Morgunblaðið - 15.10.1964, Síða 1
28 siður
Landhelgis
viðræður
Leifftogar hlutlausra ríkja undirrita tilkynninguna s«'in gefin vsr út aff lokinni ráffsítfnu rík'aina i Kairo á sunnuffag. Ra5-
clefnuna sóttu fulltruar 47 lan.U, flestir forsetar e'a forsætisfaðherrar þeirra Á myndinni eru, tal'iff frá vinstri: Kwams
Nkrumah, forseti Giiana, Josip Broz Tito, forseti Júgóslaviu, Gamal Abel Nasse-’, forseti Egyptaiands og Lal Bah.tdur Shas,-
»i, forsætisráðherra Indlands.
Bæklingurinn um handritin
er einhliða áróðursrit
— segir Poul Eregberg cand. jur
i kjallaragrein í „Jyllandsposten
Einkaskeyti til Mbl. frá
Kaupmannahöfn, 14. okt.
I D A G birtist í dagblaðinu
„Jyllandsposten“ kjallara-
grein eftir Poul Engberg,
cand. jur., forstöðumann lýð-
háskólans í Smoghöj við
Fredericia, — þar sem hann
hrekur með hörðum orðum
ýmsar staðhæfingar í bækl-
ingi þeim, sem „Handrita-
nefndin 1964“ hefur gefið út.
í grein hans segir meðal ann-
ars: „Bæklingur þessi ber hið
mikilúðlega nafn „Staðreyndir
um íslenzku handritin“. Um
langt skeið hefur verið rætt fram
og aftur um afhendingu handrit-
anna til íslands og vandamálin
eru í augum danskrar alþýðu
orðin þokukennd. Með þessum
bæklingi skyldu loks gefnar hlut
lausar og áreiðanlegar upplýsing-
ar af hálfu hinna hæfustu vís-
indamanna. En því miður hefur
reyndin orðið önnur. Bæklingur-
inn er ekki vísindaleg, málefna-
leg greinargerð. Hann er áróð-
ursrit, er einkennist af hlut-
drægni og útúrsnúningum. Hér á
eftir mun ég með nokkrum dæm-
um sýna fram á útúrsnúninga þá,
eem þar koma fram — og drepa
á ýmislegt, sem þar er þagað um.
Og ég leyfi mér að taka fram, að
röksemdir mínar byggjast meðal
snnars á upplýsingum frá hinum
ágætustu vísindamönnum, er
hafa forystu í handritarannsókn-
um á íslandi. Slikt verður ekki
eagt um hina ellefu útgefendur
bæklingsins — jafnvel ekki pró-
fessor Bröndum-Nielsen. Þetta er
rétt að taka fram, áður en lengra
er haldið, því það er engin
ástæða til þess fyrir stjórnmála-
menn okkar eða dönsku þjóðina
»ð lyppast niður gagnvart þess-
um bæklingi.
Síðan hrekur Poul Engberg
nokkrar upplýsingar, sem fram
koma i bæklingnum, lið fyrir lið
— og segir að lokum: „Verst er
þó, að hvergi er minnzt á það í
bæklingnum „Staðreyndir um ís-
lenzku handritin", að fyrir tveim
árum var komið á laggirnar hand
ritastofnun í Reykjavík. Megin-
tilgangur þeirrar stofnunar á að
vera að vinna að vísindalegum
útgáfum íslenzkra handrita. For-
stöðumaður stofnunarinnar er
hinn kunni vísindamaður og
fræðimaður í íslenzkum miðalda-
bókmenntum, Einar Ólafur
Sveinsson, prófessor — og tvær
stöður aðstoðarmanna hans eru
skipaðar fræðimönnum, sem um
margra ára skeið hafa unnið við
handritasafnið í Kaupmanna-
höfn. Ennfremur hefur . verið
komið á fót þrem styrkþegastöð-
um fyrir unga kandidata. Stofn-
unin hefur sem sagt þegar meira
liði fræðimanna á að skipa en
Arna Magnússonar-stofnunin í
Kaupmannahöfn. Á ári hverju
er stofnuninni veitt fjárupphæð
af ríkisfé, sem nemur 150.000
dönskum krónum, sem eingöngu
er ætluð til útgáfustarfsemi.
Undirbúningur er hafinn að
byggingu húsakynna fyrir stofn-
unina á landareign háskólans. í
þessari stofnun er ætlunin að
verði lestrarsalur með sætum og
vinnuaðstöðu fyrir 20 manns en
þó sé þannig frá gengið að auð-
veldlega megi starfa þar 40
manns. Sérstök herbergi verða
innréttuð fyrir erlenda vísinda-
menn og einnig er gert ráð fyrir
sérstökum herbergjum fyrir þjóð
hátta og örnefnasafn. Sem stend
ur veitir íslenzka ríkið 10—12
styrki á ári hverju erlendum
stúdentum er stunda nám í ís-
lenzku við háskólann og gert er
ráð fyrir, að þar að auki verði er
lendir fræðimenn styrktir sér-
staklega. Með því að þegja um
þessar staðreyndir gefur bækl-
ingurinn ranga mynd af því, sem
íslendingar hafa gert og hafa
möguleika til að gera varðandi
Framhald á bls. 12
Noregs og Kanada
Ottawa, 14. okt. NTB—AP.
• Viffræður eru hafnar í Ottawa
milli stjórnarfulltrúa Kanada og
Noregs um tólf mílna fiskveiði-
takmörkin við Kanada. Munu viff
ræffurnar fara fram fyrir lukt-
um dyrum og standa yfir viku-
tíma.
Viðræður þessar eru liður í
samkomulagsviðræðum, sem
stjórn Kanada hyggst halda með
fulltrúum þeirra landa, er teljast
hafa söguleg réttindi til veiða
undan strönd landsins. Er tahð
líklegt, að lönd þessi fái leyfi
til áframhaldandi veiða, svo
fremi þau fallist á að viður-
kenna endanlega tólf míina
mörkin.
KOSMOS 48
Moskva 14. okt. NTB —
• Rússar skutu í dag á loft
nýjum gerfihnetti af gerðinni
Kosmos — nr. 48; aff því er
Tass-fréttastofan hermdi í
dag.
Friðarverðlaun NÓBELS
veitf Martin Luther King
Hann er yngsti maður sem þau hlýtur
Osló, 14. okt. — (NTB-AP) —
NORSKA stórþingið ákvað í
dag að veita blökkumanna-
leiðtoganum, séra Martin
Luther King, friðarverðlaun
Nóbels fyrir árið 1964. Er
King tólfti Bandaríkjamað-
friðarverðlaun
sem
Douglas-Home.
Wilson
Grimmond
hlýtur — og þriðji blökku-
maðurinn. Hinir blökkumenn
irnir tveir voru Bandaríkja-
maðurinn dr. Ralph Bunch,
einn af aðstoðar-fram-
kvæmdastjórum Sameinuðu
þjóðanna, sem verðlaunin
hlaut árið 1950 — og Albert
Luthuli, forvígismaður frels-
ishreyfingar blökkumanna í
Suður-Afríku, er hlaut verð-
launin árið 1960 — en hann
hefur um árabil verið í eins
konar stofufangelsi að skipan
stjórnar Suður-Afríku.
Framh. á bls. 10
UliimilllltlimilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllM
Kosið í Bretlandi í dag
Hugsanlegt að vísbendíng fáist
um úrslit um miðnætti í kvöld
London, 14. okt. AP-NTB
í KVÖLD lauk harðri
kosningabaráttu í Bret-
landi — og á morgun,
fimmtudag, ganga um 28
milljónir brezkra kjósenda
að kjörborðinu og velja 630
þingmenn neðri málstof-
unnar. Má búast við vís-
bendingum um úrslitin
þegar um miðnætti annað
kvöld, því að kjörstöðum
verður lokað kl. 8 GMT.
Forystumenn beggja stóru
flokkanna, íhaldsflokksins
og Verkamannaflokksins
lýstu í dag sannfæringu
sinni um sigur — og af
hálfu frjálslyndra var ekki
efazt um, að flokkurinn
muni vinna verulega á.
Háværar raddir hafa veriff
uppi síðustu tvo daga um, að
sigurmöguleikar Ihaldsflokks
ins hafi aukizt verulega viff
verkfall járnbrautarstarfs-
manna. Var mikill urgur kom
inn í menn — og uggur um,
aff þeir kæmust ekki á kjör-
staff. Hlutabréf snarhækkuðu
á kauphöllinni í London
vegna þessa — en~ svo leystist
verkfalliff skyndilega í kvöld
— og er taliff hugsanlegt, aff
þaff verffi til aff draga aftur
úr möguleikum íhaldsflokks-
ins.
Síffustu skoffanakannanir
greina verulega á um hvor
hlýóta muni sigur. Samkvæmt
einni skoðanakönnun á Verka
mannaflokkurinn að sigra —
fá 6% atkvæffa fram yfir
íhaldsflokkinn. En samkvæmt
Framh. á bls. 10
iUiimmmiiiiiiiiiimimmiiiiiimimiiimiiiiiiimmiiimimmmiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiirimiiiiinmiimmiiimiiimiiiiiiiiiiimiiimiimiiimmiiiiiiiiiiimmiiiiiimiiiiiiiimmmiiiiimiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiui