandi að
segja um hinar nýjn álagn-
ingarreglur:
„Það sem gerzt hefur í
þessu tilfelli er að um sömu
verðlagsákvæði er að ræða og
voru 1958 að því viðbættu, að
ýmsar vörutegundir hafa ver-
ið gefnar frjálsar.
Þetta er spor í rétta átt, en
réttara hefði verið að gefa
verðlagið frjálst að öllu leyti,
þar sem frjáls samkeppni
lækkar vöruverðið en hækkar
það ekki.
Þegar allt er frjálst er oft
og tiðum hægt að ná hagstæð-
ari samningum í innkaupum
erlendis frá og kemur þá i
Ijós, að vara getur verið ódýr
ari, sérstaklega þegar um há-
tollavörur er að ræða. Það
getur vegið upp á móti því,
þótt I einstaka tilfellum séu
álagningarreglur í samræmi
við verzlunarkostnaðinn."
Verðlagsstjóri sagði, að hinar
nýju verðlagsreglur væru í stór-
um dráttum hinar sömu og giltu
árið 1958 og hefði hækkun álagn-
ingar verið talin nauðsynleg til
að mæta auknum verzlunar-
kostnaði. Hann taldi hækkun á-
lagningarinnar nema um fjórð-
ungi eða jafnvel heldur meira
að jafnaði, en þó væri bæði um
að ræða vöruflokka, þar sem
hækkunin væri mun minni og
mun meiri.
Verðlagsnefnd ákvað jafn-
framt að afnema verðlagshöft á
allmörgum vörutegundum til við
bótar þeim, sem áður var frjáls
álagning á. Meðal þessara vöru-
tegunda eru t.d.: Nýir ávextir,
neyzluvörur úr uppblásnu eða
steiktu korni (puffed rice, corn-
flakes) framleiðslu úr grænmeti,
búðingsduft, hárliðunarvökvar
og duft, naglasnyrtiefni, verk-
færi, áhöld, hnífar, skeiðar og
gafflar úr ódýrum málmum og
hlutir til þeirra, ferðaútbúnað-
ur, handtöskur, veski, pyngjur,
skólatöskur, snyrtiskrín, fatnað-
ur úr leðri og leðurlíki, hanzkar,
vettlingar, vasaklútar, slæður,
hálsbindi, höfuðfatnaður, allir
kvenskór, kalk, vatnskranar,
blöndunartæki og fittings, öll
hljóðfæri önnur en píanó, orgel
og flyglar.
Hinar nýju álagningarreglur
eru birtar í heild á blaðsíðu 8.
Jóhann Hafstein.
Framtíð íslands — Fjölþættari
framleiðsla — Orku- og iðjuver
Jóhann Hafstein, iðnaðarmálaráð-
herra, frummælandi á \/aröarfundi
i kvöld
A VARÐARFUNDI í kvöld
veröur rætt um stóriðju á
Islandi, og er Jóhann Haf-
stein, iðnaðarmálaráðherra,
frummælandi. Fundarefnið
nefnist: Framtíð íslands —
Fjölþættari framleiðsla —
Orku. og iðjuver. Gerir ráð-
herrann þessu stórmáli fyrst
nokkur skil í stuttri ræðu,
en síðan er hugmyndin að
hann ásamt fulltrúum úr
Stóriðjunefnd svari fyrir-
spurnum fundarmanna í um
það bil eina klukkustund.
Eftir að fyrirspurnatíman-
um lýkur verður orðið gefið
frjáls og er þá gert ráð
fyrir stuttum ræðum, 5—10
mínútna. Fr hér um að ræða
fyrirkomulag, sem ekki hefup
áður tíðkazt á Varðarfund-
um, en ætla má að gefast
muni vel.
Á fundinum í kvöld gefst
Sjálfstæðisfólki kostur á að
fræðast um þau mál, sem
mikilvægust eru fyrir efna-
hag landsins um ókominn ár,
en iðnvæðing íslands er mál
málanna í dag.
Fundurinn hefst kl. 8.30 i
Sjálfstæðishúsinu og eru
menn hvattir til að mæta
stundvíslega.