Morgunblaðið - 07.06.1964, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 07.06.1964, Blaðsíða 32
t I tilefni af sjómannadeg-1 inum birtum við hér mynd | af eldri og yngri togaraskip- stjórum. Allt eru þetta þjóð- kunnir menn með ótal afla-l og sölumet á starfstíma sínum.( Þeir eru Viihjálmur Árnason, Halldór Þorsteinsson, Þórar- ' inn Olgeirsson, Tryggvi' Ófeigsson, Jón Oddsson, | Bjarni Ingimarsson og Mark- i ús Guðmundsson. Myndina , | tók ljósmyndari blaðsins, Ól. | K. Mag. í afmælishófit Þórarins Olgeirssonar. Hátíðahöld Sjómannadagsins * I Laugarásbíói, Austurvelli og við Köfnina HÁTÍ£)AHÖLD sjómannadags- ins hefjasí í dag með hátíða- messu í Laugarásbíói kl. 11. Sr. Grímu.r Grímsson messar. Eft- ir h ádegi verða hátíðahöld á Austurvelli. Lúðrasveit Reykja- Falleg síld berst á land norðanlands til Siglufjarðar, Raufarh. og Norðfjarðar FALLEG síld, um 18% feit er nú farin að berast á land í síld- arhöfnunum norðanlands og austan. Voru í gær komin 18 þús. mál til Raufarhafnar, 3 skip höfðu komið til Siglufjarðar og fyrsta síldin barst til Norðfjarð- ar. Síldin veiðist 85—95 mílur norður af Langanesi. Áformað er að byrja að bræða á Raufarhöfn á mánudag eða þriðjudagsmorgun. Síldarbát- arnir hafa verið að koma þang- að inn með reyting, alls 18 þús. mál. Jón Kjartansson hafði feng- ið geysimikið kast og sprengt nótina, aðeins náð 300 tunnum sem hann kom með inn. Bílarnir streyma nú til Raufarhafnar með ýmislegt sem enn vantar til að taka á mótj síldinni og sölt- unarstöðvar eru farnar að fá salt o.fl. Til Siglufjarðar komu í gær og fyrrinótt Hannes Hafstein irieð 900 mál, Oddgeir frá Greni- vík meö um 1200 mál, og fór afli þeirra í frystingu og bræðslu, og Ólafur Friðbertsson með 1200 til 1300 mál, sem landað var í bræðslu. Fer að líða að verk- smiðjur fari í gang á Siglufirði. Fréttaritari biaðsins á Norð- firði sendi fréti um fyrstu síld- ina þar: Norðfirði, 6. júní — f dag kom hingað fyrsta síldin á þessu sumri. Var það vélbáturinn Kóp- ur KE 33 með 500 mál. Veiddist síldin 80 sjómílur austur af norðri á Raufarhöfn. f viðtali við skipstjórann, Sig- urjón Valdimarsson frá Norð- lirði sagði hann þarna hafa verið nokkur skip og sum þeirra feng- ið nokkra veiði. Hann segir síld- ina mjög stygga og erfitt að eiga við hana. Töluvert magn mæld- ist þarna af síld. Fyrstu útlendu skipin eru nú að koma á síldveiðar. Hér iiggur t.d. eitt stórt, finnskt síldarskip. Veður er hér leiðinlegt, norð- austan kuldanepja og hefur ver- ið svo í nokkra daga. Á.L. víkur byrjar að leika þar und- verður þar kl. 15.45. Fólk getur ir stjórn Fáls P. Pálssonar kl. 13.30 og fánaborg verður mynd- uð með sjómannafélagsfánum og íslenzkuim fánum. Kl. 2 verður minningarathöfn biskupinn herra Sigurbjörn Ein- arsson minnist drukknaðra sjó- manna, Erlingur Vigfússon, syng ur. Að því loknu flytja ávörp Eiml Jónsson, sjávarútvegsmála- ráðherra fyrir hönd ríkisstjórn- arinnar, Valdimar Indriðason, frkvstj. frá Akranesi, fyrir hönd útgerðarmanna, Örn Steinsson, vélstj. forseti FFSÍ, fyrir hönd sjómanna, Pétur Sigurðsson, al- þingismaður form. Sjómanna- dagsráðs, mun þá afbenda heið- ursmerki sjómannadags og að því loknu syngur Erlingur Vigfússon. Bftir að hátíðaihölduim við Austurvöil lýkur hefst kappróð- ur við Reykjavíkuirhöfn, og fengið sér sjómannadagskaffi i Slysavarnarhúsinu á Granda- garði frá kl. 14, en þaðan er fag- urt útsýni yfir höfnina, þar sem fénar verða uppi á skipunuim. Um kvöldið verður sjómanna- dagshóf á Hiótel Sögu og skemmt anir á vegum Sjómannadagsins í öðrum samkomuhúsum bœj- arins. Sjómannadagsblaðið er komið út og verður selt á götum borg- arinnar, og svo merki Sjómanna dagsins. niiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiimiimiiiiimimiim 1 Styrkur til 1 1 lækna- | | kandidats 1 sEGILL Vilhjálmsson forstjórS ~stjóri hefir tilkynnt Háskól-s lanum, að hann muni næstus Sþrjú árin afhenda skólanumg = 50.000 kr. að gjöf, alls 150.000f gkrónur. Gjöf þessari skal|| sverja til þess að styrkja = glæknakandidát til fram- = = haldsnáms og sérnáms í æðag = og hjartasjúkdómafræfcum.§j = um. Háskólinn metur mikilsEj Sþessa rausnarlegu gjöf ogg Hminnist þess jafnframt, aðs sEgill Vilhjálmsson færði skól M |anum að gjöf fyrir fjórum ár = |um síðan myndarlegt pen- = |j ingaframlag tii þess að = = styrkja kandídat í viðskipta- = = fræðum til framhaldsnáms. = iiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiu Isröndin 18 mílur frá Ilorni í GÆR sendi Ægir fréttir af ísn- um milli Grænlands og íslands, sem mun vera svipaður og við er að búast á þessum tíma. Frétt- in er svohljóðandi: Isröndin út af horni er frá 67,00 norður og 23,20 vestur að 67,17 norður og 22,40 vestur. Þaðan að 67,50 norður og 22 vest- ur. Einnig mikið ísrek á þessu svæði allt að 67 norður. íshrafl á 66,55 norður og 22 vestur og 66,40 norður og 22 vestur. Það er 18 sjómílur rétt- vísandi 30 gráður frá Horni. Álftasteggurinn drep- ur unga á Tjörninni Dregið eft- ir tvo daga N Ú eru aðeins tveir dagar til s tefnu þar til dregið verður í happdrætti Sjálf- stæðisflokksins, og því síð- ustu forvöð að kaupa miða í þessu glæsilega happ- drætti sem gefur yður kost á að ferðast umhverfis hntötinn, og möguleika á þremur bílum fyrir AÐ- EINS 100 krónur. Hnattferðin fyrir tvo er 250 þús. kr. virði. Hún verð ur farin með haustinu til New York, yfir þver Banda ríkin, Hawai og síðan yfir Kyrrahaf til Japan, þar sem Olympíuleikarnir verða háðir. Myndin hér að ofan sýnir Olympíuleik- vanginn í Tókíé. Þá eru þrír bílar í boði, DAF, SAAB og Willys, en samtals nemur verðmæti vinninganna 700 þús. kr. Skrifstofa happdrættisins verður opin í dag, sunnu- dag, frá kl. 10—12 og kl. 1 —6. Notið helgina og gerið skil í dag. EFLIÐ SJÁLFSTÆÐIS- FLOKKINN OG ÞJÓÐARHAG! Happdrætti Sjálfstæðisflokksins. uiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiimiiiiimuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii UNDANFARNA daga hefur ver ið mannmargt á bökkum Tjarnar innar í Reykjavík. Það sem vek- ur athygli vegfarenda eru iætin í þýzka álftarsteggnum, sem ræðst á endurnar um leið og þær koma með unga sína á Tjörnina og drepur þá ef hann getur. Þó skiptir hann sér ekki af sinni kellu og ungunum tveimur, sem synda friðsamlega annars stað- ar. í gærdag var hópur af fólki á Skothúsveginum við Tjarnar- brúna, og reyndu strákar að verja önd með unga, sem var þar uppi undir landi, og fældu áiftarstegginn burt með grjót- kasti, þegar hann kom vaðaridi að öndinni. En í fyrradaig tókst honum t.d. að króa af önd með 16 unga og drepa helminginn. Kjartan brunavörður, hinn mikli fuglavinur hefur gengið hvað bezt fram í að reyna að verja endurnar, en á ekki hægt um vik, þar sem ekki er hægt að ná steggnum. Ætleði Kjart- an upp á eigin spýtur að reyna að ná steggnum með háfi frá landi í gær til ag forða öndunum og ungum þeirra. Kveðst hann al- drei hafa séð slikan óartafugL Oft hafi álftasteggir verið á Tjörninni og ekki látið svona. Framhald á bls. 31 Telpa íestist í vél ÞAÐ ÓHAPP vildi til á fimmtu- dag, að tólf ára gömul telpa, sem vann við að slíta humar í ver- stöð hér í Reykjavík, festi gúmmí ■hanzka, er var á annarri hendi hennar, við öxul í þvottavéL Festist handleglgurinn í vélinni. Tvihandleggsbrotnaði stúllikaxi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.