Morgunblaðið - 07.06.1964, Page 20
20
MORGU N BLAÐIÐ
Sunnudagur 7. júní 1964
Grétar Vésteinsson (tv.> og Hersteinn Magnússon.
— Á sjó og landi
Framh. af bls. 13
nemendur aðeins verið tekn-
ir inn í skólann annag hvert
ár, þannig að ekki starfar
nema einn bekkur í einu,
fyrsti eða annar. 1957 voru
24 nemendur teknir inn í Loft
skeytaskólann og hefur sami
fjöldi gengið inn í hann á
tveggja ára fresti síðan. Nú
stendur svo á, að nemendur
á fyrra ári voru við nám í
skólanum í vetur, svo að eng-
inn brautskráðist í vor.
Sigurður saigði 24 nemendur
heldur of lága tölu, einkum
vegna þess að alltaf skorti
loftskeytamenn til sjós. Marg-
ir þeirra. sem útskrifuðust úr
skólanum, tsekju ýmist til við
störf á landi eða héldu utan
til áfram haldandi tæknináms.
Annars hafi yfirleitt verið
reynt að miða nemendafjöida
við þarfir skipaflotans, til
dæmis voru 90-100 nemendur
teknir inn í skólann árið 1947,
þegar séð var fram á mikla
aukningu skipastólsins og 35
árið 1954.
Loítskeytaskólinn er rekinn
af póst- og símamálastjórn-
inni. Skilyrði fyrir inntöku er
miðskólapróf, en auk þess
þreyta umsækjendur um
Skólavist innttökupróf í stærð
fræði og ensku. 24 (eða eins
og ákveðið er hverju sinni)
hinir hæstu á því prófi fá sið
an inngöngu i skólann.
Tveir nemendur Loftskeyta
skólans, Grétar Vésteinsson,
21 árs og Hersteinn Magnús-
son, 18 ára, ætla að vinna við
Raufarhafnar-radíó i sumar.
Hittum við þá að máli fyrir
helgina, en á morgun fara
þeir norður á bóginn.
„Hvenær lauk skólanum?"
„15. maí, og síðan höfum
við verið í Stuttbylgjustöðinni
í Gufunesi. Þeir hafa verið að
þjálfa okkur þar, svo að við
stondum ekki alveg á gati,
þegar norður kemur."
„Hvaðan ert þú, Grétar?"
„Ég er af Skaganum, og
vann í Sementsverksmiðjunni
eftir að ég lauk gagnfræða-
prófi frá Gagnfræðaskóianum
á Akranesi fyrir 4 árum þar
til um áramótin 1962-63. Fyrst
vann ég í nokkra mánuðl úti-
vinnu við verksmiðjuna, en
svo var ég á rannsóknarstof-
unni.“
„Hvað gerðir þú, eftir að
þú hættir í Sementsverksmiðj
unni?“
„Þá fór ég til Englands að
læra ensku. Ég var í 6 mán-
uði i Devon á skóla. Þetta var
frostaveturinn mikla í Eng-
landi. Frostið var að vísu
sjaldan meira en 6 stig, en
kyndimgin hjá þeim er ekki
upp á marga fiska. Svo fraus
í vatnsleiðslunum og allt var
í mesta ólestri."
„Hefur þú komið á sjó?“
„Ég get nú varla sagt það,
en 'þó fór ég einu sinni í fjög-
urra vikna ferð með Heklunni
og gegndi miklu virðingar-
starfi, — ég var smyrjari.“
„Ætlar þú að fara á sjóinn,
þegar þú ert orðinn loftskeyta
maður?“
„Mig langar hálft í hvoru
til þess, en er samt heldur á
því að leggja í framhalds-
nám. Ef maður vinnur hér
hjá Landssímanum í 2 ár, get-
ur maður fengið símvirkja-
réttindi og eftir það má fara
til útlanda, stunda nám í 3
vetur og koma heim tækni-
fræðingur.
Margir okkar hafa huig á
slí'ku námi, ekki vegna þess
að við höfum neitt á móti loft
skeytamannsstarfinu, heldur
vegna þess að við óttumst, að
tæknin leysi okkur af hólmi
á sjónum og sá tími komi, að
óþarft verði með öllu að hafa
loftskeytamann um þorð. Þá
er gott að hafa einhvem bak-
hjarl.“
„Ert þú lika Skagamaður,
Hersteinn?“
„Nei, ég er Reykvíkingur i
húð og hár.“
„í hvaða skóla varst þú,
áður en þú fórst í Loftskeyta-
skólann?“
„Ég tók gagnfræðapróf frá
Gagnfræðaskóla Austurbæjar
í fyrravor.“
„Hefur þú komið á sjó?“
„Já, ég var messagutt á
Gullfossi fyrir 3 árum, og svo
fór ég einn túr með togaran-
um Agli Skallagrímssyni í
jólafríinu ,þegar ég var í 4.
bekk. Þá var farið í sölu-
ferð til Þýzkalands.“
„Hvernig líkaði þér á sjón-
um?“
„Alveg sérstaklega vel. Ég
ætla að fara á sjóinn, þegar
ég lýk loftskeytamannsprófi,
hvað sem síðar verður."
„Hvernig lízt ykkur á að
fara til Raufarhafnar?"
„Ágætlega, þótt vig getum
varla talizt nákunnugir pláss
inu,“ svaraði Grétar. „Ég kom
þar einu sinni í myrkri, með-
an ég var smyrjari á Heklunni.
Við lágum þar í hálftima."
„Ég veit ekkert um stað-
inn,“ sagði Hersteinn.
„Verða margir starfandi við
Raufarhafnar-radíó í sumar?"
„Stöðvarstjórinn plús fjög-
ur. Tvær stelpur með loft-
skeytapróf og við án loft-
skeytaprófs.“
Níu nýir húsmæðrohennarar
Ráðstefna um hagræð-
ingu ■ ísl. atvinnulífi
Húsmæðrakennararskóla íslands
var sagt upp 1. júni s.l. og braut
skráðir 9 húsmæðrakennarar að
þessu sinni. Fröken Vigdís Jóns-
dóttir, skólastjóri, ávarpaði hina
nýju húsmæðrakennara og af-
henti þeim skírteirii. Hæstu eink
unn hlaut Aðalbjörg Ingvarsdótt
ir frá Syðra-Lóni við Þórshöfn,
8,81, og hún hlaut einnig verð-
laun fyrir beztan námsárangur
úr sjóði frú Elínar Briem. Auik
þess voru fjórum námsmeyjum
veitt bókarverðlaun fyrir grasa
söfnun. Þá skýrði skólastjórinn
frá sjóðstofnun, sem nemenda-
samband skólans hefur geng-
izt fyrir til minningar um fr.
Helgu Sigurðardóttur, fýrrver-
andi skólastjóra, og er tilgangur
sjóðsins að veita námsstyrki í
skólanum.
Tuttugu ára húsmæðrakennar-
ar gáfu skólanum tvo fagra silf-
urkertastjaka, og hafði Halldóra
Eggertsdóttir, námsstjóri, orð
fyrir gefendum. Tíu ára hús-
mæðrakennarar gáfu, skólanum
stóran og vandaðan blómavasa,
og hafði Guðrún Hröon Hilmars
dóttir orð fyrir þeim. Frú Anna
Gísladóttir fyrrverandi kennari
við skólann, ávarpaði einnig 20
ára' húifnæðrakennara.
A myndinni eru: Fremri röð,
talið frá vinstri: Aðalbjörg Ing-
varsdóttir, Syðralóni, Þórshöfn,
frk. Bryndis Steinþórsdóttir,
kennairi við H.K.Í., frk. Vigdís
Jónsdóttir, skólastjóri H.Kj.,
frk. Benný Sigurðardóttir, kenn
ari við H.K.Í. og Sigríður Hall-
dórsdóttir, Keflavík.
Aftari röð frá vistri: Halldís
Gunnarsdóttir, Reykjavík, Aðal-
Akureyri, 4/6
SUNNUDAGINN 31. maí var
haldið fermingarbárnamót Eyja-
fjarðarprófastsdæmis á Dalvík.
Þátttakendur voru um 240, frá
Grímsey, Siglufirði, Ólafsfirði,
Hrísey og af vesturströnd Eyja-
fjarðar, þar með talin Akureyri.
Séra Birgir Snæbjörnsson setti
mótið í samkomuhúsinu kl. 10,
en síðan var flutt kveðja frá
biskupi íslands. Séra Kristján
Búason stýrði Biblíulestri. Eftir
hádegi var hlýtt á guðsþjónustu
í Dalvíkurkirkju. Þar prédikaði
sr. Bolli Gústavsson, en sr. Stefán
Snævarr þjónaði fyrir altari.
Eftir messu hófust útileikir og
íþróttir með miklu fjöri. Þeim
stjórnaði Hermann Sigtryggsson,
æskulýðsfulltrúi, og lauk með
heiður Auðunsdóttir, Dalatanga
S.M., Emelía Kofoed Hansen,
Reykjavík, Guðríðuir Eiríksdótt-
ir, Kristsnesi, Eyjafirði, Guðný
Sigurjónsdóttir, Traðarkoti Vatns
leysuströnd og Guðrún S. Guð-
mundsdóttir, Hafnarfirði. Þór-
hildi Sigurðardóttor frá Haill-
ormsstað vantar á myndina.
keppni milli fermingarbarna og
presta í boðhlaupum og reiptogi.
Um kvöidið var kvöldvaka í
samkomuhúsinu, sem sr. Pétur
Sigurgeirsson stjórnaði. Ferming
arbörn frá Akureyri fluttu minn-
ingu sr. Hallgríms Péturssonar,
og sýndur var leikþáttur. Þá var
samleikur stúlkna frá Siglufirði
á fiðlu og píanó. Séra Ragnar
Fjalar Lárusson las upp og Júlíus
Júlíusson frá Siglufirði skemmti
með gamanþætti. Sýndar voru
skuggamyndir og farið í leiki. —
Kvöldvökunni lauk með hugleið-
ingu sr. Stefáns Snævarr og
sameiginlegri bæn.
Mótið tókst ágætlega og varð
öllum þátttakendum til mikillar
ánægju-
Sv. P.
Stjórnunarfélag íslands hefur
ákveðið að efna til ráðstefnu að
Bifröst í Borgarfirði dagana 7.—
9. júni n.k., þar seni tekið yrði
fyrír viðfangsefnið: „Hagræðing
í íslenzku atvinnulífi".
Markmið ráðstefnunnar er að
kanna hvar íslendingar eru á
vegi staddir í hagræðingarmálum
almennt, í samanburði við grann
þjóðirnar (einkum Norðmenn),
— og gera ályktanir um, hvernig
íslendingar geti á árangursríkast
an hátt og á' sem stytztum tíma
stofnað til varanlegrar alhliða
starfsemi á sviði hagræðingar í
þágu atvinnulífsins.
Að tilhlutan Alþýðusamibands
íslands kemur Egil Ahlsen, for-
stöðumaður hagræðingardeildar
Landsorganisationen í Noregi —
Og að tilhlutan Vinnuveitenda-
sambands íslands kemur John
Andresen frá Norsk Arbeidsgiver
forening, og flytja þeir báðir er-
indi á ráðstefnunni, auk íslenzkra
aðila. Hagfræðingadeildir beggja
norsku sambandanna starfa með
svipuðum hætti, og er með þeim
ágæt samvinna.
Bfnt verður tiíl sýningar bóka
og tímarita um hagræðingarmál.
Að kvöldi annars dags ráðstefn-
unnar verða sýndar fræðslukvik-
myndir um hagræðingaxmál.
Ólögmæt prests-
kosnin^ í Odda,
en lögle^ í Hrísey
PRESTSKOSNING fór fram í
Oddaprestakalli, Rangárvalla-
prófastsdæmi s. 1. sunnudag 31.
fyrra mánaðar. Umsækjendur
voru tveir, séra Óskar Finnboga-
son og séra Stefán Lárusson. At-
kvæði voru talin á skrifstofu
biskups í gær. Á kjörskrá í presta
kallinu voru 414, atkvæði greiddu
134. Séra Stefán Lárusson hlaut
64 atkvæði; séra Óskar Finnboga
sin 56, auðir seðlar voru 13 og
ógildur 1. Kosningin var ólög-
mæt.
Einnig var talið í Hríseyjar-
prestakalli. Umsækjandi var einn
séra Bolli Gústafsson. Hann var
kosinn lögmætri kosningu. Á
kjörskrá voru 320, og 220 kusu.
Hlaut séra Bolli 210 atkvæði.
Auk fyrirspuma og umræðna
á almennum fundum verður, eins
og á fyrri ráðstefnum félagsins
efnt til hópumræðna, þar sem
þáttakendur skiptast í hópa til
umræðha.
Sumarnámskeið
í Hlíðardal
EINS og undanfarin ár, verður
haldið sumarnámskeið á vegum
Guðspekifélags íslands í Hlíð-
ardal í Ölfusi í þessum mánuði,
dagana 18.-25. Aðalfræðari og
fyrirlesari á mámskeiði þessu
verður enskur maður, Edward.
Gall (framb. Goll) að naifni.
Hann er þekkur ritihöfundur og
hefur ferðast víðsvegar um Eng-
land og flutt fyrirlestra um and
leg efni. Þykir hann snjall fyrir
lesari og er talinn vitor maður
og víðsýnn. Leggja mun hann
meiri áherzlu á það, sem kalla
mætti hina innri hlið guðspeki-
legra fræða en hina fræðilegu
og f ormbundnu og mun þvi hafa
eitthvað að getfa einmitt þeim
mönnum, sem þrá andamn frem-
ur en bókstafinn, dýptina frem-
ur en breiddina. Hann mun tala
tvisvar á dag.
í Hlíðardal er landslag fjöl-
breytilegt og ber mjög íslenzk-
an svip. Er staður þessi mjög
kyrrlátur. Húsakynni eru hlýleg
og allur viðurgjömingur góðmv
Þama er sem sagt mjög gott að
vera og verður sumarfríi varla
betur varið með öðru en því að
dveljast í kyrrð og næði í skauti
náttúrunnar en hafa jafnframt
frjósama snertingu við andleg
fræði, sem boðuð em á aðgengi
legan hátt og án allrar kemnimg-
arkergju.
Fyrirlestrar Edwards Gall
verða að sjáifsögðu túlkaðir og
föguir tónlist mun gleðja þá, sera
hljómvísir eru. Framkvæmda-
stjóri sumarskóla þessa er frú
Anna Guðmundsdóttir, Haga-
mel 27 (sfcni 15569) og lætur
hún í té aliair frekari upplýsing-
ar.
Það er sanmfæring mín, að
á sumarnámskeiði þessu muni
menn geta geita átt margar góð-
ar stumdir og jafnvel sótt þang-
að likamleiga og andlega heiisu-
bót
Grétax Fclls.
Fjölmennt fermingar-
barnamöt á Dalvík