Morgunblaðið - 03.12.1964, Síða 3

Morgunblaðið - 03.12.1964, Síða 3
3 / / Fimmtudagur 3. des. 1964 ÍMORGU N BLAÐIÐ i Vii höfnina 1»AÐ var kalt niðri við höfn í gærmorgun í norðanstrekk- ingnum. Eyrarkarlarnir voru komnir í þykkar úipur, með lopavettlinga á höndum og drógu hettuna fram yfir höfuð. Norska skipið Andy lá við Togarabryggjuna (Faxagarð), og var verið a'ð skipa út í það brotajárni frá Sindra iif. Þetta mun vera einn stærsti brota- járnsfarmur, sem Sindri hefur sent úir landi, ef ekki sá stærsti, 11-1200 tonn. Járnið á að fara til Vestur-Þýzka- lands. Sindri hf. hóf að selja brota járn úr landi árið 1049. Þá var 1.000 tonna farmur semdur til Póllands, og er það eini farm- Uiiinn, sem seldur hefur verið austur fyrir jámtjald af brota járni. Síðan hefur Sindri hf. selt mikið af járni til útlanda. Fyrirtækið klippir járnið hér, pressar það og flokkar, svo a~ð þa’ð fer beint til verksmiðj- anna, sem bræða járnið að nýju, þegar út kemur. Hafa verksmiðjurnar, sem kaupa járnið, viðurkennt flokkun Sindra hf. en járnið er flokk- að í þrjá til fimm flokka. Á minni myndinni má sjá, hvar verið er að skipa síldar- tunnum á land upp úr ms. Bakkafoss, sem lá fyrir neðan gamla Eimskipa-pakkhúsið. Tunnumar munu ætlaðar und ir suðurlandssíldina. (Ljósm. Mbl. Sv. Þ.) — Peron Framhald af bls. 1 Af hálfu liðsforingja í her Argentínu var þess þá þegar krafizt að stjórnin lýsti yfir hernaðarástandi í landinu, ef Peron kæmi þangað. Var her og lögreglu gert viðvart og efldur vörður á öllum landa- mærum. — Innanríkis-, utan- ríkis- og landvarnaráðherrar landsins komu saman til fund- ar þegar er fyrstu fregnir bár- ust um ferðir Perons. Er haft eftir áreiðanlegum heimildum, að Argentínustjórn hafi þegar sent fulltrúa til Paraguay, Uruguay og Brazilíu með þau tilmæli, að Peron yrði ekki veitt landvistarleyfi, þótt hann beiddist þess. Flugvélin frá Iberia-flugfé- laginu spánska, sem lenti á Galeao-flugvelli í Rio De Janeiro, reyndist hafa um borð þann umdeilda mann, Peron. Var tilkynnt, er flug- vélin lenti, að henni yrði ekki leyft að halda áfram ferðinni til Uruguay, svo sem fyrir- hugað var, nema iþví aðeins ®ð Peron héti þvi að fara af henni og haída aftur til Madrid með annarri flugvél. Borizt hafa orð frá Madrid, að ekki sé svo víst, að honum verði leyft að koma þangað aftur. Hann hafi nú rofið þau skilyrði er sett höfðu verið fyrir dvalarleyfi hans. Peron hafði ætlað sér að komast til Montevideo í Uruguay og halda þaðan til Paraguay, þar sem hann hugðist dveljast um hríð og biða færis að komast til Arg- entínu. Flugvélinni, sem Peron kom með, var haldið I tvær klukkustundir á flugvellinum ©g varð að lokum að aflýsa ferð bennar áfram til Monte- video. Er Peron gekk út úr vélinni, var í fylgd með hon- um fulltrúi Brazilíustjórnar, Joao Lampreia Gracie, er eagði, að hann mundi ekki fá leyfi til að halda áfram för- inni, heldur yrði honum snú- ið aftur til Spánar. Fréttamenn sem þyrpzt höfðu tii flugvallarins, 'fengu ekki að tala við Peron. Sama var að segja um nokkra tugi peronista, sem komnir voru til að taka á móti leiðtogan- um. NTB- fréttastofan hefur eftir áreiðanlegum heimild- um, að Peron hafi átt langt símtal við forseta Brazilíu, Castelo Branco, og þá failizt á að fara aftur til Spánar. í fréttum frá Madrid segir að framlenging dvalarleyfis Per- ons á Spáni þarfnist ræki- legrar athugunar. Hann hafi haft leyfi yfirvaldanna til að fara úr landi, en ekki til að koma þangað aftur. Haft er eftir einkaritara Perons að brottför hans hafi komið mjög á óvart. „í gær- kvöldi starfaði ég með hon- um eins o.g venjulega", sagði einkaritarinn, „og þegar við kvöddumst kl. 9“, sagði hann, „sjáumst aftur á morgun“ — þetta kemur mér mjög á óvart“. Lögregluvörður er við hús Perons í Madrid, en þar dvelst nú kona hans, Isabel. — Páfinn Framhald af bls. 1 flóttamenn. Svaraði páfi því til, að hann gerði sér ljósa grein fyr- ir því, hvert vandamál samskipti Araba og fsraelsmanna væri. Á leiðinni sendi páfi jafnóðum kveðjur til þjóðhöfðingja þeirra ríkja, er flogið var yfir. ★ Við komuna til Bombay, þar sem sólin var að byrja að ganga til viðar, var páfa mjög fagnað. Höfðu á að gizka hundrað þús- undir manna safnazt saman á flugvellinum — og var fólk þetta af ýmsum trúarflokkum, hindúar, múhameðstrúar, búdda- trar, kaþólskir o. s. frv. Tvö þús- und manna lögreglulið hélt mannfjöldanum í skefjum og beitti . léttum bambusstöngum. Þó tókst u.þ.b. 2000 manns að brjótast gegnum raðir lögregl- unnar og þyrptist fólkið út á flugbrautiná. Átta þúsund ka- þólskum Indverjum var hleypt inn á flugvöllinn í fylgd presta. Fagnaði þessi hópur páfa lengi og innilega, er hann sté út úr flugvélinni. Ekki bar á, að öfgamenn hindúa hefðu sig í frammi á flug vellinum. Höfðu þeir hótað að mótmæla komu páfa kröftug- lega, á þeirri forsendu, að hér væri um að ræða innrás ka- þólskra í Indland. Undanfarna daga hefur komið til átaka í Bombay, er lögreglan hefur handtekið nokkra helztu leið- toga hindúa. Seinast í gærkvöldi voru tugir manna handteknir, en samkvæmt AP-frétt munu alls um 250 hindúa leiðtogar sitja í gæzluvarðhaldi meðan á heim- sókn páfa stendur. Páll páfi VI hafði sagt í við- tali við fréttamenn áður en hann fór frá Róm, að hann væri reiðubúinn að hitta að máli leið- toga hindúa, ef þeir óskuðu að ræða við hann. Þegar páfi gekk eftir rauða dreglinum, sem breiddur var út frá flugvélinni, gengu þeir í móti honum, Lal Bahadur Shastri, forsætisráðherra, — sem er hindúi og sagður hafa verið mótfallinn komu páfa, a.m.k. í fyrstu — og varaforseti landsins, Zakir Hussein, sem er múham- eðstrúar. Heilsuðust þeir þar og gengu síðan saman til að heilsa fulltrúum hinna ýmsu sendiráða, og ráðherrum úr stjórn Ind- lands, þar á meðal Indiru Gandhi, upplýsingamálaráðherra, dóttur Nehrus. Flestir. höfðu þeir, eins og Shastri, komið flug- leiðis frá Nýju Delhi, um þúsund mílna leið til að heilsa páfa. Páfi ávarpaði viðstadda ó ensku — þakkaði þeim fyrir að koma þessa löngu leið til að bjóða sig velkominn og sagði meðal annars, að hann og fylgd- arlið hans kæmu til Indlands sem pílagrímar — „pílagrímar friðar, gieði og elsku“, sagði hann, og bætti við, „við heils- um Indverjum öllum, hverjum manni, hverri konu og hverju barni og við heilsum öllum þjóð- um Asíu, öllum þjóðum heims. Mættu þær alltaf minnast þess, að við erum öll systur og bræð- ur og okkur ber að unna hvert öðru, virða hvert annað og sýna sannleika, réttlæti og kærleika“. Varaforsetinn, Hussein, ávarp- aði páfa fyrir hönd Indverja og kvað þá djúpt snortna yfir komu hans. Dagblöðin í Bombay skrifuðu öll um komu páfa í dag og töldu heimsókn hans mikinn heiður fyrir Bombay og Indland allt. Frá flugvellinum ók páfi inn í borgina, 20 km leið að Oval Park, þar sem þing rómversk- kaþóisk»a kirkjuleiðtoga er haldið. Hussein, varaforseti fylgdi páfa og geysilegur mann- fjöldi hafði safnazt saman við veginn, sem um var ekið. Sextán þúsund lögreglumenn vörðuðu veginn. í Oval Park biðu páfa um tvö hundruð þúsund manns. í ávarpi sinu til mannfjöldans sagðist hann hafa komið til Indlands fyrst og fremst til þess að vera við hið alþjóðlega þing ka- þólskra. Kvaðst hann hafa kom- ið til þess að fullvissa kaþólska menn um, að hann bæri til þeirra föðurást og fylgdist af áhuga með málum þeirra. Ávallt kvaðst hann minnast þeirra í bænum sínum og bað þá einnig minnast sín í þeirra eigin bæn- um. Barn fyrir bíl LAUST eftir hádegið í gær varð drengur á þriðja ári, Gunnar Ævarsson, Flókagötu 13, fyrir bíl á Snorrabraut móts við Skáta- heimilið. Gunnar mun hafa feng- ið höfuðhögg og heilahristing. — Hann var fluttur í Slysavarðstof- una, en ekki var Mbl. nánar kunnugt um meiðsli hans í gær. STAKSTCIWIt Tveggja flokka kerfi TÍMANUM hefur að undanfömu orðið tíðrætt um það, að hér þyrfti að koma á tveggja flokka kerfi og hefur talið að þróunin hnigi í þá átt í nágrannalöndum. Þanni" segir blaðið t.d. í rit- stjórnargrein í gær: „Þetta er til dæmis mjög greinilegt í Danmörku. Þar hafa verið margir flokkar. Á seinustu ámm hafa myndazt þar tvær aðalfylkingar, sosial-demokratar annars vegar og gamli vinstri flokkurinn og ihaldsflokkurinn hins vegar. í þingkosningunum í haust misstu smáflokkarair og klofningsflokkarnir fylgi. í Svíþjóð virðist þróunin ætla að verða hin sama. Þar hafa þrír borigaralegir flokkar keppt við sosial-demokrata. Nú ræða tveir hinna borgaralegu flokka, Mið- flokkurinn (bændaflokkurinn) og Frjálslyndi flokkurinn um víðtækt samstarf, er. íhalds- flokknum verður sennilega boð- in aðild að, ef hann tekur upp frjálslyndari stefnu. í Noregi hafa fjórir borgara- legir flokkar keppt við Verka- mannaflokkinn og verið ósam- mála. Það þótti því mikil tiðindi, er þessir f jórir flokkar gátu sam- einazt um ríkisstjórn sumarið 1963. Hún stóð að vísu stuttan tíma vegna ónógs þingmeirihluta, en nú er rætt um meira og minna samstarf þessara flokka í næstu kosningum. Þannig virðist kerfi hinna tve,ggja fylkinga vera óðum að myndast á Norðurlönd- um, þrátt fyrir hlutfallskosning- arnar. í Vestur-Þýzkalandi er svipuð þróun. Þar eru nú tveir stórir flokkar. Allir hinir mörgu flokk- ar, sem risu upp eftir styrjöldina, hafa verið á undanhaldi, ©g sumir alveg helzt úr lestinni“. „Kaupeyrir F rams óknarf lokksins4* Undir þessari fyrirsögn birtíst í gær í kommúnistamálgagninu eftirfarandi klausa: „Hin róttæku þjóðmálaskrif Tímans um þessar mundir minna á hamfarimar haustið 1949, þeg- ar blaðið kom út með rauð- prentuð kjörorð á forsíðu, Rann- vei,g Þorsteinsdóttir sagði allri fjárplógsstarfsemi stríð á hendur og Hermann Jónasson kvaðst vera að búa sig undir að síga í Heiðnaberg íhaldsins. Kosninga- sigur sem Framsóknarflokkurinn vann þá var notaður til að gera harða hríð að Sjálfstæðisflokkn- um pg náði hún hámarki þegar sá siðarnefndi flutti 1950 fram- varp um mjög stórfellda gengis- lækkun sem ætlað var að lækka raunvemlegt kaupgjald til mik- illa muna. Framsóknarflokkur- inn svaraði þeirri ósvinnu með því að flytja vantraust á ríkis- stjóra Sjálfstæðisflokksins og hún var felld umsvifalaust. En nokkrum dögum síðar var búið að mynda nýja ríkisstjóm undir forustu Framsóknarflokksins í því skyni einu að samþykkja þá gengislækkun sem hafði orðið ihaldsstjórninni að falli. Og hinir róttæku þingmenn Framsóknar- flokksins sem náð höfðu kosn- ingu undir rauðprentuðum kjör- orðum greiddu allir atkvæði með ráðstöfunum sem verkalýðs- hreyfingin taldi hið versta til- ræði við hagsmuni sína. Þannig hefur Framsóknar- flokkurinn ævinlega hegðað sér Oig þannig mun hann alltaf haga sér vegna þess að burðarás hans er engin samfelld stjórnmála- stefna heldur einvörðungu isókn í þjóðfélagsleg völd. Það fylgi sem Framsóknarflokknum áskotnast frá vinstri er sífellt notað sem kaupeyrir í viðskipt- um til hægri“.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.