Morgunblaðið - 29.05.1965, Side 28
MRMBHBBnMinHM
Lang stærsta og
fjölbreyttasta
blað landsins
120. tbl. — Laugardagur 29. maí 1965
Helmingi utbreiddara
en nokkurt annað
íslenzkt blað
Ný eyja stingur
upp kollinum
1 GÆRMORGUN sóu flugmenn,
er voru á ferðinni yfir Surtsey
að ofurlítil ný eyja hafði stungið
upp kollinum á sjónum, þar sem
eldsumbrot hafa sézt undan-
farna daga.
Sigurjón Einarsson flugmaður,
sagði að í fyrradag hafi verið
þarna þoka, en í gærmorgun
komið glampandi sólskin og svo-
lítið mistur. Hefði greinilega
mátt sjá að hraun kom upp í
gosinu og rauk úr því.
Ráðgerð voru flug yfir stað-
inn síðdegis, m.a. með vísinda-
mennina af Surtseyjarráðstefn-
unni, en þá var orðið svo lág-
skýjað að það þótti ekki ráðleg.t.
I 2 menn slösuðust I
EINN maður meiddist tals-
vert á höfði og annar skrám-
aðist nokkuð, er ökuferð
þriggja manna iauk með því
að ekið var á steinvegg við
Grafarholt. Allir mennirnir
sem í bílnum voru, voru flutt
ir á Slysavarðstofuna og virt-
ust þeir talsvert ölvaðir. I»eir
voru á nýlegri bifreið og óku
beint á steinvegg, en við það
skemmdist bifreiðin mjög mik
ið og snerist í hálfhring. Tveir
mannanna voru settir í gæzlu
varðhald, grunaðir um ölvun
við akstur.
Ægir hefur verið við síldar-
leit fyrir Austurlandi síðan 8.
maí og kom til Reykjavíkur
á fimmtudag, en fer aftur á
þriðjudagskvöld. Þessar mynd
ir tók Leon Carlsson, stýri-
maður, í leiðangrinum. Stærri
myndin sýnir Jón Kjartans-
son með fyrstu síldina á föstu-
daginn. í glugganum sést skip
stjórinn, Þorsteinn Gíslason.
Á minni myndinni er Jakob
Jakobsson, fiskifræðingur, að
störfum um borð í Ægi.
\ stolnum bíl
í FYRRAKVÖLD var stoiið
bílnum R 1824 í Hafnarfirði, og
var hvarf hans tilkynnt til lög-
reglunnar kl. 22:85. Seinna
fannst bíllinn í Bessastaðahreppi
milli Bjarnarstaða og Landakots.
I>ar hafði bíllinn verið skilinn
eftir, þegar þjófarnir höfðu not-
að hann til að fara og ná sér
í pylsur á Geithólsi. Hafnarfjarð
arlögreglan hafði þó hendur í
hári þeirra.
Mikiö af síld, en Ijónstygg
sagði Jón Einarsson í gærkvöldi
J>AÐ er ágætis veður og mikið
af síld, en hún er ljónstygg, sagði
Jón Einarsson á leitarskipinu
Hafþóri um 10 leytið í gær-
kvöldi. Eitt og eitt skip hefur
Sáttafundur
í gærkvöldi
í GÆRKVÖLDI kl. 9. hófst fund
ur hjá sáttasemjara me'ð fulltrú-
um vinnuveitenda- og verkalýðs
félaganna á Norður- og Austur-
landi og stóð hann enn er blaðið
fór í prentun.
Undirnefndir bæði frá Norð-
ur og Austurlandsmönnum og
frá verkalýðsfélögum og vinnu-
veitendum í Reykjavík og Hafn-
arfirði sátu á fundum innbyrðis
á fimmtudag. Og undirnefndir
Dagsbrúnar og Hlífar og Vinnu-
veitenda síðdegis í gær.
Kl. 4 á mánudag verða aftur
undirnefndafundir hjá Dagsbrún
og Hlif og Vinnuveitendum.
verið að fá kast. f dag hafa þrjú
farið inn: Ólafur Magnússon með
1300 mál, Helgi Flóventsson með
1800 og Halkíon með 1500. Skip-
in eru að veiðum um 55—60 míl-
ur undan Dalatanga, heldur norð
ar en fyrst.
25 bátar eru kómnir austur. —■
Svarta þoka hefur verið, en það
er alltaf þoka hér fyrir austan,
sagði Jón. Þeir á leitarskipinu
höfðu leitað langt út á haf og
íundíð ágæta torfubletti, en það
var alltaf sama sagan, síldin svo
stygg að engu tauti var við hana
komið.
Á fimmtudag tilkynntu 7 bát-
ar um afla: Reykjaborg 1800
mál, Barði 1300, Snæfell 1500,
Dagfari 1800, Gullver 1700, Súl-
an 1500 og Sæfari með fullfermL
Fullt er nú orðið á Norðfirði
og ekki tekið við meiru í bili.
En bátarnir fara inn á Eskifjörð,
Stöðvarfjörð og Fáskrúðsfjörð,
og ísinn mun vera að lóna frá
Vopnafirði, svo bátarnir fara að
leita þangað inn líka. Á Eski-
firði átti að hefja bræðslu í gær-
kvöldi.
Maður slasast í
f isk ver ku na r stöð
ÞAÐ slys varð í Sandgerði «m
10 leytið í gærmorgun, að Jó-
hann Þorkelsson, verkstjóri í Út-
gerðarstöð Guðmundar Jónsson-
ar, slasaðist mikið við að lenda
í snigli er flytur fiskúrgang.
Jóhann var einn af vinna er
hann hrasaði og lenti ofan í úr-
gangsþró, en mun um leið hafa
slegið kústi er hann hélt á í rofa
er setur sniglinn, sem flytur fisk
úrgangínn úr fiskvinnslustöðinni
í gang. Jóhanni tókst að rjúfa
sambandið með öryggisrofa. En
þá var hannn orðinn fastur og
gat ekki hreyft sig fyrr en að
honum var komið um klukku-
stund síðar. Hann var fluttur í
sjúkrahúsið í SandgerðL Var
hann mikið marinn og fótbrotinn,
og meiðsli hans ekki fullkönnuð.
Fyrsti humarinn
AKRANESI, 28. maí. — Fvrstu
bátarnir lönduðú hér í dag og
eru 5 byrjaðir humarvertíðina.
Aflahæstur var Höfrungur I. með
863 kg. Fram hafði 800 kg., Svan
ur 640 kg., Ver 556 kg., Reynir
204 kg., en var svo óheppinn að
varpan rifnaði. Þetta er allt slit-
inn humar. — Humarbátarnir
eru skyldaðir til að koma inn
og landa a.m.k. fjrrir hádegi á
föstudegi, því ekki er tekið á
móti humar yfir helgina.
Bakkzf/ói
'aróur
Varpa Altershofs fundin innan línu
í FYRRADAG um hádegið
fann varðskipið Þór undir
stjórn Jóns Jónssonar, skip-
herra, vörpuna af enska togar
anum Aldershot á þeim stað
er talið var að skipið hefði á
sínum tíma verið staðið að
ólögle,gum veiðum, en það
lenti síðan, sem kunnugt er, í
hatrammri andspyrnu við land
helgisgæzluna og var fylgt
hálfa leið til Færeyja áður
en tækist að snúa því til ís-
lenzkrar hafnar og taka mál
skipstjórans fyrir.
Varpan fannst skammt inn-
an við fiskveiðilínuna og var
enn lifandi fiskur í pokanum
og báðir vírar greinilega
höggnir. Á hlera vörpunnar
mátti lesa síðari hluta nafns
togarans — shot, sem skrifað
var á hlerann. Þá er það
greinilegt að höggvið hefir
verið á báða víra vörpunnar.
Þór mun innan skamms
koma með vörpuna hingað til
Reykjavíkur. Og þar verða
sjópróf.
Svo sem kunnugt er hafði
skipstjórinn á Aldershot bor-
ið fyrir rétti að hafa misst
vörpu sína út af Langanesi,
en það var ein af forsendum
þess að ekki sannaðist á hann
landhelgisbrot. En bæði hann
svo og saksóknari áfrýjuðu ,il
hæstaréttar.
í gær var varðskipið Þór að
taka upp netahnúta norður á
Skagafirði en þar misstu
trillusjómenn eitthvað af net-
um undir ísinn, er hann barst
að landi.