Morgunblaðið - 13.06.1965, Page 16
16
MOHGUNBLADID
Sunnudagur 13. júní 1965
Útgefandi:
Framkvæmdastjóri:
Kitstjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Auglýsingar:
Ritstjórn:
Auglýsingar og afgreiðsla:
Áskriftargjald kr. 90.00
í lausasölu kr.
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6.
Aðalstræti 6. Sími 22480.
á mánuði innanlands.
5.00 eintakið.
SAMNINGA VIÐ-
RÆÐURNAR
Aparnir í Bronx dýragarðinum og sjónvarpstæki þeirra.
Aparnir og sjónvarpið
Þeir hættu öllum illindum
þegar þeir fengu sjónvarp
f Bronx ðýragarðinum í
New York eru fjórir górillu
apar. Þeir eru allir fæddir í
Kongó, og voru 12 til 18 mán
aða er þeir voru fangaðir. Nú
er einn þeirra sex ára, tveir
15 og einn 17.
Það hefur lengi borið á
vanstillingu hjá öpunum þeg
ar þeir voru teknir í hús á
haustin. Hefur þeim komið
illa saman á veturna, þeim
hefur leiðst í búrum sínum
eftir að hafa leikið lausari
hala .á sumrin. En í vetur sem
leið gegndi allt öðru málL
Þeir höfðu sjónvarp og undu
sér veL
Enginn man nú langur hver
átti hugmyndina aö því að
satja upp sjónvairpstæki við
apaibúrið. En því var komið
milli grindanna að framam og
glerveggsins hjá áhorfendia-
svæðinu. Og þegar kveikit var
á sjómvairpsitækLniu urðu gór-
illu apairnir furðu loistnir. Og
framkoma þeirra tó'k mikhim
breytingum. Þeir hættu öll-
um illindum og rifrildi, hættu
að ráfa eirðarlausiir um og
leita að bittoeini. Það var a’ð-
eins stærsti apinn, sem öðru
hvoru sneri frá sjónvairpiinu
og tók upp fyirii illyndi. En
talsmaður dýraigairðsins, Jos-
eph A. Davis, segir að það
hafi eingöingu verið á aiugiýs-
ingatímium.
Uppáhalds daigskrá górilla
apanna voru þegar mikil og
hröð hreyfing var á sjónvarps
skermimim. Þetta gerðist í
margskonar dagskrárliðum,
edns og til dæmis kúreka- og
indíánamyndum eöa dans-
mynduiin.
í næsta búri við górilla
apana voru onangutan apar.
Þeir gátu auðveldlega séð
sjónvarpsdagsikránia, en höfðu
engan áhiuga.
Dr. John T. Emlen, prófes-
son í dýrafræði við Wisoans-
in hásikólan í Madison, segir
aðspurður að hann hafi oft
heyrt um önnur dýr, til
daemiis hunda og ketti, sem
hafi haift áhuga á sjónvarpi.
Qg ýmsir bœndur hafi komið
fyrir sjónvarpstækjum í fjós-
urn til að róa kýrnar.
Nú er búi'ð að hleypa górillu
öpumum út úr toúrum símum,
og enu þeir allan daiginm úti
undix beru lofti. Fá þeir ekki
að horfa á sjónvarp fyirr en
í haust. En suimardiagskráin
er hvort eð er að mikilu leyti
endurfcekning á fyrri mynd-
um.
(Úr New York Times)
TVTokkuð þokar áfram í
’ samningaviðræðunum um
kaup og kjör. Norðurlandsfé-
lögin eru sem óðast að stað-
festa samninga þá, sem full-
trúar þeirra gerðu hér í
Reykjavík á annan í hvíta-
sunnu, og hefur samkomulag-
ið mælzt vel fyrir þar. Af-
staða verkalýðsfélaganna á
Austfjörðum er enn nokkuð
óljós, en skýrist væntanlega
nú um helgina. Það væri vissu
lega illa farið, ef átök yrðu
milli vinnuveitenda og verka
lýðsfélaga á Austfjörðum nú.
þegar síldarvertíðin er að
komast í fullan gang og
mundi valda verkafólki á
Austurlandi og byggðarlaginu
sjálfu miklu tjónL
Nú hefur fyrsta verkalýðs-
félagið í Reykjavík náð samn
ingum og er það Iðja, félag
verksmiðjufólks. Samningar
þeir, sem Iðja gerði, byggjast
í höfuðdráttum á því sam-
komulagi, sem gert var fyrir
norðan, 45 stunda vinnuviku
og 4% grunnkaupshækkun.
Er þess að vænta, að fleiri
. verkalýðsfélög hér sunnan-
lands fylgi nú í kjölfar og
ljúki samningum sínum.
Samningaviðræður við Dags
brún standa enn, og er ekki
óeðlilegt þótt þær taki nokk-
urn tíma. Margt þarf að ræða
og mörg atriði enn lítið unn-
in. Mestu máli skiptir, að báð
ir aðilar vinni að samninga-
viðræðum með falslausum á-
setningi um að komast að hag
kvæmri niðurstöðu, sem
byggi á þeirri grundvallar-
nauðsyn að halda verðbólg-
unni í skefjum, jafnframt því
- sem hagur láglaunamanna
rerði bættur svo sem kostur
er.
Ákvörðun Dagsbrúnar um
stöðvun allrar yfirvinnu mun
vafalaust valda nokkrum
erfiðleikum í ýmsum atvinnu
greinum. í því sambandi
mega menn þó hugleiða
hversu gjörólíkt andrúmsloft
ríkir nú við samningaviðræð-
ur samanborið við það, sem
tíðkazt hafði hér fram að
- júnísamkomulaginu. Áður
var verkfalli umsvifalaust
skellt á er samningstími rann
út ,og samkomulag hafði ekki
náðst. Að undanteknu verk-
falli fámenns hóps á kaup-
skipaflotanum hefur slíkt
ekki gerzt nú og lofar það
góðu um gagnkvæma lausn
deilunna*-
FERÐIZT
UM ÍSLAND
]\Tú fer í hönd tími sumar-
leyfa og ferðalaga. Þús-
undir íslendinga taka sig upp
með fjölskyldur sínar og
leggja land undir fót ýmist út
í hinn stóra heim eða hér inn
anlands.
Hinar tíðu utanferðir ís-
lendinga eru ánægjulegur
vottur þeirrar velmegunar,
sem ríkjandi er hér á landi.
Þrátt fyrir allan barlóminn
virðist mikill fjöldi íslend-
inga hafa góð efni á því að
litast um úti í heimi og sífellt
fjölgar ferðum til fjarlægari
landa, Austurlanda, Afríku
og jafnvel kringum hnöttinn.
Fyrir þjóð eins og okkur,
sem búsett er á eyju nyrzt í
Atlantshafi er vissulega mikil
vægt að fylgjast vei með því
sem gerist hjá nágranna- og
vinaþjóðum okkar, fylgjast
með þeim straumum og stefn
um sem þar eru uppi hverju
sinni. Auk þeirra ánægju-
stunda, sem þær veita þátt-
takendum, þjóna sumarleyfis
ferðir íslendinga þeim mikil
væga tilgangi að viðhalda lif
andi sambandi við umheim-
inn, framfarir og nýjungar,
sem þar verða.
Hins vegar er ekki ólíklegt,
að svo sé um marga, sérstak-
lega af yngri kynslóðinni, að
þeir hafi ferðast meir erlend
is en í sínu eigin landi. Þótt
gagnlegt sé að þekkja önnur
lönd er þó mikilsverðara að
þekkja sitt eigið. Full ástæða
er til að hvetja fólk til að nota
sumarleyfi sín til þess að
kynnast betur landi <$g þjóð,
starfsháttum og lifnaðarhátt-
um í fjarlægari byggðarlög-
um.
Það fólk, sem býr hér við
Faxaflóa hefur vafalaust farið
mikið um Suður Vestur- og
jafnvel Norðurland, sem
lengi hefur verið vinsælt hjá
ferðamönnum hér.
Ferðir til Vestfjarða og
Austurlands hafa líklega ver-
ið færri en virðast nú vera
að aukast. Bæði þessi byggð-
arlög búa yfir sérstæðri og
stórbrotinni náttúrufegurð,
sem enginn skyldi fara á mis
við. Þá er ekki síður mikils
vert fyrir fólkið hér í þétt-
býlinu að kynnast lifnaðar-
háttum og viðhorfum fólks-
ins í þessuna byggðarlögum.
Slíkt stuðlar að auknum skiln
ingi meðal fólksins sem býr
í þéttbýlinu og hins sem lifir
við fámennið.
GISTIHÚS ÚTI
Á LANDI
jPrlendir ferðamenn koma
nú hingað í sífellt stærri
hópum víðs vegar að úr heim
inum. Á síðustu árum hefur
aðstaða okkar til þess að veita
þessum gestum okkar sóma-
samlega aðstöðu og þjónustu
gjörbreyzt.
Mikil breyting hefur orðið
til batnaðar í gisiN,5stöðu hér
í Reykjavík og með þeim
framkvæmdum, sem í gangi
eru og fyrirhugaðar í þeim
efnum, virðist vel séð fyrir
þörfum Reykjavíkur á þessu
sviði.
Nú ber hins vegar nauðsyn
til að hefjast handa um stór-
átök í byggingu gistihúsa úti
á landsbyggðinni. A.m.k. eitt
stórt og fullkomið gistihús
verður að vera í hverjum
landshluta.
Mývatn hefur verið mjög
vinsæll staður hjá erlendum
ferðamönnum, enda er nátt-
úrufegurð þar mikil. En full
ástæða er til að byggja upp
fleiri staði til heimsóknar
fyrir erlenda ferðamenn og
má í því sambandi sérstaklega
benda á nauðsyn þe£» að
byggja Snæfellsnes upp í rík-
ari mæli fyrir ferðamenn. Þar
er enginn skortur náttúrufeg
urðar en þar vantar betri að-
stöðu til þess að taka á móti
ferðamönnum.
Æskilegast er að áhuga-
menn á hverjum stað bindist
samtökum um að koma þess-
um málum í betra horf, það
tryggir nauðsynlega um-
úyggju og hagkvæmni í
rekstrL
Fríðargæsín-
sveitir SÞ ófram
ó Kýpnr?
S.Þ., New York, 11. júní,
AP. NTB.
U THANT, framkvæmdastjórl
Sameinuðu Þjóðanna, lagði til í
dag að friðargæzlusveitir sam-
takanna yrðu áfram á Kýpur sex
mánuði til viðbótar, en þær
hefðu samkvæmt fyrri samning-
um átt að hverfa brottu 26. júní.
Sagði U Thant lönd þau sem
lagt hefðu friðargæzlusveitunum
til mannafla hafa lýst sig fús
til þess að ljá hann áfram. S.Þ.
hafa haft friðargæzlusveitir á
eynni allt síðan í marz í fyrra
og hefur dvalartími þeirra fjór-
um sinnum verið framlengdur,
um þrjá mánuði í senn.
U Thant sagði að lítið hefðl
miðað í átt til samkomulagá
milli Grikkja og Tyrkja á eynni
og taldi allar horfur á að þar
kæmi tii átaka ef ekki nyti við
hertnanna og lögregluliðs S.Þ.