Morgunblaðið - 29.05.1964, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 29.05.1964, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ Föstudagur 29. maí 1964 Somband ungra Sjálf- stæðismanna efnir til % w r LANDBI á H JNAG ellu n IARRA .k. sun DSl nud ri la El 19 FNll I- Ingólfur Bjarni Á SUNNUDAGINN kemur efna Samband ungra Sjálf- stæðismanna og Fjölnir FUS í Rangárvallasýslu til hclgar ráðstefnu um landbúnaðarmál á Hellu. Ráðstefnan verður i Ilellubíói og hefst kl. 15:00. — Ráðstefna þessi er opin öllum sjálfstæðismönnum í Suður- landskjördæmi, yngri sem eldri. Framsögumenn verða: Ing- ólfur Jónsson, landbúnaðar- ráðherra; dr. Bjarni Ilelga- son og dr. Sturla Friðriksson. Að framsöguerindum loknum verður þátttakendum skipt í umræðuhópa en síðan fara fram almennar umræður. Sjálf stæðisfólki í Suðurlandskjör- dæmi er bent á að allar upplýs ingar um ráðstefnuna gefa Óli Guðbjartsson, Selfossi og Jón Þorgilsson, Hellu, svo og skrifstofa SUS i Reykjavík, sími 17-100. Sjálfstæðisfólk í Suður- landskjördæmi er eindregið hvatt til þess að fjölmenna a ráðstefnuna og gera hana þar með sem glæsilegasta og gagn legasta. buuia Árni Sjálfstæðismenn í Suðurlandskjördæmi FJÖLMENNID Stjórn Þórs FtlS á Akranesi. Fremri röð frá vinstri: Hörður Sumarliðason, Hörður Pálsson, formaður, Hróðmar Hjartarson. Efri röð frá vinstri: Ólafur Jónsson, Jósef Þorgeirsson og Eiin- ar Ólafsson. Á myndina vantar Björn Pétursson. ölbreytt starf Þórs FUS á AKRANESI STJÓRN ÞÓRS, félags ungra sjálfstæðlsmanna á Akranesi hef ur nú í undirbúningi mjög aukna félagsstarfsemi. Nú á næstunni mun ÞÓR FUS efna til kvikmyndasýningar fyr ir almenning i Bióhöllinni á Akra nesi og í undirbúningi er á veg um Þórs, almennur fundur fyrir sjálfstæðisfólk á Akranesi, þar sem flutt verður ræða um Fram'- Aukinn ferðamannastraumur Betri þjónusta og aðbúnaður ÓHÆTT er að fullyrða að nú hin siðari ár, hafi átt sér stað bylting á sviði ferðamála hér á landi. Rekja má rætur þeirrar byltingar til aukins frjálsræðis og skilnings á mik- ilvægi betra skipulags og aðbúnaðar. Gistihúsaskortur, sem fyrir nokkrum árum var mikill og tilfinnanlegur virðist nú að mestu;vera úr sögunni. Að sama skapi hefur önnur þjónusta breytzt mjög til batnaðar, ekki sízt með tilkomu hinna mörgu og ágætu ferðaskrifstofa að ógleymdu framtaki íslenzku flugfélagann- Fullvíst er að ekki þarf að bera kvíðboga fyrir stöðnun á þessu sviði í framtíðinni, það sýna hinir mörgu og dug- miklu einstaklingar, sem láta sig þessi mál skipta. í bigerð eru 2—3 ný gistihús í Reykjavík og stöðugt fréttist af nýj- um og skemmtilega frumlegum hugmyndum til aðlöðunar og aukins og fjölbreyttari aðbúnaðar handa ferðamönnum, innlendum sem erlendum. Nægir í því sambandi að minna á hina ágætu hugmynd um fljótandi gistihús í formi víkingaskips, sem staðsett verður á Hlíðavatni í sumar. * Frézt hefur af fleiri fyrirtækjum, sem í athugun eru og má búast við að sjái dagsins ljós innan skamms. Fram- taki dugmikilla einstaklinga á þessu sviði ber vissulega að fagna. Þrátt fyrir miklar og ágætar breytingar er þó víða pottur brotinn og þá kannski þar sem sízt skyldi. Aðbúnaður til móttöku ferðamanna við Geysi og Gullfoss, þeim stöðum, sem einna mest eru sóttir af ferðamönnum hér sunnanlands er svo bágborinn að ekki verður lengur við unað. 1 því sam- bandi þýðir ekkert hálfkák. Byggja verður ný og skemmti- leg húsakynni með aðstöðu fyrir greiðasölu, gistingu, minja gripasölu og annað það, sem tilheyrir slíkri starfsemi. Ef þessar aðkallandi breytingar eru ekki á færi einstakl- inga ber því opinbera að taka málið til einarðlegrar af- greiðslu og tryggja að aðbúnaður og þjónusta verði með þeirri reisn, sem þessum stöðum er samboðið. Tiltækum ráðum verður að beita. Enn á ný hefur ólmum unglingum tekizt að halda Hvíta- sunnuna „hátíðlega" á miður þokkalegan hátt. Þjórsár- dalur í fyrra — Hreðavatn í ár — og mjög líklega ríða þess- ir sömu unglingar þökum að Laugarvatni eða jafnvel í sjálfum þjóðgarðinum að ári. Hér á þessum vettvangi skal eigi leitast við að kryfja vandamálið til mergjar, svo margslungið er það og ill- leysanlegt, enda kjarni vandamálsins jafngamall mann- kyninu. Hinsvegar skal undirstrikað að frá leikmanns- sjórnarmiði virðist sem þurft hefði að fimm-falda það lög- gæzlulið, sem til staðar var á Hreðarvatni og láta ALLA þá unglinga, sem þar komust upp með að brjóta lög og reglur, sæta fullri ábyrgð gerða sinna. • Með því að fjölga í löggæzluliðinu og ganga hreint og ákveðið til verks, t.d. með því að flytja ALLA þá unglinga, sem brotlegir gerast, jafnóðum til sinna heima má vafa- laust afstýra miklum hluta þeirra vandræða, sem ella eiga sér stað og nú er sem mest kveinkað yfir. Gera verður unglingum það fyllilega Ijóst, að skrílslæti á borð við þau, sem höfð voru í frammi í Þjórsárdal og að Hreðavatni eru í fullri öþökk þjóðfélagsins, og að það sé staðráðið í að beita öllum tiltækum ráðum, til að slíkt end- urtaki sig ekki. Það, að ósóminn fái að vaða uppi í fullum herklæðum er óþolandi I því þjóðfélagi, sem telur sig siðað. Ósómanum á þessu sviði sem og öðrum verður að útrýma, og ef ekki með góðu þá með þeirri hörku, sem honum ber. — R. Kj. tíðarverkefni í íslenzkum stjórn málnm. Fundur með fulltrúum SUS Sl. þriðjudag átti stjórn Þórs FUS fund með fulltrúum Sam- bands ungra Sjálfstæðismanna, þeim Bjarna Beinteinssyni ritara SUS og Styrmi Gunnarssym, framkvæmdastjóra SUS. Á þeim fundi var rætt um efl ingu á starfsemi Þórs FUS og mun stjórn félagsins hafa í und- irbúningi umfangsmikla starf- semi sem hefst í haust. Er gert ráð fyrir reglulegum fundarhöld- um, stjórnmálanámskeiði, kvik- myndakvöldum, bridgekeppni, skákmóti, föndri, skemmtunum og öðru slíku. 400 manns í Keflavík SÍÐASTLIÐINN laugardag efndi Heimir FUS í Keflavík til kvik myndasýningar fyrir almenning í Nýja Bíói, Keflavík. Sýndar voru nokkrar kvik- myndir um John F. Kennedy, hinn látna forseta Bandaríkj- anna. Rúmlega 400 manns sóttu kvikmyndasýningu þess og kom ust færri að en vildu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.