Morgunblaðið - 16.07.1964, Side 5
Fimmtudagur 16. júlí 1964
MORGUNBLAÐIÐ
5
Nordan hardan gerdi gard
Þau eru mörg skiirðin á V'
víkur og vogar.
Einhverntíma í vetur var beð-
ið um eitt vísuorð í gamla hús-
ganginn Nordan, hardan gerdi
gard, og bárust við þeirri beiðni
mörg og óiík svör. Voru þau
birt tvívcgis í blaðinu. Siðan
seinni hlutiim birtist hafa enn
borizt mörg svör, og til nú að j
ljúka málinu skulu þau nú rakin
og það þvi fremur, sem orðabók
Háskólans hefur sýnt áhuga á
málinu. Fyrri svörin birtust í
blaðinu 17. apríi og 1. maí.
Guðmundur Eiríksson frá
Raufarhöfn segist hafa lært
vísuna unglingur eða jafnvel
barn á þessa leið:
Norðan harðan gerði garð,
geysi harður varð hann.
Margra klifja ægis arð
upp i skarðið bar hann.
Ég hélt mig skilja vísuna þannig
þá, (og þess vegna man ég hana
að í miklum norðangarði hefði
rekið marga hestburði (hestburð
ur var tvær klyfjar) af verðmæti
úr sjó t.d. hval hefði borið á fjöru
þar sem vík eða skarð var fyrir,
evo að það næði að festast í
fjöru.
Jökull Pétursson segist hafa
lært vísuna á bernskuárum sín-
um vestur í Skutulsfirði á þessa
leið,
Nordan hardan gerdi gard,
geysi hardur vard hann,
Breiðafjardar urdarard
(urðararður = vogrek)
upp í skardid bardi hnan.
Ragnar Guðmundsson segist
bafa lært visuna, þegar hann var
estfjörðum. Faliegir eru firðir,
strákur á Bakka í Geiradal í
Barðastrandasýslu á þessa leið:
Nordan liardan gerdi gard
geysi hardur vard hann
allt mitt fé þá úti vard
uppi i skardi barda.
Sigurbjörn Stefánssoh Heið-
mörk við Sogaveg, nú við Háa-
leitisbraut kann vísuna á þennan
máta og lætur góða skýringar
fylgja.
Norðan fjarða gerði garð,
geysi harður varð ’ann
Borða- jarða erðis- arð
upp í skarðið barð ’ann
Skýringar: Borða-jörð = tré
(t.d. Erðis borðajörð væri stórt
tré samanber erðis dilkur =
vænn dilkur Skarð í þessari
merkingu er trúlega vör (lending
arskarð) Erðisarður = stór eða
eða mikill gróði. Norðan fjarða
gerði garð = Norður á fjörðum
gerði áhlaup. geysi harður varð
hann = veörið var mikið og
hart. Borða jarðar erðisarð =
tré stórt og arðvænlegt upp í
skarðið barðinn = rak upp í
vörina eða víkina. Sigurbjöm
segir: Visuna lief ég lengi kunnaö
o-g á ýmissa vegu reyndar. Bezt
kann ég meiningu vísunnar á
þennan hátt, og ég held, að ég
hafi lært hana svona fyrst, en
síðan og síöar, á aðra vegu og
lakari. Þetta eru mínar persónu-
legu skýringar við vísuna.
Sveinbjörn Beinteinsson skrif-
ar eftir farandi. Þó nú sé komið
vor og allur norðangarður úr
minni liðinn, þá langar mig til
að minnast á vísu, sem hér var
til umræðu í vetur. Vísuna hef |
ég lært þannig:
Norðan harðan gerði garð,
geysi harrtur varð 'ann
borða jarðar ennis arð
ofan í skarðið barði ’ann.
Vísuna hef ég skýrt þannig:
Borði jarðarennis = ský. Enni I
jarðar er fjallsbrúnin og borði
þess er skýjabálkurinn, líkt við
höfuðbann (skarband) arður I
skýjanna = snjórinn, sem norð-
anáttin barði ofan í fjallsskarðið. ]
Þetta er góð veðurlýsing og rím-
leikur jafnframt.
Að lokum er viðeigandi að
birta glefsur úrlokabréfi þess ]
manns, sem öllum þessum bréfa-
skriftum um Nordan hardan
gerdi gard kom af stað, en hann
heitir Jón Eriendur Guðmunds-
son frá Galtastöðum í Gaulverja- |
bæjarhreppi og ég veit ekki,
hvort hann kann mér nokkrar
þakkir fyrir að koma þannig upp
um sig, en hafa skal hann beztu
þakkir frá niér, því að ég veit
að þetta hefur vakið margan til ]
umhugsunar um gamlan þjóð-
legan fróðleik okkar.
Jón Erlendur segir í bréfinu I
eitthvað á þessa leið: Þó nokkuð ]
sé umliðið, þá get ég varla látið
hjá líða að senda dagbók Morgun ]
blaðsins nokkrar línur með þakk
læti fyrir upplýsingamar um
vísuna sem ég spurði um í vetur. j
Það var gaman að fylgjast
með hinum mörgu svörum, sem
bárust og voru flest þeirra með
nokkuð mismunandi orðalagi, og |
þess vegna erfiðara að greina,
hvað bezt við átti, þar til Konráð I
Árnason lét skýringar fylgja
vísuorðunum, sem hann sendi, |
Þá var gátau ráðin, ef svo mætti
segja.
Þar sem þetla er aðeins okkar I
á milli sagt, þá get ég varla
stillt mig um að geta þess, þótt
það komi ekki málinu við, að j
með því aö hafa vísuorðin:
„Borða jarðar erðis arð”, sem I
K.Á. sendi, þá er vúsan orðin
LISTAVERK og væri hægt að
skýra það nánar, ef þörf væri |
á því. Skal svo ekki þreyta með
lengra málL Endurtek aðeins:
Beztu þakkir einnig fj-rir vísuna, I
sem fræðaþulurinn í Vallnatúni
fann upplýsingar um, sem sé
höfundinn og annaö, sem visuna |
snerti.
Og þá látum við þessu lokið og j
þökkum öllum hlutaöeigendum.
FOSTUDAGUR:
Áætlunarferðir frá B.S.L
AKUREYRI, kl. 8:00.
AKUREYRI, kl. 21:00 næturferS.
BISKUPSTUNGUR. kl. 13:00
um Laugarás
BORGARNES kl 17:00
BORGARNES S og V kl. 18:00
DALIR-SKARÐ kl. 8:00
FLJÓTSHLÍÐ, kl. 18:00
GAULVERJABÆR, kl. 11:00
GNÚPVERJAHREPPUR, kl. 18:30
GRINDAVÍK, ki. 15:00; 21:00
HÁLS í KJÚ3 kl. 18:00
HRUNAMANNAllREPPUR, kl. 18:30
HÓLMAVÍK, kl. 8:00
HVERAGERÐI, 13:30; 17:30; 20:00
KEFLAVÍK, 13:15; 15:15; 19:0«; 24:0«
EANDSSVEIT. kl. 18:30
LAUGARTATN, kl. 10:30 og 20:30
MOSFELLSSVEIT kl. 7:15; 13:15;
18:00 og 23:15
REYKIIOLT, kl. 18:30
STYKKISHÓLMUR, kl. 19:00
EIGLUFJÖRÐUR. kl. 9:00
ÞINGVELLIR, kJ 13:30
ÞORLÁKSHÖFN, kl. 13:30 og 20:00
Eimskipxfélag Reykjavikur h.f. —
Katla er i Dale Sunnfjord, fer þaðan
i kvöld óleiðis til Haugasunds. Askja
•r í IrtMningham.
Eimskipafélag fslands. h.f: Bakka-
foss fer frá Re.yðarfirði í dag 16. 7. til
Xlaufarhafnar og Norðfjarðar. Brúar-
Þ>ss fór frá NY 8. 7. til Rvíkur Detti-
íoss fer frá Vesl mann aeyjuni f dag
»6. 7. til Gloeester og NY. Fjallfoss
•r á Norðfi.-ðl fer þaðan tii Fáskrúðs-
Cjarðar, Hull, London, Antwerpen og
Hamborgar. Goðafoss kom til Rvikur
12. 7. frá Hull. Gullfoss fór frá Leith
13. 7. til Rvíkur. Sfeipið leggst að
þryggju um kt. 08:15 í dag Lagarfoss
kom til Rvíkur 11. 7. fré Helsingborg
Mánafoes fór f.-á Eskifirði 12. 7. til
Antwerpen og Rotterdam. Reykjafoss
fór frá Kaupmannahöfn 14. 7. til
Kristiansand og Rvíkur. Selfoss fer frá
Hamborg í dag 15. 7 tll Rvíkur. Trölla-
foss kom til Kotka 14. 7. fer þaðan til
Hamborgar, Hull oj; Rvíkur. Tungufoss
fer frá Gautaborg 1 dag 16. 7. til
Reyðarfjarðar og Rvíkur.
Skipaútgerð tíkisáns: Hekla er i
Kaupmannahöfn Esja fer frá Rvík
kl. 20:00 í kvóld austur um lantí í
hringferð. Herjólfur fer frá Vest-
mannaeyjum í dag til Hornafjarðar.
Þyrill er í RWk. Skjaldtoreið er á
VestfjörSum á norðurleiS. HerSubreiS
er á Austfjörðum á suðurleið.
Hafskip h.f.: Laxá er í Hamborg
Rangá er í London. Selá er í Rvlk
ÞANKAbrot
GAMALI oc con
Herrann skapaði loft og láð,
lyði og blónistrið fríða.
Oá var hagur, tem það kunni að
smíöa.
Offjölgun
er aðeins annað nafn á liungri
Svo mó virðast sem vonlaust
sé að leysa vandamál hungurs og
vannæringar í heimi er að
margra áliti nú þegar byggður
alltof mörtgu fóiki og verður að
skömmum tíma liðnum byggður
helmingi fleira fólki. En þrátt
fyrir þetta er þó rúm handa okk
ur öllum á jörðinni. Ef hver ein-
asti jarðarbúi — um 3000 milljón
ir manna — fengi í sinn hlut 10
fermetra jarðarskika, gætu allir
íbúar jarðarinnar búið á svæði,
sem væri 30.000 ferkílómetrar.
Það er minna en þriðjungur af
íslandi.
Spurningin er því: er hægt að
hagnýta hin miklu landsvæði,
höfin og jafnvel loftið með þeim
hætti, að allir jarðarbúar hafi
nóg að bíta og brenna?
Svarið við þessari spurningu
verður auðveldara, ef við renn-
um sem snöggvast augum yfir
sögu Bandaríkjanna. Áður en
Kólunnbus fann Ameríku bjuggu
í hæsta lagi 500.000 Indíánar í
allri Norður-Ameríku. Þrátt fyr-
ir þetta áttu þeir oft við hungur-
Honda óskast
Uppl. í síma 32639 eftir
kl. 6.30.
Til sölu
reiðhjólaviðgerðarverk-
færi og reiðhjólalager. —
G ó ð i r greiðsluskilmálar.
Uppl. í síma 36773 eftir
kl. 6 á kvöldin.
Mæðgur óska eftir
2 herb. og eldhúsi. Hús-
hjálp kemur til greina.
Tilboð merkt: „Reglusemi
-— 4978“ sendist Mbl. fyrir
næsta laugardag.
Háskólastúdent
óskar eftir 2ja—3ja herb.
íbúð. Uppl. í síma 14780.
2—3 herb. íbúð óskast
til leigu í Rvík eða Hafnar
firði. Reglusemi. Uppl. í
síma 33406.
sneyð að etja — á svæði sem nú
veitir tvöhundruð milljónum
manna í Bandaríkjunum og
Kanada beztu lífskjör í heimi!
Þessi stórfenglega breyting hef-
ur átt sér stað vegna skipulagðr-
ar hagnýtingar auðlindanna.
Stundum er talað um offjölgun
fólks á svæðum þar sem í raun-
inni er um að ræða skort á mat-
vælum. Offjölgun verður þá að-
eins annað nafn á hungri. Hvaða
lönd hafa of marga íbúa? Flestir
mundu sennilega nefna Indland
eða Kína. En í Indlandi eru 138 j
ibúar á hvern ferkílómetra móti
346 í Hollandi. í Kína eru 72
íbúar á ferkílómetra móti 107 í
Danmörku.
Vísindi og tækni hafa nú náð
þeim áfanga að hægt er að láta
allsnægtir koma fyrir hungurs-
neyð. Vandamál fólksfjölgunar ]
er gífurlega mikilvægt og krefst
skjótra og róttækra aðgerða, en
viðleitnin við að finna lausn á
því á ekki að koma í veg fyrir
að vandamál hungursins vei*ði
leyst hið bráðasta.
(Frá Sameinuðu þjóðunum).
Stúlka eða ráðskona
óskast í sveit, í forföllum
húsmóður. Uppl. í síma
12735.
Háskólastúdent
óskar eftir atvinnu til
hausts. Tilboð sendist Mbl.
merkt: „4674“.
Snoturt einbýlishús
á sjávarströnd til sölu.
Uppl. eftir kl. 7 næstu
kvöld í síma 41871.
Gott stofuorgel til sölu
Upplýsingar í síma 16211.
Bindispennurnár
á steypustyrktarjám mi
komnar. Pantanir sækist
sem fyrst.
Sögin hf.
Höfðatún 2. Sími 22184.
Uppboð
annað og síðasta á hluta í Stóragerði 30, hér í borg,
þinglesin eign Sigmundar Andréssonar, fer fram
þriðjudaginn 21. júlí 1964 kl. 2,30 síðdegis.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
r tr
Utsvarsstigar
til notkunnar við álagningu útsvara samkvæmt lög-
um um tekjustofna sveitarfélaga fást keyptir á
skrifstofunni og kosta kr. 150.00 eintakið.
Samband íslenzkra sveitarfélaga,
Laugavegi 105. Pósthólf 1079. Reykjavík.
Framtiðarstarf
Aðstoðarmaður óskast við búfjárræktartilraunir
laun skv. kjarasamningi opmberra starfsmanna.
Umsóknir sendist fyrir 1. ágúst.
Atvinnudeild Háskólans,
Búnaðardeild.
Skiptafundur
í þrotabúi Svavars Guðmundssonar, kaupmanns,
Laugavegi 160, hér í borg, ásamt fyrirtækjum hans,
Verzlananna Áss, verður haldinn á skrifstofu skipta
ráðanda Skólavörðustíg 12, föstudaginn 17. júlí
1964 kl. 2,30 síðdegis, og verða þá teknar ákvarð-
anir um ráðstöfun eigna búsins.
Skiptaráðandinn í Reykjavík.
LONDON
DÖMUDEILD
— ★ —
H E L A N C A
síðbuxur
í úrvali.
— Póstsendum —
— ★ —
LONDON
DÖMUDEILD
Austurstraeti 14.
Sími 14260.