Morgunblaðið - 04.03.1964, Qupperneq 16
1B
MORC U N BLAÐIÐ
Launþegaklúbbur Heimdallar
hefst n.k. fimmtudag kl. 8,30 ■
Valhöl’. Dagskrá klúbbsins til vors:
1. Stofnfundur. 4. Erindi og kvik-
Stofnfundur Launþegaklúbbs myndasýning.
ins hefst í Valhöll, Suðurgötu
39 fimmtudagskvöldið 5. marz ..Söeu oe störf
kL 8,30. Rætt verður um fyr- m um. Að því
irkomulag og starfsemi klúbbs ÞFfSjSk Iðju“ og svar-
ins, sameiginleg kaffidrykkja » ar fyrirspurn-
og sýnd verður kvikmyndin
frá 30. marz, 1949 af átökun- TNj,, ' ^ytitT’
um fyrir framan Alþingis- loki.u verour sýnd kvik-
húsið. mynd.
5. Erindi og kvik-
2. Alþingi heimsótt — myndasýning.
Störf þess kynnt. pétur sig- jSurðsson, alþm. W \ flytur erindi um mismun %% • , s verkalýðshreyf 0'í inga fyrir aust an og vestan Þ&Þ júrntjald.
Komið saman í Vaihöll og fyr- irkomulag næstu funda rætt — gengið í Alþingishúsið og það skoðað undir leiðsögn. Hlýtt á erindi um sögu og störf Alþingis.
6. Erindi og kvik-
myndasýning.
Magnús Ósk-
arsson flytur
erindi um ræðu
mennsku og
eerir grein fyr
iT meginatrið-
um fundar-
skapa. Spiluð
verður plata
með ræðum
fræsra ræðumanna og sýnd
verður kvikmynd af nokkrum
ræðum Kennedys heitins
Bandarí kj aforseta.
3. Erindi og kvik-
myndasýning.
Á þessum
F fundi mun
' Gunnar Helga-
son, formaður
V erkalýðsráðs
Sjálfstæðis-
flokksins flytja
erindi um „Þró
un verkalýðs-
hreyfingarinn-
ar á íslandi". Að loknu er-
indi Gunnars verða umræður
með hringborðssniði. >á verð-
ur verðlaunakvikmyndin „Of
ar skýjum og neðar" sýnd.
7. Erindi og kynnis-
ferð.
Ey. Kon.
jónsson ritstj.
Morgunblaðs-
ins flytur er-
indi um blöð-
in og stjórn-
málin. — Að
loknu erindi
Eyjólfs verður
heimsótt og
L i
I ^
s * .-tSgs V
Morgunblaðið
það skoðað undir leiðsögn.
HELGARRAÐSTEFNA I MAI.
í maíbyrj-un verður efnt til helgarráðstefnu fyrir þátttakendur
klúbbsins og þá aðra, sem kunna að hafa áhuga. Verða þar eftir-
talin erindi flutt:
1. „Ákvæðisvinna — Hlutd eildar- og arðskipti fyrirkomulag.
2. „VINNUL.ÖGGJÖFIN“
3. „FRAMLEIÐNI OG HAGRÆÐING"
4. „KERFISBUNDIÐ STARFSMAX“
5. „ALMENNINGSHLUTAFÉUÖG"
Hringborðssnið verður á umræðum ráðstefnunnar og sérstakur
umræðustjóri mun stjórna umræðum.
Launþegar innan vébanda Heimdallar eru
hvattir til að taka þátt í fundum klúbbsins
Látið skrá ykkur til þátitöku á skrifstofu
Heimdallar í Valhöll — Sími 17102
MifSvikudagur 4. marz 1964
—*
— Minning
Framhald af bls. 13.
ég leyfi mér svo að kalla, og bet-
ur væri að fleiri kynnu í dag.
Ég þori að fullyrða að þau voru
ekki mörg gripahúsin undir
Austur-Eyjafjöllum, sem Jónas
lagði ekki gjörva hönd að, á hans
beztu vinnuárum. Launin voru
sjaldnast mikil en ánægjan var
hans eins .og áður segir. Þá var
peningakapphlaupið ekki hafið,
þá voru verkin sem vitnuðu um
snilli handanna.
Jónas var afburða sláttumaður
og það er dálítið sérstakt að geta
minnzt þess að fyrir rúmum þrem
tugum ára man ég eftir keppni í
að slá með orfi og.ljá þar eystra,
sem minnir á starfsíþróttir í dag.
Sigurvegarinn var Jónas í Hlíð.
Auk þess að sigra, þá vitnuðu
ljáförin og teigurinn um hans
sérstæða handbragð og snyrti-
mennsku.
Jónas stundaði einnig sjóróðra
frá Suðurnesjum, Vestmannaeyj-
um og undan Söndum. Hann var
jafnan eftirsóttur í skiprúm og
reyndist happasæll fiskimaður.
Jónas var maður ókvæntur og
barnlaus um sína daga. En hann
var gæfumaður í sínum störfum
og umgengni sinni við sveitung-
ana. Unglingar, sem fóru í sveit
til hans héldu tryggð við hann
til æviloka.
Árið 1932 réðst til hans sem bú
stýra Þorgerður Guðmundsdóttir,
ættuð úr Landeyjum, og var hún
í hans heimili upp frá því. Kunni
hann vel að meta trúmennsku
hennar og ósérhlífni, kom það
ekki sízt í ljós, er hann þrotinn
af kröftum naut umhyggjusemi
hennar og hjúkrunar.
Þess ber að geta að lokum að
síðustu misserin nutu þau bæði
Jónas og Þorgerður þess, að flytj
ast á heimili Sigurbergs Magnús-
sonar og konu hans Elínar að
Steinum i sömu sveit. Þar urðu
þau aðnjótandi umhyggju og
hlýju þar til Jónas andaðist 3,
febr. sl.
Útför hans var gerð frá Ey-
vindarhóiakirkju laugardagmn
15. febr. sl. og ijölmenm það, sem
viðstatt var við jarðarförina bar
vitni um þann stora hóp vina,
sem hann óhjákvæmilega hlaut
að eignast á lífsleiðinm.
Nú ert þú, kæri vinur minn,
horfinn sjónum mínum í bili og
mikið finnst mér sveitin okkar
tómlegri við fráfall þitt. Ég íaa
ekki lengur að þrýsta hönd þina
og njóta þess að finna vináttu
þína streyma til mín. En þetta er
lífsins saga.
Ég þakka þér fyrir alla þína
hjálpsemi og tryggð við mig og
æskuheimili mitt frá því fyrsta
að ég man eftir mér.
„í dagsverki og þökk hins þreytta
manns
býr þjóðarinnar heill — og ævi-
saga“.
(D.St.)
Guð blessi minningu Jónasar
Sigurðssonar.
Friðrik Jörgensen.
Þar sem vér höfum nú tekið við einkaumhoði fyrir japanska netafirmað
MIYESEIMO Co. Ltd.
Þá eru það vinsamíeg tilmœti vor að viðskipfavinir
snúi sér til oss hið allra fyrsta
Fyrirliggjandi eru þorskanet í möskvastœrðum 7", 7%", 7V.x'
HALLDÓR JÓNSSON hf.
Hafnarstræti 18. — Símar 23995 og 12586.