Morgunblaðið - 18.11.1964, Qupperneq 3
* Miðvikuctegur 18. nóv. 1964
MORGUNBLADIÐ
3
Er nu þriðfa soluhæsta hifreiðin í Bandaríkfuncim
Ford Mustang fyrir framan Haskolabio. (Ljosm. 01. K. M.).
M A R G IR vegfarendur I
Reykjavík hafa rekið upp
stór augu að undanförnu þeg-
ar glæsileg, rauð bifreið, sem
kemur ókunnuglega fyrir sjón
ir, hefur runnið fram hjá
þeim. Stærðin bendir til þess
að bifreiðin sé bandarísk, en
margt i útliti hennar minnir á
evrópskar sportbifreiðir.
>eir, sem fylgjast með er-
lendum bílafréttum, vita aS
þarna er á ferðinni bandaríska
sportbifreiðin Ford Mustang.
Þessi bifreið kom fyrst á
markaðinn í Bandaríkjunum
um miðjan apríl sl., og er nú
þegar orðin þriðja söluhæsta
bifreiðin þar í landi, næst á
eftir Ford o.g Chevrolet. Svo
mikil hefur eftirspurnin verið
í Bandaríkjunum að erfitt hef
ur verið að fá bifreið til út-
flutnings. Upprunalega var
ráðgert að smíða 100 þúsund
Ford Mustang fyrsta árið, en
fljótlega var sú tala hækkuð
upp í 400 þúsund, og hafa
verksmiðjurnar samt varla
undan.
Það er Sveinn Egilsson hf.,
annað tveggja Ford-umboð-
anna hér, sem flytur bifreið-
ina inn, og verður hún til sýn-
is þar næstu daga. Á hún án
efa eftir að vekja álíka athygli
hér og í Bandarikjunum, þeg-
ar hún kom þar fyrst fram sl.
vor. Eitt af því, sem valdið
hefur vinsældum bifreiðarinn-
ar, er verðið, því bifreiðin er
í svipuðum verðflokki og
Comet-inn, sem smíðaður er
hjá Mercury-deild Ford verk-
smiðjanna, og þekktur er hér
á landi.
Auka-útbúnaður
Ford Mustang er tveggja
dyra og skráður fyrir fjóra
farlþega auk ökumanns. Að
framan eru tveir stólar, en
bekkur að aftan. Bifreiðin er
létt, aðeins um 1100 kg, og
þessvegna nýtist vélarorkan
miög vel. í bifreiðinni, sem
hingað er komin, er „stand-
ard“ vél, 6 strokka og 101 ha.
Unnt er að fá stærri vélar,
8 strokka, 164 og 271 ha., en
eftir að hafa reynt bifreiðina
verður ekki séð að þörf sé á
meiri orku. Bifreiðin er afar
viðbragðsfljót með minnstu
vélinni, og vinnslan prýðileg.
Stærri vélarnar eru varla til
annars en aksturs á kappakst-
ursbrautum, þar sem hver
hundraðshluti úr sekúndu
getur haft úrslitaáhrif.
Þeir, sem þess óska, geta
lagt í margvíslegan auka-
kostnað eins og sjálfskiptan
gírkassa, fjórskiptan gírkassa,
læst mismunadrif, vökvastýri,
„power“ hemla o. fí., en
„Standard“ bifreiðin ætti að
vera fullboðleg hverjum sem
er.
Iacocca
Ford Mustang er árangur
fjögurra ára starfs Lee Iac-
occa, forstjóra Ford-deildar
Ford Motor Co. í Detroit. Þeg-
ar hann tók við embætti sínu
í nóvember 1060, var það hans
fyrsta verk að skipa nefnd til
að undirbúa smíði Mustang og
rannsaka framtíðarhorfur
Ford deildarinnar í heild.
Nefnd þessi var kölluð „the
Fairlane Group“ og átti fund
með Ford verksmiðjanna um
að það sem vantaði væri ein-
mitt bifreið, sem hefði til að
bera kosti sportbíla, en kostaði
ekki meira 'en venjulegar fólks
bifreiðir.
Mikil leynd hvíldi yfir öll-
um framkvæmdum, og lítið
var vitað um bílinn fyrr en
hann var fyrst sýndur í apríl
sl. En strax og hann kom á
markaðinn var ljóst að Fair-
lane-nefndin hafði haft á réttu
að standa.
Aðeins ein Ford Mustang
bifreið er komin hingað til
lands, en fleiri eru á leiðinni
og þegar seldar.
Fairlane-nefndin á fundi. Lee Iacocca lengst til vinstri.
Ford Mustang kominn til landsins
DÖNSKU blöðin skýra frá leik
Ajax og Fram s.L sunnudag og
fara lofsamleigum orðum um
2 bátar með 1300
tuimur
AKRANESI, 17. nóv. — Þrettán
hundruð tunnur af síld bárust
hingað í dag af 2 bátum. Sólfari
var með 800 tunnur en Höfrung-
ur II. með 500.
Fjórði báturinn er að hefja
línuveiðar hér. Er það Höfrung-
ur L — Oddur.
stórskyttur Fram og getu fs-
landsmeistaranna. í B.T. er 3
dálka stór fyrirsögn „Mestrene
skudt i sænk af islands stor-
skytte“ og mest lof borið á Gunn-
laug Hjálmarsson. Blaðið segir
og að sænsku meistararnir Red-
bergslid megi vara sig á að mæta
of sigurvissir í leiknum við Fram
í Evrópubikarkeppninni 8. des.
n.k.
B.T. afsakar ósigurinn að
nokkru með þreytu Dananna
eftir 12 tíma ferðalag til íslands.
Berlingske Tidende getur
þeirrar afsökunar einnig. Biaðið
segir einnig að leikaðferð Fram
hafi kollvarpað allri mótspyrnu
Ajax. Fram hafi emgan vilja sýnt
til samleiks, heldur látið skotin
dúndra á danska markinu. Ajax
hafi haldið í við Fram þar til
stóð 4-4 en eftir það jókst for-
skot Fram unz úr varð stórsigur.
Ekkert samspil — en
stórskotahríð ó mark
í GÆR þykknaði upp vestan- hennar völdum. Annars var
lands, vegna smálægðar á ekki hlýindalegt, og talið, að
Grænlandshafi, og var búizt kólna mundi fljótlega aftur,
við nokkurri snjókomu af þótt úr frostinu drægi í bili.
ST\KSTEIWI>
Á að lækka
gifiingaraldur?
Séra Jakob Jónsson ritar grein
í Sunnudagsblað Alþýðubláðsins
um giftingaraldur. Þar segir m.a.:
„Svo sem kunnugt er var lág-
marksaldur hjúskapar hækkaður
fyrir tiltölulega stuttu síðan, eða
með sifjalögunum frá 1921. Áður
hafði hjúskaparaldur karla verið
18 ár en kvenna 16 ár. Nú er ald-
urinn 21 og 18, þó með þeim
takmörkun, að sé brúðurin yngri
en 21 árs, þarf samþykki for-
eldra, en sé brúðguminn yngri
en 21 árs þarf forsetaleyfi. Það
er auðskilið, að löggjafinn hefur
annað hvort viljað gera strang-
ari kröfur til heimilisforráða
heldur en eldri kynslóðir gerðu,
eða hann hefur álitið, að ungt
fólk kæmist síðar til þroska en
áður var talið. Sennilega hefur
fyrri ástæðan ráðið meiru.“
SkYnsamlegt að
taka upp gamla
aldurstakmarkið
Grein sinni lýkur sr. Jakob á
þessum orðum:
„Æskan er viðkvæmur tími
og viðsjárverður, en er lífið ekki
þannig á öllum aldursskeiðum,
ef rétt er að gáð? En það er í
rauninni íhugunarefni út af fyrir
sig, að á tiltölulega fáum árum
taka flestir þær ákvarðanir, sem
mestu varða fyrir ævina alia.
Velja sér námsefni og ævistarf,
marka sér stefnu í þjóðmálum
og trúmálum og kjósa sér maka.
Það er því þrátt fyrir allt nokk-
uð mikil blekking, þegar því er
haldið fram, að æskuárin séu
áhyggjulaus. Það eru þau nefni-
lega ekki. Vafamál, hvort skap-
arinn ætlast nokkurn tíma til
eins mikils af manni eins og ein-
mitt á þeim árum. Það er því
mikils um það vert, að börn og
unglingar séu aldir upp í þeirri
trú, að æskumaðurinn eigi hreint
og beint að vera fær um að taka
á sig skyldur og ábyrgð, en ekki
að vera eins og hálfgerðir óvitar
fram á þrítugs aldur. f samræmi
við þann hugsunarhátt tel ég
skynsamlegt, að gamla aldurs-
takmarkið sé tekið upp.“
Umræður
um aldurstakmark
Sr. Jakob Jónsson hefur þann-
ig látið ákveðið í ljós þá skoð-
un sína, að giftingaraldur eigi að
lækka. Væri gaman að því að
umræður spryttu um þetta mál,
en sr. Jakob hefur fært ýms rök
fyrir skoðun sinni. Hann segir
t. d.: - .
„Þegar litið er á þróunina eins
og hún hefur orðið á síðustu ára-
tugum, er eðlilegt, að sú spurn-
ing komi fram, hvort hækkun
aldurstakmarksins hafi ekki á
sínum tíma verið á misskilningi
byggð. Hvort ekki sé réttara að
lögleiða aftur gamla markið, 18
og 16 ár, og reyna þannig að
koma því aftur inn hjá ungu
fólki, að hjúskapurinn sé hin
eðlilega tegund sambúðar, og
þjóðfélagið leggi ekki stein í
götu þeirra, sem viija gifta sig
ungir. Því verður ekki á móii
mælt, að obbinn af ungu fólki
hefur nú tekið út meiri líkam-
legan þroska innan við tvítugt
heldur en eldri kynslóðin fyrir
svo sem hálfri öld. Það hefur
einnig meiri atvinnumöguleika
og fleiri tækifæri að sjá heimili
farborða.
Þetta eru skoðanir sr. Jakobs
Jónssonar en vafalaust eru marg-
ir þeirrar skoðunar, að halda eigi
núverandi aidurshámarki og ekki
að lækka giftingaraldur. Er líka
hægt að styðja þá skoðun mörg-
um rökum.