Morgunblaðið - 04.03.1964, Side 12
12
MORCU N BLAÐIÐ
Miðvikudagur 4. marz 1964
K SM.M
ÚTGEFANDI: SAMBAND UNGRÁ SJÁLFSTÆÐISMANNA
BITSTJÓRAR: RIRGIR ÍSL. GUNNARSSON OG ÓLAFUR EGHSSON
Gera jbor/ sér-
stakar ráftstafanir,
sem auðveldi ungu fólki að koma
upp eigin íbúðum
Ályktun um húsnæðismál
XVII. ÞING Sambands ungra
Sjálfstæðismanna telur, að heil-
næmt og gott húsnæði fyrir alla
íbúa landsins sé ein meginundir-
staða þess, að hér sé menningar-
þjóðfélag.
Stefna ber að því, að öllum
fjölskyldum sé gert kleift að
eignast eigin íbúðir.
Þingið telur að gera þurfi sér-
stakar ráðstafanir til að auðvelda
ungu fólki að koma sér upp eigin
íbúðum.
Þingið bendir sérstaklega á eft-
irfarandi atriði til úrbóta í íbúða-
byggingarmálum:
endurbóta á byggingaraðferð-
um og til lækkunar á bygg-
ingarkostnaði.
4) Gerð verði ítarleg könnun á
húsnæðismarkaðnum og m.a.
kannað, hvort þeir, sem at-
vinnu hafa af byggingarstarf-
semi beint eða' óbeint, leggi
svo mikið á vinnu sína eða
hagi henni að öðru leyti þann
ig, að verð íbúða verði óeðli-
lega hátt.
5) .Hin einstöku sveitarfélög
reyni eftir því sem föng eru
á að hafa jafnan á boðstóln-
um nægilega mikið af bygg-
ingarlóðum. Þá verði það og
Miðstjórn Sjáífstæðisflokksina bauð þingfulltrúum til hádegisverðar á laugardag.
(Ljósm. Ingimundur Magnússon)
Þjóðin sameinist í bar-
áttu gegn verðbólgunni
1) Lánsfé til íbúðabygginga
verði stóraukið og lánakjör
gerð hagstæðari en nú er, m.a.
með lengdum lánstíma.
2) Lánastarfsemi til íbúðabygg-
inga verði samræmdari en nú
tíðkast og henni hagað þann-
ig, að stuðlað verði að bygg-
ingu hóflegra og vandaðra
íbúða.
3) Hafnar verði á vegum ríkis
og sveitarfélaga vísindalegar
rannsóknir og tilraunir til
kannað, hvort sveitarfélögin
geti ekki með lóðaúthlutun
sinni stuðlað að byggingu
hóflegra íbúða og létt undir
með ungu fólki að eignast
húsnæði.
6) Kannað verði, hvort unnt sé
að taka upp sérstaka lána-
flokka fyrir ungt fólk, þar
sem lánakjör séu hagstæðari
en í núverandi flokkum.
Ríkisstjórnin athugi
framlag íslendinga
til varna landsins
Tillaga SUS-þings utanríkismál
XVn. þing Sam-bands ungra
Sjálfstæðismanna telur reynslu
undanfarinna 15 ára sýna ótví-
rætt, að frelsi íslenzku þjóðar-
innar og öryggi sé bezt borgið
með þátttöku hennar í sameigin-
legum vörnum Atlantshafsbanda-
lagsrílkjanna. Því verður að telja
tíma til þess kominn, að íslend-
ingar leggi nokkuð af i lörkum
til þessa varnarsamstarfs, eins
og aðrar þjóðir bandalagsins.
Skorar þingið á ríkisstjórnina að
láta hið bráðasta fara fram heild
arathugun á því, á hvern hátt
framlag okkar geti bezt orðið að
gagni vörnum landsins og varnar
kerfi Atlantshafsbandalagsins í
heild, en við það hlýtur framlag
akikar að miðast.
Varnarliðið verði meðan ástandið
er ótryggt
Þingið leggur áherzlu a, að
sjálfsagt sé, að varnarliðið verði
í landinu, meðan ástand í heims-
málum er jafn ótryggt og niú.
Ber íslenzkum stjórnvöldum
skylda til að gæta þess, að varn-
ir landsins séu á hverjum tíma
sem fullkomnastar. Telur þingið
að kosta beri kapps ' um að efla
sem bezt samstarf Atlantshafs-
bandalagsríkjanna á alþjóðavett-
vangi og komið verði í veg fyrir,
að þau bönd, sem tengja þessar
þjóðir saman, rofni.
Ungir Sjálfstæðismenn telja, að
náin samvinna íslands við önnur
lýðræðisriki sé nauðsynleg um
fleiri mál en varnir landsins. ís-
lendingum ér það brýnt hags-
munamál að efla viðskiptaleg og
menningarleg tengsl og sam-
skipti við þessar þjóðir, sem
sækja nú ört til aukinnar hag-
sældar og menningar með ýmiss
konar starfi, ef þeir ætla etoki
að dragast aftur úr og einangrast
frá þeim þjóðum, sem þeim eru
tengdar og skyldastar.
Lýðræðisþjóðirnar hviki ekki
af verðinum
Þingið fagnar því samkomu-
lagi, sem náðst hefur milli stór-
veldanna um takmarkað bann við
tilraunum með kjarnorkuvopn og
þeirri auknu sáttfýsi, sem nú
virðist gæta í samskiptum austurs
Almenn stjórnmálaályktum SLS-þings
Frjdlst framtak, heilbrigð samkeppni og
eignaréttur einstaklinganna eru traustusm
stoðir allra framfara
17. ÞING Sambands ungra Sjálf-
stæðismanna leggur áherzlu á
það meginatriði Sjálfstæðis-
stefnunnar, að andlegt frelsi og
hugsaniegt
og vesturs. Jafnframt leggur
þingið áherzlu á, að fullrar var-
færni ber að gæta, þó að ásiand-
ið í alþjóðamálum hafi nú notok-
uð batnað, enda sýnir reynslan,
að slíkar breytingar hafa jafnan
verið tímabundnar. Því mega lýð
ræðiaþjóðirnar ekki hvilka af
verðinum um frelsi sitt og láta
friðartal einræðis- og yfirgangs-
afla draga úr árvekni sinni.
Utanríkisþjónustan verði
endurskipulögð
Þingið telur að auka beri þátt-
töku íslendinga í ýmsu alþjóð-
legu samstarfi.
Endurskipuleggja verður starf
semi utanríkisþjónustunnar hér
heima og erlendis, svö að hún
verði færari en nú er til að
greiða fyrir verzlunarviðstoiptum
landfj.manna og æskilegum menn-
ingarsamskiptum við aðrar þjóð-
ir.
Þingið lýsir yfir stuðningi sín-
um við sem nánasta samvinnu
íslendinga og annarra Norður-
landaþjóða og telur að efla beri
samstarfið innan þejrra norrænu
stofnana, sem nú starfa.
Þingið fagnar því, að nú má
vænta þess, að þjóðin fái aftur
íslenzk handrit, sem erlendis eru,
og telur að undirbúa beri mót-
töku þeirra vandlega.
Þingið fagnar þvi, hve farsæl-
lega hefur tekizt að tryggja yfir-
ráð íslendinga yfir fiskveiðilög-
sögu sinni og ítrekar að stefna
beri að yfirráðum íslendinga yfir
öllu landgrunninu.
athafnafrelsi einstaklinganna sé
grundvallarskilyrði þess, að
hæfileikar og starfsþróttur sér-
hvers manns fái notið sín til
fulls. Frjálst framtak, heilbrigð
samkeppni og eignarréttur ein-
staklinganna eru traustustu stoð-
ir allra framfara.
Aukin verði hagnýting
nýjustu tækni
Þingið telur að efla beri und-
irstöðuatvinnuvegi þjóðarinnar,
sjávarútveg, landbúnað, iðnað og
Árni Grétar Finnsson, for-
maður Sambands ungra Sjálf-
stæðismanna, ávarpar SUS-
þingið að stjórnarkjöri loknu.
verzlun og fagnar þeim fram-
kvæmdum og framförum, sem
orðið hafa að undanförnu hjá
þessum bjargræðisvegum, fyrir
forustu viðreisnarstjórnarinnar.
Þá bendir þingið á þýðingu at-
vinnugreina, eins og siglinga og
flugs og fagnar stórstígum fram-
förum, sem orðið hafa á þeim
vettvangi. Stöðugt er nýrra á-
taka þörf, eigi þjóðin áfram að
halda á braut vaxandi velmeg-
unar og bættra lífskjara. Bend-
ir þingið sérstaklega á nauðsyn
þess, að aukin verði hagnýting
nýjustu tækni og vísinda í þágu
atvinnulífsins og lýsir fylgi við
framkomnar hugmyndir um stór
iðju í landinu, sem skapa munu
nýja möguleika og auka á fjöl-
breytni atvinnuhátta íslendinga.
Þingið leggur áherzlu á mik-
ilvægi frjálsrar verzlunar, jafnt
í innanlands sem utanríkisvið-
skiptum. Fagnar þingið þeim
mikilsverðu áföngum, sem náðst
hafa £ þessum efnum undir for-
ustu núverandi ríkisstjórnar, en
leggur jafnframt áherzlu á gildi
þess að frjáls samkeppni sé far-
sælasta leiðin til að tryggja heil-
brigða verzlun og hagstæðast
verð og vörugæði fyrir neyt-
endur.
Frh. á bls. 27
Alyktanir
SlJS-þings
Á SEYTJÁNDA þingi Sam
bands ungra Sjálfstæðis-
manna, sem lauk sl. sunnu-
dag, voru gerðar ályktanir
um eftirfarandi mála-
flokka: Efnahagsmál, ut-
anríkismál, menningarmál,
húsnæðismál, almenn
stjórnmálaályktun, skipu-
lagsmál samtakanna svo og
ályktun um spillt fjármála
líf.
Ályktanir þingsins munu
birtast hér á SUS-síðunni
og birtast þær fyrstu hér
í dag.