Morgunblaðið - 04.03.1964, Page 27
Miðvikudaguf 4. marz 1964
MORCU NBLAÐIÐ
27
I
Laxness boðin dvöl
oð Rungstedlund
t einkaskeyti til Mbl. frá stofnuðu dönsku akademíu.
Khöfn í gær segir, að Halldóri Að sögn talsmanns akademi-
Kiljan Laxnes hafi meðal unnar er ætlunin að bjóða
annarra norrænna rithöfunda þangað til dvalar kunnum rit
verið boðið að dveljast og höfundum, bæði dönskum aj
starfa nokkum tíma á erlendum. Hefur þegar verið
Rungstedlund — landareign ákveðin dvöl nokkurra nor-
hinnar látnu dönsku skáld- rænna rithöfunda, þeirra á
konu Karenar Blixen. — meðal Johans Borgen frá
Landareign þessi, sem er Noregi, Eivinds Johnsons frá
norðan við Kaupmannahöfn, Svíþjóð, Halldórs Kiljan
hefur verið gerð að einskon- Laxness frá íslandi og Willi-
ar orlofsheimili hinnar ný- ams Heinesen frá Færeyjum.
Jóbann Sigurjónsson
Smaadigte
Flateyringar komast til
Rvk. en ekki til ísafj.
Flateyri, 3. marz. yfir skilning okikar hér á Flat-
HEÐAN eru gerðir út 5 bátar eyri.
1920
F. Kamtos Bogbandal
Kiabanbaon
Smaadigte, eftir Jóhann
Sigurjónsson.
Nýr barnaskóli
byggður á Isafirði
ísafirði, 21. febrúar.
í VOR verðuf hafin bygging nýs
barnaskóla á ísafirði. Er áætlað-
ur kostnaður við fyrsta áfanga
hússins 11.375 þúsund krónur og
greiðir ríkissjóður helming þess
kostnaðar.
Fé hefur verið veitt til skól-
ans á fjárlögum í fyrra og í ár,
samanlagt tæplega 2.2 milljónir
króna, og Isafjarðarkaupstaður
hefur á undanförnum 5 árum
veitt á fjáráætlunum samanlagt
1.5 milljónir króna til barna-
skólahússins. — H.T.
Kjartan sýndi
í Hornafirði
Höifn í Hornafirði, 3. marz.
K.JARTAN Ó. Bjarnason sýndi
í gær kviikmynd sína „Eyjar við
ísland“ í Sindrabæ. Hafði hann
tvær sýnintáir fyrir troðfullu
húsi og þar m.a. að sjá stórfeng-
legar myndir af gosinu við
Surtsey. Kjartan sýndi einnig
í Mánagarði. — Gunnar.
Bókauppboð í dag
SIGURÐUR Benediktsson heldur Eiðurinn, eftir Þorstein Erlings-
bókauppboð í Þjóðleikhúskjall
aranum í dag kl. 5. — 75 númer
eru á skránni. Flestar bókanna
eru úr dánarbúi Þórðar Jónsson-
ar, tollvarðar, og frú Steinunn-
ar, sem nefnd var Islendinga-
móðir. Þau hjónin voru búsett í
Kaupmannahöfn. Sendu mörg ís-
lenzku skáldin þeim bækur sín-
ar áritaðar.
Meðal bókanna, sem seldar
verða í dag, eru Smaadigte Jó-
hanns Sigurjónssonar, sem prent
uð var í 20 eintökum í Kaup-
mannahöfn 1920, og Nockur
Lioodmæle Jóns Þorlákssonar,
prentuð í Hrappsey 1783. Þá er
son (Reykjavík 1913), Þulur,
eftir Theodóru Thoroddsen
(Frumútg. Rvík 1916), Heiðar-
býlið I—II (Rvík 1908—09),
Spaks manns spjarir, eftir Þór
berg Þóxðarson (Kápueint. Rvík
1917), Fornar ástir, etfir Sigurð
Nordal (Rvík 1919) og 10 áritað
ar bækur í frumútgáfu, eftir
Halldór Kiljan Laxness.
- Grikkjakonungur
Framh. af bls. 1.
að fá að sjá eina barnabarn
sitt, Helenu, dóttur Sophiu
prinsessu og spánska prins-
ins Juan Carlos. Telpan, sem
fæddist í desember sl. var
færð að sjúkrabeði afa síns,
en síðan var honum gefið
deyfilyf, til þess að lina þján-
ingar hans.
— De Gaulle
Framhald af 1. síðu.
ville, utanríkisráðherra gaf de
Gaulle, forseta, skýrslu um Kýp-
urmálið. Að fundinum loknum
sagði Alain Peyrefitte, upvlýs-
ingamálaráðherra Frakka, að
fransika stjórnin myndí ekki
styðja tillögur ríkjanna fimm í
Öryggisráðinu. Ástæðan væri sú,
sagði Peyrefitte, að tillögurnar
gerðu ekkert ráð fyrir lausn á
hinni raunverulegu orök Kýpur-
deilunnar en fjölluðu aðeins um
afleiðingarnar. Franska stjórnin
væri andvíg núverandi skipan
mála á Kýpur, samkvæmt
Zúrich—London samkomulaginu
frá 1960, og teldi stjórnarskrá
landsins ófullnægjandi. Sagði
Alain Peyrefitte, að Frakkar
hefðu í hyggju að leggja fram
jákvæðar tillögur til lausnar
Kýpurmálsins, þegar hinn rétti
tími væri til þess kominn. Neit-
aði hann öllum frekari upplýs-
ingum eða skýringum á afstöðu
frönsku stjórnarinnar. Á það er
minnt í þessu sambandi, að Maka
rios forseti Kýpur lét að því
liggja fyrir nokkrum dögum, að
sér litist vel á að de Gaulle, for-
seti Frakklands, tæki að sér að
miðla málum á Kýpur.
Fulltrúi Frakka í Öryggisráð-
inu, Roger Seydoux, hafði, að
því er virtist engar nánari fregn-
ir fengið í kvöld. Hann sagði við
fréttamenn er fundi Öryggisráðs
ins var frestað, að franska sendi
refndin hefði engar skipanir um
að boða nýjar tillögur Frakka.
„Við höfum engar fyrirskipanir
fengið““ sagði hann og bætti við
„ekki einu sinni um það, hverja
afstöðu við eigum að taka til til-
lagnanna sem liggja fyrir ráð-
inu“.
• Samrýmast kröfum
Kýpurstjórnar
1 dag ræddi útvarpið á Kýpur,
sem er undir eftirliti stjórnar-
innar, ýtarlega um Kýpurdeil-
una og tillögurnar, sem nú liggja
fyrir Öryggisráðinu. Sagði þar,
að það væri skoðun stjórnmála
manna, að þær samrýmdust í öll-
um meginatriðum kröfum stjórn
arinnar. Útvarpið sagði, að það
væri af tveim ástæðum fyrst og
fremst, sem Kýpurstjórn hefði
viljað leggja deiluna fyrir Sam-
einuðu þjóðirnar. í fyrsta lagi
til þess að sjálfstæði ríkisins yrði
tryggt fyrir utanaðkomandi íhlut
un og i öðru lagi til þess að er
lent löggæzlulið á Kýpur,
hverri mynd sem væri, yrði und-
ir stjórn samtakanna. Sagði út-
varpið, að umræddar tillögur
uppfylltu báðar þessar kröfur.
Þá bárust þær fregnir frá
Ankara í dag, að tyrkneska
stjórnin væri í höfuðatriðum
hlynnt tillögunum.
• Papandreou stoltur
Frá Aþenu bárust fregnir um
mótmælaaðgerðir gegn Bretum
og Bandaríkjamönnum. Fóru að
talið er 8—10 þúsund manns um
götur borgarinnar hrópandi slag
orð og ollu miklum truflunum
í umferð. Fyrir framan banda
ríska sendiráðið var brennd
brúða með mynd Johnsons, for-
seta og áletrunum eins „John-
son- A1 Capone“, „Bravo-Rúss-
ar“ o. s. frv.
Þá var birt tilkynning frá
George Papandreou, forsætisráð-
herra, þar sem lögreglunni var
bannað að skipta sér af mótmæla
aðgerðum Grikkja vegna Kýpur-
málsins. Þó bæri henni að sjá
til þess, að ekki yrðu framin
spjöll á eignum erlendra sendi-
ráða eða opinberum byggingum.
í tilkynningu Papandreou sagði
meðal annars, að hann væri
hreykinn af því, er grískt æsku-
fólk sýndi, að því væri ekki
sama um, hver örlög yrðu buin
Kýpurbúum.
Dregið í Happ-
drætti Svifflug-
félagsins
DRBGIÐ hefur verið í Happ-
drætti Svifflugfélags íslands.
Volvobifreið kom á miða nr.
10386; hraðbátur á nr. 27218; —
farmiði til Hamborgar fram og
til baka fyrir tvo með Loftleið
um á nr. 30036; — farmiði til
Hamborgar fyrir tvo, fram og
til baika með Flugfélagi íslands
á rir. 33502, og farmiði fyrir tvo
með Jöklum, jan.—apríl 1964 til
Evrópuhafnar á nr. 16937.
(Birt án ábyrgðar)
- Álagningarreglur
Framh. af bls. 8
flutt og hljómstillt: Ein álagn
ing 20%.
Vélar, verkfæri og varahlutir:
Vélar og alis konar tæki dýr
ari en 5000,00 krónur að kostn-
aðarverði: Ef kostnaðarverð
vara er: Frá 5000,00 krónur til
20.000,00 króna 15% að viðbætt-
um 500,00 krónum. Yfir 20.000,00
krónur 6% að viðbættum
2 300,00 krónum.
Sama hámarksálagning gildir
um varastykki þau, sem fylgj
þessum hlutum, svo og skips
skrúfur og öxla, sem fylgja vél
um þessum og pantaðar hafa
verið smtímis þeim.
í verðútreikningi. yfir þessar
vörur er því aðeins heimilt að
reikna með vöxtum, að engrar
fyrirframgreiðslu sé krafizt af
kaupanda. Séu vextir færðir
verðútreikning innflytjenda.
skoðast það því sem yfiriýsing
um það, að slíkt hafi ekki verið
gert. Ef bifreiðar og bifhjól eru
flutt til landsins ósamsett að
meira eða minna ley ti, er heimilt
að bæta við útsöluverðið sam
setningarkostnaði eftir sundurlið
uðum reikningi, kostnaði við
hleðslu á rafgeymum, smurningu
og því um liku, ef kaupandinn
óskar að bifreiðasalan annizt
þetta.
Sé andvirði umbúða innifalið
verðinu, eru þær eign kaupanda
Taki kaupandi bifreið hjá skipa
afgreiðslu er bifreiðasala óheim
ilt að reikna akstur eða sérstakt
heimflutningsgjald.
Varahlutir:
a. Hjólbarðar og slöngur: Ein
álagning 18%.
b. Varahlutir a-lls konar 50%
Reykjavík, 3. marz 1964.
V erðlagsst jórinn.
vetur og aflinn hefur verið frá-
munalega lélegur. Ástæðan er
slæm tíð í janúar, en þrátt fyrir
gott veðurfar í febrúar hefur
afli verið rýr.
Einn bátur, Hinrik Guðmunds-
son, er nú hættur línuveiðum
og byrjaður á veiðum með net.
Hefur hann aflað sæmilega.
Aflaleysið hefur leitt af sér
litla atvinnu fyrir landverka-
fólkið, en næstu daga byrjar ann
ar bátur með net og batnar þá
ástandið væntanlega.
Hér er ekki um meira talað
en góða veðrið, því blíðuveður
hefur verið í 4 vikur og núna í
marzbyrjun getum við komizt á
bílum hindrunarlaust til Reykja
víkur. Ekki er þó fært til ísa-
fjarðar, þar sem Breiðadalsheiði
er ófær sökum snjóa, þótt litlir
séu miðað við þennan tíma árs,
minni en oft í maí og júní. Hvers
vegna Breiðdalsheiði er ekki
rudd í slíku tíðarfari gengur út
Dregið
hjá DAS
f GÆR var dregið í 11. fl. Happ-
drættis D.A.S. um 150 vinninga
og féllu vinningar þannig:
3ja herb. íbúð Ljósheimum 22,
5. hæð (C) tilbúin undir tréverk
kom á miða nr. 55340. Umb
Aðalumboð.
2ja herb. íbúð Ljósheimum 22
6. hæð (D) tilbúin undir tré
verk kom á nr: 39023. Umboð
Aðalumboð.
TANUS 12M Cardinal fólks
bifreið kom á nr: 30614. Umboð
Reyðarfj.
NSU — PRINS fólksbifreið
kom á nr: 17057. Keflavík.
Bifreið eftir eigin vali Kr
120.000,00 kom á nr: 1181. Umb
Neskaupst.
Bifi-eið eftir eigin vali Kr
120.000,00 kom á nr: 43186. Umb
Aðalumboð.
Eftirtalin númer hlutu hús-
búnað fyrir Kr: 10.000,00 hvert:
8596 15838 16800 21005 26408
39145 39278 47820 53617 64720
Eftirtalin númer hlutu hús-
búnað fyrir Kr: 5.000,00 hvert:
414 818 1140 2179 2316
3444 4413 4463 4812 5208
5469 5735 5813 5954 6298
6924 7542 7800 8162 8194
9083 9221 10095 10406 10967
11598 11806 11982 12416 13859
14134 14454 14766 14873 15166
15931 16036 16184 16482 17023
19873 21583 21866 22469 22534
23108 23655 28771 23804 24274
25310 26185 26336 26357 26709
26879 27818 28581 28694 29075
29606 31320 31325 32909 33337
33481 34229 34729 34811 35912
37151 37315 38155 38995 39075
39242 38405 39585 39629 40705
41435 42737 42768 43103 43131
43165 43300 43675 43966 44380
44846 45486 45631 45826 46115
46161 46447 46503 47876 48438
49651 50430 50903 51057 51842
53007 53788 53873 55051 55170
55385 56106 56488 56518 56540
57021 57694 57733 57931 58235
58673 60480 60613 60713 60808
60883 61218 61228 61291 61638
61903 62534 63017 63178
(Birt án ábyrgðar).
Þann 28. febrúar voru vegir
Önundarfirði heflaðir og eru
nú eins og bezt gerist á sumrin.
Er þetta einsdæmi hér í byggðar
laginu. — Kristján.
— SUS-siðan
Framh. aí bls. 12‘
Vinna ber að friðun
landgrunnsins alls
Þingið telur nauðsynlegt, að
sérhverjum æskumanni séu búin
þau uppeldis- og menntunarskil-
yrði, sem megi gera hann að
þroskuðum einstaklingi og nýt-
um þjóðfélagsborgara.
Ungir Sjálfstæðismenn álíta
nauðsynlegt, að sérhverri fjól-
skyldu, sem þess óskar, sé gert
kleift að eignast eigin íbúð og
telja sérstaka þörf á að auka
stuðning við ungt fólk á þessu
sviði.
Þingið lýsir stuðningi sinum
við félagslegar umbætur, sem
miða að því, að þeir, sem búa
við erfiðast hlutskipti, fái styrk
af afli heildarinnar.
Þingið bendir á nauðsyn þess,
að gott samstarf og náinn skiln-
ingur ríki á milli allra stétta
þjóðfélagsins og milli fólks í
sveit og við sjó.
Ungir Sjálfstæðismenn leggja
nú sem fyrr áherzlu á, að Islend-
ingar eigi vinsamleg samskipti
við allar þjóðir. Jafnframt minna
þeir sérstaklega á nauðsyn sam-
stöðu okkar og annarra vest-
rænna þjóða. Þingið fagnar sigr-
um í landhelgismálinu og minn-
ir á, að 11. marz n.k. rennur út
tími sá, sem erlendir togarar
hafa undanþágu til veiða innan
12 mílna markanna.
Jafnframt leggur þingið á-
herzlu á þá stefnu Sjálfstæðis-
flokksins að vinna beri að frið-
un landsgrunnsins alls.
Þingið fagnar þeim sigri, sem
Sjálfstæðisflokkurinn vann í A1
þingiskosningunum á sl. ári og
traustsyfirlýsingu þjóðarinnar á
viðreisnarstefnunni. Sýndu þau
úrslit að þjóðin vill, að áfram
verði haldið á braut viðreisnar-
stefnunnar.
Vinnutími styttur
án launaskerðingar
Ungir Sjálfstæðismenn skora
á þjóðina að sameinast í bar-
áttu gegn verðbólgu og einbeita
kröftunum að áframhaldandi
uppbyggingu atvinnulífsins. í
stað sundrungar um launamál
þarf að koma samvinna um raun-
hæfar kjarabætur, þar á meðal
styttingu vinnutíma án skerðing-
ar launa. Þingið ítrekar fyrri
samþykktir um þörf endurskoð-
unar á vinnulöggjöfinni.
íslenzka þjóðin býr nú við
betri lífskjör og meiri mögu-
leika, en nokkur önnur kynslóð,
sem í landinu hefur lifað. Undir
forystu Sjálfstæðisflokksins hef-
ur hvert skrefið öðru stærra ver-
ið stigið til framfara og þjóðin
unnið sína mestu sigra. Upp-
rennandi kynslóðar bíður því
glæst framtíð. Sjálfstæðismenn
setja fyrst og fremst traust sitt
á æsku landsins, sem sækja mun
fram til vaxandi velmegunar og
hagsældar, í landi fjölþættra
möguleika, með frelsi og fram-
tak einstaklingsins að leiðar-
ljósi.
Samþ. samhljóða.
Skipstjóri óskasf
á vb. Guðbjörgu G.K. 6, sem er tilbúinn á þorska-
netaveiðar. — Upplýsingar í síma 50706.