Morgunblaðið - 07.06.1964, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 07.06.1964, Blaðsíða 13
Sunnudagur ?. Jfiní 1964 MORGUNBLAÐID 13 1 i Á SJÖ OG LANDI • STÝRIMANNASKÓLINN MORiG UN BLAÐIÐ átti sím- tal við Jónas Sifrurðsson, skólastjóra Stýrimannaskól- ans, um Loftskeytastöðina, en bann var á leið til hafnar á Hval 5. Jónas hefur verið skip stjóri á hvalveiðum undanfar- in sumur. Hann kvað fleiri nemendur hafa verið í skól- anum en nokkru sinni fyrr. Luku 13 nemendur farmanns- prófi og 74 fiskimannaprófi. í janúar luku 9 minni fiski- mannaprófi (allt að 120 tonna bátar) við skólann. Ennfrem- ur voru haldin námskeið fyrir minna fisikimannapróf úti á landi og hlutu 13 réttindi í Jónas Sigurðsson. Vestmannaeyjum og 14 á Eyr- arhakka. Samtals hafa því ver ið brautskráðir 123 nemendur með stýrimannaprófi frá Stýri mannaskólanum og námskeið- um hans á þessu skólaári. Jónas kvað þá nýbreytni verða næsta vetur, að þeir, sem þegar 'hafa minna fiski- mannapróf, en setjast aftur í skólann til að öðlast full rétt- indi, settust í sérstaka deild, og tækju próf upp úr henni eftir einn vetur. Gætu þeir þá stjórnað öllum fiskiskipum og hefðu réttindi tii utanlands- siglinga á þeim. Sagði Jónas mikla þörf á slíkri deild, þar sem margir skipstjórar störf- uðu nú með undanþáigu og skipin færu stækkandi. Um væntanlega aðsókn að Stýrimannaskólanum næsta haust sagði Jónas, að svo liti út sem hún yrði mjög mikil Inntökubeiðnum yrði veitt móttaka fram til 1. ágúst og sumaratvinnan mundi sjálf- sagt hafa áhrif á aðsóknina, en þegar hefðu borizt margar umsóknir um skólavist, eink- um virtist óvenjumikil aðsókn að farmannadelld. Er við spurðum Jónas um hvalveiðarnar, sagði hann: „Við erum á leið inn með tvo hvali. Við hófum veiðar á Hval 5. hinn 24. maí og höf- um síðan veitt 11 hvali. Ég er bjartsýnn á veiðarnar í sumar." Birgir Hermannsson, sem hlaut ágætiseinkunn á fiski- mannaprófi í vor, ætlar á síld með Þórði bróður sínum á Ggra. Var báturinn fullbúinn á veiðar, þegar við ræddum við Birgi fyrir heigina. Hann er ættaður úr Ögurvík í ísa- fjarðardjúpi, einn 11 barna. Fjórir eldri bræðra Birgis hafa skipstjórnarréttindi, Gunnar, Þórður ,Gíslí, Jón og Halldór. „Hefur þú lengi lagt stund á sjómennsku, Bisgir?“ Birgir Hermannsson. „Ég hef eiginlega alltaf ver- ið á sjó. Pabbi átti bát oig gerði út frá Ögurvíik, þangað til 1946, er við fluttumst til ísafjarðar, þar sem foreldrar mínir búa enn. Undanfarin 4 sumur hef ég verið á síld með Þórði, bróður mínum, á Auð- unni. Okkur hefur gengið vel á síldinni. Þórður fékk Ögra um síðustu áramót. Gunnar og Gisli eiga líka báta, Gunnar Eldborg og Gisli Vigra.“ „Ertu þá kvæntur, Birgir?“ „Já, ég er kvæntur og á tvö börn.“ Sigurður Héðinsson, sem lauk fiskimannaprófi í vor, ætlar einnig á síld með bróður sinum. Heitir sá Marius og er skipstjóri á 160 tonna báti, Héðni, sem þeir eiga saman 5 bræður, Maríus, Jón, sem er útgerðarstjórinn, Benedikt, Helgi og Sigurður. Bræðurn- ir eru frá Húsavík. Jón býr í Reykjavik, Maríus fluttist til Hafnarfjarðar fyrir 2 ár- um og Sigurður fluttist þanig- að líka síðastliðið haust, er hann byrjaði í Stýrimanna- skólanum. Þar eiga bræðurnir fiskverkunarstöð. Þegar við Sigurður Héðinsson. höfðum tal af Sigúrði á föstu- dag var allt orðið tilbúið til norðurferðar. Nótin hafði ver- ið tekin um borð fyrr um dag inn. „Hvar leggið þið upp síld- ina í sumar?“ „Við Jón og Maríus eigum síldarsöltunarstöð á Húsavik, sem nefnist Höfðaver. Þetta verður þriðja sumarið, sem hún starfar. Við keyptum hana af Vernharði Bjarna- syni. Rifsnesið, Siigurvonin, Pétur Sigurðsson og Hilmir muíiu einnig leggja upp í Höfðaver.“ „Hefur þú verið lengi á sjó?“ „Já, ég hef verig með lengi á sjónum og alltaf með Marí- usi.“ „Ert þú giftur?“ „Já, ég er giftur og á tvö börn. Það var nú þessvegna, sem ég flutti suður. Það er orðið erfitt að fylgja bátun- Ástandið var orðið þannig, að ég var heima einn mánuð á ári. Haustsildveiðamar taka strax við af sumarsíldinni, og vertíðin siðar. Þag er ekkert lát á þessu nú orðið.“ „Hvenær farið þið norð- ur?“ „Við förum á mánudags- morguninn. Við ætlum að eyða sjómannadeginum bér 1 Hafnarfirði.“ Pétur Sigurðssou. Pétur Sigurðsson, 21 árs son ur Sigurðar Péturssonar út- gerðarmanns. lauk farmanna- prófi í vor. Hann ætlax í sigl- ingar með Hvítanesinu. „Hvenær farið þið utan, Pétur?“ „Það verður eitthverntima upp úr helginni. Við förum fyrst með saltfiskfarm til Spánar og svo sennilega til Ceylon. Ég veit ekki gerla um áætlunina, en hef heyrt að við munum verða átta til tíu mánuði. Þetta verður bæöi gagn og gaman fyrir mann, að sjá sig um þarna syðra. Það •er ekki svo erfitt fyrir ógifta stráka eins og mig að vera að heiman í nakkra mánuði.“ „Hefur þú stundag sjóinn grimmt um ævina?“ „Nei, ekki get ég sagt það. Ég var á síld með Rifsnesinu í fyrrasumar, 1962 var ég í 5 mánuði á Esju. Á sumrin milli bekkja hef ég verið á fiski- bátum og eftir að ég var bú- inn í Gagnfræðaskóla Verk- náms var ég eitt ár á Jófti forseta. Ég hef siglt nokkrum sinnum með fiskibátum, en eina skiptið, sem ég hef farið utan með flutningaskipi, var um síðustu jól, þegar ég fór einn túr með Goðafossi.“ • VÉLSKÓLINN Gunnár Bjarnason, skóla- stjóri Vélskólans, skýrði svo frá, að 24 nemendur hefðu tekig lo'kapróf í vor, í 2. bekk hefðu verið 22 og í fyrsta bekk 18. „Nemendafjöldinn hefur verið mjög misjafn á undan- förnum árum,“ sagði Gunnar. „Helzt þyrftu um 40 að vera í hverjum bekk. Árið 1960 náðu nemendur í 3. bekk þeirri tölu, en hefur aftur farið fækkandi. Vélstjóra- starfið er aðlaðandi og at- vinnumöguleikar miklir, svo Gunnar Bjarnason. að slæmt er, hve fáir koma í skólann. Mörg skip sigla með undanþágumenn og vélstjóra er allsstaðar þörf, bæði á sjó og landi. Meinið er, hve erf- itt er að komást inn í skól- ann. Piltarnir þurfa fyrst að vinna í smiðju og ekki er hlaupið að því að komast að þar. Þetta tel ég mjög úrelta aðferð við að mennta nem- endurna áður en þeir komast inn í skólann. I Noregi, þar sem ég þekki vel til, læra þeir það verklega í skólanum sjálfum, í stað þess að þurfa að koma sér í læri í smiðju.“ „Annars höfum við notið miikils skilnings oig stuðnings hjá opiniberum aðilum undan- farin ár. Við höfum nú kom- ið upp Ijómandi góðum véla- sal, sem ég er mjög hreykinn af. Er 'hann fyllilega sambæri legur við slíka sali í skólum annars staðar á Norðurlönd- um. Undanfarin 2 vor hafa 'þeir sem útskrifast frá okkur, farið í skemmti- og kynnis- ferð til Norðurlanda og heim- sótt vélskóla þar. Við höfum hvarvetna fengið mjög góðar móttökur og notið gestrisni 'kollega okkar og stórra verk- smiðja ,sem framleiða vélar. Við höfum t.d. heimsótt Tit- an verksmiðjurnar í Kaup- mannahöfn. Þeir endurguldu heimsóknina meg því að senda okkur verkfræðing, sem hélt nokkra fyrirlestra í Vélskólanum f vetur og kenndi meðferð á olíuskilvind um, sem notaðar eru í vélum skipa og síldarbræðslna. Ekki ætla Titan-verksmiðjurnar að láta þar við sitja, því að þeir hafa lofað að gefa okkur eina skilvindu, en 'hún kostar fleiri hundrug þúsund krónur.“ „Ég hef verið kennari við Vélskólann frá því árið 1945 og skólastjóri síðan 1956,“ sagði Gunnar Bjarnason að lokum. „Ég hef haft geysi- lega ánægju af þessu starfi og er alltaf að velta því fyrir mér, hvort það muni vera námið sem hefur svona á- hrif á nemendurna, eða hvort það eru bara svona góðir menn, sem veljast í vélstjóra stétt. Hvort skyldi vera or- sök og hvort afleiðing?" Við hittum tvo félaga niðri í káetu um borð í Gullfossi á föstudag, Jóhann Gíslason, sem útskrifaðist úr Vélskól- anum fyrir einu ári, og Há- kon Hafliðason, sem var nem- andi í 1. bekk í vetur. Jóhann er vélstjóri í afleysingum, en Bákon aðstoðarvélstjóri. „Hefur þú verið lengi á Gullfossi, Jóhann?“ „Ég var á Gullfossi sumar- ið milli 2. og 3. bekkjar. Svo fórum vig í_skemmtiferð til Norðurlanda, þegar ég útskrif aðist, og þá varð ég eftir j Kaupmannahöfn og kom heiro. með Gullfossi, sem þar hafði legið í dokk.“ „Hvar lærðir þú járnsmíðj. áður en þú fórst í Vélskól* ann?“ „Ég lærði í Héðni og vat þar í 5 ár.“ „Ætlar þú ag vera áfraij á sjónum?" >yJá, það skal enginn fá mig til að fara í neitt letidjöbb landi, þótt það sé betur borg- að. Þó er mjög slæmt, hvað ég er lengi í burtu frá kon- unni minni og krökkunuro tveimur. Vig höfum 5 daga viðdvöl á veturna, en tveggja og hálfs á sumrin.“ Hákon er af vélstjóraæth um. Faðir hans, Hafliði Haf. liðason, er 1. vélstjóri á Mána fossi, annar bróðir hans er einnig vélstjóri og hinn stýri maður hjá Eimskipafélaginu Hákon er tvítugur. „Ætlar þú að leggja fyrir þig sjómennsku, Hákon?“ „Já, ætli það ekki.“ „Hvers saknar þú helzt úr landi?“ „Verst er að geta_ ekki stund að áhugamál sín. Ég er skáti. Ég var deildarforingi Skjöld- unga, en þurfti að segja af mér ,þegar ég fór á sjóinn. í kvöld er heilmikið skáta- mót á Hörðuvöllum, en ég verð að standa vakt í vélinni." ,Æg varð líka að hætta við handboltann," sagði Jóhann. Sigurður Þorkelsson. • LOFTSKEYTASKÓLINTÍ Skólastjóri Loftskeytaskól- ans, Sigurður Þorkelsson, yf- irverkfræðingur og forstjóri radió-tæknideildar Landssim- ans sagði svo frá, að skólinn hefði starfað í mjög regluleg- um skorðum síðan hann tók við honum árið 1956. Námið tekur tvö ár. Síðan 1957 hafa Framhald á bls. 20. Jóhann Sigurðsson (t.v.) og Hákon Hafliðason.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.