Morgunblaðið - 16.06.1964, Side 20

Morgunblaðið - 16.06.1964, Side 20
20 MORGUNBLADIÐ Þriðjudagur 16. júní 1964 Akranes hefur vaxið úr litlu fiskiþorpi Samtal við Guðmund Guðjónsson, skipstjóra G-UÐMUNDUR Guðjónsson, skip síjóri er fæddur í Kirkjubæ á Akranesi árið 1905. Er frétta- máður hitti hann að máli fór- ust honum orð á þessa leið: — Þegar ég var unglingur leit öðruvisi út á Akranesi en það gerir nú. Leikvöllurinn okkar krakkanna var þá túnin, þar sem sjúkrahús Akraness stendur nú. Þar iékum við okkur í boltaleikj um á sumrin en á skautum á veturna. Akraness var þá aðeins lítið fiskiþorp með örfá hundr- uð íbúa. Þegar ég man fyrst eftir voru sjóróðrar stundaðir á opnum bát um, en þó komnir nokkrir litlir vélbátar. Faðir minn til að mynda, Guðjón Þórðarson, átti 6 manna far og reri aðallega baust og vor. Einnig voru þeir Eyleifur ísaksson og Jóhannes Sigurðsson svo og Jón heitinn Gunnlaugsson á Bræðraparti á- samt fleiri mönnum, sem stund- uðu sjóróðra. Vélbátarnir, sem þá voru komnir höfðu viðlegur rétt fyrir sunnan Vogastapa og settu þar afla á land. Upp úr því er bát- arnir fóru að stækka, fóru þeir að hafa viðlegur á vetrarvertíð í Sandgerði en á vorin hérna heima. Þessir stóru bátar, sem voru kaliaðir voru mest um 30 lestir og komu hingað fyrst til Akraness um 1916—17. Stærstu bátarnir, sem lágu við Sandgerði söltuðu fiskinn og verkuðu um borð og komu svo hingað til Akraness og losuðu þegar þeir voru fullhlaðnir. Smærri bát- arnir söltuðu í landi í Sandgerði og íiuttu síðan fiskinn heim á vorin og hann verkaður hér heima. Það var lítið um atvinnu á þessum árum, og þá fór fjöldi af sjómönn'um héðan á skútur. Voru þeir þá eftirsóttir og þóttu góðir sjómenn. Skúturnar hófu veiðar í febrúarlok og í byrjun marz og voru að veiðum fram í september og þá á fjarlægum mið um. Sjómennirnir komu heim á vertíðaskiptum 11. maí og svo Jónsmessu 24. júní annars var þetta alger útilega. Helztu miðin hjá skútunum voru Selvogsbanki á vetrarver- tíðinni og Breiðafjörður og út af Vesturlandi á vorin, og svo fyrir norðan land á sumrin eftir Jónsmessu. Síldveiði var þá ei- lítið byrjuð á stærstu bátunum og fóru þeir þá norður í einn og hálfan til tvo mánuði, og taldist gott að hafa þá 2000 uppsaltað ar tunnur yfir síldarvertíðina. Eins og ég sagði áðan var lítið af fólki heima yfir veturinn en Akurnesingar stunduðu alltaf töiuverðan búskap, bæði með kýr og sauðfé. Og eins var kartöflu- rækt geysimikil þá. Óhætt er að segja að Akraneskartöflurnar voru frægar fyrir gæði, og held ég að í Reykjavík hafi þær ver ið seldar á hærra verði en nokkr ar aðrar kartöflur. Á haustin voru iitlir bátar í förum með vörur til Reykjavík ur með kartöflurnar, og var sagt i þá daga að Akurnesingar þekkt ust í Reykjavík á því, að annað hvort væru þeir með kartöflu- vagn í eftirdragi eða tóma kart- öfiupoka undir handleggnum. Flestir Akurnesingar, sem seldu kartöflur í Reykjavík höfðu •ömu viðskiptavinina árum sam- •n. Einnig voru fiutningar stund aðir á þessum litlu bátum yfir •umartímann. Þeir fluttu hey hingað og þangað að úr Borgar- fjarðarhéraði til Reykjavíkur og svo á haustin kjöt og sláturafurð ir úr sláturhúsinu í Borgarnesi. Ekki var mikið í aðra hönd fyrir þessa flutninga, en það var fá- títt í þá daga að menn hefðu eitthvað upp úr sér að ráði. Það má segja það að þróunin hafi verið ákaflega hæg á þeim árum, því að atvinnu þurfti mikið að sækja í burtu, þó fjölgaði bát- um alltaf lítið eitt og fólkinu iíka. Þetta gekk svona til þar til Akurnesingar fluttu útgerð sína heim frá Sandgerði og hófu róðra héðan að heiman 1926. Þá gerbreyttist þetta allt sam- an. Karlmenn þurftu þá ekki að sækja atvinnu langt að, því að atvinna jókst þá svo mikið heima fyrir. Bátunum fjölgar ört og afla brögð voru þá mjög góð hér á heimamiðum, bæti stutt sótt og mikill afli. Margir fluttust hing- að úr öðrum byggðarlögum lands ins, aðailega fólk af Vestfjörð- um og einnig eitthvað af Hún- vetningum. Meira að segja fluttu menn hingað útgerð sína, t.d. Sigurður heitinn Hallbjarnar- son. Vestfirðingarnir voru ágætis fólk og voru góðir sjómenn í þá daga eins og nú. Aðalútgerðar- mennirnir voru þá Haraldur Böðvarsson, sem tók útgerð sína hingað heim frá Sandgerði og Þórður heitinn Ásmundsson á- samt Bjarna Ólafssyni & Co. Fyrsta stóra fiskiskipið, sem kom hingað var línuveiðarinn Ó1 afur Bjarnason, 150 rúmlestir að stærð, sem Bjarni heitinn Ólafs son hinn þjóðkunni skipstjón keypti hingað árið 1926. Á þess um árum eða upp úr 1927 fara nokkrir einstaklingar að koma sér upp útgerð, en mest voru þetta bátar frá 22—30 tonn að stærð. Oft lágu bátarnir aðgerð arlausir allt sumarið, því að að- alútgerðartíminn var vetur, vor og haust. Reknetaveiðar stund- uðu þá nokkrir bátar og hófst hún 20. júní og var fram eftir hausti. Þessi útgerð átti við mikla erfiðleika að stríða á árunum 1930—40, og verðið á aflanum komst svo lágt að það yrði vart tekið trúanlegt í dag. T.d. fyrsta veturinn, sem ég var formaður hér þá var verðið á fullstöðnum saltfiski 16 aurar á kíló fyrri hluta vertíðar og 13 aurar á kíló síðari hlutann. Verðfall var svo mikið frá árinu áður, því að það hafði fallið svo mikið verð á mörkuðum erlendis. Tekjur manna voru mjög rýrar á þess um árum eins og gefur að skilja þegar fiskverðið var svona lágt. En þá fóru fjölmargir íbúar Akra ness að auka búskap til búhag- ræðis. Þá fjölgaði mjög kindum og kúm. Á þessum árum hefur fjáreign Akurnesinga verið kom in upp í 16—17 hundruð kindur og kýr 120—130. Ytri-Akranes- hreppur hafði einhverntíma á ár unum 1920—30 keypt kirkju- jörðina Garða af ríkinu, en Garðalandið er geysimikið. Er það eitthvert mesta heillaspor, sem stigið hefur verið í sögu Akraness, og nýtur kaupstaður- inn þess enn í dag, því að hann á sennilega mesta jarðeign allra kaupstaða landsins. Þessi kaup voru ákaflega umdeild og voru mikið hitamál um tíma. En það er nú löngu gróið um heilt. Upp úr 1940 fer búfé aftur á móti mjög fækkandi og í dag má heita að enginn búskapur sé stundaður á Akranesi. Útgerðin gekk svona svipað til. Öðru hverju bættist við einn og einn bátur við flotann, og þeir fara sifellt stækkandi allt til þessa dags. Og nú er svo komið að 100 rúmlesta skip þykir algert lágmark. Stærsti og nýjasti bát- urinn Höfrungur III., sem er 270 rúmlesta skip eign HB&CO er eina fiskiskipið í heiminum, sem er búið 3 skrúfum, þ.e.a.s. bæði að aftan og framan til að geta betur hagrætt skipinu til. Breyt ingin á útgerðinni er sú, að nú má heita að hætt sé að veiða á línu. Nú eru veiðarnar aðallega stundaðar með þorskanetum og hringnót, sem veitt í í hvort- tveggja síld og þorskur. Á Akranesi eru nú um 20 bát- ar frá 60—270 lesta og á Harald- ur Böðvarsson & Co flesta, 7 báta, þar af 4 yfir 150 rúmlestir. Eftir stríðið kom Akranesbær sér upp togaraútgerð og átti á tíma bili 2 togara, en eins og víða ann Guöm. Guðjónsson ars staðar gafst bærinn upp á þeirri útgerð fyrir nokkrum ár- um. Nú eiga Akurnesingar einn togara, það er bv. Víkingur, sem Síldar- og fiskimjölsverksmiðja Akraness gerir út, og er það mik ið og glæsilegt aflaskip, byggt í Þýzkalandi fyrir örfáum árum. Hér hefur alla tíð verið tals- vert af opnum bátum, svo köll- uðum trillum. Afli var góður á þær fyrstu árin eftir að land- heigislínan var færð út en hefur brugðizt síðari árin. Þegar ég man fyrst eftir var hér aðeins ein lítil bryggja í Steinsvör. En að henni gátu ekki lagzt stærri bátar en 25 rúmlesta. Það næsta sem skeði í þeim mál- um var að Bjarni heitinn Ólafs son skipstjóri lét gera litla stein bryggju í Lambhúsasundi og einnig lætur hann byggja þar fiskverkunarhús. Hann átti þá vélbátinn Hrafn Sveinbjarnar- son, sem var 21 rúmlest og var hann sjálfur skipstjóri á bátn- u-m. Síðar var þessi bryggja stækkuð af Ytri-Akraneshreppi. Og síðan á Lambhúsasundi var byggð önnur bryggja úr tré sem bráðabirgðaúrlausn, en Akurnes- ingum var þá þegar ljóst að með vaxandi útgerð voru þessi hafn arskilyrði ófullnægjandi, og ár ið 1931 var hafin hafnargerð við Krossvík að sunnanverðu á Akranesi. Á vertíðinni 1932 var kominn þarna bryggjustúfur, sem ekki var lengri en það að aðeins einn bátur gat haft þar viðlegu í einu. Þetta þokast síðan áfram smátt og smátt. Og á stríðsárunum er hafnargarðurinn, sem er nú kall aður svo, orðinn það langur að hægt var að afgreiða þar fisk- flutningskip, sem voru hér að staðaldri öll stríðsárin en þá var mjög mikið af ísuðum fiski flutt út héðan frá Akranesi. Árið 1943 er svo byggð báta- bryggja innan við sjálfan hafnar garðinn. Eftir stríðið voru keypt 4 stór innrásarker frá Englandi og eru það þau, sem höfn okkar byggist á í dag. Er vandséð hvernig hafnargerð væri háttað hér nú ef þessi ker hefðu ekki verið keypt. Hugmyndina að þess um kaupum>Ati hinn kunni at- hafnamaður Harailduír 3öðvars- sbn, en hann átti sæti í fyrstu bæjarstjórn Akraneskaupstaðar er Akranes fékk kaupstaðarétt- indi árið 1942. Ég minnist þess sérstaklega því að ég átti þá líka sæti í bæjarstjórn á þeim tíma þegar hann stóð upp á fundi og skýrði frá því að hann hefði séð í erlendu tímariti mynd af stór um steinsteyptum kerjum, sem notuð hefðu verið til bráðabirgða hafnargerðar við innrás banda- manna í Normandí. Hann lét þess getið að þessi ker myndu henta okkur vel til hafnargerðar. Þeasi bæjarstjórnarfundur var um það leyti, sem stríðinu lauk, en næst skeði það í málinu að Arnljótur heitinn Guðmundsson sem þá var bæjarstjóri var send ur til að athuga málið. Fyrst við ríkisstjórnina og vitamálastjórn- ina. Og að fengnu samþykki þeirra fór hann til Englands og festi þar kaup á þessum 4 kerj- um. Og að auki tveimur inn- rásarprömmum um 350 smá- lesta hvor. Þessir innrásarpramm ar voru síðan notaðir við hafnar framkvæmdirna hér. Nú er ann- ar þeirra gerónýtur en hinn er í daglegum ferðum með sement frá Akranesi til Reykjavíkur undir nafninu Ferja II. Ég vildi láta þetta koma fram hér, þvi að margir hafa viljað eigna sér heiðurinn af þessari hugmynd, en þeim sem heiðurinn ber, og með allri virðingu fyrir okkur hinum í bæjarstjórninni veit ég að okkur hefði aldrei dottið þetta í hug fyrstum manna. Skömmu eftir að kerin voru kom in hingað heim og mönnum var farið að litast vel á þessa hug- mynd annars staðar á landinu voru þau öll uppseld. Aftur á móti komu síðar nokkur smærri ker hingað til lands, en þau keypti Óskar heitinn Halldórs- son og flutti inn. Eitt slíkt ker keypti Akraneskaupstaður af honum og er það ker nú í Sem entsverksmiðjubryggjunni, sem byggð var síðar. Fyrir árið 1920 eu komin hér 2 frystihús, annað í eign Haralds Böðvarssonar en hitt í eigu Þórðar heitins Ásmundssonar. Þessi frystihús voru aðallega til frystingar á beitu og geymslu hennar. Smátt og smátt hafa svo þessi frystihús þróazt í það sem þau eru í dag eða í það að vera með stærstu og fullkomn- ustu frystihúsum landsins. Seinna komu önnur tvö frysti- hús og eru þau í eign Fiskivers h.f. og Sigurðar HaHbjarnarson- ar h.f. Hér á Akranesi eru nú frystar allar tegundir sjávaraf- urða, allt frá humar upp í stór- hveli. — /jbró///r Framhald af bls. 30. línan stöð og leikur liðsins aldrei heilsteyptur. Á 31. mín. staðfestu Keflvík- ingar sigur sinn með 4. mark- inu eftir harða hrið að marki Vals. Höfðu báðir bakverðir Vals bjargað á marklínu í þeirri sóknarhríð ÍBK en síðast fékk Jón Jóhannsson miðherji knött- inn og sendi í netið framhjá varnarmönnum Vals sem höfðu raðað sér í markið. ic Liðin Keflvíkingar verðskulduðu þennan sigur fyrir ákveðni sína og sigurvilja. Liðið sýndi nokk- ur falleg upphlaup sem voru kröftug og góð og miðuðu hratt og ákveðið að marki mótherj- anna og tókust sum fullkomlega en önnur ógnuðu alvarlega og vörn Vals fékk nóg að starfa. Vörn ÍBK virðist hins vegar ekki ýkja sterk þó lánið væri yfir marki liðsins allan þennan leik. Heildarsvipur leiks Keflvíkinga er því ekki öruggur um of og þarna er enn ekki neitt yfir- burðalið sem á öruggu sigra í vændum. En festan og ákveðnin er góð og liðinu ómetanleg, sam- fara viljanum til að berjast og vinna. Valsliðið var sundurlaust og Síldar- og fiskimjölsverksmiðja Akraness h.f. var stofnuð upp úr 1930. Hafði það verið mikið framfaramál í augum Akurnes- inga, en stærsti hluthafinn var Ytri-Akraneshreppur. Einnig voru hluthafar útgerðarfyrirtæk in í bænum, olíufélögin og síð ast en ekki sízt margir einstakl- ingar. Samhliða vélbátaútgerðinni risu hér upp vélaviðgerðarverk stæði, að vísu smá fyrst í stað, en frumkvöðull á því sviði var Ólafur heitinn Ólafsson í Deild- En á vertíðinni þegar bátarnir lögðu upp í Sandgerði fór hann með verkstæðið með sér þangað og sá þar um viðgerðir fyrir Akranesbáta. Hjá Ólafi heitn- um lærðu Þorgeir Jósefsson og Ellert heitinn bróðir hans og byrjuðu þeir siðan rekstur vél- smiðju. Eftir lát Ellert heitins hélt Þorgeir áfram rekstri vél- smiðjunnar ásamt Jóhanni Páis- syni. Vélsmiðjan er rekin enn 1 dag undir nafninu Vélsmiðja Þorgeirs og Ellerts og vinna þar nú um 60 manns. Fljótlega eftir að bátarnir stækkuðu kom hér lítil dráttar- braut og var hún fyrst rekin af útgerðarmönnum í sameiningu. Síðar keypti Þorgeir Jósefsson dráttarbrautina og hefur hann stækkað hana mikið og endur- bætt og fyrir dyrum stendur nú mikil stækkun á henni. Upp úr árinu 1930 reisti Einar B. Vestmanna og synir hans véla verkstæði og ráku það þar til fyrir nokkrum árum að Síldar- og fiskimjölsverksmiðjan keypti vélarnar og setti á stofn fyrirtæk ið Vélsmiðjuna h.f. Jafnhliða þessum iðnaði hefur þróazt alla konar smærri iðnaður, svo sem netagerð, segla- og reiðagerð, tré smíðar, bifvélaviðgerðir og margt fleira. Núna á síðasta áratug var svo reist Sementsverksmiðja ríkisins sem er risafyrirtæki eins og flest ,um er kunnugt. Og nú rétt fýrir síðustu ára- mót tók til starfa nælonsokka- verksmiðjan-Eva. Það má segja að Akranes hafi þróazt hægt og bítandi, en ekki með neinum risaskrefum eins og sumir kaup- staðir landsins. Fólksfjölgun nú síðustu árin hefir verið rúmlega 100 manns á ári. Ég vil að lokum bæta því við, að samfara útgerðinni og iðnað- inum hefur yfirleitt verið blóm- leg verzlun. Verzlunin hefur þró azt með öðrum greinum atvinnu- lífsins, og í dag eru um 40 stórar og smáar verzlanir á Akranesi, En hér eru nú um 4100 íbúar. , bugaðist við sjálfsmarkið og víta- spyrnuna og margéndurtekinn klaufaskap eftir góð upphlaup. Einu menn liðsins sem stóðu sig miðað við fyrri getu voru Þorsteinn bakvörður og Björn miðvörður. Gylfi og Reynir áttu og sæmilegan leik, en í heild var leikur Vals slappur og misheppn- aður. A. St. 17. júní mótið FYRRI hluti 17. júní mótsins I frjálsum íþróttum fer fram í kvöld á Meiavellinum og befst kl. 20:00. Keppt verður 1 þessum grein- um: 400 m. gr. hl. — 200 m. hlaupi, 800 m hlaupi^ 5000 m, hlaupi, langstökki, þristökki, spjókasti, sleggjukasti, kringlu- kasti, 80 m. gr. hlaupi kvenna, kringlukast kvenna og 4x100 m. boðhlaupi. Þátttakendu* eru margir 1 nokkrum greinum, 8 þátttakend- ur í 400 m. grindahlaupi, 6 i 200 hlaupi, 4 í 800 m hlaupi' og 4 í 80 m. grindahlaupi kvenna. í sleggjukasti eru 6 keppendur og í kringlukasti 7, og tilkynntar eru 4 sveitir i 4x100 m. boð- hlaup. Síðari hlutl keppninnar fer fram 17. júní á Laugardalsvellin- inum og hefst kL w-1*®

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.