Morgunblaðið - 03.12.1964, Síða 8

Morgunblaðið - 03.12.1964, Síða 8
8 MORGUNBLADIÐ Fimriitudagur 3. des. 1964 Rætt um bílferju á Hvalfirði Á FUNDI Sameinaðs þings í gær svaraði Ingólfur Jónsson, sam- göngumálaráðherra fyrirspurn frá Benedikt Gröndal um bif- reiðaferju á Hvalfjörð og fyrir- spurn frá Halldóri E. Sigurðs- syni um landleiðina til Vestur- og Norðurlands. Emil Jónsson sjávarútvegs- málaráðherra svaraði fyrirspurn frá Gils Guðmundssyni um afla tryggingasjóð og Þórarinn Þór- arinsson gerði grein fyrir þings- ályktunartillögu varðandi ianda fundi íslendinga í Vesturheimi. Bifreiðaferja á Hvalfjörð Benedikt Gröndal (Alþfl.) gerði grein fyrir fyrirspurn sinni til samgöngumálaráðherra um, hvað liði gerð áætlana um bifreiðaferju á Hvalfjörð, sem A1 þingi fól ríkisstjórninni að gera, sbr. þingsályktun frá 19. apríl 1963. Sagði hann m.a. að Hval- fjörður væri einn erfiðasti farar tálminn í samgöngumálum ís- lendinga og yrði það æ meir með vaxandi bílaumferð. Ingólfur Jónsson, «samgöngu- Franskar snyrtivönir IcorysT SALOHÉ Sérfræðingar leiðbeina viðskiptaviniun. Snyrting Hárgreiðsla _____rainöL Æi . ð Laugavegi 21, uppi. Sími 22138 wððmiiMism LAUGAVEGI 59..slmi 18478 málaráðherra svaraði fyrirspum inni og fara hér á eftir helztu atriði úr ræðu hans. Hann sagði m.á., að það væri ekki nema eðlilegt, að þingmenn og aðrir hefðu áhuga á því að stytta hinar miklu vegalengdir, sem víða eru hér á landi, þar á meðal, hvort unnt væri að stytta leiðina vestur á land með því að losna við krókinnn fyrir Hvalfj. í sambandi við þessa fyrirspurn hefði ráðuneytið snúið sér til vitamálastjóra og vegamála- stjóra og óskað eftir umsögnum þeirra um bílferju yfir Hval- fjörð, hvað fyrirtækið myndi kosta og hvaða líkur væru fyrir því, að það gæti staðið undir sér rekstrarlega séð. Kostnaðaráætl- un liggur nú fyrir og er þá gert ráð fyrir, að ferjan kosti um 10 millj. kr., hafnarmannvirki eða bryggjur 15 millj. kr. og vega- gerð 2 millj. kr. Þá hefur einnig verið gerð lausleg áætlun um það, hvort hugsanlegt væri, að þessi kostn- aður fengizt uppi borinn með tekj um af ferjunni. Sú áætlun leiðir í ljós, að hugsanlega gætu tekj- urnar orðið yfir árið um 6 millj. kr., því að álitið er, að takmörk séu fyrir því, hversu ferjutoll- urinn megi vera hér. Reynslan í Noregi er sú, að til þess að menn vilji nota ferjur sem þess- ar, má ferjutollurinn helzt ekki vera hærri en sem svarar því, sem sparast í benzíni við það að losna við krókinn. Valdimar Kristinsson hagfræðingur hefur gert eins nákvæma athugun á þessu og hægt er að gera undir þessum kringumstæðum, en þar segir m.a.: „Að dómi fróðustu manna mun vart koma til greina að hafa bíl- ferju utar á Hvalfirði en milli Hvaleyrar og Kataness Að hafa ferju utar, mundi fyrst og fremst hagkæmt vegna Akraness, en lengri ferjuleið og þá einkum sjógangur í slæmum veðrum mun sennilega útiloka þennan mögu- leika. Núverandi umferðarmagn fyrir Hvalfjörð ætti að geta tryggt mesta hugsanlega nýtingu í reynd á all stórri ferju. Meðal- umferð á dag yfir árið mun nú vera allt að 350 bílar, þar af 25% stórir bílar, rú.tubílar vörubíl- ar og því um líkt. Ferja, sem gæti flutt 24—28 minni bíla í einni ferð og legði upp á hálf- tíma fresti frá hvoru landi, en á því ætti að vera góður mögu- leiki, gæti með 16 tíma nýtingu á dag og 350 ferjudögum á ári flutt allt að 600 þús. minni bíla á ári. Nú er það reynsla Norðmanna sem hafa fjölda bílferja í notk- un, að mesta nýting í reynd sé Ingólfur Jónsson. um 1/4 til 1/5 af hugsanlegri há marksflutningsgetu, sem miðar við þessa ferjustærð og tíðleika ferja, yrði 120—150 þús. minni bílar á ári. Þegar tekið er til- lit til stóru bílanna, er þetta einmitt rétt um eða undir núver- andi umferðarmagni, sem reynd- ar miðast við mjög snjóléttan vetur. Og ekki er hægt að búast við, að allir bílar myndu velja ferjuna heldur en að taka krók- inn, en á hinn bókinn gæti ferj- an að nokkru leyti skapað sinn eigin markað, svo sem vegna aukinna sumarferðalaga Reyk- víkinga um Borgarfjörð og tíð- ari vetrarferða Akurnesinga til Reykjavíkur. Eina ferju á Hval- Landleiðin til Vestur- og Norðurlands í SVARRÆÐU við fyrirspurn Halldórs E. Sigurðssonar um, hvað gert hefði verið til þess að athuga möguleikana á -að stytta landleiðina frá Reykjavík um Borgarfjarðarhérað til Vestur- og Norðurlands, sagði Ingólfur Jónsson m.a., að stærsti þóttur- inn í að stytta þá leið, væri af- nám króksins fyrir Hvalfjörð. Vísaði hann síðan til svars síns við fyrirspurn Benedikts Grön- dals um það mál. Hvað aðra þætti leiðarinnar snerti, sagði ráðherrann m.a., að vegamálastjóri hefði falið Stein- grími Arasyni verkfræðingi að kanna það mál. Las hann síðan skýrslu frá Steingrími Arasyni, en þar er ofangreindri leið skipt í þrennt: 1. Umferð um Snæfells- nes, 2. Til Dalasýslu og Vest- fjarða, 3. Til Norður- og Austur- lands. Varðandi umferð um Snæfells- nes, þá væru tveir möguleikar á að stytta leiðina þingað, og er annar þeirra að leggja 15 km langan nýjan veg frá Gufuárvega mótum að Álftá og endurbyggja vee um Geldingadraga og styttir það leiðina um 26 km. Hinn mögu leikinn er að leggja veg yfir Borgarfjörð frá Selseyri undir Hafnarfjalli að Borgarnesi. Stytt ir það leiðina um 24 km. Umferð til Vestfjarða og Dala- sýslu fer frá Gufuárvegamótum um Norðurárdal og upp á Bröttu- brekku hjá Dalsmynni. Þessi leið styttist um 16 km við endurbygg- ingu Dragavegar og 6 km við byggingu vegar yfir Borgarfjörð. Til þess að stytta leiðina til Norður- og Austurlands má hugsa sér að endurbyggja Draga- veg, lagfæra Borgarfjarðarbraut og Þverárhlíðarveg og byggja nýjan veg yfir Grjótháls úr Þver- árhlíð að Króki í Norðurárdal. Þetta styttir leiðina um 31 km. Nýr vegur yfir Borgarfjörð stytt- ir þessa leið um 6 km. í skýrslunni er enn fremur rakið nokkuð, hvernig umferð um þetta svæði er farið nú og gerður samanburður á hinum ýmsu leið- um og enn fremur gerð grein fyr- ir umferðartalningu, sem fram fór í júní sl. og þar mælt með lagningu hraðbrauta. firði ætti því ekki skbrta verk- efni, en um fulla nýtingu á tveim ur ferjum yrði varla að ræða fyrr en eftir 10 ár samkvæmt spá um framtíðarbifreiðaeign lands- manna. Reynslan frá Noregi er sú, að menn séu fúsir til að greíða í ferjutoll upphæð, sem nemur benzínsparnaðinum við að aka ekki hringinn, en helzt ekki mikið meira. Nú sparast um 45 km akstur við að taka ferju hjá Hvaleyri og sýnist þá óvarlegt að reikna með hærri tolli en sem svarar 50 kr. á bílleiðinni. Þetta mundi gefa 6—7,5 millj. kr. tekjur á ári. Reikna má með, að rekstur ferju af áðurnefndri st?erð mundi kosta 6 millj. kr. á ári, er skiptist þannig, að 2 millj. kr. væru vinnulaun og því um líkt, 2,75 millj. annar reksturs- kostnaður og vextir og afskrift- ir 1,25 millj. kr., en byggingar- verð ferjunnar má áætla um 10 millj. kr. og mætti eflaust fá hagkvæm lán í því sambandi. Niðurstaðan er því sú, að rekst- urinn mundi standa alveg í járn um reiknað með kostnaðinum af ferjunni sjálfri.' Og er þá ekki reiknað með hafnargjöldum eða neins konar afskriftum af nauð synlegum viðleguplássum beggja vegna fjarðarins, en varla gætu þau kostað minna en 5 millj. kr., þegar með eru taldar læsing ar og annar sérstakur útbúnaður leila, hvort nauðsynlegt sé, að fyrir ferjur. Um hitt má svo aftur slíkur ferjurekstur bæri sig að fullu. Til þess að gera sér grein fyrir því, væri eðlilegt, að gerð yrði áætlun um, hve miklar og hvenær gera ætti endurbætur á Hvalfjarðarveginum og því hlýt ur að koma að hann verður að malbikast, ef ferja léttir ekki af meginhluta umferðarinnar. Hugs anlegt væri að nota hluta af vöxtum af því fé, sem færi í vega bæturnar til að styrkja ferju- rekstur, en segja má, að það fé væri ekki fyrir hendi, ef hvort eð er ætti að hefja stórt átak í vega gerðinni á þessum stað, þannig að þegar til framtíðarinnar er horft, mætti vel hugsa sér það, að reksturshalli á fyrirtækinu, ef reiknað er með öllum stofn- kostnaðinum, mætti réttlætast af því, að krókurinn fyrir Hval- fjörð þyrfti ekki eins mikinn kostnað og mætti spara sér að gera slitlag á þann veg, vegna þess að umferðin á króknum yrði mun léttari fyrir það, að ferjan tæki við miklum hluta af umferðinni. Álit vitamálastjóra Um álit vitamálastjóra sagði ráðherrann m.a., að lauslegar at huganir hafi verið gerðar, svo og mun vegamálastjóri hafa gert athuganir á umferð og öðru þar að lútandi. Augljóst er, að þeim mun utar á fjörðinn, sem ferja yrði sett, þeim mun meiri hagur yrði af ferjusambandi, sérstak- lega vegna hinna nálægari staða, svo sem Akraness og Borgar- ness. Ákvörðun um staðsetningu slíkrar ferjuleiðar yrði að fara eftir vandlega unninni áætlun, þar sem tillit yrði tekið til kostn aðar við hafnarmannvirki og vegasambandið og þann fjár- hagslega vinning, sem af styttu vegasambandi yrði. Athuganir á hafnarstæði utan Hvaleyrar og Katarness hafa ekki verið gerð- ar, en ef ástæða þætti til, mætti gera þær á næsta vori og gera þá um leið nauðsynlegar mælingar og áætlanir um hafnarmannvirki við það ferjustæði ættu þá að geta legið fyrir haustið 1965. Híns vegar hafa nú verið athug aðir ferjustaðirnir við Katarnes og Hvaleyri, þar sem gamlar mæl ingar voru til og benda lauslegar áætlanir til þess, að hafnarmann- virki á þeim stöðum mundu kosta um 714 millj. kr. á hvorn stað. Greinargerð vegamálastjóra Þá rakti ráðherrann greinar- gerð frá vegamálastjóra um þetta mál, en þar segir m.a., að leggja þyrfti um 1,2 km. langan veg að Ferjubryggju á Hvaleyri af Vesturlandsvegi og endurbæta þyrfti verulega núverandi veg frá Katarnesi á Akrafjalls veg á 2km kafla og einnig þyrfti að endurbæta um 3 km af Akraf jalls vegi að vegamótum Akranesveg- ar. En kostnaður við þessar veg arbætur er áælaður um 2 millj. kr. Umferðartalning, sem gerð hefur verið á Vesturlandsvegi í Hvalfirði á yfirstandandi ári á tímabilinu júní-september, sýn- ir, að meðalumferð þessa mánuð ina mun vera nálægt 500 bílum á dag eða um 60 þús. bíla þessa 4 mánuði. Sambærileg umferðar- talning hefur ekki verið framkvæmd að vetrarlagi, en ó- varlegt mun vera að reikna með meiri meðal umferð mánuðina október-maí en um 170 bilum á dag eða um 40 þús. bílum þessa 8 mánuði. Leiðrétting í FRÁSÖGN hér í blaðinu í fyrra dag frá umræðum í Neðri deild um frumvarp um veitingu presta kalla, þar sem skýrt var frá ræðu Jóhanns Hafstein, var sagt, að hann sagðist vera höfundur þessa frumvarps, en á að vera: hann sagðist ekki vera höfund- ur þessa máls. Um eyjar og annes Bergsveinn Skúlason segir frá Breiða- fjarðareyjum ÚT er komin bók um Breiða- fjarðareyjar eftir Bergsvein Skúlason og nefnist hún „Um eyjar og annes“. Eru það minn- ingar höfundar og ferðaþættir, sem hann hefur flutt í útvarp og aðrir, sem ekki hafa áður séð dagsins ljós eða borizt yfir land- ið á öldum ljósvakans, að því er höfundur segir í formálsorðum. Fróði gefur bókina út og gerði bókaútgáfan út leiðangur í flug- vél til að taka myndir af eyjun- um og umhverfi þeirra. Gunnar Geir Vigfússon tók myndirnar og birtast þær í bókinni og gefa góða hugmynd um gerð og lögun eyjanna. Fyrri hluti bókarinnar nefnist „Dokað við í Vestureyjum Breiða fjarðar" og eru þar frásagnirnar: Skroppið í Oddbj arnarsker, Lit- azt um x Flatey, Inneyjar, Svefn- eyjar, Hvallátur, Skáleyjar, Sviðnur, Ólafseyjar, Hafraklett- ur, Hergilsey, Sauðeyjar og Dag- stund í eyðieyjum (Bjarnareyj- ar, Stagley og Gassasker). Seinni Bergsveinn Skúlason. hlutinn nefnist „Að vestan" og segir frá Breiðuvík, Látrum og nágrenni og Látrabjargi og Látra heiðL

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.