Morgunblaðið - 15.10.1964, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 15.10.1964, Blaðsíða 2
MORGU NSLAÐIB Fimmtudagur 15. okt. 1964 Umfangsmikil leit geri að Sæfelli Ekkert hefur fundizt af bátnum HÆTT hefur nú veriff skipulegri 3eit að Sæfellinu frá Flateyri, sem saknað hefur veriff síðan aðfaranótt sunnudags, en gerð verður tilraun til að leita vestan tii oig setja menn á land af sjó aniili Straumness og Hornvíkur. <Og eins verður haidið áfram að svipast um eftir bátnum. Hefur farið fram mjög umfangsmikil ieit bæði með sjó og úr lofti, en án árangurs. Á bátnum eru þrir menn: Haraldur Olgeirsson, skip- stjóri, Ólafur Sturluson og Sævar Sigurjónsson, allir frá Flateyri. Allir leitarmenn, sem leituðu Strandirnar, allt frá Ingólfsfirði að Hornvík, eru nú komnir aft- ur. í>að voru bændur, björgunar- sveitin á ísafirði og vitavörður- inn í Látravík, sem leitaði mjög mikið með heimilisfólki sínu milli Barðsvíkur og Hornvíkur, en það þótti líkjegur staður til að bátinn hefði rekið að landi. Úr lofti leituðu flugvélar Landhelgisgæzlunnar og Björns Pálssonar. Var flogið með Ströndum, allt sunnan frá botni Steingrímsfjarðar og norður fyrir og leitað þétt net út á sjó frá ströndinni og gisnara leitar- net náði langt á haf út (sjá meðfylgjandi kort). En ekkert hefur enn fundizt í þessari leit, Verður reynt að koma mönnum á land til að leita sunnan við Straumnes. tM 40- Landhelgisgæzlan hefur gert þetta kort yfir leitarsvæðið, sem farið var yfir í leitinni að Sæfelli á tveimur dögum. Leit að var eftir þéttriðnu neti á sjó út og síðan gisnara langt út á haf, og með ströndum fram frá Steingrímsfirði og norður fyrir. Vatnsæð í Grensás- vegi skemmdist og vatnið flœddi i hitaveitustokkana I GÆRMORGUN gerði grafa, sem var að vinna að hitaveitu- framkvæmdum, gat á aðalvatns- æð á Grensásvegi. Varð af þessu mikið vatnsflóð og vatnslaust varð á stóru svæði, en búið var að gera við æðina um hádegi. Þetta óhapp varð um kl. 8,30 um morguninn, er grafa frá Vél- tækni lenti á 35 sm. vatnsæð. Við þetta fylltust stokkar hita- veitunnar og vatnið flæddi gegn um dælustöðvarhús. Ekki er talið að verulegar skemmdir hafi hlotizt af þessu. í dælustöðvarhúsinu skemmdist ekkert, og megnið af einangrun- Framkvæmda- stjóri sakaður um fjárdrátt FRAMKVÆMDASTJÓRI verzl- unarfyrirtækis í Reykjavik, hef- ur verið sakaður um fjárdrátt. Fyrirtæki þetta er hlutafélag, þar sem þrír aðilar eru aðaleig- endur, og hafa tveir kært þann þriðja, sem jafnframt er fram- kvæmdastjóri, fyrir að hafa dreg ið sér tæpar 266 þús. kr. Þar sem framkvæmdastjórinn er búsettur.í umdæmi Gullbringu og Kjósarsýslu, hefur fulltrúa bæjarfógetans í Hafnarfirði ver- ið falið málið til rannsóknar, og hefur sú rannsókn staðið yfir um nokkurn tíma. Mbl. fékk þær upplýsingar hjá Gunnari Sæm- undssyni fulltrúa bæjarfógeta í gær, að málið væri nú í bók- haldsrannsókn. „Vilhjálmur Stefánsson kemur 20. okt. HIN NÝJA flugvél Loftleiða, Vilhjálmur Stefánsson, er vænt- anleg hingað til lands þriðju- dagsmorguninn 20. þ.m. Héðan íer flugvélin áfram til Luxem- borgar o.g verður hún fullsetin farþegum frá New York. Flugstjóri í þessari fyrstu ís- landsför Vilhjálms Stefánssonar, annarrar af hinum tveim RR-400 fmgvélum Loftleiðæ verður Kristinn Ólse1? Ók clauöatirukk- irm á lögrejlubíl DRUKKINN ökumaður ók á lög reglubíl í fyrrinótt eftir að hafa óhlýðnast ítrekuðum stöðvunar- merkjum. Þetta gerðist um 2 leytið á Skúlagötu. Hófst eltinga lcikurinn við gatnamót Ingólfs- strætis, er lögreglumenn veittu athygli bíl sem ekið var af ör- yggisleysi. Gáfu þeir hvað eftir annað merki um stöðvun, sem ekki var sinnt Þegar komið var inn að Skúla torgi, voru þar fleiri bílar og álitu lögreglumenn að nú yrði að stöðva akstur þessa óörugga bílstjóra, óku fram með bílnúm og gáfu stöðvunarmerki og loks fram fyrir hann og stönzuðu. En bílstjórinn hélt ótrauður áfra'm þar til hann lenti aftan á lög- regiubílnum. Reyndist ökumað- ur svo drukkinn að hann vissi lítið hvað hann gerði. Hafði bíll hans skemmzt mikið, en lögreglu bíllinn minna. f gærmorgun var komið að fleiri skemmdum bílum eftir ökuníðing. Stóðu þrír skemmdir bílar á Laugarásvegi á móts við Sundlaugaveg. Hafði einum ver- ið ekið á hina tvo seinni hluta nætur. Var annar ejnkum mikið skemmdur og bíllinn sem árekstrinum olli mjög mikið klesstur. Lögreglan leitaði uppi eiganda bílsins. Saittsxli til heiðuts Muriu Muuck í TILEFNI af 75 ára afmæli Maríu Maack hafa vinir hennar ákveðið að efna til samsætis miðvikudaginn 21. okótber í Sjálfstæðishúsinu. Þeir, eem vilja taka þátt í samsætinu geta látið skrá sig á lista, sem liggur frammi í Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar við Austurstræti. Dr. Poul Didrik- sen látinn DR. POUL Didriksen, prófessor við Hafnarháskóla, er nýlega lát- inn. Hans var formaður dönsku málnefndarinnar og talinn einn fremsti málfræðingur Norður- landa. Didriksen var fæddur 1905, nam málvísindi við háskólann í Höfn og varði doktorsritgerð sína þar 1941. Hahn varð síðan prófess or við Hafnarháskóla 1949. Hann var um tíma ritstjóri „Ordbog over det danske sprog“ og hefur gefið út forn dönsk handritabrot og einnig danska málfræði. Didriksen hafði góða sam- vinnu við íslenzka málfræðinga og átti mikinn þátt í því að þeir tóku þátt í norrænu málnefndar starú. inni í hitaveitustokkunum skemmdist ekki. Þó er hluti af henni steinullareinangrun sem blotnar, en búizt er við að hægt verði að þurrka hana með blæstri. • • Olkassar undir ræsum UNDIR 3—4 ræsum í þjóðvegin- um frá Akrafjalli inn að Mið- felli hefur fundizt óvenjulegur fengur, 15—17 kassar af íslenzk- um bjór. Eru rhenn ráðþrota með skýringar á þessu fyrir- brigði. En ekki er enn vitað til að slíks íengs sé saknað neins staðar. Hættuleg brú í ÞRIÐJA skiptið í sumar hefur bíll farið út af brúnni á Urriðaá á Mýrum, þar sem er um 4 m. fall niður. Tveir menn voru í bílnum, sem lenti út af brúnni á mánudagskvöld, báðir undir áhrifum áfengis. Mennirnir eru nokkuð meidd- ir, en ekki illa slasaðir. Þeir kom ust heim á næsta bæ og var hringt til lögreglunnar í Borgar- nesi. Þótti þeim sem náðu bílnum upp mikil mildi að þarna skyldi ekki hafa orðið stórslys. í sumar slasaðist fólk þarna svo að flytja varð það á sjúkra- hús á Akranesi og síðan til Reykjavíkur. Á brúnni er lágt handrið, sem bílarnir hafa ekiiS yfir. Brúin er mjög mjó og auk þess við hana beygja, sem ekki er nægilega vel merkt. Svipað slys í Norðurárdal. í fyrri viku hlekktist bíl á við brú frammi í Norðurárdal. Þac er svipuð brú þeirri sem hér er lýst að ofan. Lenti hjólið á hand- riðinu með þeim afleiðingum að bílnum hvolfdi á brúnni og skemmdist hann mikið. 1 /' NA /5 hnútar S / Sí/ SOhnútsf X Snjókomg 9 Q*» V Shúrir Z Þrumtir W/&i KuUoM HifsskH H Hm» É i r" ' /ö/o-, X Á NORÐAN og austanverðu landinu var í gær eins fallegt haustveður og frekast getur orðið, skafheiðríkt og loftið hreint og tært. Hitinn var þar 4-7 stig. Sunnan lands og vestan var hitinn 7-9 stig, en víðast skýjað. Lægðin, sem sést á kortinu austur af Grænlandsodda fór dýpkandi síðdegis og færðist nær landinu. Leit því út fyrir, landsynningsrigningu suð- vestan lands í dag. Veðurhorfur í gærkvöldi: Suð vesturland til Vestfjarða og miðin: Vaxandi SA átt og all hvasst á miðunum, dálítil rigning. Norðurland og mið- in: S-gola og léttskýjað; SA kaldi og dálítil rigning vest- antil í dag. Norðausturland: hægviðri óg léttskýjað. NA- xnið og Austfjarðamið: hæg- viðri og skýjað. Austfirðir: NA-gola, skýjað. Suðaustur- land og miðin: NA gola, skýj ar. — Veðurhorfur á föstu- dag: Suðaustlæg átt og frem- ur hlýtt, víðast þurrt fyrir norðan, en dálítil úrkoma sunnan lands og vestan. f

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.