Morgunblaðið - 16.07.1964, Síða 8
8
MORGU N BLAÐIÐ
Fimmtudagur 16. júlí 1964
Ágúst Thejll, afgreiðslustjóri
ÓLAFUR Ágúst Thejll hét hann
fullu nafni, samkvæmt skrám
þeim, sem Manntalsskrifstofan
bjó í hendur sjúkrasamlaginu í
öndverðu, og svo var hann mjög
oft nefndur meðal okkar sam-
starfsfólks hans í samlaginu.
Kannske hefir okkur ósjálfrátt
fundizt, að svo aðsópsmikl-
um persónuleika nægði vart
skemmra nafn.
Fæddur var Ágúst í Kaup-
mannahöfn, 29. september árið
1900 og var móðir hans Lydia
ThejU, dóttir Hag-barðs Thjells,
verzlunarstjóra á Búðum, en
faðir hans, þýzkur verkfræðing-
ur, Unger að nafni, lézt frá unn-
ustu sinni, áður en sveinninn
fæddist. Hlaut hann þá í skírn-
inni ættarnafn móðurfrænda
sinna. Hingað heim kom hann
með móður sinni fjögurra ára
gamall, en ólst síðan upp á heim-
iU hennar og stjúpföður síns,
Magnúsar Guðmundsonar frá
Hvítadal. Unglingur fór hann á
verzlunarskóla í Danmörku og
lauk þaðan prófi í árslok 1917.
Stundaði hann síðan ýmiskonar
verzlunarstörf bæði hér heima
cg einnig nokkur ár í Danmörku.
Skömmu fyrir Í930 setti hann á
stofn verzlun á Laugavegi, þar
sem nú er Kjötbúðin Borg, en
þá fóru krepputímar í hönd og
verzlunin varg ekki langæ.
Þegar Sjúkrasamlag Reykja-
víkur var stofnað, árið 1936 gerð-
is-t Ágúst starfsmaður þess og
starfaði þar síðan til dauðadags,
eða í full 28 ár, lengst af sem
afgreiðslustjóri. Fer ekki hjá því,
að flestir hinna fjölmörgu Reyk-
víkinga, sem þessa tæpa þrjá
áratugi hafa átt erindi við sam-
la,gið, hafi veitt athygli hinum
hressilega, röggsama og fas-
mikla stjórnanda í afgreiðslu
þess.
Það sem sérstaklega einkenndi
Ágúst sem starfsmann var —
fiaman af þeim tíma, sem við
áttum samleið — mikig starfs-
þrek, en allan tímann, til hinzta
dags, fágæt starfsgleði o,g áhugi.
Hann dró aldrei af sér, heldur
lagði sig alltaf fram, og aldrei
naut hann sín betur en þegar
hann var að greiða fram úr ein-
hverjum flækjum fyrir samlags-
menn. Það voru hans eftirlætis-
verkefni.
En áhuginn og starfsgleðin
entust honum mun betur en
starfsorkan og hefir það mis-
ræmi, sem þarna varð á milli,
vafalítið átt sinn þátt í þeirri
þróun, sem leiddi til hins skyndi-
lega fráfalls hans að kvöldi s.l.
íöstudags, 10. þ.m. Okkur sam-
starfsfólki Ágústs hefir síðustu
2-3 árin verið ljóst, að hann gekk
hvergi nærri heill til skógar.
Fyrir kom að hann fékk aðsvif
vig vinnu, og þegar hugmaður
eins og hann neyddist til að
hverfa heim frá vinnu á miðjum
degi, eins og við bar s.l. vetur,
þá hlaut meira en litið að bjáta
á. Hann var því mjög hvattur,
bæði af ok-kur og sinum nánu-
ustu, að fara sér hægar o,g ætla
sér af. En honum var það ekki
mögulegt. Fram á það síðasta
hætti honum til að hlaupa við
fót upp stigana í samlaginu,
þegar hann átti erindi milli
hæða. Það var ekki í hans lund
að bogna, og því hlaut hann að
„bresta loks í bylnum stóra síð-
ast“. Að bana urðu honum af-
leiðingar áfalls er hann hlaut í
húsi samlagsins, vafalaust vegna
aðsvifs.
Á 34 ára afmælisdegi sínum
gekk Ágúst að eiga heitkonu
sina, Rannveigu Árnadóttur
Scheving, bónda á Hrærekslæk í
Hróarstungu, og lifir hún mann
sinn. Var hjónaband þeirra
rojög farsælt, enda Ágúst mikill
heimilisfaðir, umhyggjusamur
og heimakær, og húsmóðirin hin
vænsta kona. Björn þeirra eru
Magnús, bankamaður, kvæntur
Kristínu Birnu Sigurbjörnsdótt-
ur og Camilla Lydia, gift Vern-
harði Guðmundssyni, _ trésmið
frá Stóru-Drangeyri. Áður en
Ágúst kvæntist hafði hann eign-
ast dóttur Lydiu Eddu. Er h-ún
gift Jóhanni Erlendi Óskarssyni,
bifr.stjóra, og hefir um ára-bil
siarfað hjá sjúkrasamlaginu.
Eínnig með þeim feðginum hefir
verið einkar kært. Fjögur ung
barnabörn átti Ágúst, öll mikið
eítirlæti hans.
Vinsæll var Ágúst og vinmarg-
ur og þau hjón bæði, og góð
heim að sækja, enda húsbóndinn
hrókur alls fagnaðar í kunningja-
hópi. Deyfð og drungi voru
fjarri, ef hann var nærri.
Ég hefi heyrt það, síðustu dag-
ana, að margir sakna Ágústs og
f:nnst að honum sjónarsviptir,
er hann svo skyndilega er horf-
ihn. En vel mættu þeir, sem unna
honum góðs, hugsa þá hugsun,
að fráfall hans nú kunni einmitt
að hafa verið líknsemdarráð-
stöfun þess sem málum ræður.
EINAR Þ. MATHIESEN ræddi
nýlega við blaðamenn, vegna
þess að firma hans, E. Th. Mat-
hiesen h.f., hefur nýlega hafið
innflutning á hinu þekkta ryð-
varnarefni, RUST-OLEUM. Hef-
ur firmað umboð fyrir ryðvam
arefni þetta á íslandi.
Rust-Oleum hefur verið fram-
leitt í 42 ár, og í stórframleiðslu
yfir 35 ár. ísland er 81. landið i
röðinni, þar sem Rust-Oleum er
sett á markaðinn. Efnið hefur
náð gífurlegri útbreiðslu, enda
mun það hafa fengið orð á sig
sem örugg ryðvörn. Bandaríkja-
stjórn notað það t.d. á allar vél-
ar og tæki á Kennedy-höfða (áð
ur Canaveral-höfða), þar sem
tilraunir með aldflaugar fara
fram. Norski sjóherinn. notar
Rust-Oleum á öll skip sín.
Ástæðan til þess, að efnið hef
ur ekki fyrr komið á íslenzkan
markað, er sú, að framleiðend-
urnir krefjast mjög góðrar þjón
ustu, þar sen» efnið er selt. Hafa
menn ekki treyst sér til þess að
láta hana í té. Nú er afráðið, að
sérfræðingur frá framleiðslu-
fyrirtækinu komi hingað til
lands einu sinni á ári hverju,
dveljist hér a.m.k. tvær vikur,
ferðist á milli sölustaða og verði
til ráðuneytis.
Rust-Oleum er framleitt úr
fiskiolíum. Það myndar ekki ein
göngu húð utan á flöt þann, sem
það er borið á heldur samlagast
það einnig ryðhúðinni og mynd
ar ryðvörn úr járnefninu, sem
er í ryðinu, en hleypir rakanum
út. Reynslan hefir leitt. í ljós, að
Rust-Oleum er mjög endingar-
gott. Það er mikið notað á skip,
vélar, tanka og leiðslur er liggja
að sjó og árangurinn af notkun
þess við slíkar aðstæður hefir
verið undraverður.
Það var skozkur skipstjóri, Ro-
bert Ferguson, sem fann Rust-
Oleum upp. Hann hélt á sjó frá
Skotlandi aðeins 1^2 ára gamall
og var lengi á hvalveiðiskipum.
Hann hóf snemma tilraunir með
fiskiolíur sem ryðvarnarefni, og
þessar tilraunir hans leiddu til
þess, að árið 1922 var hafin fram
leiðsla á Rust-Oleum. Fergusson
settist að í Bandaríkjunum, og
þar voru reistar verksmiðjur til
framleiðslu á Rust-Oleum og fyr
irtækið hefir vaxið upp í mikla
samsteypu, sem hefir verksmiðj
ur bæði í Bandaríkjunum og
Hollandi og selur ryðvarnarefnið
um allan heim.
Erfitt hlutskifti hefði það verið
slíkum manni, sem Ágúst var, að
lifa þrotinn að heilsu og kröft-
um, en eins og heilsu hans var
háttað, hefði vel mátt svo fara,
hefði honum orðið mun lengri
lifdaga auðið.
Mikill söknuður rikir að sjálf-
sögðu meðal nánustu ástvina
Ágústs, við hið skyndilega frá-
íall hans. En mér er ljóst, að
þeim er ekki síður ríkt í huga
þakklætið og gleðin yfir góðum
minningum um vammlausaa
heiðursmann, sem var þeim jafn
hjartfólginn og þau voru honum.
Gunnar J. Möller.
f Bandaríkjunum hafa gæði
Rust-Oleum fengið vísmdalega
viðurkenningu og hefir rannsókn
leitt í Ijós, að það er öruggt ryð-
varnarefni. Hafa rannsóknir sýnt,
að efnið læsir sig inn í hinn ryðg
aða flöt og allt inn að hinum
hreina niálmi. Ef Rust-Oleum ef
skafið af ryðguðum fleti eftir til
tölulega skamman tíma keraur í
ljós, að allt ryð er horfið. Það
sem gerist er það, að Rust-Oleum
„rekur út“ loftið og rakann, er
myndar ryðið í málminum, en
samlagast járnefninu og myndar
þar ryðvörnina.
Þegar lokið hefir verið við að
nota tilheyrandi Rust-Oleum á
grunn, er hægt að fá Rust-Oleum
í fjölmörgum „yfir-litum“, allt
eftir vali þess, sem notar. En þess
ir ,,yfir-litir‘ eru einnig fiski-
olíu-ryðvarnarefni, þó að grunn-
litirnir séu sterkastir.
Það sem, Rust-Oleum famleið
endur leggja megin-áherzlu á, er,
að ryðvarnarefnið sé rétt notað,
og að sá, sem selur Rust-Oleum,
sé sem kunnugastur við hvaða-
aðstæður á að nota það til þess
að hægt sé að leiðbeina notand-
anum sem allra mest. Veitir um-
boðið fyrir ísland E. TH. MAT-
HIESEN hf. allar upplýsingar
um notkun hér á landi.
Ætluðu að kveikja
í kirkjunni
Elm City, Norður Karólína,
14. júlí (NTB)
LÖGREGLAN í Elm City I
Bandaríkjunum hefur handtekið
tvo hvíta unglinga, sem voru að
reyna að kveikja í blökkumanna
kirkju þar í borg. Áður höfðu
Ku Klux Klan samtökin hótað að
grípa til aðgerða gegn kirkjunni
vegna þess að hvítir menn unnu
með blökkumönnum ag því að
koma þar upp sunnudagaskóla.
Nokkrir lögreglumenn lágu I
íelum við kirkjuna vegna hót-
ana Ku Klux Klan. Sáu þeir þeg-
ar unglingarnir komu og helltu
benzíni úr 22 lítra brúsa á kirkju
tröppurnar. Rétt þegar ungling-
arnir ætluðu að fleygja logandi
eldspýtu á tröppurnar, skaut lög-
reglan að þeim aðvörunarskoti,
og handtók þá síðan.
Einar Þ. Mathiesen sýnir notkun RUST-OLEUM.
Ryðvarnarefnið Rust
OSeum kemur á
■slenzkan markað