Morgunblaðið - 07.06.1964, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 07.06.1964, Blaðsíða 23
Sunnudagur 7. júní 1964 MORCUNBLAÐIÐ 23 36 íslenzk skip flytja varn- ing og farþega Nýtt skip, bætist í flotann á þriðjudag r FARÞEGA- og flutningaskipa- Btóll íslendinga fer stöðugt stækkandi. Nú sigla 36 íslenzk skip alls 50339 rúmlestir að stærð um höfin og flytja far- jþega og vörur milli innlendra og erlendra hafna. Við það má (baeta 6 olíuskipum, samtals 14882 rúmlestir að stærð. Fleiri skip eru í smíðum hjá islenzíku ekipafélögunum, til stækkunar og endurnýjunar skipaflotanum. Er þar fyrst að nefna Hofsjökul, nýtt 2500 lesta skip, sem Jöklar fá á þriðjudaginn til landsins, tvö skip sem Eimskip á í pönt- un og eitt hjá Hafskap h .f. Til að gefa lesendum á þessum Bjómannadegi ofurlítið yfirlit yfir kaupskapstólinn og ferðir skipanna hefur Mbl. haft sam- band við skipafélögin og fengið eftirfarandi upplýsingar: f 56 erlendum og 37 innlendum höfnum á einu ári. i Skipafloti Eimskapafélags ís- lands er 12 skip alls 3'5.146 dw. tonn að stærð. Það eru: Bakka- foss, Brúarfoss, Dettifoss, Fjall- foss, Goðafoss, Gullfoss, Lagar- foss, Mánafoss, Reykjafoss, Sel- foss, Tröllafoss og Tungufoss. Af þessum skipum hafa fimm mikið frystirými, tvö þau nýj- ustu, Selfoss og Bakkafoss 100 þús. kúbikfeta frystirými. Hef- ur nú verið samið um smíði á tveimur nýjum skipum í Aal- borg Werft, sem eru væntanleg í febrúar næsta ár og janúar 1966. En Reykjafoss hefur aftur á móti verið settur á sölulista. Þessi s'kipastóll Eimskipa- félagsins flytur farþega og flutn- ijj'g til allra helztu viðskipta- hafna okkar í Evrópu og milli Evrópu og Ameríku með við- komu á íslandi. Skipin eru í sí- vaxandi mæli í föstum áætlun- um og eru 6—7 þeirra nú í föstum áætlunarsiglingum. A sl. ári höfðu skipin og leiguskipin 437 viðkomur í 56 erlendum höfnum í 16 löndum og 559 við- kómur á 37 innlendum höfnum. Eimskipafélagsskipin geta •flutt 267 farþega samtals. Flutningum geta skipin ekki altaf annað og eru þá tekin leiguskip, sem voru 8 sl ár. Aðllega fiskflutningar Eimskipafélag Reykjavíkur annast aðallega flutninga á fiski. Til þess hefur það 2 skip 3400 dw. tonn að stærð, Kötlu og Ös'kju og leiguskip að auki öðru hverju. Skipin sigla mest til hafna við Miðjarðarhaf með salt fisk og til íslands með salt til baka. Og á sumrin stefna þau helzt í Austursjó og til Rússlands eftir timbri og öðru hverju til Kúbu og Brazilíu með fisk. Fastar áætlunarferðir með flutning. Hafskip h. f. annast flutniniga með þremur eigin skipum, Laxá, Rangá og Selá, sem eru saman- lagt 4400 dw. tonn að stærð. Auk þess er eitt nýtt 2000 tonna skip í smíðum og er væntanlegt í byrjun næsta árs. Skipin sigla mest fastar áætl- unarferðir, Laxá og Selá á 14 daga fresti til Hamborgar, Rott- erdam, Antwerpen og Hull, en Rangá til Gdynja og Gauta- bor.gar. Hefur verið mikið um flutninga það sem af er þessu ári og hefur Hafskip nú 5 leigu- skip í flutningum. Flytja út frystan fisk. Jöklar h. f. eiga nú von á við- bót við skipastól sinn, fjórða skipinu. Þrjú eru fyrir alls tæp 5000 lestir að stærð, Vatnajök- ull, Drangajökull og Langjökull. Og væntanlegur er Hofsjökull, sem kemur líklega til landsins næsta þriðjudag. Skip Jökla eru frystiskip og verkefni þeirra er aðallega að flytja út frystan fisk, mest til Bandaríkjanna og Rússlands, en síld fer til Vestur Evrópu. Fluttu þau á sl. ári út 56 þús. tonn. Ti! baka taka þau hvers konar varning. Þegar þurfa þykir eru tekin leiguskip, sem voru 4 á sl. ári. í leiguflutnlngum erlendis Fyrsta skip Kaupskips h. f. Hvítanes kom sl haust til lands- ins, 2580 burðartonn að stærð. Skipið hefur fram að þessu aðal- lega verið í leigu erlendis og siglt víða, m.a. til Ceylon. En þar sem erfiðleikarnir í sam- bandi við slíkar leigur hefur aukizt, og að vinnulaunin á skip unum hækka nú eftir 2 mánuði í stað 4 áður, mun skipafélagið e.t.v. nú breyta þessu skv. upp- lýsinigum framkvæmdastjórans, og snúa sér að innanlandsmark- aði. Varningur og olía milli íslands og viðskiptahafna. Skipadeild SÍS hefur á að skipa 8 skipum, alls 20.098 dw. tcnn að stærð, þar eru: Hamra- fell, Helgafell, Mælifell, Arnar- fell, Jökulfell, Dísarfell, Litla- fell og Stapafell. Jökulfellið er 'frystiskip og þrjú, Hamrafell, Stapafell og Litlafell olíuflutn- ingaskip. Skip þessi flytja varning og olíu til og frá íslandi, og milli landa erlendis, sigla mest til Norðurlanda, meginlands Evrópu og landanna kringum Eystrasalt, og sum fara stöku ferðir til Miðjarðarhafslandanna, í Hvíta- hafshafnir og til Kanada. Auk þess koma þau mikið á hafnir úti um land. Skipaútgerðin kemur á 60 innl. hafnir. Skipaútgerð ríkisins flytur far- þega oig varning til 60 innlendra hafna og nokkuð út í heim. Hún hefur á að skipa 6 skipum; Heklu og Esju, sem eru fyrst og fremst farþegasikip, Herjólfi, Herðubreið og Skjaldbreið, sem hafa stórt frystirými og tank- skipið Þyril. Skipin með frystirýminu flytja aðallega frosnar vörur fyrir innanlandsmarkað, beitusíld, kjöt og útflutningsvarning í veg fyrir stærri skipin. Þyrill er í utanlandssiglingum að verulegu leyti nú orðið og flytur lýsi á ýmsar hafnir í Norðurvestur- Evrópu, en stundum í olíuflutn- ingum á ströndina. Annars flytja skip Skipaútgerðarinnar 45—50 þús. tonn af stykkjavöm árlega, tankskipið flytur 40—80 þús tonn og skipin með farþega- rúmi flytja um 30 þús farþega á skemmri og lengri leiðum. Þau hafa til saman um 370 koju- rými og flytja fjölda sætisfar- þega. Mestir flutningar á fóllki og vörum eru Reykjavík til og frá Austurlandshöfnum og Vest- fjarðahöfnum og til Vestmanna- eyja, en svo eru eyður í að- sóknina á öðrum höfnum. Auk itmanlandsferðar fer Hekla 6 utanlandsferðir á sumrin, til Færeyja og Norðurlanda með skemmtiferðamenn. Nú tekur Skipaútgerðin fá leiguskip, þó kemur það fyrir, ef miikið er um flutninga. Farskip í Reykjavíkurhöfn. Fremst má sjá skip Skipaútgerðarinnar, Esju, Heklu Skjaldbreið Herðubreið og sér á Akraborgina og lengra frá m.a. Vatnajökul, Kötlu og þríburana Detti- foss, Brúarfoss og Goðafoss. Ljósm. Ól. K. Mag. Þorfinnur Guðmunds- son sextugur í dag Búnaðarbankinn opnar útibú á Sauðárkróki r Þorfinnur er ísfirðingur í all- er æittir o>g koomirm af kjark- miklu dugnaðarfól'ki vestra. Hann er fæddur 7. júni 1904 að Kirkjubóli í Skutulsfirði og þar ólst hann upp hjá merkum hjón- um, fósturforeldrum sínum, Páli Jónssyni og Hallberu Jónsdótt- ur, sem þar bjugigu lengi með tnikilli sæmd. — Hann flutt- ist síðan ungur til Reykjavíkur, é árunum kringum 1920, og hef- ur átt heimili sitt hér síðan, og lengst í sínu eigin húsi, sem hann kom sér upp með miklum dugnaði og útsjón. Á fyrstu árum Þorfinns hér í borg kynntist ég honum, enda vann hann þá stundum fyrir tnig, og fóru honum öll verk vel úr hendi. Það kom þá í Ijós, að hann var fær til allrar algengrar vinnu, sem hann tók að sér, enda hraustur piltur, sera bar þess vott, að ekki hafði ver- ið sparað við hann í uppvextin- um. Hann var líka áhugasamur um vinnuna og ekki man ég eft- ir að honum félli verk úr hendi, — og ég held að um hann megi með sanni segja „að verður er verkamaðurinn launanna“. Þorfinnur gjörðist snemma ökumaður og stundaði þá at- vinnu með fullum sóma, en síð- ustu 20 árin hefur hann unnið á viðgerðarverkstæði Strætis- vagna Reykjavíkur, og þar hefði hann ekki unnið í heila tvo áratugi, ef húsbændumir hefðu verið óánægðir með vinnubrögð hans. — Að mínum dómi er Þorfinnur útsjónarsamur verk- maður og fylginn sér við hvaða verk, sem hann tekur að sér. Þorfinnur er giftur góðri konu Kristínu Kristjánsdóttur af Kambsætt úr Breiðuvík á Snæ- fellsnesi. Hún hefur búið honum indælt heimili, og eiga þau þrjú börn, sem nú eru uppkomin. Mér er það ljúft að minnast þessa góða vinar míns á þessum merkisdegi í lífi hans, og óska 'honum og fjölskyldu hans allr- ar blessunar á ókomnum árum. Hann verður fj arverndi úr borginni í dag. O.C. ATHUGIÐ að borið saman við útbreiðslu er langtum ódýrara að auglýsa i Morgunblaðinu en öðrum blöðum. A® undanförnu hafa staðið yfir samningar milli Búnaðarbanka íslands og spaisjóðs Sauðár- króks um að bankinn setti upp útibú á Sauðárkróki og yfirtæki jafnframt viðskiptastarfsemi Sparisjóðs Sauðárkróks. Samningum þessum er nú lok- ið, og er gert ráð fyrir, að úti- bú Búnaðarbankans á Sauðár- króki taki til starfa 1. júlí n.k. Sparisjóður Sauðárkróks á verulegar eignir og mun starfa áfram til þess að annast umsýslu og ráðstöfun þeirra eigna, en öll viðskiptastarfsemi Sparisjóðsins yfirfærist til útibúsins. Sparisjóður Sauðárkróks er mjög traust peningastofnun og hefur gegnt mikilvægu hlutverki £ héraðinu. Búnaðarbankinn hef- ir haft mikil viðskipti við Skag- firðinga, og hafa oft borizt óskir um það til bankans, að hann setti upp útibú á Sauðárkróki til þess að bæta þjónustu við við- skiptavini sína á Skagafirði. Af hálfu bapkans og sparisjóðs ins er þéssi ráðstöfun hugsuð til þess að bæta viðskiptaaðstöðu viðskiptavina beggja stofnan- anna. Bankaútibússtjóri verður Ragn ar Pálsson, núverandi sparisjóðs- stjóri. Útibúið á Sauðárkróki er þriðja útibú Búnaðarbankans utan Reykjavíkur, sem ákveðið hefir verið að taki til starfa á þessu ári. Fyrr á árinu opnaði bankinn útibú að Hellu og sam- einaðist Sparisjóður Holta- og Ásahrepps því útibúi. Hefir þróun þess útibús verið mjög hagstæð. Þá er áformað að opna samtímis útibúinu á Sauð- árkróki útibú frá Búnaðarbank- anum í Stykkishólmi, sem yfir- tekur starfsemi Sparisjóðs Stykkishólms. Starfrækir Búnaðarbankinn þá sex útibú utan Reykjavíkur. Eru hin útibúin á Akureyri, Blönduósi og Egilsstöðum. Er með útibúum þessum að því stefnt að bæta þjónustu við viðskiptavini bankans í viðkom- andi héruðum. (Frá Búnaðarbzoka Islands).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.