Morgunblaðið - 20.01.1965, Síða 22
MORCUNBLADIÐ
Miðvikudagur 20. jan. 1965
rtcf
éCt t-4
Skíðin gera
- ekki geta
STÓRMÓT skíðamanna í ölpun-
um reka nú hvert annað. Athygli
hefur vakið að Frakkar fara
heldur halloka, miðað við fyrri
ár, fyrir Austurríkismönnum.
Ástæðan er talin vera mismun-
ur á skíðum fremur en mismun-
ur á getu Austurríkismanna og
Frakka og sú brennandi spurn-
ing er upp risin, hvort Frakkar
muni taka upp notkun á austur-
rískum skíðum.
Austurríkismaðurinn Gerhard
Nenning sigraði á hinu fræga
Kandahar-móti á sunnudaginn.
Eftir sigurinn sagði hann. „Frakk
arnir eru ennþá okkar skæðustu
keppinautar, en skíði þeirra gera
ekki eins mikla ferð og okkar
skíði“.
Tveir menn í franska liðinu á
mótinu sögðu fréttamönnum, að
þeir mundu taka austurrísk skíði
í notkun að minnsta kosti reyna
þau á æfingum fyrir Kitzbiihel-
mótið n.k. laugardag í Austur-
ríki. Þetta voru þeir Francois
mismunin
garpanna
Bonlieu og Leo Lacroix.
Aðalstjarna franska kvenna-
liðsins Annie Famose sagði að
hún myndi reyna bandarísk skíði
fyrir næsta stórmót í bruni.
Þrír Austurríkismenn K.
Schranz, Nenning og H. Messner
röðuðu sér í efstu sætin á Kada-
har mótinu í brunkeppninni og
þar áttu Frakkar engan meðal
6 fyrstu. í svigi vann Nenning
og K. Schranz varð annar. Frakk
ar áttu þar 5. mann.
Franski þjálfarinn hefur sagt
að hann hafi haldið að áburður-
inn væri orsökin en nú hefði
hann sannfærzt um að það væru
skíðin.
Fyrir 5 árum áttu Austurríkis-
menn við sama vanda að stríða.
Enginn þeirra skipti um skíði
en framleiðendur þeirra tóku sig
til og fundu lausn — lausnina
sem nú hefur gersamlega skákað
frönskum skíðum.
Valur hélt Sigríði samsæti
HANDKNATTLEIKSDEILD
VALS hélt Sigríði Sigurðar-
dóttur og fjölskyldu samsæti
í tilefni af því að hiún var
kjörinn „íþróttamaður ársins“.
Voru þar saman kiomnar
ýmsar stöllur Sigrfðar sem
verið hafa í landsliði með
henni og undir hennar forystu
og lagt sitt til frægra sigra
kvennalandsliðsins. Þar voru
og forráðamenn deildarinnar
og félagsins.
Þetta var hið skemmtileg-
asta samkvæmi og víst ætti
þessi mynd sem Sveinn Þor-
móðsson tók að geta orðið
söguleg. Þarna eru nokkrar
frægar handknattleikskonur
með dætur sínar — og
kannski er þetta fyrsta mynd
in sem þær litlu hnáturnar
birtast á hér á íþróttasíðunni
en ver'ða svo vonandi síðar á
myndum með góðum liðum
eða fyrir einstaklingsafrek.
Ercska knatt-
spyrnan
Úrslit leikja í ensku deildar-
keppninni, sem fram fóru s.l.
laugardag urðu þessi:
1. deild:
Aston Villa — Blackpool 3—2
Burnley — Birmingham 2—0
Fulham — Ghelsea 1—2
Leicester — .Leeds 2—2
Liverpool — Sheffield W 4—2
N. Forest — Manchester U. 2—2
Sheffield U. — Everton 0—0
Stoke — W.B.A. 2—0
Sunderland — Arsenal 0—2
Tottenham — West Ham 3—-2
Wolverhampton — Blacbb. 4—2
2. deild:
Bury — Rother Ham frestað
Gharlton — Derby 1—3
Coventry — Newcastle 5—4
Crystal Palace — Norwich 2—0
Huddersfield — Northampt. 2—0
Ipswioh — Plymouth 2—2
Leyton O. — Swansea 2—3
Manohester City — Swindon 1—2
Preston — Bolton 2—2
Southamipton — Portsmouth 2—2
Cardiff — Middlesbrough 6—2
í Skotlandi urðu úrslit m.a.
þessi:
Dundee — Motherwell 4—2
Airdrieomans — Rangers 0—4
St. Mirren — Falkirk 3—0
Staðan er þá þessi:
1. deild:
1. Leeds 40 stig.
2. Chelsea 39 stig.
3. Manchester U. 38 stig.
2. deild:
1. Newcastle 38 stig.
2. Northampton 34 stig.
3. Norwich 31 stig.
SKOTLAND:
1. deild:
1. BEARTS 34 stig
2. KILMARNOCK 33 stig.
3. HIBERNIAN 31 stig.
4. RANGEIRS 28 stig.
Tvö efstu li’ðin í Skotlandi
hafa leikið 22 lei'ki, en RANGERS
20 leikL
í Englandi hefur LEEDS leik-
ið 27 leiki, en CBELSEA og
MANOHESTER U. 26 leiki.
818 km. kappakstur í snjó og roki í
Ölpunum - 34 af 158 náðu áfangastað
IVIonte Carlo kappakstrinum lýkur i dag - Finni er
Cklegasfur
FYRRI hluta hins fræga kapp-
aksturs sem kenndur er við
Monte Carlo lauk í gærmorgun.
Það var kappaksturinn frá hin-
HÉR er hin nafntogaða Sigríður
Sigurðardóttir úr Val að skora
fyrir lið sitt — eitt af mörgum
skotum sem hún sendi í net fót-
herjanna — í leik gegn Breiða-
blik í Kópavogi s.l. laugardag,
en þá fóru fram 3 leikir í m.fl.
kvenna á íslandsmótinu. Valur
vann Breiðablik með 20—6 sem
sagurvegari
um ýmsu rásstöðum til Monte
Carlo. Þeir sem beztum árangri
ná í þeim hraðakstri á þjóðbraut
um Evrópu komast í lokakeppn-
er ein hæsta markatala, ef ekki
sú hæsta, sem sézt hefur í kvenna
leik. FH vann Víking með 9—8
og Armann vann Fram með
10—7.
Valur og FH eru nú ein tap-
laus í m.fl. kvenna og má telja
víst að baráttan standi milli
þeirra liða um meistaratitilinn.
ina, sem er fólgin í 611 km löng-
um „þrauta“-akstri í frönsku
Ölpunum. Sú lokaraun verður
í kvöld (miðvikudag).
238 bílar lögðu af stað frá hin
um ýmsu borgum Evrópu með
Monte Carlo sem takmark. Að-
eins tveir þeirra komust á leið-
arenda án þess að hafa hlotið
stig fyrir villur á leiðínni — en
á leiðinni verða áhafnir bílanna
að gera ýmis „skyldustörf“ en
fá „villur“ ella sem koma til
frádráttar á tímann sem þeri
nota til akstursins. Öðrum bíln-
um er villulaust kom að marki
óku Finnar. Var það bíll af
Cooper-gerð og hinn var Citroen
(með 4-hjóla-drifi) ekið af bel-
giskum mönnum. Finnarnir
höfðu ekið frá Södertalje — eða
lengstu leiðina til Monte Carlo
og komu þó klukkustund á und-
an Belgunum sem lögðu upp frá
Minsk.
42 bílar náðu til Monte Carlo
áður en hliðum var þar lokað
fyrir keppnisbílana. Þeir sem síð
ar komu höfðu engar vonir um
framhald í keppninni. Og síðar
var tilkynnt að vegna „v / ia“
fengju aðeins 34 af þessum 42
bílumað fara í lokaprófið. Meðal
þeirra eru tveir bílar sem Norð-
menn aka.
Bílstjórarnir segja að keppn-
in í ár hafi verið erfiðari en
nokkru sinni fyrri. Allt var með
felldu er bílarnir lögðu af stað
á föstudaginn. En er þeir komu
til Chamberry í Frakklandi og
áttu eftir 818 km til áfanga-
staðar, byrjaði að snjóa og
varð brátt aftakaveður.
Fengu allir slíkt veður yfir
Alpana. Mörgum reyndist sá
spotti hreinasta martröð.
Meðal þátttakenda er Svíinn
Erik Carlsson sem sigraði í
akstrinum 1962 og 1963. Hann
óskaði sér fyrirfram að fá snjó.
En han lenti í erfiðleikum vegna
Framhald á bls. 23
8RIDGE
í kvöld kl. 8:00 heifst í Tjarn..
arkaffi sveitakeppni Reykjaví'k-
urmótsins í bridge. 16 sveitir
taka þátt í mótinu og er spilað
í tveim flokkum Meistaraflokk
og I. flokk og eru sveitir í hvor-
um flokki og spila þær 7 um-
ferðir sem allar fara fram á mi'ð-
vikudagskvöldum, dregið hefir
verið um töfluröð sveitanna og
er hún þessi.
Meistaraflokkur:
1. Ólafur Þorsteinsson B R
2. Ingibjörg Halldórsd., B D B
3. Reimar Sigurðsson T B K
4. Einar Þorfinnsson B R
5. Hallur Símonarson B R
6. Jón Ásbjörnsson B D B
7. Jón Stefánsson B D B
8. Róbert Sigmundsson B R
1. Flokkur:
1. Pétur Einarsson T B K
2. Eggrún Arnórsdóttir B K
3. Jón Magnússon T B K
4. Júlíana Isebarn B K
5. Dagbjartur Grímsson T B K
6. Elín Jónsdóttir B K
7. Rósa Ivars B K
8. Zóphanías Benediktss. T B K
Eins og sj'á má á töflunni hefst
spenningurinn í mótinu strax
þar sem allar Bridgefélagssveit-
irnar lenda saman í fyrstu umif,
og þó sérstaklega á milli Einars
og Halls en þær sveitir börðust
um Reykj avíkurmeistara titilinn
í fyrra en þá vann Einarssveitin.
Aðgangur er ókeypis að mótinu
og má vænta að bridge áhuga-
folk fjölmenni til að honfa á.
Þar sem aðstæður fyrir mótiS l
Tjamarkaffi eru allar hinar beztu
sem boðið hefur verið uppá fyrir
bridgefólk.
Sigráður skorar oiti
ai 20 mörkum Vais