Morgunblaðið - 16.07.1964, Síða 2
2
MORCUNBLAÐIÐ
' Fimmtudagur 16. júlí 1964
Nína Tryggvadóttir
vinnur að aitaristöflu
A BLAÐAMANNAFUNDI hjá
biskupi íslands í gær kom fram,
að Nínu Tryggvadóttur, listmál-
ara, hefði verið falið að gera alt-
aristöflu í Skálholtskirkju, Hug-
myndin er að altaristaflan verði
mósaik-mynd, og er listakonan
þegar byrjuð að huga að verk-
efninu og gera uppdrætti.
Eins og kunnugt er var engin
altaristafla í Skálholtskirkju, þeg
ar hún var vígð 21. júlí í fyrra.
f hennar stað var komið fyrir
stórum krossi, sem Hörður Bjarna
son, húsameistari ríkisins, teikn-
aði.
Hfilljónaverð-
mætum forðað
frá eldi
BÆ, Skagafirði, 15. júií — í
dag kviknaði í svokölluðu Gamla
hóteli á Hofsósi. Þar bjó áður
verzlunarstjóri gömlu verzlunar-
innar, en síðan var húsið notað
fyrir hótel. Nú er þar geymsla
frá Kaupfélaginu, og eru þar
miiljónaverðmæti í vörum.
Eldurinn kom upp í kjallara
biúasins og er talið að krakkar
hafi farið þar inn og kveikt í,
en enginn býr í húsinu. Er ný-
lega búið að setja upp slökkvi-
stöð í Hofsósi og fá slökkvitæki,
sem nú voru í fyrsta skipti not-
uð og komu að góðum notum.
Var eldurinn fljótlega slökktur
Oig þar með forðað miklu tjóni.
Um aðrar framkvæmdir á Skál
holtsstað, sagði biskup, að í vet-
ur hefði verið unnið að því að
ful'lgera prestsbústaðinn í Skál-
hotti O'g væri nú sóknarpresturinn
sr. Guðmundur Óli Ólafsson, flutt
Ur frá Torfastöðum í Skáiholt. f
sumar ynnu guðfræðistúdentar
undir stjórn kennara í guðfræði-
deiid Háskólans að því að reisa
sumarbúðir fyrir börn á aldrin-
um 7—14 ára. Ennfremur væri
unnið að framræslu mýrarinnar
sunnan staðarins og skapaðist
þar fallegur völlur, sem yrði at
hafnasvæði krakkanna í sumar-
búðunum. Ef allt gengi sam-
kvæmt áætlun, tækju sumarbúð
irnar til starfa á sumri Itom-
anda .
í náinni framtíð væri ráðgert
að byggja lýðháskóla á staðnum
og skóla fyrir unga guðfræðinga
og presta, en þau mál væru enn
í athugun.
Maðuriiin í
Eyjum fundinn
SIGURBJÖRN Guðjónssðn, mað-
urinn sem auglýst var eftir frá
Vestmannaeyjum, hefur fundizt
drukknaður í Vestmannaeyja-
höfn. Maðurinn hefur oft verið
í Vestmannaeyjum, en var þar
ekki búsettur, og þá stundum á
ákveðnum báti, sem liggur venju
lega í krikanum við Naust-
hamarsbryggju.
Sigurbjörn heitinn sást síðast
27. júní, en er farið var að undr-
ast um hann, lét lögreglan spyrj-
ast fyrir um hann og auglýsa
eftir honum í útvarp. Þegar það
bar ekki árangur var fenginn
kafari til að fara niður við
Nausthamarsbryggjuna og þar
fannst lík hans. Hefur hann
sennilega fallið í sjóinn á leið
um borð í umræddan bát.
Þoka á síldar-
miðunum
í>OKA var á síldarmiðunum í
gærkvöldi. Þó var svolítið að
lifna yfir veiðinni um 10 leytið.
Þá voru nokkur skip- búin að
kasta og fá afla í Tangaflaki
og GlettinganesflakL
AXEL PRBNS LATIIMIM
Kaupmannahöfn, 15. júlí.
— AP —
AXEL, prins af Danmörku,
frændi Friðriks konungs IX,
lézt skömmu fyrir miðnætti i
gær, 75 ára gamall, í sjúkra-
húsi.
Prins Axel fæddist 12. ágúst
1888 í Gulu höllinni í Kaup-
mannahöfn. Hann var sonur
Valdimars prins og Maríu
prinsessu af Orléans. Kvænt-
ur var Axel prins Margréti
prinsessu, dóttur Karls Svía-
prins.
Axel prins var sjóliðsfor-
ingi og fyrrverandi forstjóri
Austur-Asíu-félagsins. Hann
hafði verið sæmdur fjölda
heiðursmerkja fyrir störf sín
á langri ævi.
Axel prins lagðist inn í
sjúkrahús fyrir skömmu vegna
lungnasjúkdóms þess, sem nú
varð honum að bana.
I A/A 15 hnúttr
Jj&t$VSiOhnú!sr_
SnjHtmt »Oi'.m* 7 Skurie 2 Þrvmttr mss V"* Hifttki)
LÆGÐIN suður af íslandi arhring og bjartara veður
hreyfist lítið úr stað og grynn-
ist. Lítur út fyrir yfirgnæf-
andi NA- eða N-átt næsta sól- austan er hætt við þoku.
Á Mýrdulssond
í gær var verið að skipa upp
úr Selá í Reykjavík 50 tonn-
um af varniugi, sem fara á
austur á Mýrdalssand, þar
sem Frakkar ætla að skjóta
eldflaugum í ágúst. Franski
verkfræðingurinn var þarna
viðstaddur og fylgdist með
uppskipun, því mikið af því
sem upp kom úr skipinu eru
viðkvæmar vörur. Á stærri
myndinni er verið að taka
upp radarvagn. Og á minni
myndinni eru eldsneytisgeym-
ar og einhver viðkvæm mæli-
tæki i kassa, sem komið hefur
verið fyrir á bíl.
.......*■•■ ■>- -•• '• •'• '• ■/- v-* --
sunnan lands. Norðan lands og
- Goldwafer
Framhald af bls. 1.
þingið fellt tvær aðrar breyting-
artillögur, sem miðuðu að því
að draga úr öfgum í stefnu-
skránni. Enn er eftir þriðja
breytingartillagan, um eftirlit
með kjarnorkubúnaði, og verður
gengfð til atkvæða um hana í
nótt.
Eisenhower
Fulltrúar á þingi repúblikana
fögnuðu innilega manninum sem
tvisvar hafði leitt þá til sigurs í
forsetakosningum — Dwight D.
Eisenhower — er hann gekk upp
á ræðupallinn. Eisenhower gladd
ist við, breiddi út faðminn og
brosti sínu fræga brosi. Forset-
inn fýrrverandi skoraði á flokks-
ménn sína að stuðla að einingu
innan flokksins og láta ekki
flokkinn gjalda þess að þeir
hefðu ýmislegt við einhverja
fulltrúa hans að athuga. „Við
getum — og við eigum — að
etja kappi innbyrðis — af einurð
og heiðarleik" sagði Eisenhow-
er,“ en aldrei láta villandi eink-
unnarorð eða misvísandi um-
sagnir eða hleypidóma villa okk-
ur sýn. Það verður ekki“, sagði
Eisenhower, „ef við höldum
okkur á hinum gullna meðalvegi
meginreglna okkar og almennr-
ar skynsemi.“
Eísenhower sagðist ekki hafa
lagt fast að Barry Goldwater og
William Scranton að verða í
kjöri sem forsetaefni og varafor-
setaefni flokksins en kvaðst telja
það „good ticket“ eða vænlegt til
árangurs. Kvaðst Eisenhower
þess fullviss að þrátt fyrir ýmis
stóryrði sem þeim hefðu farið á
milli, Scranton og Goldwater,
myndi ágreiningur með þeim
( ekki eins mikill og virtist í fljótu
bragði.
Scranton neitar enn að bjóða
sig fram sem varaforsetaefni og
segist í engu hafa breytt afstöðu
sinni. Hann muni ekki hvika frá
fyrirætlun sinni um að etja kappi
1 við Goldwater í lengstu lög. „Það
er ekki að vita hvort svo fer sem
sýnist við atkvæðagreiðsluna”
sagði Scranton.
Það er mál manna, að Gold-
, water hafi ákveðinn mann í
huga er hann vilji fá sem vara-
forsetaefni flokksins, en ekkert
hefur verið látið uppskátt um
það enn og segja sumir að sá er
Goldwater vill fá viti það ekki
sjálfur.
Nixón
Á blaðamannafundi skömmu
eftir komuna til San Francisco,
sagði Nixon fyrrverandi vara-
forseti, að Goldwater væri
fulltrúi „meginstefnu repúblik-
anaflokksins“. Ekki vildi Nix-
on þó leggja Goldwater lið
í baráttunni við Scranton, en
sagði „Ég styð þann, sem válinn
verður. Svo virðist sem það
verði Goldwater — og þá styð éig
hann”. Nixon kvaðst hafa hætt
við að eyða sumarleyfinu í ír-
Framhald á bls. 3
Halda áfram Færeyja-
flugi — með tapi
Einkaskeyti frá fréttaritara
blaðsins í Kaupmannahöfn.
VILHJÁLMUR Guðmundsson,
■forstjóri Kaupmannahafnarskrif-
stofu Flugfélags íslands skýrði
Ritzau fréttastofunni frá því að
krafa dönsku flugmálastjórnar-
innar um Færeyjafiugið geri það
að verkum að tap verður á flug-
inu, þá muni Flugfélagið halda
áfram fluginu til Færeyja sam-
kvæmt gerðri áætlun, sem nær
til 24. september.
Vilhjálmur Guðmundsson legg
ur áherzlu á það, að krafa Dana
sé miklu strangari en samsvar-
andi kröfur í öðrum löndum.
— Rytgaard
eg
1 verð með
ísegir Wallace
| ríkisstjéri
!í Alabama
Atlanta, Georgia-fylkg
15. júlí —AP
f ÍHALDSMENN í Suðutríkjun i
i um hafa nú af því miklar á- j
i hyggjur, að framboð George i
|C. Wallace, ríkisstjóra í Ala-i
\ bama, kunni að selja Suður- j
i ríkin í hendur Lyndon B. John i
isons og demókrata. — Sumir i
I fylgismenn ríkisstjórans hafa i
: þegar gengið í lið með Gold- i
i water og aðrir hótað að géra i
! það, ef hann afturkalli ekki j
i sjálfviljugur framboð sitt. Enn j
i á hann þó marga trygga i
i stuðningsmenn og hyggst:
= halda til streitu framboði i
í sínu.
| Er það mál manna að stefnu j
\ skrá repúblikana sé mjög að i
| skapi margra demókrata, sem i
i ósáttir séu við stefnu flokks i
| síns og þeir muni fylgja henni i
I að málum. Segja margir, að i
! Wallace og Goldwater verði i
I að taka saman höndum ef þeir i
| vilji sigra Johnson í Suður-i
| ríkjunum. Einn stuðnings-i
| manna Wallace lét svo um i
f mælt, að ef hann ekki aftur- i
| kallaði framboð sitt skaðaðí i
i hann þann mann sem svipað- i
! astar skoðanir hefði sjálfum i
| honum og þann sem næst i
f kæmist tilfinningum manna í i
| Súðuríkjunum.
MUIIMUIIIHIUIIIIitlHIHI