Morgunblaðið - 03.12.1964, Síða 20

Morgunblaðið - 03.12.1964, Síða 20
20 MO RG U N B LAÐIÐ Fimmtudagur 3. des. 1964 v Viktor Heiödal Aöal- steinsson — Minning Fæddur 5. marz 1940. Dáinn 25. nóvember 1964. STUNDUM berast fregnir, sem eru svo fjarri öllu þvi, er við höfum vænzt, að okkur veitist ógerlegt að trúa þeim fyrst í stað. Þannig mun mörgum kunn ugum hafa brugðið við, er þeim var greint frá andláti Viktors Heiðdal Aðalbergssonar hinn 25. nóvember síðastliðinn. Viktor var aðeins 24 ára áð aldri, og gamlir vinir hans og nýir hefðu fyrir fáum vikum sízt af öllu getað gert sér í hugarlund, að hans biðu svo svipleg æfilok, sem nú er raun á orðin. Viktor fæddist á Seyðisfirði 5. marz árið 1940, sonur hjónanna Aðalbergs Sveinssonar og Sig- ríðar Friðriksdóttur. Ólst hann þar upp í glöðum systkinahópi. Ég, sem þetta rita, hlaut áð fagna því láni að eiga hann að nánum leikbróður og vini öll okkar bernskuór. Nú, þegar Vikt or er látinn, eru mér ofarlega í huga þessir björtu og áhyggju- lausu dagar leikja, æfintýra og fölskvalausrar vináttu, sem al- drei bar skugga á. Frá þeim ár- um geymi ég í huga mér mynd af góðum dreng í þess orðs sönn- ustu merkingu, góðum dreng, en um leið efnismanni, sem aug- ljóst var, að mikils var af að vænta. Ég geri ekki tilraun til að þakka vini mínum þessar minningar. Þær eru mér dýr- mætari en svo, að orð fái lýst. 19 ára að aldri hóf Viktor tré- smi'ðanám hjá frænda sínum, Halldóri Karlssyni húsasmiða- meistara í Reykjavík. Áður hafði hann lokið iðnskólanámi á Seyðisfirði og um skeið unnið hjá Skipasmíðastöð Seyðisfjarð- ar. Stundaði Viktor námið af einstæðu kappi,.enda kom skjótt fram sjaldgæf leikni hans til allra verka. Að loknu námj vann hann hjá Halidórí allt þar til hann fyrir fáum vikum kenndi þess sjúkdóms, er dró hann til dauða. í starfi sínu sýndi Viktor dæmafáa trúmennsku, dugnað og kunnáttu, svo sem þeim öllum er í fersku minni, er kynni höfðu af honum og athöfnum hans á þeim vettvangi. Fóru þar saman áskapaðir hæfileikar til þeirrar iðnar, er hann hafði valið sér, langvarándi æfing, og atorka, sem aldrei brást, svo lengi sem hann fékk verki valdið. Með þýðu viðmóti sínu og háttprú'ðri framkomu vann hann og hug allra þeirra, sem nutu návistar hans. Viktor kvæntist árið 1962 eftir lifandi konu sinni, Sigríði Jóns- dóttur. Hafði hann búið henni og börnum þeirra yndislegt heim ili að Skipasundi 75, þar sem innanstokksmunir flestir voru til orðnir í högum höndum hans. Bar Viktor mikla umhyggju fyrir fjölskyldu sinni og vakti sífellt yfir velferð hennar. í októ bermánuði síðast lfðnum fæddist þeim hjónum dóttir, en eldra barn þeirra er ársgamall dreng- ur, Sigurjón að nafni. Ríkti mik- il gleði á heimilinu, er dóttirin var farsællega í heiminn borin. Því þyngri er sá skuggi sorgar- innar, sem yfir því hvilir nú. Tryggð Viktors við bemsku- heimili sitt og foreldra er við brugðið af þeim, sem bezt þekktu til. Kom þar fram sem annars staðar sú hjartahlýja, er hon- um var eiginleg, og alúð hans við alla þá, er honum voru á einhvern hátt vandabundnir. Sá harmur, sem nú er að ást- vinum Viktors kve'ðinn, er þyngri en svo, að nokkurt huggunarorð fái sefað hann. Og alkr kunnug- ir, er álengdar standa, eru sem þrumulostnir. Við spyrjum ósjálf rátt, hvemig það megi verða, að ungur gæfumaður deyi svo óvænt frá konu og börnum, einmitt þegar m.anndómsárin eru að hefj ast og lífið brosir við með öli- um sínum draumum og framtíð- aráætlunum, áð ástkær sonur og bróðir, sem björtustu vonir for- eldra og systkina voru við bundn ar, hverfi svo skyudilega af sjón arsviðinu. Hugurinn getur myrkv ast andspænis slíkum spurning- um. Það kynni að hvarfla að okkur efi um kærleika ha.ns, sem öllu ræður, eða jafnvel um mátt hans til að yfirstíga mann- lega kvöl. Við rýnum hin .huldu rök örlaganna, en svörin við spurningum okkar liggja ekki alltaf í augum uppi. Þó hefur Guð fengið okkur eitt svar: Að lokríu því lifi, sem við eigum hér í heimi og sem oft er svo stutt og þrungið marg háttuðu mótlæti og raunum, er okkur annað líf og betra gefið. Að enduðum þrautum þessarar tilveru færir Guð okkur nýjan heim og bjartari. Þannig sigrar kærleiki Guðs um síðir allar þær þjáningar, sem hann ekki fær afmáð hér á jörð, jafnvel sjálf- an dauðann. — Þessi er mín trú, og hana skal enginn frá mér taka. f krafti hennar veit ég, að í fyllingu tímans fæ ég aftur að sjá bernskuvin minn. Vera má, að við í nýjum heimkynnum fá- um enn brugðið á þá björu leiki, er við forðum áttum samaru Vera má og, að okkur verði önnur verk ætluð. Því ræður Guð einn. En endurfundirnir verða að lokum. Um það efast ég ekki eitt andartak. , Á þessum myrku skammdegis- dögum á ég þá bæn heitasta, að sama trú megi verða ástvinum Viktors huggun í þungfbœrri sorg. Þeir, sem mest hafa misst, eiga einnig mesta gleði í vænd- um á degi endurfundanna. Guð gefi, að harmi syrgjendanna megi létta í ljómanum af því fyrirheitL , Heimir Steinsson. > RYKSUGUR BÓNVÉLAR HÁRÞURRKUR HRÆRIVÉLAR Vestur-Þýzk gæðavara ,VESTUROÖTU Z- LAU6AVE0I 10 SÍMI 20300 2 LESBÓK BARNANNA LESBÓK BARNANNA * „Þú færð flugdrekann þinn, þegar þú verður svolítið hærri í loftinu" sagði faðir hans. „Von- andi gefur Apki, guð vindanna, þér blásandi byr“. Skömmu síðar fór Khun San út að leika sér við endurnar niður við skurðinn. Það var blæa- logn. Ekki bærðist nokk- urt strá. Þetta var sann- arlega skrítið! Það sást ekki nokkur gára á vatn- inu. Skeggið á geitinni, henni Pimm, hékk beint niður og dróst við gulu blómin á skurðsbakkan- uán. Khun San var svo hissa að hann tók ekki nærri strax eftir ókunna mann- inum, sem kominn var til hans. Þetta var hár og grannur ungur maður, klæddur marglitri silki- skikkju. Hún var með blómamynztri, og blómin voru eins og þau væru að fjúka í allar áttir. And- lit unga mannsins var toiginleitt og nefið hvasst og litarhátturinn fölur og tær eins og spegil- skyggð tjörn. Augu hans voru ekki brún og hlý, eíns og augun í Khun San. Þau voru blágræn og nokkuð hvöss. „Khun San, ég er Apki, guð vindanna", sagði hann. „Ég hefi týnt stoppunálinni minni og er nú að leita að henni. Hjálpaðu mér! Ég missti hana niður rétt hjá hús- inu þínu, þegar ég var á leiðirtni til að aðgæta, hvort sunnanvindurinn blési almennilega. Þú veizt máski ekki, að vind- arnir koma til mín heim í himininn á hverri nóttu. Og þá verð ég að sauma og rimpa þá sam- an, því að þeir eru allir hengilrifnir eftir að hafa blásið allan daginn. Ef ég hefi ekki nálina mína, get ég ekki gert við þá, og þá er ekki haagt að senda neina vinda út til að blá«a“. „Er nálin þin eins og venjulegar nálar?" spurði Khun San, þegar hann mátti mæla fyrir undrun. „Hún er um það bil eins löng og bæði hornin á geitinni þinni til sam- ans“, svaraði Apki bros- andi. „Og augað er á stærð við andaregg. Þú mátt ekki segja neinum, að ég hafi týnt henni. Það eru ekki allir eins hug- aðir og þú. Bf þú skyldir finnna nálina, viltu þá þræða hana upp á hæstu bambursgreinina við húsið þitt og ég mun vitja hennar. En ég er hræddur um, að ég geti engan vind sent út, fyrr en ég fæ nálina mína aftur“. Khun San var aftur orðinn einn, því guð vindanna var horfinn. Hann fór strax að svipast um eftir nálinni. Hann leitaði í mosanum og grasinu og hálmbyngjun- um við hrísgrjónaakur- inn. Hann teygði siig til að sjá upp í greinar gúm trjánna og blöð banana plantanna. En nálina var hvergi að sjá. ,,Ef ég finn nálina ekki getur Apki aldrei saumað saman rifurnar á vind- unum“, hugsaði Khun San dapur í bragðL „Hverniig á ég þá að láta flugdrekann minn fljúga. þegar pabbi gefur mér hann?“ Hann hugsaði um, hve gaman var oft niðri á flugdrekavellinum. Þar voru sælgætissalar og bumbuslatgarar og flug- drekasmiðir, sem gátu látið bambusstangir halda jafnvægi á nefinu á sér. í þrjá daga leitaði Khun San árangurslaust að nálinni. „En sá voðalegi hiti i þessari lognrnollu", sagði faðir hans, þegar þau voru að borða hrísgrjón- in um hádegisbilið þriðja daginn. „Já, það hefur heldur ekki hreyft vind nú í nokkra daga", sagði móð- ir hans, og hellti sósu ofan á fiskinn á diski Khun Sans. Framhald næst. Ráðningar 64. Eitt auga. 65. Þær eta fóðrið. 66. Enginn köttur hef- ur tvær rófur. Einn kött ur hefur einni rófu meira en enginn köttur, eða sama sem þrjár rófur. 67. Lögregluþjónninn. 68. Lykkjufall í sokkn um. 69. í orðabók. 70. Af því enginn vasi getur verið í tómum poka. 71. Hvort tvaggja berst frá munni til munns. 72. í reiptogi. 73. Annars eru þær alltaf niðurdregnar. 74. Hvítur. Þetta var ísbjöm á norðurheim- skautinu. 75. Eina, — þá er brauðið ekki heilt leng- ur. Svör við gátum. Á dögum Napoleons- styrjaldanna hafði keisar- inn laigt bann við allri verzlun Englendinga á meginlandinu. Enskan smyglvarning skyldi brenna, hvar sem til hans náðist. Dag nokkurn átti Napo- leon leið um sveitaþorp eitt, og lagði þá ilmandi kaffilykt fyrir vit hon- um. Kaffi var eitt af þeim vörum, sem aðeins var hægt að fá með því að kaupa það úr enskum skipum. Kaffilyktin kom frá prestsetrinu og kelsarinn snarast þangað inn. Gamli presturinn stóð í eldhúsinu og var að brenna kaffibaunir 4 pönnu. „Hvað leyfið þér yður að gera?“ spurði keisarinn reiðilega. En presturinn lét sér hvergi bregða. „Ég fram- kvæmi aðeins skipanir yðar hátignar", svaraði hann rólega, „oig brenni enskan smyglvarning". Þá brosti Napoleon og leyfði prestinum að halda áfram við þetta þjóð- þrifastarf. Að kasta spilum í hatt Notuð eru ein spil og hattur eða pottur. Hatt- urinn er settur í eitt stofuhornið og snýr upp. Ákveðinn er staður, þar sem þátttakendur skulu standa meðan þeir kasta. Spilin eru stokkuð og hver þátttakandi má kasta tuttugu spilum í þeirri röð, sem hann hef- ur þau í stoklcnum. Hver vinnur jafn mörg stig og spilin sem höfnuðu í hattinum segja til um. Ás gefur eitt stig, gosi 11, drottning 12 og kóng- ur 13. Þetta er skemmtilegur leikur, sem öll fjölskyld- an getur tekið þátt í. Erf- itt er að hitta strax og fjarlægðin er oðin 2lú—3 metrar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.