Morgunblaðið - 10.09.1964, Blaðsíða 2
2
MORCUNBLAÐIÐ
Fimmtudagut- 10. sept. 1964
ELDUR kom upp í heyhlöð-
xmni á Kálfárvöllum í Staðar-
W&ÉÉJtyÉ: yf • p"-WÍMéJr'# sveit á mánudag cig brann
helmingurinn af heyinu sem
í hlöðunni var. Nágrannar úr
Staðarsveit, menn frá Breiðu-
vík og slökkvilið Ólafsvíkur
barðist við eldinn 0|g voru
þessar myndir teknar af því.
btL.% Wmm,- M j; ' ÍmÉíhw? •.-. -v — Sú stærri sýnir aðkomuna að
-ÉML/r'' :.-V; Kálfárvöllum, reykinn leggur
upp af brunastaðnum. Á
minni myndinni er unnið að
því að stífla læk, til að fá
■>■■■■■ ájtt Æ^S nægilegt vatnsmagn fyrir
brunadælurnar.
Slíta sam-
bandi við
Tuomioja látinn
Var rnn skeið íorsætisráðherra Finna
og sáttasemjari SÞ á Kýpur
Helsinigfors, 9. sept. (AP-NTB)
SAKARI Tuomioja, fyrrum for-
sætisráðherra Finnlands og:
sáttasemjari Sþ á Kýpur, andað-
ist í Helsingfors í kvöld, 52 ára
gamall. Kona hans, sonur og
dóttir voru við dánarbeðið þegar
dauðann bar að kl. 18,30.
Tuomioja fékk slag hinn 16.
ágúst s.l. Hann var þá staddur
í Genf en ætlaði að leggja af
stað til Aþenu sama dag til að
reyna að finna lausn á deilu
Grikkja Qg Tyrkja um Kýpur.
Var Tuomioja þá lagður í sjúkra-
hús í Genf, og þar lá hann rúm-
fastur þar til s.l. fimmtudag að
hann var fluttur flugleiðis til
Helsingfors. >ar hefur hann leg-
ið síðan, lamaður oig án þess að
geta talað eða snætt. Heilsu hans
fór hnignandi, og í mongun
sögðu læknar hans að honum
hefði enn elnað sóttin í nótt,
væri meðvitundarlaus og að stór
Belgir óttast frekari
útfærslu v/ð Island
MORGUNBLAÐI® birti í gær
þýzka furðufregn um að íslend-
ingar hyggðust á næstunni að
færa enn út fiskveiðilögsögu
stna, og að þessu sinni í 60—70
sjónúlur. Með fregn þessari voru
birt ummæli Agnars Klemenz
Jónssonar, ráðuneytisstjóra, sem
sagði fregnina gjörsamlega úr
lau.su lofti gripna.
Og enn „flýgur fiskisagan".
Belgískir útgerðarmenn fengu
fregnir um þessa „útfærslu“ og
hafa tveir þeirra rætt við frétta-
menn í því sambandi. í frétta-
skeyti frá Associated Press dags.
x Ostende í gær segir svo:
—„Bf fiskveiðilögsagan við ís-
tai>d verður færð úr 12 í 60—70
mílur þýðir það að öll minni og
millistærðar fiskiskip frá Ost-
ende verða að hætta veiðum á
þeim slóðum,“ sagði Jean Pierre
Duquesne, forstjóri aðal útgerð-
arfélagsins í Ostende, Peeheries
a Vapeur. „Ég hef engar upplýs-
ingar fengið um þetta mál. En
frá Belgíu stunda fimm stærri
skip og 23 minni veiðar við ís-
land. Ef landhelgin verður færð
út geta aðeins stærri skipxn hald-
ið áfram veiðum þar. Rétt er að
taka það fram að u.m 20% þess
afla, sem berst til Ostende kemur
frá íslandi," sagði Duquesne.
Hann bætti því við að útgerðar-
menn í Ostende hefðu með sér
félag, og mundi félag þetta leita
aðstoðar yfirvaldanna ef fréttirn-
ar frá Þýzkalandi reyndust rétt-
ar.
Jacques Segers, forstjóri ann-
ars útgerðarfélags í Ostende,
sagði: „Orðrómur hefur verið
uppi um frekari útfærslu fisk-
veiðilögsögunnar við Island. Ef
úr henni verður munu öil minni
og millistærðarskip neyðast til
að hætta veiðum.“
Hafþór fann
trillubát
AKRANESI, 9. sept. — Trillu-
báturinn Hafþór er vanastur því
að fiska nærri botni, ef hann
fær þá ekki fiskinn uppi í sjó.
En út af þessu brá í fyrrinótt.
Þá fékk hann hann ofansjávar.
Hann fann heilan trillubát á
siglingaleið hingað. Trillan var
mannlaus og siglan hékk utan-
borðs að mestu í stögunum.
Skipstjórinn, Guðmundur Ey-
leifsson, skimaði vítt um og sigldi
i hring kringum staðinn og leitaði
þannig í hálf tíma, ef hann sæi
einhverja hreyfingu. En sá ekk-
ert. Hann hafði þá engar vöflur
á og tók hið fundna skip í tog
og dró það til lands. Síðan frétt-
ist að báturinn hefði slitnað aft-
an úr sementsskipi sem var á
leið hingað.
Trilluna átti Ungverjinn Bela
— Það hefur verið mikil ó-
Kun, giftur og búsettur hér. Þá
er Hafþór kom með hið týnda
skip að landi um kl. 3 um nótt-
ina, stóð Ungverjinn Bela Kun
á bryggjunni.
Ég náði tali af Ungverjanum,
sem heitir nú Bjarni Gústafsson.
Hann sagði mér að vélin í trillu-
bátnum hefði bilað um kl. 1 í
fyrrinótt litlu síðar voru þeir
svo heppnir að hollenzka leigu-
skip sementsverksmiðjunnar kom
á sömu slóðir, gáfu því ljósmerki
og fengu slef. Þegar trillan slitn-
aði aftan úr, þorði skipstjórinn
hollenzki ekki að leita vegna ó-
kunnugleika. Ungverjinn var ein-
mitt kominn ofan á bryggju til
þess að fá lánaðan bát til að
sækja trillu sína, þegar hann sá
Hafþór koma með hana í eftir-
dragi upp með Suðurfiösinni inn
á höfnina. — Oddur.
Montevideo, Uruguay, 9. sept.
— AP —
STJÓRN Uruguay ákvað á
funcH sínum í gærkvöldi að
slíta stjórnmálasambandi við
Kúbu. Er þá Mexíkó eina
Ameríkuríkið, sem enn hefur
stjórnmálasamband við Castro.
Voru sambandsslitin samþykkt
með sex atkvæðum gegn þrem
ur.
í tilkynningu stjórnarinnar
segir að ákvörðun um sam-
bandsslitin hafi verið tekin í
samræmi við meirihlutasam-
þykkt á ráðstefnu samtaka
Amerikuríkja hinn 26. júlí sl.
Samþykkt stjórnarinnar kom
nokkuð óvænt, því áður hafði
hún aðeins lýst því yfir að hún
vildi íhuga málið.
Aukin eftirlaun
Detroit, 9. sept. — NTB —
Samningar hafa verið undir-
ritaðir milli Chrysler-bíla-
smiðjanna og samtaka verka-
manna í bandaríska bílaiðnað-
inum, UAW. Gilda samning-
arnir til þriggja ára, og eru
helztu breytingarnar á eftir-
launakjörum. Er nú sextugum
verkamönnum, sem verið hafa
í starfi 30 ár eða meir, tryggð
400 dollara eftirlaun á hiánuði
— íslenzkir kommar
Framh. af bls. 1.
leg og viðskiptaleg tengsl við
Sovétríkin, en þessu hefur
heldur ekki verið flikað um
skeið.
Með fréttatilkynningunni í
Þjóðviljanum í gær, hafa
kommúnistar hérlendis viður-
kennt ótvírætt, að þeir eru
undir erlendri yfirstjórn. Þá
kemur það fram, að kommún-
istaflokkurinn hér á landi er
peð Rússa í valdatafli heims-
kommúnismans. Það er hins-
vegar athyglisvert, að á sama
tíma og sáttafundur þessi var
haldinn í Moskvu, þá fór rit-
stjóri Þjóðviljans, Magnús
Kjartansson, til Peking til
skrafs og ráðagerða við kin-
verska kommúnista. Ekki er
vitað, hvort Bresnev hyggst
kalla hann á sinn fund á heim-
leiðinni.
Um þetta mál er nánar rætt
í forustugrein blaðsins í dag.
hluti heilans hefði lamazt. Komzt
Tuomioja ekki aftur til með-i
vitundar og lézt, eins og fyrr se*
ir kl. 18,30 í kvöld.
Sakari Tuomioja var lögfræð-
ingur að mennt, og hafði gegnt
fjöldamörgum trúnaðarstörfum
fyrir land sitt. Hann varð fjár-
málaráðherra Finnlands ári3
1944, þá aðeins 32 ára, og for-
sætisráðherra var hann í sex
mánuði árin 1953-54 eftir a<5
hafa gegnt embætti utanríkis-
ráðherra í eitt ár. Einnig hefur
hann starfað mikið á veguma
Sameinuðu þjóðanna, og var t.cL
sérstakur fulltrúi samtakanna í
Laos 1959-61. Hann var sendi-
herra Finnlands í Bretlandi
1955-57 Oig í Svíþjóð frá 1961 þar
til U Thant, framkvæmdastjóri
Sþ, fól honum að reyna að
miðla málum milli deiluaðila á
Kýpur hinn 25. marz s.L
Tuomioja lagði sig allan fram.
til að reyna að ná sáttum milli
Grikkja og Tyrkja, og var á
stöðugu ferðalagi milli þessara
landa, Kýpur og Sviss þar til
hann veiktist í síðasta mánuðú
Öryggisráð Sþ sat á fundi þegar
fregnin um lát Tuomioja barst
til New York, og risu fundar-
menn úr sætum til að votta hin-
um látna virðingu sína.
Vilhjálmur Þór I fulltrúa-
ráð Alþjáðahankans
Tókíó, 9. sept. (AP).
Á MORGUN fer fram kjör full-
trúaráða Alþjóðabankans og Al-
þjóða gjaldeyrissjóðsins. 15 full-
trúar eru kjörnir í hvort ráðið,
en aðild að þessum stofnunum
eiga nú 102 ríki. Auk kjörinna
stjórnarmanna skipa fimm ríki,
sem mest hafa lagt af mörkum
til ráðanna, hvert sinn fulltrúa
í ráðinu, en þau eru Bandaríkin,
Bretland, Frakkland, Indland og
V estur-Þýzkaland.
Sú regla hefur verið, að Norð-
urlöndin fimm skiptast á að eiga
fulltrúa í ráðum stofnananna, og
hafa þau nú tilnefnt Vilhjálm.
Þór, bankastjóra, til að taka við
sæti Norðurlandanna í fulltrúa-
ráði Alþjóðabankans í stað Alica
Burn frá Danmörku. í fulltrúa-
ráð Alþjóða gjaldeyrissjóðsins
kemur Sviinn Kurt Eklot í stað
Norðmannsins Karl Skhævelanid-
í
NA /5 hnútor
SV SOhnútot'
X Snjitomo 9 ÚÍl 7 S.kúrir £ Þruntur y/A Htgn- KiMmtkil ^ HiUtkH
H Hm$
4.....4.stL
= xvoiuo íra iiautgi 1 gær syn siouvum og niUnn 5—11 sug =
H ir háþrýstisvæði yfir Græn- um nónbilið.
1 landi, Grænlandshafi og ís- Djúpa lægðin undan strönd j|
s landi. Á þessum slóðum er því Norður-Noregs grynnist held =
= hægviðri og víðast léttskýjað. ur, og jafnframt lægir smám s
= Hérlendis var heiðskýrt eða saman á miðunum fyrir norð §!
S því sem næst á flestum veður austan land.
jr.iii/iiiiiitiiiiíiiiiiiiíiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiimmiiíimiiiiiiiiiiiiiiiimiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiió
— Fjöldi
Framh. af bls. 1.
Fylgið við Goldwater fer bæðt
eftir aldri kjósenda og eftir því
hvar þeir búa. Óánægðastir virð-
ast þeir vera, sem búa á austur-
ströndinni, því þar eru nærri
jafn margir repúblíkanar, sem
ætla að.kjósa Johnson (41%) og
hinir, sem fylgja Goldwater
j (44%). í Suðurrikjunum er það
hinsvegar aðeins einn af hverjum
átta, sem ætla að snúa baki við
flokknum.
Aldur virðist einnig hafa mikið
að segja, og því yngri sem kjós-
andinn er, þeim mun líklegra er
að hann yfirgefi flokkinn. Þannig
sýnir skoðanakönnunin að ef
kosningar færu fram í dag mundu
36% kjósenda innan þrítugs yfir-
gefa Repúblíkanaflokkinn og
kjósa Johnson, en hlutfallstala
þessi fer mjög lækkandi með
hækkandi aldri.
En jafnvel þótt Goldwater tak-
ist að sameina alla repúblíkana
um framboð sitt nægir það engan
veginn til sigurs, því hann verður
að höggva stórt skax-ð í fylkingu
demókrata ef hann ætlar sér að
flytja í Hvíta húsið.