Morgunblaðið - 04.03.1964, Side 26
26
MQRGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 4. marz 1964
Evrópudagurinn:
Rætt við Pál Líndal um
Evrópuráðið
Sveitarstjórnarþing þess, og
sameiginleg hagsmunamál
aðildaríkjanna
SAMSTARFS aðildarríkja
Evrópuráðsins er minnzt í
dag, Evrópudaginn. Tæp
15 ár eru nú liðin frá stofn
im ráðsins.
Einn þáttur samtakanna
Páll Líndal
er fólginn í samvinnu ev-
rój>skra sveitarfélaga. —
Grundvöllurinn að því
starfi var lagður 1957, en
ári síðar gerðust íslending
ar aðilar að Sveitarstjóm-
arþingi Evrópuráðsins.
í tilefni Evrópudagsins
ræddi fréttam. MbL stutt-
lega við varaformann
Sambands ísl. sveitarfé-
laga, Pál Líndal skrifstofu
stjóra, í gær, en hann hef-
ur verið kjörinn til þátt-
töku í Sveitarstjómarþing
inu, sem kemur saman í
Strassborg dagana 7.—10.
þ. m. Aðrir fulltrúar em
Jónas * Guðmundsson og
Stefán Gunnlaugsson.
— Hvað vilduð þér segja
um sjálft Evrópuráðið, og þá
sérstaklega samvinnu sveitar-
félaganna?
„Evrópuráðið var stofnað í
maí 1949, og er markmið þess,
eins og segir í 1. grein stofn-
skrárinnar, „að koma á meiri
einingu meðal aðildarrikj-
anna í þeim tilgangji að
tryggja og hrinda í fram-
kvæmd þeim hugsjónum og
meginmarkmiðum, sem eru
sameiginleg arfleifð þeirra,
og auðvelda efnahagslegar og
félagslegar framfarir þeirra."
Eftir stofnun Evrópuráðs-
ins vaknaði fljótlega áhugi á
því að koma á víðtækari sam-
vinnu ' evrópskra sveitarfé-
laga. Miklar umræður urðu
um þetta mál, og 1957 var
svo langt komið, að efnt var
til fyrstu ráðstefnu evrópskra
sveitarfélaga í Strassborg, þar
sem aðalstöðvar Evrópuráðs-
ins eru.
Utanríkisráðuneyti þátt-
tökuríkjanna tilnefna fulltrúa
á þessar ráðstefnur að fengn-
um tillögum sveitarfélaga-
sambands viðkomandi lands,
en auk þess hafa sveitarfé-
lagasambönd Evrópuþjóða,
sem utan ráðstefnunnar
standa, átt áheyrnarfulltrúa
á ráðstefnunni, t.d. Finnar,
Júgóslavar, Spánverjar og
Svisslendingar, en þeir síð-
astnefndu hafa nú gerzt að-
ilar smtakanna.
Hvað eru meðalimarikin
mörg og hvernig er þingstörf
um háttað?
„Alls eru það 17 Evrópu-
ríki, sem aðild eiga. Sviss
hefur bætzt við, eins og áður
er sagt, frá því, að síðasta
þing var haldið, fyrir tveim-
ur árum.
Sjálf ráðstefnan er haldin
í Evrópuhúsinu, en þar eru
ágæt húsakynni. Fulltrúum
er skipað til sætis — ekki
eftir löndum, heldur eftir
stafrófsröð. Talað er á mörg-
um tungum, ensku, frönsku,
þýzku og ítölsku, og túlkað
á milli af mikilli íþrótt.
Málin, sem rædd eru, eru
margvísleg. Nefna má menn-
.ingarmál, lánastarfsemi, o. fl.,
en það mál, sem verður aðal-
viðíangsefnið á þingjinu nú,
er skipulagsmál (regional
planning). íslendingar eiga
rétt til að eiga þrjá fulltrúa
á ráðstefnunni, en stærri rik-
in; t.d. Frakkland, Bretiand
og V-Þýzkaland eiga þarna 18
fulltrúa hvert, auk þess á
hvert aðildarríki rétt á að
senda áheyrnarfulltrúa, og
er sá réttur notaður mjög.“
Er ekki erfitt' fyrir svo fáa
men af okkar hálfu, að fylgj-
ast með öllu því, sem fram
fer?
„Því skal ekki neitað, og
stundum hafa frilltrúar okkar
ekki verið nema einn eða
tveir. Erfitt getur verið að fá
yfirsýn, og veldur því að um
mörg miál og viðamikil getur
verið að ræða, og sum þeirra
framandi íslendingum. Að-
staða okkar er lika talsvert
önnur en stærri þjóða, sem
eiga fjölda áheyrnaxfulltrúa,
oft sérfræðinga um þau mál,
sem um er fjallað.
Þrátt fyrir þetta finnst mér
sjálfs'agt, að íslendingar taki
þótt í slíkum þingum. Á tim-
um vaxandi samv-innu milli
þjóða hafa fæstir etfni á því
að skerast úr leik. Íslending-
ar hafa líka sýnt það á und-
anförnum áratugum, að þeir
vilja taka þótt í alþjóðasam-
starfi.
Hér er bæði um að ræða
þjóðlegt metnaðarmál og
raunhæft hagsmunamál, og
gildir jafnt um samvinnu á
vegum Sameinuðu þjóðanna,
Evrópuráðsins og Norður-
landa. Þótt ýmislegt, sem er til
meðferðar á sveitarstjórnar-
ráðstefnum Evrópuráðsins, —
snerti okkur lítið, þá er mjög
margt þar, sem getur orðið
okkur til gagns, þótt síðar
verði. Má t.d. nefna lánsstofn
un evrópskra sveitarfélaga,
gagnkvæmar námsferðir sveit
arstjórnarmanna, svo að fátt
sé talið.
Á þessum ráðstefnum er
líka stofnað til persónulegra
kynna, sem orðið geta til að
skapa góðan skilning á okkar
högum. Þá kann það einnig
að vera nokkurs virði, að
íslendingar eigi þess kost að
leggja lóð sitt á metaskálam-
ar, þegar leyst eru ágreinings
mál, sem kunna að köma upp.
Mun einsdæmi í heiminum,
að svo fámennur hópur og
íslendingar eru, hafi aðstöðu,
sem að sjálfsögðu ber að nota
af skilningi og hófsemi.“
— Eru margir íslendingar
starfandi hjá Evrópuráðinu?
— Nei, ekki er það nú. Ég
héld, að það sé aðeins einn,
Pétur Guðfinnsson hagfræð-
ingur, sem starfað hefur þar
nokkur ár. Er það mjög mik-
ilsvirði fyrir íslendinga, að
hann skuli vera þar, allt af
boðinn og búinn til fyrir-
greiðslu Þá má einnig geta
um íslenzka ræðismanninn,
sem heitir René Riehm. Er
hann mikill haukur í horni,
og munu þeir ófáir fslpnding-
ar, sem notið hafa góðvildar
hans og konu hans.
Hvað vilduð þér segja að
lokum?
. „Það verður að teljast ein-
stök þróun, sem átt hefur sér
stað, að svo skömmu esftir
heimsstyrjöld með öllu þessu
þjóðahatri skuli hafa tekizt
jafn náin samvinna með þeim,
sem deildu. Evtópuráðsríkin
hafa nú bundizt samtökum í
Stras^org, samtökum, sem
ætla má að leiði til víðtækara
samstarfs en áðúr eru dæmi
til milli frjálsra þjóða, bæði
tdl að tryggja frelsi sitt og
bæta hag sinn.“
Frá Strasbourg á landamærum Frakklands og Þýzkalands, þar sem aðalstöðvar Evrópuráðs-
ins eru. Fremst á myndinni er Evrópuhöllin, en í baksýn er m.a. hin fræga dómkirkja
borgarinnar. — .
fslenzka landsliðið mætir
Egyptum á föstudaginn
er 16 liða úrslifakeppnin hefst
ÍSLENZKU handknattleiksmenn
irnir eru nú komnir til Tékkó-
slóvakíu þar sem þeir á föstudag
hefja keppni í lokakeppni 16
liða um heimsmeistaratitil í
handknattleik. Á síðustu heims-
meistarakeppni hafnaði ísland í
6. sæti og vegna þess góða ár-
angurs þurfti isl. liðið ekki að
taka þátt í undankeppni nú, en
gengur beint í lokakeppni 16
landa.
★ Fjórir riðlar
Liðunum 16 er í upphafi skipt
í 4 riðia, 4 landslið í hverjum.
í A riðli eru V-Þýzkaland,
A-Þýzkaland, Bandarikin og
J úgóslavía.
í B riðli eru ísland, Svíþjóð,
Egyptaland og Ungverjaland.
í C riðli eru Tékkóslóvakía,
Frakkland, Danmörk og Sviss.
í D riðli eru Rúmenía (núver-
andi heimsmeistarar), Rússland,
Noregur og Japan.
★ Hefst á föstudag
Þessari riðiakeppni er skipt
niður á 4 borgir. B-riðillinn þar
sem Island er, keppir í Bratis-
lava. A riðillinn keppir í Gott-
waldov, C-riðill þar em m. a.
Tékkar leika, keppa í höfuðborg
inni Prag og D-riðillinn keppir
í Pardubice.
Keppnin hefst á föstudaginn í
ölium riðlunum og keppa öll
löndin 16 þann dag. Síðan verð-
ur aftur leikið á laugardag og
síðasti leikurinn í riðlakeppn-
inni verður á mánudaginn.
Leikir íslendinganna hefj-
ast á föstudag. í Bratislava
* riðlinum leika fyrst kl. 15.15
eftir ísl. tíma Svíþjóð og Ung-
verjaland en ísland og Egypta
land kl. 17.30. Síðan verða
leikirnir þannig:
Laugardagur 7. marz
Ungverjaland — Egyptaland
Svíþjóð — ísland
Mánudagur 9. marz
ísland — Ungverjaland
Egyptaland — Svíþjóð
Tvö efstu liðin 1 hverjum riðli
komast í lokakeppni 8 liða, en
liðin sem verða nr. 3 og 4 í sínum
riðlum mega pakka og fara heim.
Lokakeppni 8 liða fer þannig
fram að liðunum er skipt í 2
riðla Þar verða leikirnir og riðla
skipting þessi:
1. riðill
11. marz A/1 gegn B/2
(þ. e. sigurvegari A-riðils og
2 lið B-riðils).
11. marz A/2 gegn B/1
13. marz A/2 gegn B/2
13. marz B/1 gegn A/1
2. riðill
11. marz C/1 gegn D/2
11. marz C/2 gegn D/1
13. marz C/2 gegn D/2
13. marz D/1 gegn C/1
Milli liðanna er komast upp
úr sama riðli í 8 liða keppnina
gilda úrslitin er fengust í riðla-
keppninni. Komist t. d. Svíþjóð
og ísland upp úr B-riðli í 8 liða
lokakeppni og jafntefli hafi orð-
ið milli landanna í riðlakeppn-
inni keppa þau ekki aftur en jafn
teflið gildir milli þeirra í ofan-
grendri 8 iiða keppni.
Þá er fengin' röð landanna átta
í riðlunum tveim. Efstu liðiri í
hvorum riðli keppa um heims-
meistaratitil. Þau sem verða nr,
2 í hvorum riðli keppa um 3.
sætið. Þau sem verða nr. 3 í hvor
um riðli keppa um 5. sætið og
þau sem reka lestina í riðlunurn
keppa um 7. sætið.