Morgunblaðið - 04.03.1964, Qupperneq 13
Miðvikudagur 4. marz 1964
ÍPVtM i i'1
MpQGU"*'. AÐ/Ð
13
Herhergisþernu
vantar að Hótel Borg.
Jónas Sigurðsson
bóndi, Hlió, Austur-Eyjafjöllum
F. 23. 9. 1877. D. 3. 2. 1964.
ÞEGAR farið er um Suðurlands-
undirlendið eftir þjóðveginum og
komið að Markarfljóti, þá blasa
við Eyjafjallasveitir í allri sinni
fegurð og hrikaleik. Þverhníptir
klettaveggir með sérstæðum foss-
um, er steypast lóðrétt stall af
stalli, grösug tún neðan kletta-
beltanna og svartur sandurinn í
sjó fram. I suðri biasa Vest-
mannaeyar úr hafi en til norðurs
gnæfir Eyjafjallajökull hvítur og
hnarreistur.
I þessu umhverfi ólst ég upp
frá bernsku og hafði sem ná-
granna Jónas Sigurðsson í Hlíð.
Þegar ég nú lít um öxl við and-
lát þessa ágæta vinar rpíns, þá
finnst mér að hann hafi með viss-
um hætti mótazt af landslaginu,
þar sem hann fæddist og ól allan
sinn aldur, . . . Hann gat á stund-
um virzt kaldgeðja og hrjúfur í
tilsvörum en hið innra var hjarta
hlýja og drengskapur svo frá-
bær að flestir eða allir sveitung-
ar hans höfðu einhverntíma not-
ið góðs af aðstoð hans og greið-
vikni. Var hann þá ekki að hugsa
um, hvað störf hans gáfu í aðra
hönd, miklu fremur skipti máli
að veita vinum sínum og ná-
grönnum hjálp og aðstoð.
Jónas fæddist að Hlíð 23. 9.
1877, sonur hjónanna Sigurðar
Jónssonar og Guðlaugar Þor-
steinsdóttur. Voru þau systkinin
6 og er nú aðeins á lífi ein systir
Nú er rétti tíminn að panta og kaupa
vatna- og síldardráttarbáta.
Fjórar stæröir fyrirliggjandi.
Treíjaplasl h!., Biönducs
SÖLUUMBOÐ: ÁGÚST JÓNSSON
Laugavegi 19, 3. hæð. Sími 17642.
P. O. Box 1324.
Afgreiðslustúlka
óskast. Upplýsingar í verzluninni í dag og á morgun
klukkan 6.
Verztunin Gyðjan
Laugavegi 25.
NauBungaruppboð
Eftir kröfu Guðjóns Steingrímssonar hrl., verður
eldhúsinnrétting, í vörzlum Björns Olafssonar tré
smíðameistara, seld á opinberu uppboði, sem fram
fer á verkstæði hans, Reykjavíkurvegi 68 í Hafnar-
firði, fimmtudaginn 12. marz nk. kl. 13,30. —
Greiðsla við hamarshögg.
Bæjarfógetinn í HafnarfirðL
Fyrir ferminguna
JERSEYKJOLAR
FERMINGARKJOEAR
FERMINGARKAPUR
TOSKUR — HANZKAR
FELDIiR
Austurstræti 8.
Sími 22453.
Atvi.nnurekendur
í Reykj.avík, Kópavogi og Hafnarfirði, eru beðnir að
senda bæjarfógetanum í Kópavogi skrá um alla
stai-fsmenn sína, sem búsettir eru í Kópavogi. —
Skrárnar óskast sendar innan einnar viku frá b'.rt-
ingu þessarar auglýsingar, að viðlagðri ábyrgð lög
um samkvæmt.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
hans, Jóhanna, sem býr í Vest-
mannaeyjum.
Jónas tók ungur við búi í Hlíð,
sem þá var þríbýli. Jörðin var
ekki stór og búpeningur ekki
mikill. En samskipti hans við
dýrin þóttu mjög til fyrirmyndar
og snyrtimennsku hans í allri bú-
sýslu var viðbrugðið.
Jónas var mikill dugnaðarfork-
ur og var hann á yngri árum tal-
inn bera af í atorku og ósérhlífni
til allra verka. Einkum þótti
hann afburða hleðslumaður á
steinveggi, sem var sérstök íþrótt
í þá daga, og þegar hann var orð-
inn fullorðinn maður, voru þeir
ekki ýkja margir, sem kunnu skil
á þessari sérstæðu listgrein, sem
Framh. á bls. 16.
KONUR SEM UNNA ÆSKU-
FEGURÐ OG YNDISÞOKKA
ÞEKKJA LENTHÉRIC