Morgunblaðið - 15.10.1964, Page 26
28
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 15. okt. 1964
NORSKI heimsmethafinn
komst ekki í úrslitakeppnina
Finnski þjóðsongurinn hljóm-
aði í staðinn
VFRÐI nokkur saga fræg frá
Tokíó-leikunum veröur það sorg
arsaga Norðmannanna frá spjót-
kastskeppninni. Fyrir þrem vik-
um setti Terje Petersen heims
met í spjótkasti með þeim ótrú-
lega árangri 91,72 m. í gær komst
hann ekki í úrslitakeppni spjót-
kastsins. Hann átti 13. lengsta
kast i undankeppninni „aðeins“
72,10 m. Tólf komust í úrslitin.
Pað skorti 21 sm. á að heimsmet-
hafinn kæmist í úrslitakeppnina.
Hann var fyrirfram talinn sigur
stranglegastur að vonum — allir
norskir hugir, allir norrænir hug
ir fylgdu honum. Hvílikt reiðar-
slag fyrir þennan unga Norð
mann. Landi hans Willy Rassmus
sen var líklegur til að verða einn
af 6 í keppninni — eða jafnvel
að standa við hlið hans á pallin-
um. Já, Norðmenn áttu stórar
vonir. En Rasmussen komst held
ur ekki í úrslit — hafnaði í 20.
sæti í undankeppninni.
Undankeppnin fór fram árdeg-
is. í>á rigndi í Tokíó, pollar voru
víða á veilinum og atrennubraut
spjótkastara laus og hál. Að að-
stæðurnar voru erfiðar kom fljótt
í ljós. Hver af öðrum áttu spjót-
kastaramir 27 talsins misheppn-
uð köst f>eir runnu til í atrennu
og spjótin flugu oft í ranga
stefnu. Eitt sinn munaði hárs-
breiddv að spjót lenti í japönsk-
um starfsmanni. Hann færði stól
koll sinn til og settist aftur salla
rólegur eins og hann vildi segja,
„Gjörið svo vel, næsti“.
En taugastríðið varð algert
meðal spjótkastaranna. 77 m.
kast þurfti til að komast 5 úrslit.
Því náði enginn í fyrstu umferð.
Terje Petersen kastaði aðeins
61,39. Norðmenn á vellinum
stóðu agndofa.
í 2. umferð mistókust köstin
hjá hverjum af öðrum. Og ekki
gekk Terje betur. Hann var svip
ur hjá sjón frá fyrri keppni.
Spjótið fór illa úr höndum hans,
steig og steig- og datt svo beint
niður, 66,78 m.
En í lok þessarar umferðar
kom það óvænta. Svisslendingur
inn Wartburg, sem eftir miklar
deilur heima í Sviss var valinn
til Tokióferðar, enda var sviss-
neska metið hans aðeins 75 m.,
náði nú öllum á óvart tilskildu
77 m. kasti, kastaði rösklega 79
metra. Hann varð eini spjótkast-
arinn af 27 í keppninni sem náði
tilskildum 77 m. Reglur segja
hins vegar svo að minnst 12
menn skuli vera í úrslitum og
skuli leita niður fyrir lágmark,
ef þröf krefur til að fá þá 12.
Hófst nú mikil taugaspenna í sið
ustu tilraun forkeppninnar. —
Henni lyktaði með þvi að heims
methafinn var 13. í röðinni —
21 sm. frá úrslitahópnum.
Úrsbtakeppnin var næsta svip
laus eftir þetta óvænta atvik. Ár-
angurinn slakur miðað við það
sem við var búizt. En hinn 23 ára
gamli Finni bjar^aði norrænum
heiðri. Enn einu sinni er spjót-
kastið — þessi víkingagrein —
norræn grein á OL, (þó Norð-
mennirnir tveir féllu svo óvænt
úr leik.
Terje Petersen
Hlýtur að vera
taugalömun
— sagði hinn vonsvikni
heimsmeistari
— Ég skil ekki enn hvað
skeði, sagði hinn vonsvikni
Norðmaður Terje Petersen
við norskan fréttamenn nokkr
um stundum eftir að honum
mistókst að komast í aðal-
keppni spjótkastsins.
— Ég er í mjög góðri þjálf-
un, hvort sem fólk trúir því
eða ekki, ekki lakari æfingu
en þegar ég setti heimsmetið.
Þetta hlýtur að stafa af ein-
hverskonar taugalömun. Ég
get ekki fundið aðra skýringu
á þessu.
— Ég hef hlotið gagnrýni,
hélt hann áfram, fyrir að
vera kærulaus og fara ekki úr
æfingagallanum. En að ég
var í honum hefur engin
áhrif á atvikið. Venjulega
kasta ég í æfingagalla. Nú var
ég í þunnum nælongalla sem
vegur í raun og veru ekkert.
Það skeður stundum að ég er
í tveimur eða þremur æfinga-
göllum í keppni án þess að
það hindri mig — heldur
þvert á móti heldur mér heit-
um.
— Nei, þetta var reiðarslag,
segir heimsmethafinn og var
eins rólegur og hann hefur
hlotið frægð fyrir að vera.
Úrslit urðu:
Oiympíumeistari
Nevala, Finnlandi 82,66
2. Kulscar, Ungverjalandi 82,32
3. J. Lusis, Sovétríkin 80,57
4. J. Sidlo, Pólland 80,17
5. R. Wartburg, Sviss 78,72
6. J. Kinnunen, Finnlandi 76,79
Sennilega munu Svisslending-
ar fagna því nú að Wartburg
var sendur til Tokíó. Hann færir
Sviss 2 stig í stigakeppninni.
Mary Rand stekkur
Komst ekki í úrslit í Róm
— setti heimsmet í Tokíó
Bætti OL metið 4 sinnum í keppninni
HÚN hefndi sín rækilega fyrir
ófarirnar í Róm, enska langstökks
stúlkan Mary Rand. Hún var í
Olympíuliði Breta 1960 og hafði
verðlaunavonir. En þá mistókst
henni svo hraparlega í undanrás-
um að hún komst ekki í úrslit.
I gær stóð hún á efsta þrepi verð
launapallsins í Tokíó sem fyrsti
sigurvegari í frjálsum íþróttum
á þessum OL-leikum. Hún sagði
fyrir fram að dapur reynsla sín
frá Róm myndi hjálpa sér í
Útilokaður til
lífstíðar
SPÁNSKI hnefaleikakappinn
Valentin Loren sem á þriðju-
dag réðist á dómarann í
kappleik í Tokíó var í gær
dæmdur - í Tokíó. Dómurinn
var útilokun fyrir lífstíð
frá þátttöku í áhugamanna-
hnefaleikum.
Tokíó. Ja, svo sannarlega hefur
það orðið, því Mary Rand setti
nýtt heimsmet 6,76 m., bætti
hermsmet Tjelskova frá Rúss-
landi um 6 sm. og gamli heims-
methafinn varð að láta sér nægja
bronz.
★
Mary Rasd var í miklum viga
móð er hún kom til Tokíó en á
fyrstu dögum þar meiddist hún
á æfingu og grét hún mjög yfir
að allar vonir sínar væru nú
hrundar sem spilaborg. En
meiðslin voru ekki alvarleg og
menn geta ímyndað sér fögnuð
þessarar ensku stúlku. Áður en
hún náði heimsmetsstökkinu
hafði hún þrívegis bætt OL-met
ið. Hún var því sannur sigurveg
ari.
Úrslitin urðu:
OL-meistari
Mary Rand Bretlandi 6.76
2. Kirzenstein, Pólland 6.60
3. Tjelkova, Sovétríkin 6,42
4. I. Becker, Þýzkalandi 6,40
5. Iscopoleanu, Rúmeníu 6.35
6. Jorgova, Búlgaríu 6.24
í 9. sæti var Berthelsen, Noregi
með 6.19.
Þekktur brezkur ilþróttafrétta-
ritari sendi hraðskeyti heim þeg
ar eftir stökkið og sagði: „80 þús.
áhorfendur stóðu á öndinni af
spenningi. Það ríkti dauðakyrrð
á Olympíuleikvanginum".
Sannleikurinn var að sárafáir
auk mælingamanna og lítils hóps
Breta tóku eftir stökki Mary
Rand. Meðan hún stökk stóð
stríðið í 10 km. hlaupinu sem
hæst og allra augu mændu á þá
æðislegu baráttu sem þar fór
fram við illar aðstæður.
Körfuknatfleikur:
Bandaríkin cg Rússssr
keppa um gullið
f KÖRFUKNATTLEIKSKEPPN
INNI í Tokíó í gær urðu úrslit
þessi:
Mexico — Pólland 71—70
Leikurinn var æsispennandi
og síðustu 5 mín. munaði aldrei
meira en 3 stigum á liðunum.
Þetta var fyrsti sigur Mexico og
Kruminsh sem er 2.17.
ítalía — Kanada 66—54
Um aðra leiki hefur Mbl. ekk-
ert borizt, en hér kemur taflan
eins og staðan er í körfuknatt-
leiknum á miðvikudagskvöld.
A-riðill
fyrsta tap Póllands. U T Skor S
Sovétríkin 4 0 340—233 8 A-riðill U J T M 3
Japan — Ungverjaland 58—41 Póliand 2 1 268—239 7 Þýzkaland 1 1 0 5—1 3
Öruggur sigur í síðari hálfleik ftalía 3 1 283—259 7 Rúmenía 1 1 0 4—2 3
en barátta mikil í fyrri hálfleik Puerto Rico 2 2 265—266 6 Mexico 0 1 1 2—4 1
sem lauk 26—24 fyrir Japan. Japan 2 2 228—224 6 íran 0 1 1 3—5 1
Mexico 1 3 282—315 5
Júgóslavía — Perú 73—64 Ungverjal. 1 3 206—257 5 B-riðiIl
Kanada 0 4 204—281 4 Ungverjaland 1 0 0 6—0 2
Ástralía — S-Kórea 65—58 Júgóslavía 1 0 0 3—1 2
Úrslitin voru ráðin í fyrri B-riðill Marokko 0 0 2 1—9 0
hálfleik er Ástralíumenn náðu U T Skor S
31—19. í þeim síðari áttu Ástra- Bandaríkin 4 0 289—169 8 C-riðill
líumenn fullt í fangi með mjög Brasilía 3 1 271—241 7 Tékkóslóvakía 2 0 0 11—2 4
sigurviljuga Kóreumenn. Júgóslavía 3 1 295—273 7 Brasilía 1 1 0 5—1 3
Uruguay 2 2 277—286 6 Egyptar 0 1 1 2—6 1
Sovétríkin — Puerto Rico 82—63 Ástralía 2 2 261—272 6 S-Kórea 0 0 2 1—10 0
Rússar léku af öryggi miklu Peru 1 3 229—264 5
og voru aldrei í hættu. Þeir Finnland 1 3 240—283 5 Japan 1 0 0 3—2 2
byggðu leik sinn upp í kringum Kórea 0 4 259—342 4 Chana 0 1 0 1—1 1
Petrov sem er 2.10 á hæð og Argentína 0 1 1 3—4 1
Knattspyrn
an í Tokíó
í GÆR fóru fram 3 knattspyrnu-
leikir í riðlakeppninni í Tokíó.
Tékkar unnu Egypta með 5—1;
Brasilía vann S-Kóreu 4—0; og
Japan vann Argentínu 3—2.
Það var ranghermt í blaðinvt
í gær að 16 lið kepptu til úrslita.
Svo átti að vera en ítalir drógu
sig til baka áður en leikirnir
hófust vegna gruns um atvinnu-
menn í liði þeirra og N-Kóreu-
menn héldu heim daginn fyrir
leikana af stjórnmálalegum
ástæðum. Liðin eru því 14 og
skiptast í 4 riðla eru 3 lönd
í þeim (af áðurnefndum ástæð-
um) og 4 í hinum eins og upp-
haflega átti að vera. Staðan i
riðlunum er nú þessi: