Morgunblaðið - 20.08.1964, Qupperneq 6
6
M0RGUNBLAÐ1Ð
Fimmtudagur 20. ágúst 1964
Miklsr framkvæmdir bæði í
jarðrækt og húsabyggingum
Nýlegra hafa verið settar
upp tvær nýjar höggmyndir
til bæjarprýði á Akureyri.
Reykjavíkurborg g-af Akur-
eyrarbæ styttuna Systurnar
eftir Ásmund Sveinsson
og vinabær Akureyrar
Á'asund, styttuna Litli fiski-
maðurinn. Hefur hún verið
sett upp á Ráðhústorgi, en
Systurnar eru við Andapoll.
(Ljósm. Sverrir)
BÆ, HÖFÐASTRÖND. — Miklar
framkvæmdir og stórhugur er nú
í Skagafirði, bæði í jarðrækt og
húsabyggingum, svo að líklegast
hefur aldrei verið eins almennt
um stórátök.
Eins og sagt var frá í síðasta
fréttaþætti er næstum á hverjum
bæ í Austur-Skagafirði meiri og
minni jarðræktarframkvæmdir.
Nú hefur fréttamaður útvegað
sér upplýsingar um þær bygging
ar, sem sótt hefur verið um að
fá að byggja og þær sem að
mestu er lokið við.
f Holtshreppi í Fljótum, hjá
Jóni í Minnaholti, íbúðarhús; —
hjá Ríkarði á Brúnastöðum, íbúð
arhús; Benedikt i Minni-Brekku,
íbúðarhús; Krstjáni J., Hnapps-
stöðum, fjós fyrir 16 gripi, og
hlaða; Sveini í Bjarnargili, vot-
heyshlaða; Sveini Þórðarsyni,
Berglandi, fjós fyrir 16 og hlaða
í smíðum, endurbygging. íbúð á
Hraunum; stækkun og endurbygg
ing samkomuhúss á Ketilási.
Haganeshreppur. Fjárrétt hjá
Samvinnufélagi Fljótamánna; —
Björgvin Márusson, Fyrirbarði,
fjósbygging; í smíðum íbúðarhús
á Haganesi. í smíðum íbúðarhús
að Stóru-Reykjum. Steinsteypt
skilarétt í Flókadal.
Fellshreppur. íbúðarhús að
Tjörnum, Kjartan Hallgrímsson;
sótt um hlöðu og fjárhúsbygg-
ingu á Skálá.
Hofshreppur. — Ólafur Þ.,
Vatni, stækkun fjóss um 15 bása
og hlöðu 4.560 rúmm.; Páll Hj.,
Kambi, endurbætur á íbúðarhúsi;
Axel Þ., Litlubrekku, íbúðarhús;
Þorgils Þ., Stafshóli, stækkun
íbúðarhúss; Þorvaldur G., Krossi,
20 kúa fjós. Sótt um áframhald
byggingar félagsheimilis á Hofs-
ósi. Þorleifur Jónsson, Þöngla-
skála, íbúð.
Viðvíkurhreppur. Feðgar á
Bakka, íbúð og flest útihús.
Akrahreppur. — Hannes St.,
Þverá, 30 kúa fjós; Geir Axels-
son, Brekkukoti, íbúðarhús;
Stefán Hrólfsson, Keldulandi,
fjárhús; Gunnar Oddsson, Flata-
tungu, fjárhús; Jóhann, Silfra-
stöðum, fjárhús; Sigurður J,
Úlfsstöðum, stækkun og endur-
bætur á íbúðarhúsi. Sótt um
haughús og mjólkurhús.
Rípurhreppur. Bjarni Gíslason,
Holti, 12 kúa fjós, haughús,
mjólkurhús, hesthús, verkfæra-
geymsla; Leifur Þórarinsson,
Keldudal, vothtysgryfja og kart-
öflugeymsla.
í Vestursýslunni veit ég að
miklar framkvæmdir eru einnig
bæði í jarðrækt og byggingum.
London, 18. ágúst. NTB.
í haust munu hefjast við-
ræður fulltrúa ríkisstjórna
Bretlands og Sovétríkjanna
um fjárkröfur hinna fyrr-
nefndu að því er brezka utan-
ríkisráðuneytið upplýsir. Ekki
er af þess hálfu nánar getið
hverjar kröfur sé hér um að
ræða, en haft er eftir áreiðan
legum heimildum, að viðræð
urnar verði um kröfur Breta
vegna brezkra egna, er Sovét
stjórnin lagði hald á í Austur-
Evrópu í lok heimsstyrjaldar-
innar síðari og skömmu eftir
hana.
UUIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIItmilllllllinillllllllllllllllllllllllllllllllllllillllllllllllllllllllllllllllllllll
Vöxtur bandarísks ef na
hagslífs aldrei meiri
— en á 4 síðustu árum
Washirigton, 18. ágúst. —
EINN helzti ráðgjafi Lyndon B.
Johnsons forseta, um efnahags-
mál, Walter Heller að nafni, hef
ur birt yfirlit yfir efnahagsstöðu
Bandarikjanna. Þar segir meðal
annars, að vöxtur, sem orðið hafi
í efnahagslífi Bandaríkjanna frá
því John F. Kennedy tók við
völdum fyrir fjórum árum, eigi
sér ekki neina hliðstæðu í sögu
þeirra.
í yfirlitinu segir, að næstliðna
42 mánuði hafi vöxtur og við-
gangur band-ar^ks efnahagslífs
verið óslitinn og nemi fram-
leiðsluaukningin á tímabilinu 150
milljörðum dala, sem sé meira
en á átta ára valdatímabili Eisen
howers. Megi og vænta fram-
halds þessarar þróunar.
Þá segir, að umrætt kjörtíma-
bil forsetanna Kennedys og
Johnsons sé hið fyrsta í 100 ár,
þar sem ekki komi til einhvers
konar afturkippur-í efnahagsþró
uninni. Atvinnuleysi hafi minnk
að verulega og sé nú undir 5%
aftur eins og var í ársbyrjun
1960. Þá hefur framleiðsla iðnað
arins aukizt um 28% á tímabil-
inu.
Ræða S-Týról
Vínarborg, 18. ágúst NTB.
• UTANRÍKISRÁÐHERRA
Austurríkis og Ítalíu, Bruno
Kreisky, og Guisseppe Saragat
hafa ákveðið að hittast að máli í
Genf 7. — og 8. september n.k. og
ræða deilur ríkjanna um Suður-
Týról.
Norðurlöndin
1 standa saman
Þótt orðið LANDKYNNING
sé farið að fara í taugarnar á
mörgum nú orðið er ekki hægt
að neita því, að hér er um mjög
mikilvægt mál að ræða. Mér
dettur þetta í hug vegna þess
að fyrir nokkru sá ég á prenti,
að Norðurlöndin fjögur (Dan-
mörk, Noregur, Svíþjóð og
Finnland) hefðu ákveðið að
standa sameiginlega að Norður-
landasýningarskála á heims-
sýningunni í Montreal árið
1967, eða að þremur árum liðn-
um.
Þetta verður „opinber" heims
sýning, þ.e.a.s. — til hennar er
efnt sameiginlega af öllum lönd
um, sem áhuga hafa á málinu.
Heimssýningin í New York er
hins vegar ekki „opinber“ í
þeim skilningi, því þetta er
einkafyrirtæki Bandaríkja-
manna. Þeir hafa hins vegar
boðið fjölmörgum ríkjum þátt-
töku, eins og kunnugt er.
íslendingar geta
verið með
Ástæðan til þess að ég minn-
ist á þetta er sú, að íslending-
um mun standa til boða að
vera með í sýningarskála Norð-
urlandanna. Svo segir í því
blaði, sem ég las.
íslendingar gætu sennilega
ekki komizt inn á neina heims-
sýningu á ódýrari hátt en að
vera einmitt undir sama þaki og
hin Norðurlöndin og það væri
ekki nema sjálfsagt og eðlilegt
að við yrðum með. Norðurlönd-
in fjögur hafa þegar látið taka
frá fimm þúsund fermetra
svæði fyrir sig á bezta stað á
sýningarsvæðinu og er undir-
búningur þegar hafinn. Mark-
mið þessara landa verður fyrst
og fremst að kynna lönd sín
sem háþróað menningarþjóðfé-
lög óg framleiðendur margs
konar varnings til útflutnings.
Þarna ræður auðvitað sölusjón-
armið, eins og á öllum öðrum
alþjóðasýningum.
íslenzkt fyrirbrigði
Vafalaust hefðu margir ís-
lenzkir aðilar áhuga á að vera
. með, en e.t.v. gengur illa að ná
samstöðu í málinu, eins og fyrri
daginn. Alíslenzkt fyrirbrigði
væri það að taka við sér mánuði
áður en sýningin yrði opnuð,
eða a.m.k. að hefja ekki undir-
búninginn fyrr en í óefni væri
komið. — En það væri furðu-
legt, ef þetta tækifæri yrði látið
ónotað.
Ágætur hagnaður
Mér skilst, að eitt aðaláhyggju
efni knattspyrnuunnenda bæj-
arins sé gróðinn, sem KR fékk
af leiknum við Liverpool. Hér
er auðvitað átt við þá, sem ekki
fylgja KR í blíðu og stríðu —
og verða að láta sér nægja að
heimsækja Vestmannaeyjar eða
ísafjörð í stað Liverpool.
Ég hefði talið ástæðulaust
fyrir íþróttafólkið að hafa á-
hyggjur af þessu, því mín
reynsla er sú, að ríki og bær
hafi alltaf lag á að krækja í
það, sem máli skiptir. Ég fór
því að athuga málið og fróður
maður tjáði mér, að af heildar-
tekjum leiksins greiði félagið
29% í gjöld — þar af 20% til
vallarins. Mér þótti þetta furðu-
lítil skattlagning miðað við
margt annað og skildi þá betur
hina áhyggjufullu, því hinn
fróði maður sagði mér, að
brúttótekjurnar hefðu senni-
lega orðið sex til sjö hundruð
þúsund krónur. Og svo er víst
ágætt að verzla í Liverpool.
Bréf úr Kópavogi
Loks er hér bréf frá „Einni 1
Kópavogi":
„Kæri Velvakandi! Þú talaðir
fyrir nokkru um nýju hverfin í
Reykjavík og malbikunina, hve
vel þetta gengi allt nú orðið.
Mikið öfunda ég ykkur. Þið ætt-
uð að búa í Kópavogi. Þar eru
ekki einu sinni holræsi í sjó
fram hvað þá malbikaðar götur.
Nei, mest hálfgerðir troðningar,
sem yfirleitt eru þannig, að bíl-
ar liðast í sundur með óeðlileg-
um hraða. Og skófatnaðurinn er
fljótur að fara á þessari grófu
möl. Ég hef jafnvel eyðilagt
nýja skó á spölnum út að næstu
strætisvagnastöð. — Ég hef
ferðazt víða um land.en man
ekki eftir að hafa komið á stað,
sem lengra er á eftir tímanum
en blessaður Kópavogurinn.
Verst er, að ekkert virðist ætla
að rofa til í þessum málum hér
hjá okkur, því þeir rjúka úr
einu í annað, allt er hálfkarrað
og óskaplega lítið aðlaðandi“.
BOSCH
KÆLISKÁPAR
frá 4 Vz—8% cub.fet.
Ennfremur
FRYSTIKISTUR
Söluumboð
HÚSPRÝÐI h.f.
Sími 20440 og 20441
/