Morgunblaðið - 15.10.1964, Page 6
6
MORCU NBLADIÐ
Fimmtudagur 15. okt. 1964
ÚTVARP REYKJAVÍK
SUNNUD AGSK V ÖLD, 4. okt.,
talaði Guðmundur Jósafatsson
frá Brandsstöðum um helztu
vötn á Auðkúluheiði. Sama
kvöld hófst nýr þáttur, sem nefn-
ist: „Með æskufjöri", og mun svo
fyrirhugað, að hann verði til
frambúðar. Andrés Indriðason og
Bagnheiður Heiðreksdóttir eru
nöfnin á stjórnendum þessa þátt-
ar. Mér finnst, að það ætti að
kynna dálítið ungt fólk, sem
byrjar með framhaldsþætti í út-
varpinu. Rekja hið stutta lífs-
hlaup þess, en þó einkum geta
foreldra þess, og jafnvel rekja
ættina svolítið að fornum sið.
Ég held að fyrirsagnir sumra
útvarpsþáttanna séu helzti „fíg-
úratívar". „Með æskufjöri", „Við
fjallavötnin fagurblá", „Sitt sýn-
ist hverjum", „Létt músík á síð-
kvöldi“ o. s. frv. Sumum finnst
þetta kannske hótfyndni, og auð-
vitað veldur þetta ekki stórum
spjöllum. En betur kann ég við
„abstrakt" fyrirsagnir, eins og t.
d. „Pósthólf 120“ eða „Á tíundu
stund“. Þær láta minna yfir sér
og eru listrænni.
Páll Kolka, læknir, talaði um
dag og veg á mánudagskvöld.
Kom hann allvíða við, ræddi um
kosningar í nálægum og fjarlæg-
um löndum, þar á meðal væntan-
legar forsetakosningar í Banda-
ríkjunum í nóvember, en hann
sagði, að hitinn í kosningabarátt-
unni þar minnti helzt á prestkosn
ingar á íslandi. Hann minntist
aldarafmælis þeirrar uppgötvun-
ar franska vís-
indamánnsins
Pasteurs, að eng
in lífvera kvikn-
i; ar af sjálfu sér,
: en sú uppgötvun
|: hafði afskaplega
: mikið gildi fyrir
læknavísindin.
!,'*»>• Páll véfengdi
Páll þær staðhæfing-
Kolka ar nútíma vís'
indamanna, að
lífið og alheimurinn hafi orðið til
af einskærri hendingu og án til-
gangs. Þóttu honum ýmis nátt-
úru- og lífsfyrirbæri hneigjast að
svo ákveðnum lögmálum, að
ekki benti til tilviljunarkennds
uppruna.
— Hvernig gat náttúrulögmál
orðið til fyrir sjálfskviknun?
spurði Páll.
Hann taldi að heimspekilega
hugsandi þorskur mundi vænt-
anlega halda því fram, að líf gæti
ekki þrifist á þurru landi. Á svip-
aðan hátt hætti mörgum vísinda-
mönnum til að afneita tilvist
þess, sem lægi utan þekkingar-
sviðs þeirra og skilnings.
Páll vitnaði í þessa ljóðlínu
Einars Benediktssonar:
„Aldrei sá neinn þann, sem
augað gaf“.
Lífi og alheimi væri stjórnað
af einhverjum duldum krafti,
sem menn hefðu hingað til nefnt
Guð og væri ástæðulaust að
nefna hann öðru nafni. Páll kom
miklu víðar við, og væri ástæða
til að láta erindi hans í heild á
þrykk út ganga. Var þetta bezta
dags og vegs rabb um nokkurra
mánaða skeið.
Síðar þetta kvöld opnaði Gísli
Ástþórsson bréf frá hlustendum.
Ung stúlka gerði þar harða gagn-
árás á þá, sem sí og æ séu að
fárast yfir lifnaðarháttum unga
fólksins. Vill hún ekki viður-
kenna, að heimur fari versnandi.
Haldi hún því sama fram eftir
50 ár, er þetta með stabilli kven-
mönnum.
Frúrnar í borginni halda áfram
að opna hjörtu sín fyrir Gísla, en
eru bara svo órómantiskar að
ræða helzt ekki annað en pen-
ingamál. Sumar senda honum
meira að segja búreikningana
sína. Hér er sýnishom af mán-
aðarlegum gjaldaliðum hjóna
með tvö börn, samkvæmt einu
bréfanna:
Kr.
Fæði og hreinlætisvörur 4000,00
Hiti og rafmagn 650,00
Sími með öðrum 100,00
Skattar 4500,00
Skemmtanir 1400,00
Skuldagreiðslur 2300,00
Föt 1300,00
Samtals kr. 14,250,00
Konan vinnur ekkert úti og
maðurinn vinnur enga aukavinnu
á kvöldin. Eigi að síður leggja
þau mánaðarlega nokkuð í
banka, svo að maðurinn hlýtur
að hafa skrambi góð laun. Mér
skilst, að launaupphæðin sé aðal-
atriðið hjá mörgum, síður hitt,
hvað mikið fæst fyrir þau. Enn-
fremur munu menn sætta sig ó-
trúlega vel við léleg lífskjör, á
meðan þeir dragast ekki teljandi
aftur úr öðrum. Sem betur fer
munu nú flestir fullvinnandi
menn hérlendis búa við það góð
lífskjör, að tekjusveiflur til og
frá eru þeim fremur metnaðar-
mál en spurning um það, hvort
þeim tekst að framfleyta sér og
sínum. Þetta má kallast heil-
brigður metnaður, og innan skyn
samlegs aðhalds flýtir hann eðli-
legri framvindu í efnahagsmál-
um þjóðarinnar. Og nákvæmir
búreikningar ættu að geta stuðl-
að að réttu mati á því, hvað séu
hæfilegar tekjur. En auðvitað
eru 14000,00—15000,00 kr. á mán-
uði engar nauðþurftatekjur,
enda komst ein frúin hans Gísla
af með 9000,000 og hafði þó 5
manna fjölskyldu. — Við bíðum
eftir fleiri bréfum.
^ Á þriðjudagskvöld flutti Bryn-
dís Víglundsdóttir fyrra erindi af
tveimur um Anne Sullivan Macy,
kennslukonu Helenar Keller, en
hún hefur horfið mjög í skugga
hins fræga nemanda síns. Þetta
kvöld hófst einnig nýtt sakamála
leikrit í 8 þáttum. Nefnist það:
„Ambrose í París“, eftir Philip
Levene. Fyrsti þáttur gefur góð-
ar vonir, þegar búið er að myrða
eina manneskju.
Á miðvikudags- og föstudags-
kvöld ræddi Sigurður Bjarnason,
ritstjóri frá Vigur, um kosning-
arnar í Bretlandi, en þeim verð-
ur væntanlega um það bil lokið,
er þetta birtist. Þetta voru yfir-
gripsmikil og fróðleg erindi,
raunar lauslegt ágrip af stjórn-
málasögu Breta á þessari öld.
Ekki lét Sigurður neinar ákveðn-
ar spár uppi um úrslitin. Fyrir
nokkrum mánuðum var Verka-
mannaflokkurinn talinn hafa
góðar sigurhorfur. Síðar voru
horfur íhaldsmanna taldar hafa
vænkazt nokkuð, en Verka-
mannaflokkurinn er nú aftur tal-
inn í sókn. í síðustu þingkosning-
um í Bretlandi, 1959, hlaut í-
haldsflokkurinn 365 þingsæti
Verkamannaflokkurinn 258 og
Frjálslyndi flokkurinn 6.
Sigurður
Bjarnasou
Helztu leiðtog-
ar íhaldsflokks-
ins síðustu 30—
40 árin hafa ver
ið þeir Baldwin,
Chamberlain,
Churchill,
Eden, Macmill-
an og Douglas
Home, en Verka
mannaflokks ins
MacDonald,
Lansbury, Att-
lee, Gaitskell og
nú Harold Wilson. Enn minntist
Sigurður á ýmsar fornar siðvenj-
ur í sambandi við þinghald í
Bretlandi og fleira, sem hér yrði
of langt upp að telja.
Á sumarvökunni á miðviku-
dagskvöld flutti Egill Áskelsson
frásöguþátt frá Látraströnd. Þá
las Ragnheiður Heiðreksdóttir 5
kvæði, eftir Guðfinnu Jónsdótt-
ur, Jakobínu Johnson, Braga Sig-
urjónsson, Einar Braga og Ólöfu
frá Hlöðum.
Á fimmtudagskvöld annaðist
Einar Bragi þáttinn: „Raddir
skálda", með aðstoð góðra upp-
lesara. Kynntur var Hannes
Sigfússon, skáld, m.a. lesið við-
tal, sem Einar Bragi átti við
skáldið fyrir nokkrum árum. Er
þar rakinn allýtarlega æviferill
Hannesar fram að þeim tíma.
Hannes er fæddur 1922. Fékk
hann kornungur áhuga á skáld-
skap og hugðist í fyrstu gefa
sig við skáldsagnagerð. Aðeins
16 ára að aldri komst hann með
smásögu í Ríkisútvarpið, og var
það einsdæmi með svo ungan
mann. Óx honum nú ásmegin.
Kynntist hann mörgum skáldum,
svo sem Steini Steinarr, Jóni úr
Vör, Magnúsi Ásgeirssyni, Ólafi
Jóhann Sigurðssyni og fleirum.
Svo fór, að
Hannes fékk
meiri áhuga á
ljóðagerð en
skáldsagnaritun.
Fyrsta bók hans
var ljóðabók:
„Dymbilvaka",
kom út 1949. —
Önnur ljóðabók
hans var „Imbru
Hannes
Sigfússon
„strandið" (1955) og loks ljóða
★ HÆGRI — VINSTRI
EKKI eru allar jafnánægð-
ir með bollaleggingar fróðra
manna um að heppilegt gæti
reynzt að taka upp hægri
handar akstur hér á landi. Hér
kemur kafii úr bréfi um það
efni:
„Það eru undarlegir menn
kettirnir, sagði karlinn.
Sama má segja um þá, sem
ætla að taka upp hægri handar
akstur á íslandi.
Það virðist eiga að breyta um
akstursreglur fyrir þau fáu
hundruð útlendinga, sem hing-
að koma, og þau fáu hundruð
íslendinga, sem fara utan með
bíla sína. Er nokkurt vit í þessu,
að eyða milljónum í að breyta
öllum strætisvögnum og lang-
ferðabílum, aðeins að því er
virðist til að nokkrir bifreiða-
eigendur, sem fara utan, þurfi
ekki að leggja það á sig, þegar
þeir koma í annað land, að
læra upp á nýtt.
Ég hef ekið um götur Reykja-
víkur á reiðhjóli, skellinöðru,
bifhjóli og bifreið. Það er sama,
hvert farartækið er, ávallt þeg-
ar ég hef heyrt flaut eða véla-
hljóð fyrir aftan mig, hefur
það sama skeð. Ég HEF
ÓSJÁLFRÁTT FLUTT MIG
ÚT Á VINSTRI BRÚN VEG-
ARINS.
Hvað mun ske, ef breytt
verður um akstursreglur?
Munu ekki flestir gera sama og
ég, færa sig á vinstri akbrún,
eins og þeir margir hafa gert
í áratugi. Og þá koma slysin,
þegar þeir, sem eru nýbúnir að
læra akstur, mæta þeim, sem
ekið hafa í mörg ár. Hver vill
taka ábyrgð á þeim slysum?
Vilja nú ekki þeir, sem telja,
að við eigum að leggja í þá
miklu áhættu, sem ég tel, að
breyting hafi í för með sér
ásamt miklum kostnaði, segja
okkur hinum, hvers vegna
breyting sé nauðsynleg. Meðan
við fáum ekki ákveðin rök,
munum við ekki skilja nauð-
syn þess að breyta um aksturs-
reglur.
Vinstri maður".
★ STÖÐUMÆLAR
Sami bréfritari ræðir svo
um lögregluna og stöðumæl-
anda:
Væri ekki gott að lögreglan
hætti að hafa daglegt eftirlit
með stöðumælunum og það
starf væri falið öðrum, til dæm-
is mönnum, sem af ýmsum or-
sökum eiga óhægt með að
stunda algenga vinnu, því það
virðist ekki þurfa ungan mann
og hraustan til að ganga um
bæinn og skrifa upp þá bíla,
sem standa við stöðumæli, þar
sem skífan sýnir rautt.
Það er oft talað um, að Lög-
reglan í Reykjavík sé of fá-
menn, og því mun nóg að starfa
fyrir þá menn sem nú eru upp-
teknir við að eltast við stöðu-
mælabrot.
* GULLFOSS
Maður nokkur hringdi
bókin „Sprek á eldinn" (1961).
Ljóðabækur Hannesar þykja sér-
kennilegar og hafa fengið mis-
jafna dóma. Flest kvæði hans
munu atomskotin, lítt unnum
hugsana-„massa“ flétt upp, les-
endum til úrvinnslu, og fer þá
oft eftir atvikum, hve margir eða
hvort nokkur yfirleitt nær þar
magafylli. Hvort þetta er sök
framleiðandans eða neytandans
mun umdeilt. Sjálfsagt er Hannes
enn á framfarabraut.
Þetta kvöld hófst ný kvöld-
saga, sem nefnist: „Pabbi,
mamma og við“ og er eftir Jo-
han Borgen. Margrét R. Bjarna-
son, blaðamaður, þýðir hana og
les. Byrjunin lofar góðu.
Grétar Fells, rithöfundur,
flutti merkilegt erindi á föstu-
dagskvöld um merkilega trúar-
stefnu í Austurlöndum, sem nefn
ist Sufismi. Eru
þetta eins konar
dulhyggju trúar
brögð, upphaf-
lega sprottin úr
Múhammeðstrú,
en hafa orðið
fyrir áhrifum
frá ýmsum trú-
arbrögðum, m.a.
kristinni trú.
Sufar iðka m.
a. svonefnt sjálfs
hvarf, sem er í því fólgið, að
sjálf mannsins hverfur inn í al-
veruna og kemst þar í unaðslegt
og ólýsanlegt samband við guð.
Sufar telja skáldið Omar Khayy-
ám (d. 1123) einn af sínum
mönnum.
Síðdegis á laugardag ræddi
Jónas Jónasson við Hafstein
Björnsson, miðil, en hann mun
hafa einna bezt sambönd við
framliðna menn af öllum íslend-
ingum.
Um kvöldið var flutt leikritið
„Baskervillehundurinn" gert eftir
hinni frægu leynilögreglusögu
Sir Arthurs Conan Doyle. Leik-
stjóri og þýðandi var Flosi Ól-
afsson, Shelock Holmes var leik-
inn af Ævari Kvaran, en Wat-
son læknir af Þorsteini Ö. Steph-
ensen. Baldvin Halldórsson lék
Framhald á bls. 19.
Grétar
Fells
hingað og sagðist mæla fyrir
munn margra væntanlegra far-
þega Eimskipafélagsins i vetur,
er hann lýsti vonbrigðum með
það að Gullfoss yrði ekki lát-
inn koma við í Harwborg i
vetrarferðunum. Þessi maður
sagðist fara ásamt stórum hópi
kunningja sinna með skipinu
í næstu ferð og hafði ferðin
m.a. verið ákveðin með tilliti
til þess, að skipið kæmi við i
Hamborg. Þegar svo var búið
að panta farseðlana kom í ljós,
að ekkert ákveðið fyrirheit var
gefið um viðkomu í þessari
gleðinnar borg. Fannst fólkinu
of seint að hætta við ferðina
— og það bíður í voninni um að
Gullfoss villist inn í Hamborg.
Viðkoma þar gefi slíkri ferð
aukið gildi.
Nú get ég glatt hina von-
sviknu ferðafélaga með því, að
Gullfoss mun koma við í Ham-
borg, a.m.k. í næstu ferð og
væntanlegá í allflestum ferð-
unum í vetur. Ég talaði við
Sigurlaug hjá Eimskip og sagði
hann, að ekki hefði verið hægt
að setja Hamborg inn á áætl-
unina þar eð óvíst hefði verið.
hvort hægt yrði að láta skipið
koma þar við að staðaldri.
Málið horfði hins vegar mjög
vænlega núna.